Innlent

Tíu greindust innan­lands og þrír utan sótt­kvíar

Atli Ísleifsson skrifar
Um 6.500 hafa greinst með kórónuveiruna hér á landi frá upphafi faraldursins.
Um 6.500 hafa greinst með kórónuveiruna hér á landi frá upphafi faraldursins. Vísir/Vilhelm

Tíu greindust með kórónuveiruna innan­lands í gær. Sjö þeirra sem greindust voru í sóttkví, en þrír ekki.

Þetta kemur fram í uppfærðum tölum á síðunni covid.is.

191 eru nú í einangrun, en voru 183 í gær. 421 er nú í sóttkví, en voru 408 í gær. 1.063 eru nú í skimunarsóttkví. Þá eru fjórir nú á sjúkrahúsi vegna Covid-19, sami fjöldi og í gær.

Tvö smit greindust á landamærum í gær og er niðurstöðu mótefnamælingar beðið í þeim tilvikum.

Nýgengi á smiti innanlands, þ.e. fjöldi smitaðra á hverja 100 þúsund íbúa undanfarnar tvær vikur, er nú 48,3, en var 45,5 í gær. Nýgengi á smiti á landamærum er nú 3,0, en var 4,4 í gær.

34.492 eru nú fullbólusettir hér á landi og er bólusetning hafin hjá 52.546 til viðbótar.

Alls hafa 6.466 manns greinst með kórónuveiruna hér á landi frá því faraldurinn hófst í lok febrúar á síðasta ári. Þá hafa 29 dauðsföll verið rakin til Covid-19 á Íslandi frá upphafi faraldursins.

Alls voru tekin 1.378 einkennasýni hjá sýkla- og veirufræðideild Landspítalans og Íslenskri erfðagreiningu í gær. Þá voru 488 sýni tekin á landamærunum eða í seinni landamæraskimun og 375 í svokallaðri sóttkvíar- og handahófsskimun.

Fréttin hefur verið uppfærð. 




Fleiri fréttir

Sjá meira


×