Faraldur kórónuveiru (COVID-19)
130 131 132 133 134 135 136 137 138 … 334 ›
Krossar fingur að gripið hafi verið nógu snemma inn í Hópsmit kom upp í Ölfusi í gær þegar fjórir einstaklingar af sama vinnustaðnum greindust með kórónuveiruna. Bæjarstjórinn segir fólk áhyggjufullt en vonar að gripið hafi verið inn í nógu snemma. Þá greindist barn í Barnaskólanum á Eyrarbakka og Stokkseyri með kórónuveiruna á laugardag og eru nú níutíu nemendur og þrjátíu starfsmenn komnir í sóttkví. Innlent 26.4.2021 10:48
104 þúsund Íslendinga fengið einn skammt næstu helgi Í þessari viku munu um 23 þúsund einstaklingar fá fyrri bóluefnaskammt við Covid-19 en í heildina verða 25 þúsund skammtar gefnir í vikunni. Notuð verða bóluefnin frá Pfizer, AstraZeneca og Janssen. Innlent 26.4.2021 08:55
Þórólfur bólusettur með AstraZeneca í vikunni Þórólfur Guðnason sóttvarnalæknir segir að bólusetningar vegna kórónuveirunnar hafi gengið mjög vel hér á landi alveg frá upphafi. Það eina sem hafi staðið á er að fá nægilegt bóluefni til landsins. „Strax og við fáum meira þá er hægt að gefa í. Það er bara þannig og það er mjög ánægjulegt.“ Innlent 26.4.2021 08:23
350.000 greindust með Covid-19 á Indlandi í gær og 2.500 létust Bretar, Bandaríkjamenn og Evrópusambandið undirbúa nú aðstoð til handa Indverjum en kórónuveirufaraldurinn er nú á háalvarlegu stigi í landinu. Tæplega þrjúhundruð og fimmtíuþúsund manns greindust smituð þar í gær og um 2.500 létust. Erlent 26.4.2021 07:30
Hópsýking í Þorlákshöfn og veikindi um borð í Þórsnesi Fjögur ný kórónuveirusmit greindust í Þorlákshöfn í gær. „„Brauðið er ekki komið úr ofninum, það er enn verið að skoða þetta. Það er staðfest að einhverjir eru með smit en þetta er ekki stór hópur,“ hefur Morgunblaðið eftir Elliða Vignissyni, bæjarstjóra í Ölfusi. Innlent 26.4.2021 06:40
Fjöldi barna á Eyrarbakka og Stokkseyri í sóttkví Öll börn í 1. til 6. bekk Barnaskólans á Eyrarbakka og Stokkseyri þurfa að fara í sóttkví til þriðjudags þar sem þau voru útsett fyrir Covid-19 smiti. Nemandi við skólann greindist með Covid-19 á laugardag. Innlent 26.4.2021 02:27
Vill skipta yfir í ódýrari hraðpróf við landamærin Sigríður Á. Andersen, þingmaður Sjálfstæðisflokksins og fyrrverandi dómsmálaráðherra, talaði fyrir einfaldari skimun fyrir Covid-19 við landamærin í Víglínunni á Stöð 2 í dag. Hún vill hætta að skima fólk að lokinni sóttkví við komuna til landsins. Innlent 25.4.2021 20:48
Kallar eftir áfallahjálp fyrir starfsfólk Jörfa „Það eru allir skilningsríkir. Ég held að hugur flestra sé hjá veikum starfsmönnum, veikum börnum, og aðstandendum. Það er eiginlega staðan núna,“ segir Sigurlaug Lára Sigurgeirsdóttir, formaður foreldrafélags leikskólans Jörfa. Innlent 25.4.2021 18:30
Bjartsýn á að ná að aflétta samkomutakmörkunum í sumar Svandís Svavarsdóttir heilbrigðisráðherra er bjartsýn á að 75 prósent þjóðarinnar verði bólusett fyrir lok júní og að í framhaldinu verði hægt að létta á öllum samkomutakmörkunum. Ríflega 25 þúsund manns verða bólusett í Laugardalshöll í næstu viku. Innlent 25.4.2021 18:08
Tekist á um sóttvarnaaðgerðir í Víglínunni Svandís Svavarsdóttir heilbrigðisráðherra fer yfir stöðuna í baráttunni gegn covid 19 veirunni hjá Heimi Má Péturssyni fréttamanni í Víglínunni í dag. Þá takast þær Sigríður Andersen þingmaður Sjálfstæðisflokksins og Inga Sæland formaður Flokks fólksins á um ólík sjónarmið í baráttuni í þættinum. Innlent 25.4.2021 16:30
Sprautur og tölvuleikir í Laugardalshöll Metvika verður í bólusetningum þessa vikuna þegar allt að níu þúsund manns fá sprautu á einum degi. Á sama tíma er von á ríflega sjö hundruð tölvuleikjaspilurum í Laugardalshöllina. Innlent 25.4.2021 13:30
Þrettán greindust innanlands og allir í sóttkví Þrettán greindust með covid-19 innanlands í gær og þar af voru allir í sóttkví. Enginn greindist á landamærum. Þetta kemur fram í bráðabirgðatölum frá almannavarnadeild ríkislögreglustjóra. Innlent 25.4.2021 10:47
Minnst 82 látin eftir eldsvoða á sjúkrahúsi fyrir Covid-19 sjúklinga Minnst 82 eru látin og meira en 100 særð eftir eldsvoða á sjúkrahúsi nokkru í Bagdad, höfuðborg Íraks, sem sérstaklega hafði verið útbúinn til að sinna covid-19 sjúklingum. Upptök eldsvoðans eru rakin til sprengingar súrefniskúts á sjúkrahúsinu. Erlent 25.4.2021 10:43
Abba-æði í Keflavík Abba-æði hefur gripið um sig hjá nemendum Heiðarskóla í Keflavík því þau hafa verið að æfa söngleikinn Mamma Mia og frumsýndu hann á árshátíð skólans. Söngleikurinn verður sýndur fyrir almenning um leið og sóttvarnaryfirvöld leyfa. Innlent 24.4.2021 20:05
Utan sóttkvíar en samt í hálfgerðri sóttkví Sautján smit greindust innanlands í gær og eitt þeirra var sagt hafa verið utan sóttkvíar. Jóhann Björn Skúlason, sem stýrir smitrakningarteymi almannnavarna, segir þó að smitið sem skráð var utan sóttkvíar hafi í raun verið í „hálfgerðri sóttkví.“ Innlent 24.4.2021 19:12
Opna Jörfa að nýju en starfsemin verulega skert Leikskólinn Jörfi í Fossvogi verður opnaður að nýju á mánudag, eftir hópsýkinguna sem braust þar út fyrr í mánuðinum. Starfsemin verður hins vegar verulega skert og nýtt starfsfólk og leikskólastjóri ráðin inn á meðan aðrir jafna sig. Hátt í 75 kórónuveirusmit tengjast beint inn á leikskólann. Innlent 24.4.2021 18:19
Segja faraldrinum lokið í Bretlandi en staðan aldrei verri á Indlandi Þriðja daginn í röð var slegið vafasamt met í fjölda dauðsfalla af völdum covid-19 á Indlandi. Á sama tíma hafa sérfræðingar lýst því yfir að faraldrinum sé lokið á Bretlandi. Erlent 24.4.2021 13:01
Hátt í 75 manns tengdir Jörfa smitaðir Hátt í sjötíu og fimm manns sem tengjast leikskólanum Jörfa hafa greinst með kórónuveirusmit undanfarna daga. Afleysingafólk og starfsfólk af öðrum leikskólum verður fengið til starfa á Jörfa á meðan hinir veiku jafna sig. Innlent 24.4.2021 12:25
Sautján greindust smitaðir og einn utan sóttkvíar Sautján greindust smitaðir af kórónuveirunni innanlands í gær, þar af var einn sem var ekki í sóttkví, samkvæmt bráðabirgðatölum frá almannavörnum. Tveir greindust á landamærunum. Innlent 24.4.2021 10:22
„Algjört kerfishrun“: Kórónuveirufaraldurinn hömlulaus á Indlandi Hæstiréttur Indlands hefur kallað stöðu kórónuveirufaraldursins í landinu „neyðarástand“. En ástandið er verra, segir blaðamaður BBC. „Þetta er algjört kerfishrun,“ hefur hann eftir helsta veirufræðingi Indlands. Erlent 23.4.2021 22:43
Ráðgjafar CDC mæla með áframhaldandi notkun bóluefnisins frá Johnson & Johnson Ráðgjafar bandarísku sóttvarnastofnunarinnar í bóluefnamálum mæla með því að notkun Covid-19 bóluefnisins frá Johnson & Johnson verði haldið áfram. Tíu greiddu atkvæði með tillögunni, fjórir á móti og einn sat hjá. Erlent 23.4.2021 21:11
Jafnóþægilegt í seinni sýnatökunni og þeirri fyrri Um sjötíu manns hafa greinst með kórónuveiruna í tengslum við hópsýkinguna á leikskólanum Jörfa í Reykjavík. Um 150 börn af leikskólanum fóru í seinni skimun á Suðurlandsbraut í dag. Innlent 23.4.2021 21:01
Bar Ananas endurheimtir húsnæðið og opnar á ný Bar Ananas opnaði á ný í kvöld í sama húsnæði og endranær, eftir að hafa legið í dvala í þrjú ár. Barinn, sem er á horni Klapparstígs og Grettisgötu, verður með nýju sniði og í takt við tímann; náttúruvín og kokteilar á krana, segir rekstrarstjóri. Viðskipti innlent 23.4.2021 19:00
Töluvert stærri hópur skikkaður á sóttkvíarhótel Miðað verður við að farþegum verði án undantekninga skylt að dvelja á sóttkvíarhóteli, sé nýgengi smita í upprunalandi þeirra yfir 700 á hverja 100.000 íbúa síðustu tvær vikur. Heilbrigðisráðherra hefur gefið út nýja reglugerð, sem tekur gildi á þriðjudaginn. Innlent 23.4.2021 17:27
Bóluefnið frá Noregi komið til landsins Síðdegis í dag bárust til landsins 16.000 skammtar af bóluefni AstraZeneca sem Norðmenn hafa veitt Íslendingum að láni. Byrjað verður að bólusetja með efninu strax í næstu viku í samræmi við fyrirmæli sóttvarnalæknis um notkun þess. Innlent 23.4.2021 17:11
Telur einsýnt að Svandís sé að skamma Sjallana en ekki sig Helga Vala Helgadóttir þingmaður Samfylkingarinnar segir Svandísi Svavarsdóttur heilbrigðisráðherra vera að tala til Sjálfstæðisflokksins en ekki stjórnarandstöðunnar þegar hún heldur því fram að baráttan við veiruna sé orðin að pólitísku bitbeini. Innlent 23.4.2021 14:17
Að minnsta kosti tveir heimiliskettir á Bretlandseyjum hafa smitast af eigendum sínum Rannsakendur á Bretlandseyjum hafa fundið tvö tilvik þar sem eigendur smituðu kettina sína af SARS-CoV-2. Í báðum tilvikum voru eigendurnir með einkenni Covid-19 þegar kettirnir smituðust. Þeir sýndu sömuleiðis einkenni sjúkdómsins. Erlent 23.4.2021 13:34
Enn annað breskt afbrigði greinst hér á landi Einn einstaklingur greindist með nýtt afbrigði af breska afbrigði kórónuveirunnar. Smitið er rakið saman við smit einstaklings á landamærunum. Afbrigðið hefur ekki greinst áður hér á landi. Þórólfur Guðnason, sóttvarnalæknir segir þetta hafa komið á óvart. Innlent 23.4.2021 13:28
Svandís krossar fingurna og telur ósætti litast af komandi kosningum Svandís Svavarsdóttir heilbrigðisráðherra segist fegin að heyra frá sóttvarnalækni að smitin sem greinist þessa dagana helgist af afmörkuðum hópsmitum af Covid-19. Hún vonast til þess að næstu aðgerðir séu afléttingar frekar en herðingar. Innlent 23.4.2021 12:41
Heildarfjárhæð sekta vegna brota tæpar sex milljónir Heildarfjárhæð sekta vegna brota á sóttvarnalögum frá því kórónuveirufaraldurinn hófst hér á landi nemur tæpum sex milljónum króna. Tæp 70 prósent grunaðra eru karlar og rúm 30 prósent konur á aldrinum 25 til 34 ára. Flest brotin tengjast ferðalögum yfir landamærin. Innlent 23.4.2021 12:35