Deilur við Höllu eigi sér langa sögu Oddur Ævar Gunnarsson og Tómas Arnar Þorláksson skrifa 14. október 2026 10:30 Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar er spennt fyrir komandi þingi. Vísir/Einar Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar segir það vel koma til greina að Efling segi sig úr Alþýðusambandi Íslands. Það sé hinsvegar langt og flókið ferli, hún segir deilur innan verkalýðshreyfingarinnar eiga sér langa sögu.
Þetta kom fram í spjalli Tómasar Arnar Þorlákssonar við Sólveigu sem staddur er á þinginu ásamt Einari Árnasyni tökumanni. Þingið hefst núna klukkan tíu en mikil spenna er í loftinu fyrir þingið og verður meðal annars tekist á um tillögu um fækkun varaforseta ASÍ sem Sólveig Anna hefur sagt að feli í sér tilraunir Höllu Gunnarsdóttur formanns VR til þess að sölsa undir sig embættið. Halla hefur hinsvegar sagt núverandi fyrirkomulag ólýðræðislegt og að spara megi fjármuni með fækkuninni. „Hvað formaður VR skrifar á samfélagsmiðlum kemur mér svo sem lítið við, þú verður bara að spyrja hana og hennar fólk um þetta. Málið snýst um það að hver sem verður forseti Alþýðusambandsins, það hefur ekkert með það að gera hvort þessi breytingatillaga fer í gegn eða ekki eða hverjir tala fyrir henni eða hverjir gegn,“ segir Sólveig Anna. Staðan sé sú að síðustu ár hafi verið þrír varaforsetar. „En skilaboðin eru skýr, á tímum í sögu Alþýðusambandsins þar sem átök eru mjög mikil þar sem ólíkir hópar eru að takast á um það hvert skuli stefna og hverra hagsmuni skuli setja í fyrirrúm, af einhverjum ástæðum er þá tekin þessi ákvörðun að raunverulega kasta hvítum hanska í gólfið eins og fólk gerði í gamla daga áður en það fór í einvígi til þess að tilkynna að nú skuli fara í átök og nú skuli gera það sem hægt er að gera til þess að tryggja að formaður Eflingar geti þá ekki verið einn af varaforsetum Alþýðusambandsins. Þetta er stórkostlega undarlegt, þetta er að mínu viti fráleit tímasetning, mögulega ef hér væri allt með kyrrum kjörum, mögulega ef við værum búin að settla öll þessi stóru mál, við værum í prinsippinu sammála um því sem næst allt, þá væri kannski hægt að málflytja þetta með skynsamlegum og rökföstum hætti en það er alls ekki þannig í stöðunni eins og hún er núna.“ Áhugavert sé að velta fyrir sér hvað formaður VR meini með því að það sé ólýðræðislegt að hafa fjögurra manna forsetateymi en að tveggja forsetateymi með hana með fyrsta og eina varaforsetann sé lýðræðislegra. Sólveig segir auk þess að þau rök að það spari spening sé rökleysa. Alþýðusambandið standi vel. Tillagan snúist augljóslega um völd. Er þetta að einhverju leyti persónulegt gagnvart Höllu eða snýst þetta bara um málefnin? Er einhver lengri saga þarna að baki? „Að sjálfsögðu er lengri saga, aftur þú getur gúgglað, um leið og þú ferð að gúggla hvort þetta sé landsþing eða bara þing þing, ég ætla nú ekki að fara að þreyta fólk á því að fara að rekja það hér, ég birti í gær á Facebook mínu fjórar greinar sem ég sendi frá mér í ágúst 2022, þeir sem raunverulega hafa áhuga geta til dæmis lesið sig í gegnum þær og þá fá þeir kannski einhverja sýn á afstöðu mína og félaga minna,“ segir Sólveig Anna. „En nei, þetta snýst eins og það gerði þá og eins og það hefur gert þessi síðustu ár þar sem Efling hefur staðið í hinum ýmsu átökum um það hverju er verið að berjast fyrir, hverra hagsnuni á að leggja áherslu á, hvernig við förum fram til að ná árangri og hverjir komast upp með að hegða sér með ótrúlega undarlegum hætti og hverjir jafnvel þrátt fyrir góða taktík, góða strategíu, árangursmiðaða aðferðafræði þurfa samt ávallt að hafa miklu meira fyrir hlutunum heldur en hinum fyrrnefndu.“ Geti vel dregið sig úr sambandinu Sólveig segist ekki vita hvort hægt verði að lægja öldurnar á þinginu. Það sé ekki hennar eða hennar félaga að gera það, aðrir þurfi að finna út úr því. „Fari svo að Efling taki ákvörðun um að ganga út úr Alþýðusambandinu þá er það langt og flókið ferli. Það verður aldrei gert bara eins og ekkert sé, það þarf að undirbúa það innan vébanda félagsins, það þarf svo að fara í -samningaviðræður um hitt og þetta við hina og þessa. Þannig það er ekki einfalt. Það kemur til skoðunar? „Já já, við erum að velta stöðu okkar í þessu stóra samhengi verkalýðsbaráttunnar og með hverjum er best fyrir okkur að vinna og með hverjum við einfaldlega getum ekki unnið, að sjálfsögðu erum við að skoða það annars værum við ekki fúnkerandi félag, sjálfvirðing okkar og einbeittur vilji til þess að ná árangri fyrir verka- og láglaunafólk segir okkur að við þurfum að skoða þessa hluti og það gerum við.“
Stéttarfélög Kjaramál Tengdar fréttir Bein útsending: Stormur við setningu ASÍ-þings 47. þing Alþýðusambands Íslands hefst í dag. Vísir verður í beinni í dag frá þinginu auk þess sem fylgjast má með streymi af málþingi sem fram fer í dag frá tíu til eitt í hátíðarsal Hilton Reykjavík. 14. október 2026 08:45 Mest lesið Tók reiðiskast í beinni og snerist gegn bandamönnum sínum Erlent Draumur Demókrata að rætast Erlent Sýknaður vegna manndráps á Skjólbraut Innlent Dragi uppsagnirnar til baka Innlent Trump hafi nú engu að tapa Erlent Sögulegir sigrar í Bandaríkjunum Erlent Sigraði þrátt fyrir peningaflóð og svik á lokametrunum Erlent Þreytast ekki á að tuða yfir veginum Innlent Feðgin felldu tár yfir reynslu af meintum eltihrelli Innlent Hækka framfærsluskilyrði innflytjenda verulega Innlent Fleiri fréttir „Hann hótaði að drepa okkur“ Hinn látni hafi átt óvini vegna fíkniefnaviðskipta Lögreglumenn fari huldu höfði af ótta við ofbeldi Forvitinn minnihluti styggir bæjarstjórn: „Sláandi tölfræði“ Sýknaður vegna manndráps á Skjólbraut Miðflokkurinn bætir við sig fylgi Skoða fæðingarorlofsmálin Dragi uppsagnirnar til baka Þreytast ekki á að tuða yfir veginum Þrír handteknir fyrir rán Telur uppsagnir geta leitt til kostnaðar seinna meir Hækka framfærsluskilyrði innflytjenda verulega Nemandi nýtti sér öryggisbrest og reyndi að breyta einkunum annarra Feðgin felldu tár yfir reynslu af meintum eltihrelli „Rangfærslur og jafnvel hreinar lygar“ Lögregla telur sig komna með „þokkalega skýra mynd“ Barði barn en málið fyrndist Bárust skrýtin skilaboð þegar sambandinu lauk „Fræða en ekki hræða“ „Það er öllum ljóst að hann hefur frekar verið þeirra megin“ Fullyrða að Daði Már hafi logið að þinginu „Hvernig getur svona klikkuð manneskja ekki ákveðið að gera neitt meira?“ Kosningar í Bandaríkjunum og utanríkisráðherra ræðir Rússa Skipaður formaður 6. áfanga rammaáætlunar Reikna með þrettán milljarða afgangi á næsta ári Fluttur með björgunarskipi þegar þyrlan gat ekki lent vegna þoku Kynntu fjárhagsáætlun borgarinnar Kolbeinsey lifir enn þrátt fyrir spádóma um annað Játaði að hafa makað saur á hurðarhúna Kynntu verkefnið Verum viðbúin Sjá meira
Bein útsending: Stormur við setningu ASÍ-þings 47. þing Alþýðusambands Íslands hefst í dag. Vísir verður í beinni í dag frá þinginu auk þess sem fylgjast má með streymi af málþingi sem fram fer í dag frá tíu til eitt í hátíðarsal Hilton Reykjavík. 14. október 2026 08:45