Erlent

Rúm­lega milljón Co­vid-and­lát í Banda­ríkjunum

Atli Ísleifsson skrifar
Fyrsta staðfesta Covid-tilfellið í Bandaríkjunum var skráð 20. janúar 2020 eftir að 35 ára maður flaug til Seattle frá kínversku borginni Wuhan.
Fyrsta staðfesta Covid-tilfellið í Bandaríkjunum var skráð 20. janúar 2020 eftir að 35 ára maður flaug til Seattle frá kínversku borginni Wuhan. Getty

Bandaríkjastjórn hefur tilkynnt að skráð dauðsföll í landinu sem rakin eru til Covid-19 séu nú rúmlega ein milljón.

Joe Biden Bandaríkjaforseti hefur fyrirskipað að flaggað verði í hálfa stöng í landinu til að minnast hinna látnu, að því er segir í frétt BBC.

Skráður fjöldi látinna er hvergi hærra í heiminum, þó að Alþjóðaheilbrigðismálastofnunin telji að raunverulegur fjöldi látinna kunni að vera miklu hærri í einhverjum öðrum löndum.

Alls hafa 80 milljónir Covid-tilfella verið skráð í Bandaríkjunum frá upphafi faraldursins, en íbúar Bandaríkjanna telja um 330 milljónir.

Fyrsta staðfesta Covid-tilfellið í Bandaríkjunum var skráð 20. janúar 2020 eftir að 35 ára maður flaug frá kínversku borginni Wuhan til Seattle á vesturströnd Bandaríkjanna.

Í Bandaríkjunum hafa flest Covid-dauðsföll verið skráð í Kaliforníu, eða um 90 þúsund talsins. Í Texas eru dauðsföllin skráð 86 þúsund, í Flórída 74 þúsund og í New York 68 þúsund. Sé tillit tekið til höfðatölu eru dauðsföllin flest í ríkjunum Mississippi og Arizona.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×