Erlendar
133 134 135 136 137 138 139 140 141 … 264 ›
Rooney skorar í æfingaleik Wayne Rooney tók þátt í æfingaleik með Manchester United í dag, gegn Macclesfield. Hann skoraði fyrra markið í 2-1 sigri United, Frazier Campbell skoraði annað markið eftir að Danny Swailes jafnaði fyrir Macclesfield. Sport 31.7.2006 22:11
Þjálfarinn fengi einnig bann Trevor Graham þjálfari Justin Gatlin gæti átt yfir höfði sér allt að tveggja ára keppnisbann ef Gatlin verður fundin sekur um lyfjamisferli. Þetta hefur Nick Davies, talsmaður alþjóða frjálsíþróttasambandsins, staðfest. Sport 31.7.2006 18:55
Heimsmet í 4x100 metra skriðsundi kvenna Þýsku stúlkurnar Daniela Goetz, Petra Dallmann, Annika Liebs og Britta Steffen, frá vinstri, sjást hér með gullmedalíur sínar. Þær sigruðu 4x100 metra skriðsund á nýju heimsmeti 3 mínútur og 35,22 sekúndur, á Evrópumótinu í sundi sem fram fer í Búdapest í Ungverjalandi. Sport 31.7.2006 18:39
Gatlin gæti farið í ævilangt bann Heims- og Ólympíumeistarinn í 100 metra spretthlaupi Justin Gatlin gæti átt yfir höfði sér ævilangt keppnisbann. Hann féll á lyfjaprófi í apríl og B prufa reyndist einnig vera jákvæð fyrir testósterón. Sport 31.7.2006 01:27
Räikkönen á ráspól Finnski ökuþórinn Kimi Räikkönen hjá McLaren vann í dag ráspól í tímatökum Formúlu 1 kappakstursins sem fram fer í Hockenheim í Þýskalandi. Formúla 1 29.7.2006 20:52
Birgir Leifur naumlega áfram Birgir Leifur Hafþórsson, atvinnukylfingur úr GKG komst í dag naumlega í gegnum niðurskurð eftir þriðja hring á Ryder Cup áskorendamótinu í Golfi sem fram fer í Wales. Golf 29.7.2006 20:48
Fram í riðil með Gummersbach Í morgun var dregið í riðla fyrir Meistaradeild Evrópu í handbolta þar sem Íslandsmeistarar Fram fara beint inn í riðlakeppnina. Útkoman úr drættinum var afar athyglisverð fyrir Fram sem dróst í riðil með Gummersbach sem Alfreð Gíslason mun stýra. Handbolti 29.7.2006 20:37
Michael Carrick til Tottenham Manchester United hefur komist að samkomulagi við Tottenham um kaupverð á miðjumanninum Michael Carrick. Ruud van Nistelrooy yfirgaf Manchester United í gær og skrifaði undir 3 ára samning við Real Madrid. Sport 29.7.2006 20:23
Vill fara frá Brasilíu Framherjinn skæði, Carlos Tevez, sem fór á kostum með liði Argentínu á HM á dögunum, segist vera að íhuga að fara frá brasilíska félaginu Corinthians eftir að hafa lent í útistöðum við stuðningsmenn félagsins. Þessi tíðindi gætu vakið athygli liða á borð við Manchester United, sem sögð eru renna hýru auga til þessa magnaða knattspyrnumanns. Sport 28.7.2006 18:59
Lua Lua semur við Portsmouth Framherjinn Lomana Lua Lua hefur skrifað undir nýjan þriggja ára samning við enska úrvalsdeildarfélagið Portsmouth. Lua Lua er landsliðsmaður Kongó og höfðu West Ham og Manchester United verið á höttunum eftir honum í sumar. Þá hefur miðjumaðurinn Richard Hughes einnig skrifað undir nýjan fjögurra ára samning við félagið. Sport 28.7.2006 18:55
Draumur að ganga í raðir Real Madrid Hollenski framherjinn Ruud Van Nistelrooy gekk formlega í raðir spænska stórliðsins Real Madrid í dag og lýsti félagaskiptunum sem draumi sem hefði orðið að veruleika. Hann kallaði Real Madrid stærsta félagslið í heiminum og segist ekki geta beðið eftir að leika við hlið fyrrum félaga síns David Beckham. Fótbolti 28.7.2006 18:34
Carrick til United á mánudag Manchester United og Tottenham hafa nú komist að samkomulagi um félagaskipti enska landsliðsmannsins Michael Carrick. Ef leikmaðurinn stenst læknisskoðun og nær að ganga frá smáatriðum í samingi sínum, verður hann kynntur formlega sem nýr leikmaður Manchester-liðsins á mánudag. Talið er að kaupverðið verði fast að 18 milljónum sterlingspunda. Sport 28.7.2006 18:26
Schumacher í stuði á heimavelli Michael Schumacher sendi heimsmeistaranum Fernando Alonso skýr skilaboð á æfingu fyrir Þýskalandskappaksturinn í dag þegar hann náði bestum tíma allra aðalökumanna á Hockenheim brautinni á æfingum. Alonso náði fimmtánda besta tímanum. Formúla 1 28.7.2006 17:31
Hefur ekki áhyggjur af stjörnustælum Jose Mourinho, knattspyrnustjóri Chelsea, segist ekki hafa áhyggjur af stjörnustælum í sínum herbúðum þó hann hafi að undanförnu fengið hverja stórstjörnuna á fætur annari inn í leikmannahóp sinn. Hann segir nýju leikmennina aðeins þurfa að búa yfir tveimur kostum til að allt gangi eins og í sögu. Sport 28.7.2006 16:53
Ég misnota ekki lyf Bandaríski hjólreiðakappinn Floyd Landis sem féll á lyfjaprófi eftir Frakklandshjólreiðarnar á dögunum, segist alsaklaus. Hann segist alls ekki misnota nein lyf og segir hátt testósterónsmagn í líkama sínum vera eðlilegt. Sport 28.7.2006 16:47
Glórulaust að fara til Ísrael Rafa Benitez segir það glórulaust að ætlast til þess að lið Liverpool fari til Ísrael til að spila í forkeppni meistaradeildarinnar á þeim ófriðartímum sem geysa í landinu. Benitez hefur biðlað til stjórnar evrópska knattspyrnusambandsins að láta í sér heyra sem fyrst, því hann segist ekki eiga von á því að leikmenn sínir né stuðningsmenn vilji fara til lands að spila þar sem ástandið sé svo eldfimt. Fótbolti 28.7.2006 16:38
Reiknar með að landa Carrick í dag eða á morgun Sir Alex Ferguson segir viðræður langt komnar við Tottenham um kaup á miðjumanninum Michael Carrick. "Hluti af málinu er í höfn og ég reikna með að við náum að ganga frá þessu í dag eða um helgina," sagði Ferguson í samtali við sjónvarpsstöð félagsins nú síðdegis. Talið er að kaupverðið verði nálægt 18 milljónum punda. Sport 28.7.2006 16:11
Stuðningsmenn Liverpool smeykir við að fara til Ísrael Formaður alþjóðlegs stuðningsmannaklúbbs Liverpool er lítt hrifinn af því að liðið neyðist til að spila síðari leik sinni í þriðju umferð forkeppni meistaradeildarinnar í Ísrael, en mikill ófriður hefur verið í landinu að undanförnu. Liverpool mætir liði Maccabi Haifa frá Ísrael og á að spila útileik sinn í Haifa þann 22. eða 23. ágúst. Fótbolti 28.7.2006 14:36
Benni McCarthy til Blackburn Suður-Afríski framherjinn Benni McCarthy sem leikið hefur með Porto undanfarin ár, er genginn í raðir enska úrvalsdeildarliðsins Blackburn. Kaupverðið hefur ekki verið gefið upp en hinn 28 ára gamli markaskorari hefur skrifað undir fjögurra ára samning við félagið. Blackburn hefur lengi verið á höttunum eftir McCarthy og reyndi til dæmis að fá hann til liðs við sig fyrir ári, en án árangurs. Sport 28.7.2006 13:45
Carrick til United í dag? Breska sjónvarpið fullyrðir að enski landsliðsmaðurinn Michael Carrick hjá Tottenham muni ganga í raðir Manchester United í dag. United hefur lengi haft augastað á leikmanninum og talið er að salan á Ruud Van Nistelrooy til Real Madrid verði til þess að United geti gengið frá kaupunum á Carrick undir eins, en talið er að Tottenham vilji fá allt að 20 milljónum punda fyrir miðjumanninn. Sport 28.7.2006 13:30
Arsenal og Chelsea í viðræðum vegna Ashley Cole Forráðamenn Arsenal hafa gefið það út að þeir séu í viðræðum við granna sína í Chelsea um hugsanleg kaup meistaranna á bakverðinum Ashley Cole, sem orðaður hefur verið við Chelsea í rúmt ár. Talið er að grunnt sé á því góða milli Cole og forráðamanna Arsenal og margt bendir til þess að leikmaðurinn skipti um heimilisfang í Lundúnum á næstunni. Sport 28.7.2006 13:23
Stóðst læknisskoðun hjá Real Hollenski framherjinn Ruud Van Nistelrooy hefur nú staðist læknisskoðun hjá spænska stórliðinu Real Madrid og verður kynntur formlega sem nýr leikmaður félagsins undir síðla dags. Fótbolti 28.7.2006 13:18
FH færi til Úkraínu Í morgun var dregið í þriðju umferð forkeppni meistaradeildar Evrópu og fari svo að Íslandsmeisturum FH takist að slá út pólska liðið Legia Varsjá, mæta þeir úkraínska liðinu Shakhtar Donetsk í næstu umferð. Fótbolti 28.7.2006 13:12
Real segist vera búið að kaupa Nistelrooy Real Madrid hefur sent frá sér fréttatilkynningu þar sem fram kemur að félagið hafi gengið frá kaupum á hollenska framherjanum Ruud Van Nistelrooy. Sagt er að leikmaðurinn hafi samþykkt að undirrita þriggja ára samning og er kaupverðið sagt vera um 15 milljónir evra. Nistelrooy mun að sögn félagsins gangast undir læknisskoðun á morgun. Fótbolti 27.7.2006 17:55
United þarf ekki á Nistelrooy að halda Paul Parker, fyrrum leikmaður Manchester United og enska landsliðsins, segir að hollenski framherjinn Ruud Van Nistelrooy sé ekki sami leikmaður og hann var og er þess fullviss að hans verði ekki saknað ef hann fer frá félaginu. Parker segir United ekki þurfa að kaupa stórstjörnu í stað Hollendingsins, heldur ungan og hungraðan framherja sem sé stoltur af að fá að spila fyrir félagið. Sport 27.7.2006 17:36
Hópur Quinn hefur eignast Sunderland Hópur fjárfesta undir stjórn knattspyrnustjórans Niall Quinn hefur nú eignast knattspyrnufélagið Sunderland. Hópurinn gerði tilboð í félagið fyrr í mánuðinum og hafa nú gengið frá lausum endum á tilsettum tíma. Quinn var á dögunum ráðinn knattspyrnustjóri félagsins tímabundið og er hann nú orðinn stjórnarformaður félagsins sem hann lék með í mörg ár á síðasta áratug. Sport 27.7.2006 16:58
Rooney röflar stöðugt í mér Sir Alex Ferguson segir að vel komi til greina að hann leyfi framherjanum Wayne Rooney að spila æfingaleik með Manchester United á mánudaginn kemur, því leikmaðurinn tuði sífellt í sér um að fá að spila. Sport 27.7.2006 16:50
Viðurkennir veikleika sína Knattspyrnustjórinn Adrian Boothroyd hjá enska úrvalsdeildarfélaginu Watford viðurkennir að ef hann hafi veikleika sem knattspyrnustjóri, hafi það helst með vanþekkingu hans á erlendum leikmönnum hans að gera. Boothroyd segist ætla að reyna að styrkja lið sitt með mönnum frá Bretlandseyjum á fyrsta tímabili sínu með Watford í úrvalsdeildinni. Sport 27.7.2006 16:37
Vill marka djúp spor í söguna Portúgalski knattspyrnustjórinn Jose Mourinho hjá Chelsea segist vilja marka djúp spor í enska knattspyrnusögu áður en hann lætur af störfum og stefnir á að vinna þrjá til fjóra titla á Englandi á næstu fimm árum. Sport 27.7.2006 14:22
Floyd Landis féll á lyfjaprófi Bandaríkjamaðurinn Floyd Landis féll á lyfjaprófi sem hann fór í eftir 17. áfanga Frakklandshjólreiðanna á dögunum eftir að óeðlilega hátt magn testósteróns fannst í sýni sem tekið var úr honum. Talsmenn hjólreiðakappans segja þessa niðurstöðu koma verulega á óvart, en sýni svokallað B-sýni sömu niðurstöðu, á hann von á að verða sviptur titli sýnum og rekinn frá liði sínu Phonak. Sport 27.7.2006 14:36
Keppast við að tjá sig um skrif Þórðar: Kristrún taki stóra áhættu með að halda honum á lista Innlent