UNICEF bregst við útbreiðslu COVID-19 á Indlandi og kallar eftir stuðningi Heimsljós 29. apríl 2021 15:00 UNICEF Dauðsföll á Indlandi vegna Covid-19 skipta þúsundum á hverjum sólarhring og spítalar eru löngu orðnir yfirfullir. UNICEF, Barnahjálp Sameinuðu þjóðanna, kallar eftir aukinni neyðaraðstoð til þess að bregðast við hörmungunum sem nú blasa við á Indlandi. Þar er kórónaveiran stjórnlaus um þessar mundir og um 300 þúsund einstaklingar smituðust hvern dag síðastliðna viku. „Það jafngildir að nánast allir íbúar Íslands smitist af COVID-19 á hverjum einasta degi. Dauðsföll á hverjum sólarhring skipta þúsundum og spítalar eru löngu orðnir yfirfullir og geta ekki tekið við fleiri sjúklingum. Áhyggjuefni er einnig að börn og ungmenni eru að veikjast í meira mæli,“ segir í frétt frá UNICEF. UNICEF bregst meðal annars við hörmungunum með því að útvega súrefnisbirgðir, COVID-19 próf, hlífðarbúnað og önnur nauðsynleg hjálpargögn. Neyðarsjóður UNICEF bregst við þegar hættuástand skapast eins og á Indlandi, og hægt er að styðja sjóðinn með frjálsu framlagi hér. Önnur bylgja faraldursins á Indlandi hófst í febrúar, mun skæðari en sú fyrri. UNICEF og önnur hjálparsamtök eru í kapphlaupi við tímann þar sem spítalar eru yfirfullir og súrefni og nauðsynlegar lækningavörur að klárast. „Afleiðingar faraldursins eru skelfilegar fyrir börn í landinu sem hafa misst foreldra og fjölskyldumeðlimi og komast ekki undir læknishendur ef þau veikjast. Óttast er að á Indlandi verði flest dauðsföll barna undir fimm ára vegna raskana á heilbrigðisþjónustu í landinu ef ekki er brugðist við,“ segir UNICEF. Starfsfólk UNICEF á 14 svæðisskrifstofum víðs vegar á Indlandi vinnur að því að bregðast við ástandinu og áhrifum þess á börn. Í forgangi er að: Útvega og koma upp búnaði til súrefnisframleiðslu á spítölum til þess að meðhöndla mjög alvarleg tilfelli; Útvega nákvæmar skimunarvélar á svæðum sem hafa farið hvað verst úti í útbreiðslu; Styðja við og vernda samfélög og framlínustarfsfólk til þess að hægt sé að koma í veg fyrir alvarlega röskun á nauðsynlegri heilbrigðisþjónustu fyrir börn; Styðja við áframhaldandi dreifingu á bóluefnum gegn COVID-19 í gegnum COVAX-samstarfið. Brýnna aðgerða er þörf á Indlandi og UNICEF kallar því eftir auknum stuðningi til þess að útvega og koma þessum lífsnauðsynlega búnaði og hjálpargögnum til skila. Þessi grein er hluti af samstarfi Vísis og utanríkisráðuneytisins um miðlun frétta af þróunarsamstarfi Íslands um allan heim. Fréttin birtist fyrst í Heimsljósi, upplýsingaveitu utanríkisráðuneytisins um þróunar- og mannúðarmál. Þróunarsamvinna Indland Faraldur kórónuveiru (COVID-19) Mest lesið Ótrúlegur árekstur: „Ég sá bara dekk og púströr“ Innlent Fráfarandi starfsmaður Sólheima: „Eins og ég sé að sleppa frá einangruðu einræðisríki“ Innlent Nennti ekki að tala við „atvinnubetlara“ og sagði henni að fokka sér Innlent Vildi kynnast Kristjáni en var ítrekað sagt að „fokka sér“ Innlent Trump-liðar heita hefndum Erlent Reikna með gosi í lok mánaðar Innlent Fara fram á dauðarefsingu yfir Robinson Erlent Yfirlæknir gagnrýnir auglýsingu gegn lyfi við RS-veiru Innlent Skýrt að Ísland sé ekki griðastaður stríðsglæpamanna Innlent Ríkið situr á þúsundum hektara af framræstu votlendi Innlent
Þessi grein er hluti af samstarfi Vísis og utanríkisráðuneytisins um miðlun frétta af þróunarsamstarfi Íslands um allan heim. Fréttin birtist fyrst í Heimsljósi, upplýsingaveitu utanríkisráðuneytisins um þróunar- og mannúðarmál.
Þróunarsamvinna Indland Faraldur kórónuveiru (COVID-19) Mest lesið Ótrúlegur árekstur: „Ég sá bara dekk og púströr“ Innlent Fráfarandi starfsmaður Sólheima: „Eins og ég sé að sleppa frá einangruðu einræðisríki“ Innlent Nennti ekki að tala við „atvinnubetlara“ og sagði henni að fokka sér Innlent Vildi kynnast Kristjáni en var ítrekað sagt að „fokka sér“ Innlent Trump-liðar heita hefndum Erlent Reikna með gosi í lok mánaðar Innlent Fara fram á dauðarefsingu yfir Robinson Erlent Yfirlæknir gagnrýnir auglýsingu gegn lyfi við RS-veiru Innlent Skýrt að Ísland sé ekki griðastaður stríðsglæpamanna Innlent Ríkið situr á þúsundum hektara af framræstu votlendi Innlent