Handbolti

Góður leikur dugði ekki til fyrir Elínu Klöru

Andri Broddason skrifar
Elín Klara Þorkelsdóttir spilaði vel fyrir Sävehof í kvöld en það dugði ekki til.
Elín Klara Þorkelsdóttir spilaði vel fyrir Sävehof í kvöld en það dugði ekki til. Sävehof

Elín Klara Þorkelsdóttir spilaði góðan leik fyrir IK Sävehof í sænsku úrvalsdeild kvenna í handbolta þegar liðið tók á móti Skara HF. Þrátt fyrir að hafa spilað vel þurfti hún að sætta sig við 32-30 tap gegn erfiðum andstæðingi.

Fyrri hálfleikur leiksins var gríðarlega jafn og voru bæði lið að skiptast á því að vera með forystu leiksins. Hálfleikurinn endaði með sanngjörnu 14-14 jafntefli og var mikilvægt fyrir leikinn hvaða lið myndi koma sterkara út í seinni hálfleik.

Það voru gestirnir sem voru sterkari í seinni hálfleik og náðu fljótlega að byggja sér upp sex marka forystu. Heimakonur í Sävehof reyndu það sem þær gátu til þess að vinna upp forskotið og komust næst einu marki frá en þurftu að lokum að sætta sig við tveggja marka tap, 32-30.

Thea Blomst var markahæst hjá heimakonum með sjö mörk en Elín Klara skoraði aðeins einu marki minna. Hún gaf þó einnig fjórar mikilvægar stoðsendingar á liðsfélaga sína.

Með sigrinum fer Skara HF á topp sænsku úrvalsdeildarinnar en þetta var aðeins önnur umferð deildarinnar. Lið Sävehof má því ekki dvelja á einum tapleik ef liðið ætlar sér að verja titilinn í sænsku úrvalsdeildinni í handbolta.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×