Lífið

Kári og Erla vilja 330 milljónir fyrir lúxusíbúð við höfnina

Svava Marín Óskarsdóttir skrifar
Kári og Erla festu kaup á eigninni í desember 2021.
Kári og Erla festu kaup á eigninni í desember 2021.

Kári Knúts­son, lýta­lækn­ir og hlut­hafi í Klínik­inni Ármúla, og Erla Ólafs­dótt­ir, fyrr­ver­andi banka­starfsmaður, hafa sett íbúð sína við Bryggjugötu í Reykjavík á sölu. Ásett verð er 330 milljónir.

Um er að ræða 178 fermetra íbúð á annarri hæð í fjölbýlishúsi við Reykjavíkurhöfn sem var byggt árið 2019. Hjónin festu kaup á eigninni í desember 2021 og greiddu 219 milljónir fyrir.

Í lýsingu eignarinnar kemur fram að mikill metnaður hafi verið lagður í hönnun hússins og ekkert hafi verið til sparað við byggingu þess. Þá opnast lyftan beint inn í íbúðina. Í miðju byggingarinnar er skjólgóður garður sem býður upp á friðsæla og afslappaða stemningu, fjarri amstri borgarlífsins.

Munaður og smekklegheit

Allar innréttingar eru sérsmíðaðar úr amerískri hnotu af ítalska handverkshúsinu Gili Creations. Kvarts borðplata er í eldhúsi og eldhúseyjan er klædd marmaraflísum.

Stofa, eldhús og borðstofa flæða saman í eitt í opnu og björtu rými með lofthæðarháum gluggum og stórbrotnu útsýni yfir höfnina. Á gólfum er gegnheilt burstað planka parket úr eik. Í íbúðinni eru tvö svefnherbregi og þrjú baðherbergi.

Íbúðin er smekklega innréttuð og einkennist af miklum munaði þar sem klassísk hönnun, formfögur húsgögn og listaverk eru í aðalhlutverki. 






Fleiri fréttir

Sjá meira


×