Íslendingar erlendis

Fréttamynd

Steinunn kjörin næsti forseti Alþjóðasamtaka lækna

Steinunn Þórðardóttir, formaður Læknafélags Íslands, var um helgina kosin næsti forseti Alþjóðasamtaka lækna, World Medical Association (WMA), fyrir tímabilið 2027–2028. Steinunn greinir frá þessu á Facebook-síðu sinni en hún sótti aðalfund samtakanna í liðinni viku.

Innlent
Fréttamynd

Bene­dikt birtir mynd frá slysstað

Handboltakappinn Benedikt Gunnar Óskarsson sneri aftur á handboltavöllinn á föstudaginn eftir að hafa lent í slysi og í kjölfarið misst mátt í hægri hendi. 

Handbolti
Fréttamynd

Tryggvi Snær og fé­lagar aftur á sigurbraut

Tryggvi Snær Hlinason og félagar í Bilbabo Basket tóku á móti San Pablo í spænsku úrvalsdeildinni í körfubolta í dag. Leikurinn var gríðarlega jafn en Bilbao Basket náði að lokum að vinna leikinn 96-87.

Körfubolti
Fréttamynd

Svekkjandi tíu manna janftefli hjá Frey

Rosenborg tók á móti Sandefjord í norsku úrvalsdeild karla í dag. Freyr Alexandersson þjálfar Rosenborg en liðin skildu jöfn eftir leik sem endaði 1-1 þar sem bæði lið léku manni færri.

Fótbolti
Fréttamynd

Hafði betur í spænska Íslendingaslagnum

Íslendingarnir Kristinn Pálsson og Jón Axel Guðmundsson mættust í Íslendingaslag í spænsku B-deildinni í körfubolta. Kristinn og félagar í Alicante höfðu betur 84-74 en leikurinn var gríðarlega jafn.

Körfubolti
Fréttamynd

Fiskaði rautt spjald í sigri

Hákon Arnar Haraldsson var ekki í byrjunarliði Lille þegar liðið tók á móti Le Havre í frönsku úrvalsdeildinni í fótbolta. Hann kom þó inn á í seinni hálfleik og var leikmaður Le Havre rekinn út af í 1-0 sigri Lille.

Fótbolti
Fréttamynd

Sjáðu enn eitt markið hjá Andra Lucasi

Andri Lucas Guðjohnsen hélt áfram að skora fyrir Blackburn þegar liðið fékk Cardiff í heimsókn í ensku B-deildinni í fótbolta. Mark Andra Lucasar reyndist mikilvægt þar sem Blackburn vann leikinn 2-1.

Enski boltinn
Fréttamynd

Opin­bera haustrómantík á Spáni

Helga Möller söngkona og Jóhann Hlíðar Harðarson fréttamaður hafa fundið ástina og það á Spáni. Bæði birtu í kvöld mynd af þeim saman en henni fylgdi textinn: „Haustrómantík í Cartagena…“

Lífið
Fréttamynd

Mót­herji Eriku kastaði dós í hana

Erika Nótt mun stíga í hringinn gegn Carla Jade á laugardaginn á Misfits boxing kvöldinu sem haldið verður í Copper Box Arena í London. Jade var ekki ánægð með Eriku á blaðamannafundi fyrir bardagann og ákvað hún því að kasta dós í Eriku.

Sport
Fréttamynd

Góður leikur dugði ekki til fyrir Elínu Klöru

Elín Klara Þorkelsdóttir spilaði góðan leik fyrir IK Sävehof í sænsku úrvalsdeild kvenna í handbolta þegar liðið tók á móti Skara HF. Þrátt fyrir að hafa spilað vel þurfti hún að sætta sig við 32-30 tap gegn erfiðum andstæðingi.

Handbolti
Fréttamynd

Náðu að vinna sterkt spænskt lið

Íslendingaliðið Gummersbach náði að vinna nauman sigur á CB Ciudad í Evrópudeild karla í handbolta. Leikurinn var mjög jafn en á lokasprettinum náði Gummersbach að sækja sigurinn og endaði leikurinn 34-30.

Handbolti
Fréttamynd

Slakur fyrri hálf­leikur varð Val að falli

Valur tapaði gegn RD LL Grosist Slovan í Evrópudeildinni í handbolta í dag. Slóvenska liðið reyndist of þungur biti fyrir Val og náði heimaliðið að byggja stórt forskot sem Valur náði ekki að minnka og endaði leikurinn með 34-29 tapi Vals.

Handbolti
Fréttamynd

Gellustælar og ís­lenskar listagyðjur í París

Íslensk hönnun var í hávegum höfð í sjóðheitu teiti í París á dögunum í tilefni af tískuvikunni þar. Þrír íslenskir listamenn komu þar saman að sýningunni „Reykjavík“ sem haldin var í Le Marais-hverfinu, sem er þekkt fyrir tísku, sjarma og töffara.

Tíska og hönnun
Fréttamynd

Unglingavinnan var tískupallurinn í París

„Þegar ég var tólf ára byrjaði ég að segja fólki að ég væri fyrirsæta þó að það væri ekkert til í því þá. Ég vissi bara að þetta væri það sem ég vildi gera,“ segir Alísa Helga Svansdóttir sem er í dag ein vinsælasta fyrirsæta sem Ísland hefur alið af sér.

Lífið
Fréttamynd

Skoraði sitt fyrsta mark í Meistara­deildinni

Emelía Óskarsdóttir þurfti aðeins að spila í hálftíma til að skora með liði sínu HB Køge þegar það vann Servette frá Sviss í Meistaradeild Evrópu í fótbolta. Leikurinn endaði með 5-1 sigri danska liðsins en á sama tíma spilaði Inter Milan við Austria Wien þar sem leikurinn endaði jafn, 1-1.

Fótbolti
Fréttamynd

Söknuðu nær­gætni og um­hyggju eftir háska á Ibiza

Ungar konur sem fóru í ferð til Ibiza með Pilates-klúbbi World Class gagnrýna hvernig fulltrúar líkamsræktarstöðvarinnar brugðust við eftir að talið var að eldur hefði kviknað í skemmtibáti sem tekinn var á leigu á sunnudag.

Innlent
Fréttamynd

Ellefu marka Ómar kom Magdeburg á toppinn

Magdeburg vann mikilvægan sigur gegn Kiel í þýsku úrvaldeild karla í handbolta í kvöld. Ómar Ingi Magnússon var markahæsti leikmaður Magdeburg í sigrinum en leikurinn endaði 32-26.

Handbolti