Segir af sér vegna lestarslysa Samúel Karl Ólason skrifar 3. nóvember 2026 22:22 Oscar Puente í þinghúsi Spánar í kvöld. AP/Diego Radames Oscar Puente, samgönguráðherra Spánar, ætlar að segja af sér. Hann sagði ekki hvenær hann ætlar að láta af embætti en tilefni afsagnarinnar eru tvö mannskæð lestarslys á undanförnu ári. Slys þessi hafa leitt til spurninga um stöðu umfangsmikils og mikils notaðs lestarkerfis Spánar.
Í ávarpi á þingi undir kvöld sagðist Puente hafa tekið þessa ákvörðun strax eftir síðara slysið, sem varð þann 28. október en þá létust 69 manns. Ráðherrann vildi þó ekki segja af sér strax og vildi takast á við afleiðingar slyssins fyrst. „Samgönguráðherra í ríki eins og Spáni getur ekki setið í embætti eftir tvö svo alvarleg slys á innan við ári,“ sagði Puente á þingi, samkvæmt frétt Reuters. Puente verður ekki í framboði í kosningum í lok mánaðarins. Pedro Sánchez, forsætisráðherra, hefur hrósað Puente fyrir ákvörðunina. „Hann tók ábyrgð, lagði fram lausnir og vék svo til hliðar,“ sagði Sánchez samkvæmt El País. Fleiri þingmenn hafa hrósað Puente fyrir að segja af sér. Meðal annars hafa þeir talað um að sjaldgæft sé að ráðamenn á Spáni axli ábyrgð með þessum hætti. Leiðtogar Fólksflokksins á Spáni hafa ekki talað á þeim nótum. Þeir segja Puente hafa hætt út af væntanlegum kosningum á Spáni. Þá sé það honum að kenna að ástand lestarkerfisins sé eins og það er. Lestarkerfið á Spáni er mjög umfangsmikið og hefur lengi verið talið eitt af krúnudjásnum landsins. Það er næststærsta lestarkerfi heims, á eftir Kína, en í fyrra ferðuðust rúmlega 45 milljónir manna með því. Þar til fyrr á þessu ári hafði mannskætt slys ekki átt sér stað í rúma þrjá áratugi. Rúmlega fimm hundruð manns voru um borð í lestunum tveimur í slysinu í síðasta mánuði en önnur þeirra var kyrrstæð eftir að hafa verið stöðvuð vegna tölvubilunar. Hinni var ekið á þá kyrrstæðu á miklum hraða. Báðar lestir voru á leið frá höfuðborginni Madrid suður til Sevilla í Andalúsíu. Fjörutíu er enn á sjúkrahúsi. Í janúar dóu 46 þegar ein lest fór af teinunum og lenti utan í annarri sem var að koma úr mótstæðri átt.
Spánn Mest lesið „Ég neita að leyfa fæðingarorlofssjóði að stjórna mínu lífi“ Innlent Bárust skrýtin skilaboð þegar sambandinu lauk Innlent Feðgin felldu tár yfir reynslu af meintum eltihrelli Innlent Játaði að hafa makað saur á hurðarhúna Innlent „Hvernig getur svona klikkuð manneskja ekki ákveðið að gera neitt meira?“ Innlent „Rangfærslur og jafnvel hreinar lygar“ Innlent Hafnað með afgerandi hætti Erlent Játar að hafa logið til um nauðgun Innlent Taka u-beygju og vilja að Evrópa kaupi aftur gas af Rússum Erlent Rússar hnýta í Þorgerði Katrínu vegna ummæla um skrif Heimis Más Innlent Fleiri fréttir Bein útsending: Tölur berast frá kjörstöðum vestanhafs Segir af sér vegna lestarslysa Reynslumikill flugmaður við stjórnina Sjö flugvélum lent vegna sprengjuhótana Trúnaðarbrestur á Grænlandi og samþykkt Bandaríkjasamnings sett á ís Hafnað með afgerandi hætti Íslendingur dæmdur fyrir dreifingu barnaníðsefnis í Kanada Rússar gerðu árás á sjúkrahús í Kharkív Framtíð Trump í húfi á kjördegi í Bandaríkjunum Taka u-beygju og vilja að Evrópa kaupi aftur gas af Rússum Nauðlenti vegna sprengjuhótunar „Tíminn er á þrotum“ Sprengjum varpað á skóla meðan fólk beið eftir brauði Kælar matvöruverslana hakkaðir á ný Ríkin sem barist er um: Blá flóðbylgja eða smáskvetta? „Svívirðileg svik“ Netárásir á almannavarnarkerfi Úkraínumanna og Rússa Níu manns um borð þegar flugvél hrapaði á umferðargötu Starfsmenn Disney World handteknir í stóru barnaníðsmáli Yfirhalning hafi verið nauðsynleg „Rannsóknarnefndir verða stofnaðar“ Barist um samband Búlgaríu við Rússland Snerist upp í ofbeldi þegar nóttin skall á Grunaðir um að skipuleggja óeirðir á Tenerife Fengu hjörtu Akureyringa að láni í bandarísku eyðimörkinni Stjórnlagadómstóll Póllands sakar stjórnvöld um valdarán Búa sig undir þriðju helgi mótmæla Samþykkja sölu á hundruðum Patriot-flauga Skoða hvort konum hafi verið smyglað í sumarbúðir kóngafólksins „Ég hafði ekki séð fyrir mér líf eftir þessa nótt“ Sjá meira