Íþróttir
93 94 95 96 97 98 99 100 101 … 334 ›
Cannavaro þakkar landsliðinu og Juventus Ítalska landsliðið og Juventus voru Fabio Cannavaro ofarlega í huga í kvöld þegar hann tók við Gullknettinum, sem er viðurkenning sem afhent er knattspyrnumanni ársins að mati franska tímaritsins France Football. Cannavaro tileinkaði hluta verðlaunanna heimaborg sinni Napoli. Fótbolti 27.11.2006 19:00
Houllier segir það hneyksli að Cannavaro fái Gullknöttinn Gerrard Houllier, þjálfari Frakklandsmeistara Lyon, segir að það sé algjört hneyksli að ítalski varnarmaðurinn Fabio Cannavaro skuli hafa verið útnefndur knattspyrnumaður Evrópu í ár, en það verður staðfest við hátíðlega athöfn í kvöld. Fótbolti 27.11.2006 18:33
Eiður Smári semur við Adidas Eiður Smári Guðjohnsen skrifaði í gær undir samning við íþróttavöruframleiðandann Adidas sem gilda mun til ársins 2012. Samkvæmt samningnum mun Eiður leika í Predator skóm Adidas á næstu árum og mun taka þátt í þróun á nýjum vörum frá fyrirtækinu. Hann kemst þar með í hóp stórstjarna á borð við Beckham, Kaka og Gerrard sem þegar eru með samning við Adidas. Fótbolti 27.11.2006 17:39
Vialli spáir Manchester United sigri Gianluca Vialli, fyrrum knattspyrnustjóri Chelsea, segir að Manchester United sé líklegasta liðið til að hampa Englandsmeistaratitlinum í vor vegna þeirrar auknu áherslu sem lögð sé á Meistaradeildina í herbúðum Chelsea. Enski boltinn 27.11.2006 17:26
Tottenham að fá ungan markvörð Allt stefnir nú í að enska úrvalsdeildarfélagið Tottenham muni fá enska U-21 árs landsliðsmarkvörðinn Ben Alnwick frá Sunderland í sínar raðir í janúar. Sunderland fær í staðinn ungverska markvörðinn Martin Fulop og eina milljón punda ef af skiptunum verður, en þau geta ekki klárast formlega fyrr en í janúar. Enski boltinn 27.11.2006 16:21
Blatter útilokar sjónvarpstækni við dómgæslu Sepp Blatter, forseti FIFA, hefur gefið það sterklega í skyn að ekki verði notast við sjónvarpstækni við dómgæslu í knattspyrnu á meðan hann sitji í forsetastóli hjá Alþjóða knattspyrnusambandinu. Hann vill þó taka marklínubúnað upp á stórmótum sem fyrst. Fótbolti 27.11.2006 16:13
Bayern íhugar að segja sig úr G-14 Karl-Heinz Rummenigge, stjórnarformaður Bayern Munchen, vandar félögum sínum í G-14 ekki kveðjurnar í viðtali við þýska blaðið Kicker í dag og ræðst þar sérstaklega að eiganda Chelsea, Roman Abramovich. Hann segir Bayern vera að íhuga að segja sig úr G-14. Fótbolti 27.11.2006 16:34
Tevez biðst afsökunar Argentínski framherjinn Carlos Tevez hjá West Ham hefur beðist afsökunar á gjörðum sínum á laugardaginn þegar hann stormaði beint til síns heima eftir að honum var skipt af velli í viðureign liðsins gegn Sheffield United - fyrsta deildarleik liðsins eftir að Eggert Magnússon tók við formennsku hjá félaginu. Enski boltinn 27.11.2006 16:06
Handboltamenn stofna G-14 Handknattleiksforystan í Evrópu hefur nú fetað í fótspor kollega sinna í knattspyrnunni og hefur stofnað sitt eigið G-14 samband. Það er samband 14 stærstu félagsliða Evrópu sem koma frá 8 löndum og verður samtökunum ætlað að bæta tengsl félagsliða við Alþjóða- og Evrópusambandið í handbolta. Handbolti 27.11.2006 15:46
Skaut vin sinn til bana vegna 1500 króna veðmáls Rúmlega fertugur karlmaður skaut vin sinn til bana í Suður-Karólínu í Bandaríkjunum um helgina eftir að þeir lentu í deilum vegna 1500 króna veðmáls þeirra á leik í háskóladeildinni í ruðningi. Sport 27.11.2006 14:45
Cannavaro fær Gullknöttinn Þýskir fjölmiðlar hafa nú gefið það út að ítalski varnarmaðurinn Fabio Cannavaro hjá Real Madrid verði sæmdur titlinum knattspyrnumaður Evrópu og fái Gullknöttinn frá franska blaðinu France Football. Úrslitin verða formlega kunngjörð í kvöld. Fótbolti 27.11.2006 15:35
Börn sitja í fangelsi fyrir að horfa á fótbolta í sjónvarpi Mikil mildi þykir að enginn skyldi slasast í gær þegar löggæslumenn stjórnvalda í Sómalíu réðust inn í kvikmyndahús þar sem 150 manns fylgdust með leik Manchester United og Chelsea. Íslamskir ráðamenn í landinu hafa fordæmt allt íþróttaáhorf í sjónvarpi og líta á menn sem horfa á fótbolta sem glæpamenn. Enski boltinn 27.11.2006 14:55
McLaren er að eyðileggja feril Hamilton David Coulthard, ökumaður Red Bull í Formúlu 1 og fyrrum ökumaður McLaren, segir að Ron Dennis og félagar hjá McLaren séu mjög líklega að eyðileggja feril hins efnilega Breta Lewis Hamilton með því að gera hann að aðalökumanni of snemma. Formúla 1 27.11.2006 14:24
Við vorum heppnir Fabio Capello viðurkenndi fúslega að hans menn í Real Madrid hefðu haft heilladísirnar á sínu bandi í gær þegar þeir lögðu Valencia 1-0 á Mestalla í Valencia. Þetta var fyrsta tap liðsins á heimavelli í 13 mánuði, en Fabio Capello er greinilega að setja stimpil sinn á lið Real Madrid sem nú situr í þriðja sæti deildarinnar á eftir Barcelona og Sevilla. Fótbolti 27.11.2006 14:18
Ferguson sagður vera með framherja í sigtinu Sænskir og ítalskir heimildarmenn halda því fram í dag að Sir Alex Ferguson hafi í huga að reyna að fá hinn 17 ára gamla sókarmann Goran Slavkovski í raðir Manchester United í janúar. Slavkovski þessi er yngsti leikmaðurinn í herbúðum Ítalíumeistara Inter Milan og hefur verið líkt við Zlatan Ibrahimovic vegna uppruna síns og hæfileika. Enski boltinn 27.11.2006 14:12
Calderon ekki búinn að gefast upp Ramon Calderon, forseti Real Madrid, er enn ekki búinn að gefa upp alla von á að lokka brasilíska miðjumanninn Kaka hjá AC Milan til Madrid. Real skrifaði undir sjónvarpssamning á dögunum sem færir félaginu yfir milljarð evra í tekjur og Calderon segir að í kjölfarið verði félaginu fært að bjóða í alla bestu knattspyrnumenn heimsins. Fótbolti 27.11.2006 14:00
Banni aflétt á Írana Alþjóða knattspyrnusambandið aflétti í dag keppnisbanninum sem það setti á landslið Íran á dögunum og því geta Íranar tekið þátt í Asíuleikunum eins og til stóð. Sepp Blatter forseti FIFA segir þó að þessi ráðstöfun sé skilyrðum háð og hefur sambandið fengið frest til 5. desember til að koma sínum málum á hreint. Bannið var sett á í kjölfar þess að stjórnvöld í landinu höfðu óeðlileg afskipti af knattspyrnusambandinu í landinu. Fótbolti 27.11.2006 13:53
Mido verður frá keppni í tvær vikur Framherjinn Mido hjá Tottenham verður frá keppni næstu tvær vikurnar eftir að í ljós koma að hann er með rifinn vöðva í nára. Þessi 23 ára framherji skrifaði undir samning við félagið í sumar en hefur skorað 17 mörk á þeim tíma sem hann hefur leikið með Tottenham - lengst af sem lánsmaður frá Roma á Ítalíu. Enski boltinn 27.11.2006 13:47
Fimmti sigur Denver í röð Carmelo Anthony skoraði 33 stig þegar Denver lagði LA Clippers á heimavelli 103-88 í NBA deildinni í nótt. Þetta var fimmti sigurleikur Denver í röð í deildinni og er Anthony stigahæsti leikmaður deildarinnar það sem af er með 31 stig að meðaltali. Corey Maggette var besti leikmaður Clippers í leiknum með 22 stig og 12 fráköst. Körfubolti 27.11.2006 13:31
Hunt óskar eftir fundi með Petr Cech Miðjumaðurinn Stephen Hunt hjá Reading segist ætla að fara þess á leit við Petr Cech, markvörð Chelsea, að hann hitti sig að máli maður á mann þegar liðin eigast við að nýju í kring um jólin. Cech hefur ekki spilað með Chelsea síðan hann höfuðkúpubrotnaði í viðskiptum sínum við Hunt í deildarleik í síðasta mánuði. Enski boltinn 26.11.2006 19:45
Grindavík lagði Snæfell Grindavík lagði Snæfell 87-82 í stórleik dagsins í 32 liða úrslitum bikarkeppni Lýsingar í körfubolta. Steven Thomas skoraði 23 stig og hirti 8 fráköst fyrir Grindavík og Adam Darboe skoraði 18 stig. Justin Shouse skoraði 28 stig fyrir Snæfell, Sigurður Þorvaldsson 17 og Hlynur Bæringsson skoraði 13 stig og hirti 15 fráköst. Körfubolti 26.11.2006 22:06
Stuttgart í þriðja sæti Stuttgart smellti sér í þriðja sæti þýsku úrvalsdeildarinnar í knattspyrnu í kvöld með 1-0 sigri á Gladbach. Það var framherjinn Cacau sem skoraði eina mark leiksins og hefur Gladbach aðeins náð í eitt stig í síðustu sjö leikjum sínum. Leverkusen lyfti sér af mesta fallsvæðinu með 3-1 sigri á Cottbus. Fótbolti 26.11.2006 21:51
Inter heldur toppsætinu Inter Milan hefur fjögurra stiga forskot á toppi ítölsku A-deildarinnar í knattspyrnu eftir mjög þýðingarmikinn 2-1 útisigur á Palermo á Sikiley í kvöld. Zlatan Ibrahimovic og Patrick Vieira skoruðu mörk Mílanóliðsins í kvöld. Palermo búið að missa annað sætið alfarið í hendur Roma sem lagði Sampdoria 4-2 í dag þar sem Francesco Totti skoraði tvö mörk og lagði upp eitt. Fótbolti 26.11.2006 21:38
Raul tryggði Real mikilvægan sigur Gulldrengurinn Raul tryggði liði sínu Real Madrid mikilvægan 1-0 útisigur á Valencia í spænsku úrvalsdeildinni í knattspyrnu í kvöld. Markið skoraði fyrirliðinn á 53. mínútu eftir sendingu frá Roberto Carlos og er Real komið í annað sæti deildarinnar fyrir vikið. Leik Atletico Bilbao er að ljúka í beinni útsendingu á Sýn en þar hafa gestirnir frá Sevilla 2-1 forystu og hirða annað sætið af Real með sigri. Fótbolti 26.11.2006 21:29
Menn verða að vinna fyrir sæti sínu Martin Jol, stjóri Tottenham, var að vonum ánægður með frammistöðu sinna manna í dag eftir að liðið lagði Wigan 3-1 á White Hart Lane. Jol hrósaði framherjanum Dimitar Berbatov fyrir frammistöðu sína og svaraði spurningum sem dunið hafa á honum vegna sífelldra mannabreytinga í framlínunni. Enski boltinn 26.11.2006 21:07
Við vorum betri aðilinn í dag Sir Alex Ferguson vildi meina að hans menn í Manchester United hefðu verið betri aðilinn í leiknum gegn Chelsea í dag. United hefur enn þriggja stiga forskot á toppi deildarinnar eftir leiki dagsins. Enski boltinn 26.11.2006 20:18
United missti af stóru tækifæri Jose Mourinho, knattspyrnustjóri Chelsea, vill meina að topplið Manchester United hafi í dag missta af stóru og gullnu tækifæri til að ná afgerandi forystu í deildinni. Liðin skildu jöfn 1-1 í stórleik helgarinnar í dag. Enski boltinn 26.11.2006 20:01
Stórmeistarajafntefli á Old Trafford Manchester United og Chelsea skildu jöfn í uppgjöri toppliðanna í ensku úrvalsdeildinni á Old Trafford í Manchester í dag. Louis Saha kom heimamönnum yfir eftir hálftíma leik með góðu langskoti, en Ricardo Carvalho jafnaði metin fyrir Chelsea í síðari hálfleik þegar Englandsmeistararnir náðu að jafna með miklu harðfylgi. Forskot United er því enn þrjú stig á toppi deildarinnar. Enski boltinn 26.11.2006 18:00
Akureyri lagði Val Akureyri gerði sér lítið fyrir og lagði topplið Vals í DHL-deild karla í handbolta í dag 25-22. Goran Gusic skoraði 8 mörk fyrir Akureyri en þeir Ingvar Árnason og Baldvin Þorsteinsson skoruðu 4 hvor fyrir Val. Handbolti 26.11.2006 17:47
Berbatov stal senunni í sigri Tottenham Búlgarski sóknarmaðurinn Dimitar Berbatov átti stórleik í dag þegar Tottenham þokaðist loks upp í efri helming ensku úrvalsdeildarinnar með 3-1 sigri á Wigan á heimavelli. Berbatov skoraði eitt mark og lagði upp önnur tvö fyrir þá Jermaine Defoe og Aaron Lennon eftir að Henry Camara hafði komið gestunum yfir snemma leiks. Enski boltinn 26.11.2006 17:38