Líklega ekki langt í fyrstu bótoxsprautuna í punginn hér á landi Stefán Árni Pálsson skrifar 6. mars 2026 10:01 Ágúst er ekki byrjaður að sprauta kúnna með bótóxið í punginn en hann sér fyrir sér að sú bylgja mæti hingað til lands eins og allt annað. Ágúst Birgisson lýtalæknir hefur læknað margan manninn og hjálpar líka skjólstæðingum sínum að líta betur út. En hvað er það nákvæmlega sem menn vilja láta laga þegar þeir koma til hans? Eru það augnlokin, maginn eða eitthvað aðeins meira viðkvæmt?
Hödd Vilhjálmsdóttir leit við hjá honum og fékk að kynnast heimi lýtalækninga karlmanna í Íslandi í dag í gærkvöldi. „Algengustu aðgerðirnar fyrir utan bótox eru augnloksaðgerðir, það eru langalgengustu aðgerðirnar hjá karlmönnum,“ segir Ágúst. Stærri aðgerðir eins og andlitslyfting og fitusog á brjóstum eru líka algengar „Svo er það náttúrulega miðjufitan hérna, björgunarhringurinn hjá karlmönnum sem menn vilja gjarnan losna við. Og síðan eftir að fólk grennist mjög mikið og karlmennirnir líka, þá gerum við svuntuaðgerð. Það eru ekki bara konurnar sem fara í svuntuaðgerðir, það eru karlarnir líka sem gera það.“ Húðmeðferðin Propfhilo og örnálameðferðin Skinpen eru vinsælar hjá herrunum. En bótoxið er þó líklega vinsælast. Eða öllu heldur brótoxið. „Karlmennirnir eru miklu erfiðari í fegrunaraðgerðum heilt yfir. Við erum með þykkari húð sem grær verr, skilar verri örum og verður ljótari. Við erum með þykkari vöðva og þeir þurfa miklu meira bótóx. Svo bótóxið jafnvel endist styttra hjá karlmönnum. Þannig að karlmennirnir eru ekki eins og konurnar, langt í frá. Og bótóxið er verið að nota ekki bara í ennið eða í línurnar.“ Eistun fara ekki upp Veraldarvanari menn heimsins eru svo farnir að láta sprauta bótoxi í sig miðja, eitthvað sem kallast scrotox. „Ég er búinn að lesa aðeins um þetta líka. Þetta kemur örugglega hingað líka. Scrotox, það er þá sem sagt vöðvinn í kringum eistun sem getur dregist saman og tekur þá eistun upp þegar það er kalt úti og þess háttar. Þá fara eistun upp sjálfkrafa. Ef þú setur bótóx í vöðvann eða sem sagt í punginn, þá slaknar á þessum vöðva og eistun síga niður og eru þá meira sýnileg og pungurinn þá stærri. Þannig að það nú virkar ekki eins lítill þegar hann skreppur saman,“ segir Ágúst. Það er greinilega til mikils að vinna og líklega ekki langt í fyrstu scrotoxsprautuna á stofunni hjá Ágústi. Hér að ofan má sjá innslagið í heild sinni.
Ísland í dag Lýtalækningar Mest lesið Megas er látinn Lífið Næringarfræðingi brá þegar Simmi Vill tók upp nestið Lífið Guðrún Sóley gengin út Lífið „Einn af fáum lögfræðingum sem heldur upp á siðfræðina“ Lífið Lauren Bennett látin 37 ára að aldri Lífið Harry Styles setti heimsmet Lífið Hvarf vegna athyglisbrests á hæsta stigi Tónlist Það allra besta að gráta í gufu Lífið Listabarn á leiðinni Lífið Stjörnulífið: Bátsferðir og brjóst Lífið Fleiri fréttir Megas er látinn Guðrún Sóley gengin út „Einn af fáum lögfræðingum sem heldur upp á siðfræðina“ Harry Styles setti heimsmet Næringarfræðingi brá þegar Simmi Vill tók upp nestið Það allra besta að gráta í gufu Lauren Bennett látin 37 ára að aldri Listabarn á leiðinni Kenningin um útskiptin miklu sem umbreytti vestrænum stjórnmálum Snæfríður og Högni selja útsýnisíbúð í 101 Baðst afsökunar á að hafa sagst vilja ríða Minogue Pétur Jóhann á von á öðru barnabarni Birtu fyrstu myndina af Mette-Marit eftir aðgerðina Stjörnulífið: Bátsferðir og brjóst Rauðhærðasti Íslendingurinn fundinn Stjörnum prýddur gestalisti Swift og Kelce Krakkatía vikunnar: Tindur, stríð og letibikkja Melabúðin fagnar sjötíu árum „Þú ert greinilega manneskja sem hefur strögglað mikið andlega“ „Það er gaman að gera erfiða hluti“ Taylor Swift og Travis Kelce eru gift Eins og að vera með kláða sem hverfur aldrei „Erum enn að ná utan um allt sem gerðist“ Fréttatía vikunnar: EBU, aftaka og Love Island „Klukkan er fimm einhvers staðar“ „Þegar þið eignist ykkar fyrsta barn, má ég þá fá það?“ Snæddi með furstanum af Mónakó Kyssti ekki Maguire heldur tottaði rafrettu Allir og amma þeirra á Ítalíu Brúðkaupshátíð Taylor Swift og Travis Kelce hafin Sjá meira