Faraldur kórónuveiru (COVID-19)
46 47 48 49 50 51 52 53 54 … 334 ›
Jómfrúin óskar líka eftir undanþágu Rekstraraðilar Jómfrúarinnar í Lækjargötu hafa óskað eftir undanþágu frá takmörkunum á samkomum vegna Þorláksmessu. Jakob E. Jakobsson, eigandi Jómfrúarinnar, segir beiðni veitingastaðarins fullkomlega sambærilega þeim undanþágum sem hafi verið veittar. Viðskipti innlent 22.12.2021 12:54
Aldrei hafa jafn margir greinst kórónuveiruna á landamærum Aldrei hafa jafn margir greinst kórónuveiruna á landamærum en í gær en um helmingur þeirra sem greindist með veiruna í gær var fullbólusettur. Sóttvarnalæknir telur viðbúið að fleiri fullbólusettir greinist með kórónuveiruna samhliða útbreiðslu ómíkrónafbrigðis veirunnar. Aðeins einn hefur þurft að leggjast inn á sjúkrahús hér á landi með ómíkronafbrigðið. Innlent 22.12.2021 12:12
Hröð fækkun nýsmitaðra vekur vonir um stutta bylgju í Suður-Afríku Verulega hefur dregið úr fjölda nýsmitaðra undanfarna daga. Sérfræðingar segja það mögulega til marks um að faraldur ómíkron-afbrigðis kórónuveirunnar hafi þegar náð hámarki en afbrigðið greindist fyrst þar í landi. Erlent 22.12.2021 11:00
267 greindust innanlands 267 greindust með kórónuveiruna innanlands í gær. 111 af þeim 267 sem greindist innanlands í gær voru í sóttkví við greiningu, eða 42 prósent. 156 voru utan sóttkvíar, eða 58 prósent. Innlent 22.12.2021 10:57
Hafa þurft að loka deildum á leikskólum í Hafnarfirði vegna smita Loka hefur þurft deildum á leikskólunum Hraunvallaskóla og Stekkjarási í Hafnarfirði vegna kórónuveirusmita sem þar komu upp. Fjöldi barna og starfsmanna leikskólanna eru nú í sóttkví vegna þessa. Innlent 22.12.2021 10:09
Gagnrýnir aðgerðaleysi til að mæta þeim sem mest missa vegna sóttvarna Borgarstjóri segir aðgerðir ríkisstjórnar til að mæta fólki og fyrirtækjum vegna hertra sóttvarnaaðgerða ekki nógu skýrar. Óljóst sé hvort standi til að koma til móts við fólk og fyrirtæki sem hljóti skaða af sóttvarnaaðgerðum. Innlent 22.12.2021 10:01
Frakkar gera ráð fyrir allt að 100 þúsund greiningum á dag Olivier Veran, heilbrigðisráðherra Frakklands, segir mögulegt að brátt muni 100 þúsund einstaklingar greinast daglega með Covid-19 í landinu en fjöldinn er nú í kringum 70 þúsund. Erlent 22.12.2021 09:57
Þingmenn vilji vita meira um ástæður aðgerða hverju sinni Þingmaður Sjálfstæðisflokksins kallar eftir því að þingmenn fái að vita meira um rökin á bak við þær sóttvarnaaðgerðir, sem eru í gildi hverju sinni. Þá telur hann tíma til kominn að tekið sé meira mið af félagslegum- og andlegum áhrifum við ákvarðanatöku um aðgerðir. Innlent 22.12.2021 08:59
Skattlaust ár fyrir heilbrigðisstarfsfólk í bráðaþjónustu? „Hvernig væri að veita heilbrigðisstarfsfólki í bráðaþjónustu skattlaust ár?“ spyr Ragnar Freyr Ingvarsson, læknir og fyrrverandi yfirmaður Covid-göngudeildar Landspítalans, í Facebook-færslu. Innlent 22.12.2021 08:12
Yfirvöld í Ísrael leggja drög að bólusetningu með fjórða skammtinum Heilbrigðisyfirvöld í Ísrael leggja nú drög að bólusetningarátaki sem mun miða að því að gefa landsmönnum fjórða skammtinn af bóluefnum gegn Covid-19 til að bregðast við mögulegri bylgju sýkinga af völdum ómíkron-afbrigðisins. Erlent 22.12.2021 06:44
„Eins og að loka hænsnahúsi eftir að minkurinn er kominn inn“ Kári Stefánsson, forstjóri Íslenskrar erfðagreiningar, telur að innan tiltölulega skamms tíma verði meira og minna allir Íslendingar búnir að sýkjast af kórónuveirunni. Það sé mögulega eina leiðin til að binda hnút á þennan langdregna faraldur. Innlent 21.12.2021 23:28
Emmsjé Gauti og Jólavinir einnig með undanþágu frá nýjum takmörkunum Tónleikar Emmsjé Gauta og Jólavina verða haldnir með óbreyttu sniði á Þorláksmessu þrátt fyrir hertar samkomutakmarkanir á grundvelli undanþágu sem sóttvarnayfirvöld veittu tónleikahöldurum í dag. Viðskipti innlent 21.12.2021 21:25
Sammála um að skynsamlegt sé að létta álaginu af spítalanum með aðkomu fleiri en ríkisins Sigmundur Davíð Gunnlaugsson, formaður Miðflokksins, spyr hvort til greina komi að ríkið leiti í auknum mæli til annarra þeirra sem geta létt álaginu af Landspítalanum um að veita heilbrigðisþjónustu í ljósi faraldursins og þess álags sem spítalinn er undir vegna hans. Innherji 21.12.2021 20:01
Katrín: Ekki skemmtileg tíðindi í aðdraganda jóla Hertari sóttvarnaaðgerðir taka gildi á miðnætti annað kvöld og gilda í þrjár vikur. Aldrei hafa fleiri greinst á einum sólarhring eins og í gær. Forsætisráðherra telur líklegt að sóttvarnareglur verði hertar á landamærunum um miðjan janúar. Innlent 21.12.2021 19:20
Bubbi fær undanþágu á Þorláksmessu: „Ég trúi á jólasveininn“ Þorláksmessutónleikar Bubba Morthens fara fram með óbreyttu sniði í Hörpu á fimmtudag þrátt fyrir tilkomu hertra samkomutakmarkanna. Hefur fengist undanþága frá reglunum á grundvelli þess að tónleikahaldarar hafi ekki haft rými til að bregðast við breytingunum með svo stuttum fyrirvara. Viðskipti innlent 21.12.2021 18:57
Kaldhæðni örlaganna hjá Viðreisn Þingflokkur Viðreisnar lagði fram tímabæra beiðni á dögunum um sérstaka umræðu um sóttvarnir og frelsi í þinginu. Umræðan er langþráð á þeim vettvangi enda hefur það aldrei verið skrifað inn í starfslýsingu sóttvarnarlæknis að hann skuli einn meta hvort vegur þyngra, smitvarnir eða frelsi fólks. Klinkið 21.12.2021 17:46
Eitt barn á Landspítala með Covid-19 Tólf einstaklingar liggja nú á Landspítalanum vegna Covid-19, þar af eitt barn á barnadeild. Tveir sjúklingar eru á gjörgæslu og annar þeirra í öndunarvél. Af sjúklingunum tólf eru tíu með virka sýkingu og í einangrun. Innlent 21.12.2021 17:19
Forseti Alþingis smitaður af Covid-19 Birgir Ármannsson, forseti Alþingis og þingmaður Sjálfstæðisflokksins, er smitaður af Covid-19. Hann er enn einn þingmaðurinn sem greinist með veiruna undanfarna daga. Innlent 21.12.2021 16:14
Allir tónleikar Jólavina Emmsjé Gauta með óbreyttu sniði og jólunum bjargað Gauti Þeyr Másson, betur þekktur sem Emmsjé Gauti, ætlar að halda ótrauður áfram og mæta til leiks á þrennum tónleikum Jülevenner Emmsjé Gauta annað kvöld. Óvissa ríkti þó um tíma um þrenna tónleika, sem eru á dagskrá hjá honum á Þorláksmessu. Lífið 21.12.2021 15:29
Áramótaskopi Ara frestað og verður febrúarskop Til stóð að Ari Eldjárn stigi á stokk í Háskólabíói um áramót, frá 26. desember til 7. janúar en nýjar og strangar sóttvarnarreglur hafa sett strik í reikninginn. Lífið 21.12.2021 15:29
Gray line léttir undir með slökkviliðinu Sjúkratryggingar Íslands hafa samið við rútufyrirtækið Gray Line um að annast flutninga Covid-smitaðra á höfuðborgarsvæðinu sem ekki þurfa á flutningi í sjúkrabíl að halda. Innlent 21.12.2021 15:26
Bó slaufar sínum Litlu jólum Hinn ástsæli tónlistarmaður Björgvin Halldórsson, eða bara Bó, hefur slegið sína hefðbundnu jólatónleika í Bæjarbíói Hafnarfirði af. Innlent 21.12.2021 14:14
Leikskólakennarar lýsa yfir vonbrigðum með að leikskólum verði ekki lokað Stjórnir Félags leikskólakennara (FL) og Félags stjórnenda leikskóla (FSL) hafa lýst yfir vonbrigðum með þá ákvörðun að leikskólum verði ekki lokað milli jóla og nýárs vegna mikillar útbreiðslu kórónuveirunnar. Innlent 21.12.2021 13:48
Þórólfur vill endurvekja sóttkví við komuna til landsins Þórólfur Guðnason sóttvarnalæknir leggur til að allir farþegar á leið til landsins verði krafðir um neikvætt PCR-próf, sem ekki er eldra en tveggja sólarhringa gamalt, við byrðingu erlendis. Þá skulu allir farþegar með íslenska kennitölu fara í PCR-próf á heilsugæslunni innan tveggja sólarhringa eftir komu og sæta sóttkví þar til neikvæð niðurstaða liggur fyrir. Innlent 21.12.2021 13:30
Reglurnar taka gildi á miðnætti annað kvöld Hertar aðgerðir innanlands taka gildi á miðnætti annað kvöld, þ.e. á Þorláksmessu. Þetta staðfestir Milla Ósk Magnúsdóttir, aðstoðarmaður heilbrigðisráðherra, við fréttastofu. Innlent 21.12.2021 13:18
Veitingastaðir og krár mega hleypa inn til klukkan 21 Veitinga- og skemmtistöðum, krám og öðrum stöðum með vínveitingaleyfi ber að loka klukkan 21 á kvöldin frá og með á miðnætti annað kvöld og næstu þrjár vikurnar. Svo segir í nýrri reglugerð heilbrigðisráðherra sem birt var á vef ráðuneytisins eftir hádegi. Innlent 21.12.2021 13:11
„Þetta verður mikið vesen” Prófessor í líftölfræði segir allt stefna í heljarinnar vesen þegar ómíkronafbrigðið tekur yfir. Það smitast margfalt hraðar heldur en fyrri afbrigði og ef það fengi að geysa óhindrað yrðu svo mörg smit hér að það væri ekki einu sinni hægt að greina þau öll. Innlent 21.12.2021 12:11
Tuttugu mega koma saman og tveggja metra regla Tuttugu manna samkomutakmark og tveggja metra regla tekur gildi á miðnætti annað kvöld. 200 munu fá að koma saman á fjöldaviðburðum þar sem hraðpróf og grímur eru notaðar. Hertar aðgerðir standa í þrjár vikur. Innlent 21.12.2021 12:03
Þórólfur: Óskhyggjan megi ekki blinda okkur sýn Þórólfur Guðnason sóttvarnalæknir segir mikilvægt að óskhyggja blindi ekki okkur sýn þegar lagt sé mat á stöðu kórónuveirufaraldursins og afleiðingar hans. Hann bendir á að tæplega helmingur þjóðarinnar sé móttækilegur fyrir alvarlegum veikindum vegna ómikron-afbrigðsins. Innlent 21.12.2021 11:25
286 greindust innanlands í gær og hafa aldrei verið fleiri 286 greindust með kórónuveiruna innanlands í gær. 106 af þeim 286 sem greindist innanlands í gær voru í sóttkví við greiningu, eða 37 prósent. 180 voru utan sóttkvíar, eða 63 prósent. Innlent 21.12.2021 11:01