Stunguárás við Skúlagötu
1 2 3 ›
Segir kraftaverk að sonur sinn sé á lífi „Mig hefur lengi langað að koma ýmsu á framfæri en ég hef hvorki treyst mér til né haft áhuga að ræða þetta eins og nú. Það brýtur í mér hjartað að nú, fjórum árum seinna, er ung manneskja dáin eftir hnífaárás, og hún átti allt lífið eftir,“ segir Anna María De Jesus, móðir átján ára pilts sem varð fyrir grófri hnífaárás af hálfu unglingsstúlku í apríl árið 2020. Innlent 8.9.2024 11:31
„Þetta má aldrei gerast aftur“ Forseti Íslands kallar eftir samstilltu þjóðarátaki gegn ofbeldi í kjölfar andláts Bryndísar Klöru Birgisdóttur, sem stungin var til bana á Menningarnótt. Opin minningarstund var haldin í Lindakirkju í dag þar sem fólk gat heiðrað minningu Bryndísar Klöru og veitt sorg sinni útrás. Innlent 7.9.2024 19:19
„Við erum öll harmi slegin“ Halla Tómasdóttir, forseti Íslands, segir nauðsynlegt að ráðast að rótum vandans vegna þeirra sorglegu atburða sem hafa átt sér stað í samfélaginu undanfarið. Íslendingar þurfi að gerast „riddarar kærleikans“ og gera kærleikann að eina vopninu í samfélaginu. Innlent 7.9.2024 12:21
Opna dyrnar til að minnast Bryndísar Klöru Í ljósi djúprar sorgar og ákalls samfélagsins um að heiðra minningu Bryndísar Klöru Birgisdóttur mun Lindakirkja í Kópavogi opna dyr sínar fyrir almenning á morgun laugardaginn 7. september frá klukkan 12 til 17. Þá eru liðnar tvær vikur frá voðaverkinu. Innlent 6.9.2024 15:45
Vilja sýna hluttekningu með frestun á stóru balli Skólameistari Fjölbrautarskólans við Ármúla hefur ekki orðið var við hnífaburð nemenda í skólanum. Hann telur nemendur orðna það þroskaða að átta sig á afleiðingum sem slíkt gæti haft í för með sér. Stóru nýnemaballi hefur verið frestað um eina til tvær vikur. Innlent 5.9.2024 15:49
Samfélag þar sem börn bana hvort öðru Mikill harmleikur hefur skekið landið okkar undanfarna daga. Ótímabært og ólýsanlega hryllilegt dauðsfall ungrar stúlku eftir banvæna hnífaárás af hálfu annars ungmennis á síðastliðinni Menningarnótt. Hún hefur nú verið borin til grafar. Skoðun 5.9.2024 09:02
Hetja sem muni bjarga mörgum mannslífum í framtíðinni Bryndís Klara Birgisdóttir hafði hlýja nærveru, var augasteinn foreldra sinna og ömmu- og afabarn af bestu gerð. Góð vinkona, sönn og heil. Innlent 4.9.2024 15:09
Vistunardagar barna í gæsluvarðhaldi 520 á árinu Forstjóri Barna- og fjölskyldustofu segir gríðarlegan vanda ríkja á Stuðlum, sérstaklega í neyðarvistun. Vistunardögum barna í gæsluvarðhaldi hefur fjölgað verulega frá árinu 2022. Hún segir álag á neyðarvistuninni valda því að ekki er hægt að sinna meðferðarhluta Stuðla eins vel og áður. Innlent 3.9.2024 21:06
Boða hertar aðgerðir gegn vopnaburði Ríkisstjórnin boðar hertar aðgerðir gegn vopnaburði ungmenna og hefur skipað starfshóp sem á að skila tillögum að aðgerðum á næstu dögum. Dómsmálaráðherra segir brýnt að bregðast við og svara ákalli þjóðarinnar. Lögregla hefur aldrei lagt hald á eins mikið magn hnífa og annarra vopna og síðustu ár. Innlent 3.9.2024 19:33
Nota málmleitartæki á busaballi MR Notast verður við málmleitartæki í öryggisgæslu á busaballi Menntaskólans í Reykjavík sem fer fram á fimmtudag. Rektor skólans segir viðbótina gerða til að ungmenni á ballinu upplifi sig örugg. Innlent 3.9.2024 16:57
„Ég ætla ekki að fara með þér niður í bæ ef þú ert með hníf“ Grímur Grímsson yfirlögregluþjónn segir mikilvægt að skólasamfélag, heimilin og allt samfélagið komi að þjóðarátaki gegn vopnaburði og ofbeldi meðal ungmenna. Jafningjastuðningu sé einnig mikilvægur. Besta forvörnin fyrir ungmennin sé þó alltaf að ganga ekki með vopn á sér. Afleiðingarnar af því geti verið svo alvarlegar. Innlent 3.9.2024 15:01
Stuðlar orðnir að gæsluvarðhaldsfangelsi fyrir börn Dómsmálaráðherra segir brýnt að bregðast við stöðu sem upp sé komin á Stuðlum sem nái ekki að sinna hlutverki sínu sem meðferðarúrræði vegna þess að meðferðarheimilið sé orðið að gæsluvarðhaldsfangelsi. Hún hefur mikla trú á samfélagslögreglu til að bregðast við vopnaburði barna. Innlent 3.9.2024 14:06
Skýr mynd komin af atburðum á Skúlagötu Lögregla telur sig vera komna með skýra mynd af atburðum á Skúlagötu á menningarnótt, þegar sautján ára stúlka varð fyrir stunguárás sem dró hana til dauða. Innlent 3.9.2024 14:00
Fundaði með ráðherrum vegna vopnaburðar ungmenna Sigríður Björk Guðjónsdóttir ríkislögreglustjóri segir nauðsynlegt að setja aukinn kraft í aðgerðir og forvarnir til að sporna gegn aukinni ofbeldishegðun og vopnaburði barna sem vart hefur orðið við að undanförnu. Sigríður fundaði með ráðherrum ríkisstjórnarinnar að loknum ríkisstjórnarfundi í morgun þar sem kynntar voru tillögur að frekari aðgerðum til að bregðast við þeirri stöðu sem upp er komin. Innlent 3.9.2024 13:12
Af hverju bíður barnið? Voveiflegir atburðir hafa gerst í okkar samfélagi. Megi þau óafturkræfu áföll sem orðið hafa verða til raunverulegra samfélagslegra breytinga. Við höfum talað um geðheilbrigðismál barna og fullorðinna árum og áratugum saman. Þrátt fyrir veljvilja flestra breytist allt of lítið og of hægt. Skoðun 3.9.2024 07:31
„Við þurfum að læra af öðrum þjóðum“ Hlynur Snorrason, formaður félags yfirlögregluþjóna, segir það ekki of seint að bregðast við ógnvænlegri þróun þar sem ungmenni beita vopnum í auknum mæli og að allt samfélagið þurfi að leggjast á eitt til að sporna gegn þessu. Mikilvægt sé að draga lærdóm frá öðrum þjóðum. Innlent 2.9.2024 22:03
Samfélagið einkennist af spennu sem brýst út í ofbeldi „Ég man í mínu ungdæmi, við strákarnir vorum með hnífa. Við vorum með dálka, meira að segja mjög hættulega dálka. Fengum þetta frá foreldrum í afmælisgjöf eða eitthvað slíkt. Það er ekkert nýtt að það séu hnífar í umhverfi okkar. Notuðum þá til að tálga og gera alls konar hluti en það hvarflaði ekki að okkur að beina þessu gegn öðrum. Þar er ákveðin breyting sem hefur átt sér stað.“ Innlent 2.9.2024 18:38
Útskýrir hvers vegna hann mætti með hníf í skólann Landsliðsmarkvörður í handbolta lýsir því að hafa verið ungi strákurinn sem mætti með hníf í skólann á sínum tíma. Honum hafi liðið eins og allir í kringum sig gengju með hnífa og því gripið einn sjálfur. Þá líkt og nú hlusti enginn á börnin sem umfram allt þurfi að umvefja ást. Lífið 2.9.2024 14:36
Mættu í bleiku til að heiðra minningu Bryndísar Klöru Verzlingar mættu í bleiku í dag til að heiðra minningu Bryndísar Klöru Birgisdóttur, sautján ára stúlku sem lést af sárum sínum á föstudag. Bleikur var hennar eftirlætislitur. Forseti nemendafélagsins í Verzlunarskólanum segir að nemendur og kennarar séu í sárum og hafi viljað senda frá sér falleg skilaboð. Hann segir þörf á fræðslu um ofbeldi á landsvísu. Innlent 2.9.2024 11:45
Leggja aukinn þunga í að rannsaka ásetning hins grunaða Lögregla leggur nú áherslu á að kanna ásetning drengsins sem grunaður er um að hafa stungið þrjú ungmenni á menningarnótt, með þeim afleiðingum að sautján ára stúlka lést. Málið hefur hreyft við þjóðinni og á samfélagsmiðlum biðlar fólk til ungmenna að hætta hnífaburði. Innlent 1.9.2024 20:03
Fengu óljósar ábendingar um hefndaraðgerðir Lögreglu bárust óljósar ábendingar úr ýmsum áttum um helgina um mögulegar hefndaraðgerðir vegna stunguárásarinnar í Skúlagötu á Menningarnótt þar sem 17 ára stúlka lét lífið. Áttu hefndaraðgerðirnar að fara fram í Mosfellsbæ þar sem bæjarhátíðin Í túninu heima er haldin. Innlent 1.9.2024 18:48
Taka höndum saman gegn hnífaburði: „Þú ert aumingi“ Skýr skilaboð berast frá samfélagsmiðlastjörnum þessa dagana vegna fréttaflutnings og umræðu um aukinn hnífaburð ungmenna og þess skaða sem hann veldur: þeir sem bera hnífa úti á lífinu eru aumingjar og eiga sér engar málsbætur. Innlent 1.9.2024 13:18
„Hún var hjartahlýjasta og saklausasta mannveran“ „Hún var hjartahlýjasta og saklausasta mannveran sem hefur stigið á þessari jörð. Hún var of góð, trúði engu slæmu upp á aðra og var ljósberi fyrir alla sem henni kynntust.” Þetta skrifar Birgir Karl Óskarsson, faðir hinnar sautján ára gömlu Bryndísar Klöru sem lést af sárum sínum síðastliðið föstudagskvöld eftir að hafa orðið fyrir stunguárás í miðborg Reykjavíkur á Menningarnótt. Innlent 1.9.2024 00:15
Stúlkan er látin Stúlkan sem var stungin með hnífi í miðborginni síðastliðið laugardagskvöld er látin. Hún lést af sárum sínum á Landspítalanum í gærkvöld. Hún hét Bryndís Klara Birgisdóttir og var 17 ára. Innlent 31.8.2024 12:57
Ábyrgðin liggi fyrst og fremst hjá foreldrum Drengurinn sem er í haldi vegna stunguárásar á menningarnótt hefur verið fluttur á Hólmsheiði vegna líflátshótana. Ráðamenn vilja auka sýnileika lögreglu vegna ofbeldis unglinga en lögreglumaður ítrekar að foreldrar beri fyrst og síðast ábyrgð á börnum sínum. Innlent 30.8.2024 21:00
Drengurinn fluttur á Hólmsheiði til að tryggja öryggi hans Sextán ára drengur sem sætir gæsluvarðhaldi vegna gruns um að hafa stungið þrjú á menningarnótt er nú vistaður í fangelsinu á Hólmsheiði. Páll Winkel fangelsismálastjóri segir Fangelsismálastofnun ekki vista börn í fangelsum sínum nema það sé í samræmi við hagsmuni barnsins. Innlent 30.8.2024 13:26
Vill auka sýnileika lögreglu vegna stunguárása Bjarni Benediktsson, forsætisráðherra, segir ríkisstjórnina harmi slegna yfir stunguárásinni á menningarnótt. Hann vill hraða fyrirhuguðum aðgerðum er miða að því að auka sýnileika lögreglu. Innlent 30.8.2024 12:13
Stúlkan enn í lífshættu Sextán ára piltur var í dag í Héraðsdómi Reykjavíkur úrskurðaður í áframhaldandi gæsluvarðhald til 26. september á grundvelli almannahagsmuna vegna stunguárásarinnar í Skúlagötu á Menningarnótt. Innlent 30.8.2024 11:49
Bera fyrir sig að hinir krakkarnir séu með hníf Lögreglan telur að stórfellt átak þurfi til að taka á hnífaburði ungra barna. Dæmi er um að börn gangi um með rafvopn og piparúða. Einnig hefur borið á því að ungmenni mæti með hnífa í skólann. Innlent 29.8.2024 19:29
Starfsfólk í skólum muni leggja þunga áherslu á að stöðva vopnaburð barna Helgi Grímsson, sviðsstjóri skóla- og frístundasviðs í Reykjavík, hvetur foreldra til að ræða við börn sín um vopnaburð og hversu hættulegt það er að ganga með hníf á sér. Hann segir að næstu daga muni starfsfólk í skóla- og frístundastarfi leggja þunga áherslu á að stöðva hnífaburð barna. Innlent 29.8.2024 16:33