
Lýtalækningar

„Þetta var ekki alið upp í mér“
Tilbrigði um fegurð eru nýir þættir sem fóru í loftið á Stöð 2 á miðvikudagskvöldið. Sindri Sindrason hitti hinn 35 ára hjúkrunarfræðing, Viktor Andersen sem hefur farið í fjölmargar fegrunaraðgerðir og er ekki hættur.

Tveggja milljóna króna nefaðgerð í Tyrklandi
Í gærkvöldi fóru af stað nýir þættir á Stöð 2 sem nefnast Tilbrigði um fegurð. Þar er fylgst með lífi Viktors Heiðdal Andersen sem er betur þekktur sem aðgerðadrengurinn.

Situr uppi með „fýlusvipinn“ þrátt fyrir að hafa borgað fyrir aðgerð
Kona sem fór í fegrunaraðgerð til að losna við svokallaðan „fýlusvip“ en sá ekki mun á andliti sínu eftir aðgerðina fær ekki endurgreitt. Þetta er niðurstaða Kærunefndar vöru- og þjónustukaupa.

Bannar öðrum en heilbrigðisstarfsfólki að sprauta í varir
Heilbrigðisráðherra hefur staðfest nýja reglugerð sem kveður á um takmarkanir á útlitsbreytandi meðferðum með fylliefnum. Eftir gildistöku mega aðeins læknar með sérfræðileyfi í húðlækningum og lýtalækningum og annað heilbrigðisstarfsfólk, sem hefur aflað sér fullnægjandi þekkingar, sprauta fylliefnum undir húð.

„Kattarkonan“ látin 84 ára að aldri
Jocelyn Wildenstein, fyrrum milljarðamæringur þekkt sem „kattarkonan“, er látinn 84 ára að aldri. Wildenstein hlaut viðurnefnið „kattarkonan (e. Catwoman)“ vegna einkennandi útlits sökum fjölda lýtaaðgerða á andliti sem hún fór í til að líkjast ketti.

Sér eftir því að hafa látið stækka á sér rassinn
Tónlistarkonan Sza segist hafa gert mistök þegar hún ákvað að skella sér í lýtaaðgerð sem snýr af því að stækka rassinn, nánar tiltekið farið í brasilíska rassalyftingu eða BBL. Í viðtali við Vogue á dögunum segist hún hafa ákveðið að skella sér í aðgerðina því dagleg hreyfing var ekki að skila henni rassinum sem hún óskaði sér.

Kári og Erla vilja 330 milljónir fyrir lúxusíbúð við höfnina
Kári Knútsson, lýtalæknir og hluthafi í Klínikinni Ármúla, og Erla Ólafsdóttir, fyrrverandi bankastarfsmaður, hafa sett íbúð sína við Bryggjugötu í Reykjavík á sölu. Ásett verð er 330 milljónir.

„Það er önnur hver gella með í vörunum“
„Ég held að þetta sé orðið svo algengt í dag. Ólíkegasta fólk er að fara í svona. Ég held líka að Íslendingar séu áberandi mikil hjarðdýr. Ef einhver fær sér þá fá sér allir, því við erum svo fá,“ segir 26 ára gömul íslensk kona sem fer reglulega í varafyllingar og bótox.

Sunneva og Tanja ræða lýtaaðgerðirnar sínar
Áhrifavaldarnir Sunneva Einarsdóttir og Tanja Ýr Ástþórsdóttir segjast báðar hafa gengist undir fjölda lýtaaðgerða frá unga aldri. Vinkonurnar voru gestir í hlaðvarpsþættinum Curly FM, sem er í umsjón Arnars Gauta Arnarssonar, þekktur sem Lil Curly, og Jakobs Jóhanns Veigarssonar, á dögunum.

„Ætlaði mér ekki að fara í lýtaaðgerð til þess að umturna mér alveg“
Judith Jóhannsdóttir, hjúkrunarfræðinemi og tveggja barna móðir, fór í nefaðgerð í Tyrklandi fyrir skemmstu. Hún lýsir blendnum tilfinningum í aðdraganda aðgerðarinnar og segir að sér hafi liðið eins og hún væri að svíkja nefið sitt en hún tók ákvörðun um að breyta því tólf ára gömul.

Húðrútína ungmenna geti valdið skaða til framtíðar
„Ungar stelpur í dag eru ítrekað farnar að hafa meiri áhyggjur af húðinni sinni en nokkurn tímann gæti talist eðlilegt,“ segir Íris Björk Reynisdóttir, förðunarfræðingur og eigandi snyrtivöruverslunarinnar Beautybox, í samtali við Marínu Möndu Magnúsdóttur í nýjasta hlaðvarpsþætti Spegilmyndarinnar.

Hætt á Instagram eftir fullyrðingar um lýtaaðgerðir
Bandaríska leikkonan Erin Moriarty er hætt á Instagram og gagnrýnir fréttakonuna Megyn Kelly harðlega vegna dylgna hennar um að Moriarty hafi gengist undir lýtaaðgerðir.

Segir aukna eftirspurn eftir fituflutningsaðgerðum í kinnum
Þórdís Kjartansdóttir lýtalæknir hjá læknahúsinu Dea Medica segist finna fyrir talsverðri aukningu lýtaaðgerða sem ganga út á að fjarlægja brjóstapúða og setja eigin fitu í staðinn. Þá furðar hún sig á aukinni eftirspurn eftir aðgerðum sem ganga út á að fjarlægja fitu úr kinnum.

„Læknirinn hafði sjaldan séð eins illa farin brjóst“
Óhætt er að segja að gleðigosinn og glamúrdrottningin Evu Ruza Miljevic komi til dyranna eins og hún er klædd sem er eflaust ástæða þess að hún er einn vinsælasti skemmtikraftur landsins. Um þessar mundir deilir Eva með fylgjendum sínum, reynslu sinni af brjóstaminnkunaraðgerð sem hún gekkst nýverið undir.

Dauðsfall konu í rassastækkun orðið milliríkjamál
Embættismenn frá Bretlandseyjum munu funda með kollegum sínum í Tyrklandi eftir að bresk kona lést þegar hún gekkst undir rassastækkun á einkaspítala í Istanbúl.

Setur reglur um hverjir geta sprautað fylliefnum í varir
Willum Þór Þórsson heilbrigðisráðherra hefur samið drög að reglugerð með það að markmiði að takmarka meðferðir til útlitsbreytinga án læknisfræðilegs tilgangs.

Nýtt líf með ný geirvörtu húðflúr
Nú er svokallaður bleikur október og í tilefni af því skoðum við í Íslandi í dag byltingarkennda tækni við að tattúera geirvörtur á ný uppbyggð brjóst kvenna sem misst hafa brjóstin vegna krabbameins og BRCA gensins.

Lítið fjármagn til eftirlits: Fólk tilkynni ólögmæta notkun efna til lögreglu
Forstjóri Lyfjastofnunar hvetur fólk til að tilkynna stofnuninni ef fylliefni valda vandræðum. Litlu fjármagni sé varið í eftirlit með efnunum.

Ætlar að setja reglur um notkun fylliefna með hraði
Heilbrigðisráðherra ætlar að setja reglur um notkun fylliefna á Íslandi. Hann segir að málið verði að vinna hratt og vonast til að á þessu ári verði notkun fylliefna háð skýrum takmörkunum.

Býður upp á bótox án nokkurrar læknismenntunar
Meðferðaraðili í Reykjavík býður upp á bótox þrátt fyrir að vera ekki með læknismenntun. Snyrtifræðingur segist ítrekað hafa tilkynnt stofuna, en að ekkert sé aðhafst.

Fylliefni hættuleg í röngum höndum og ástandið óásættanlegt
Ástandið á fylliefnamarkaðnum er óásættanlegt og frelsið allt of mikið að sögn yfirlæknis hjá Embætti landlæknis. Fylliefni geti verið hættuleg í röngum höndum.

Tekur á móti minnst einum á mánuði vegna mistaka við varafyllingu
Lýtalæknir segir minnst einn á mánuði leita til sín vegna mistaka við varafyllingu. Fagstéttir lýsa yfir þungum áhyggjum af því að heilbrigðisráðuneytið hafi ekki sett reglur um notkun fylliefna þrátt fyrir að bent hafi verið á alvarlega, og í sumum tilfellum hættulega stöðu í áraraðir.

Slegin eftir umfjöllun Kompáss og kallar eftir reglugerð ráðherra
Formaður velferðarnefndar Alþingis hefur sent Willum Þór Þórssyni, heilbrigðisráðherra, skriflega fyrirspurn um hvort hann hyggist skrifa reglugerð um notkun fylliefna og efna til að leysa upp fylliefnin. Hún segist slegin vegna þess sem fram kom í umfjöllun Kompáss í gær.

Í lífshættu eftir fegrunarmeðferð: Sagt að leita ekki til læknis
Á Íslandi eru efni notuð á ólögmætan hátt við fegrunarmeðferðir og ekkert eftirlit er með ófaglærðu fólki sem starfar oft í skjóli villandi starfsheita. Í Kompás er rætt við lækni sem segir markaðinn stjórnlausan og Díönu sem lenti í lífshættu eftir meðferð sem byggði á alvarlegri vanþekkingu.

Snyrtifræðingar vilja reglugerð frá ráðuneytinu
Félag íslenskra snyrtifræðinga gerir alvarlegar athugasemdir við vinnubrögð af því tagi sem lýst er í sjónvarpsþættinum Kompási á Stöð 2 þar sem ófaglærðir sinna fegrunarmeðferðum með fylliefnum. Þetta kemur fram í tilkynningu frá félaginu.

Stjórnlausar fegrunarmeðferðir: Sprauta lyfi sem einungis læknar mega nota
Efni til að leysa upp varafyllingar eru notuð á ólögmætan hátt á snyrtistofum hér á landi. Læknir segir markaðinn með fylliefni stjórnlausan og óttast að illa geti farið.

Tengdi getnaðarlim manns sem hafði skorið hann af
Hannes Sigurjónsson lýtalæknir ræðir við Marín Möndu Magnúsdóttir í hlaðvarpsþættinum, Spegilmyndin, um hin ýmsu fegrunartrend á samfélagsmiðlum og tískubylgjur í fegrunarlækningum.

Opnar sig um líkamsskynjunarröskun og lýtaaðgerðir
Söngvarinn Robbie Williams opnaði sig í síðasta mánuði um glímu sína við líkamsskynjunarröskun og sjálfshatur vegna slæmrar líkamsímyndar. Í gær greindi hann frá því að hann hygðist fara í lýtaaðgerðir til að laga sokkin augu sín.

Draumurinn um minni brjóst varð loksins að veruleika
Júlíanna Ósk Hafberg myndlistarkona setti nýverið af stað söfnun til styrktar brjóstaminnkunaraðgerð sem hún gekkst undir á dögunum. Hún segir stór brjóst oft og tíðum ganga í erfðir og eftirspurn eftir aðgerðum gríðarlegar. Aðgerðin gekk vel.

Brjóstapúðarnir sökudólgurinn í tveggja ára veikindastríði
Ung kona endurheimti heilsu sína og lífsneista eftir að hún lét fjarlægja sílíkonpúða sem höfðu gert hana fárveika í tvö ár. Nú reynir hún að vekja fólk til vitundar um brjóstapúðaveiki (e. Breast implant illness).