Íþróttir
112 113 114 115 116 117 118 119 120 … 334 ›
Ver ráðningu McClaren Brian Barwick hefur nú komið Steve McClaren landsliðsþjálfara Englendinga til varnar í kjölfar gagnrýni sem hann hefur orðið fyrir vegna lélegs gengis enska landsliðsins í síðustu leikjum. Enski boltinn 1.11.2006 18:26
Meiðsli Eiðs ekki alvarleg Ökklameiðsli landsliðsfyrirliðans Eiðs Smára Guðjohnsen í leiknum gegn Chelsea í Meistaradeildinni í gærkvöld voru ekki eins alvarleg og talið var í fyrstu og svo gæti farið að hann yrði klár í slaginn um helgina þegar meistararnir mæta Deportivo í deildinni. Fótbolti 1.11.2006 18:16
Pétur Marteinsson í KR Landsliðsmaðurinn Pétur Marteinsson sem leikið hefur með Hammarby í Svíþjóð síðustu ár hefur ákveðið að snúa aftur heim til Íslands og ætlar að ganga í raðir KR. Pétur mun einnig starfa með Akademíu KR þar sem hann mun vinna með ungum knattspyrnumönnum. Íslenski boltinn 1.11.2006 18:11
Matthías skrifaði undir þriggja ára samning við FH Eins og fram kom í Fréttablaðinu í morgun hefur Valsmaðurinn Matthías Guðmundsson nú skrifað undir þriggja ára samning um að leika með Íslandsmeisturum FH. Matthías skrifaði undir hjá FH í hádeginu. Íslenski boltinn 1.11.2006 18:06
Dregið í 32 liða úrslitin í dag Í dag varð ljóst hvaða lið mætast í 32 liða úrslitum bikarkeppni Lýsingar í körfubolta í karlaflokki. Þrjár úrvalsdeildarviðureignir líta dagsins ljós strax í þessari umferð, þar sem UMFG mætir Snæfelli, KR mætir Haukum og þá eigast við ÍR og Njarðvík. Leikirnir fara fram dagana 24.-26. nóvember. Körfubolti 1.11.2006 17:30
Arsenal - CSKA Moskva í beinni Leikur Arsenal og CSKA Moskvu í meistaradeild Evrópu verður sýndur beint á sjónvarpsstöðinni Sýn í kvöld klukkan 19:30 og á sama tíma verður leikur FC Kaupmannahöfn og Manchester United sýndur á Sýn Extra. Fótbolti 1.11.2006 15:58
Alonso kveður Renault Heimsmeistarinn Fernando Alonso fór í kveðjutúr um verksmiðjur Renault á Englandi um helgina en hann gengur til liðs við McClaren fyrir næsta tímabil. Alonso kvaddi starfsmenn Renault með þökkum og óskaði þeim sigurs í öllum keppnum sem hann á annað borð sigraði ekki í sjálfur. Formúla 1 1.11.2006 15:50
Tveir stórleikir í 16 liða úrslitunum Í dag var dregið í 16 liða úrslit karla í ss bikarnum í karlaflokki og þar verða tveir stórleikir á dagskrá. Íslandsmeistarar Fram mæta Fylki og Haukar taka á móti Valsmönnum, en leikirnir verða spilaðir 15. nóvember. Handbolti 1.11.2006 14:53
Baunar áfram á Barcelona Jose Mourinho hrósaði baráttuanda sinna manna í gærkvöld þegar lið Chelsea náði jöfnu gegn Barcelona í Meistaradeildinni, en hann gat ekki stillt sig um að bauna aðeins á Frank Rijkaard þjálfara. Fótbolti 1.11.2006 14:44
Ræddi við Nígeríumenn Breskir fjölmiðlar segja í dag að sænski knattspyrnuþjálfarinn Sven-Göran Eriksson hafi átt í viðræðum við Nígeríska knattspyrnusambandið þar sem honum hafi verið boðið að taka við landsliðinu. Eriksson var áður hjá enska landsliðinu en hætti þar eftir HM í sumar. Hann hefur verið orðaður við West Ham, Benfica, Newcastle, Inter og West Ham í fréttum undanfarið. Enski boltinn 1.11.2006 14:39
Bann Mijailovic stendur Serbneski varnarmaðurinn Nikola Mijailovic hjá Wisla Krakow í Póllandi þarf að sitja af sér fimm leikja bannið sem hann var settur í af evrópska knattspyrnusambandinu á dögunum eftir að áfrýjun hans á banninu var hafnað í dag. Mijailovic beitti Benni McCarthy leikmann Blackburn kynþáttaníð í leik liðanna þann 19 október sl. Fótbolti 1.11.2006 14:16
Staðfestir tilboð í Leicester City Milan Mandaric, fyrrum eigandi enska úrvalsdeildarfélagsins Portsmouth, hefur staðfest að hann hafi gert kauptilboð í 1. deildarfélagið Leicester City. Mandaric náði á sínum tíma að rífa Portsmouth upp úr meðalmennsku og í efstu deild og ætlar sér nú að gera það sama við Leicester. Talið er að tilboð hans sé upp á um 25 milljónir punda. Enski boltinn 1.11.2006 14:10
Nýji stjórnarformaðurinn hefur verið frábær Tony Pulis, knattspyrnustjóri Stoke, segir að gott gengi liðsins á síðustu vikum megi að stóru leyti þakka þeim stuðning sem Peter Coates, stjórnarformaður félagsins, hefur sýnt honum. Coates tók sem kunnugt við af íslensku fjárfestunum fyrir tímabilið í ár og segir Pulis að starfsumhverfi félagsins hafi verið allt annað í vetur. Sport 31.10.2006 19:27
Lakers skellti Phoenix Los Angeles Lakers vann góðan sigur á Phoenix Suns í síðari leiknum á opnunarkvöldi deildarkeppninnar í nótt 114-106. Lakers var án Kobe Bryant í nótt en það kom ekki að sök þar sem Lamar Odom fór fyrir liðinu með 34 stigum og 13 fráköstum á hrekkjavökukvöldi. Körfubolti 1.11.2006 06:13
Chicago kippti meisturunum niður á jörðina Deildarkeppnin í NBA hófst með látum í nótt með leik meistara Miami og Chicago. Meistararnir fengu venju samkvæmt afhenta meistarahringa sína við skemmtilega athöfn fyrir leikinn, en það var eina ástæðan sem leikmenn Miami höfðu til að brosa í nótt því sprækt lið Chicago tók meistarana í nefið á þeirra eigin heimavelli 108-66. Körfubolti 1.11.2006 05:02
Gleði og sorg hjá Eiði Smára Eiður Smári Guðjohnsen skoraði en meiddist illa þegar Barcelona og Chelsea skildu jöfn, 2-2, í stórleik kvöldsins í Meistaradeildinni. Eiður Smári kom Barca í 2-1 á 58. mínútu en meiddist, að því er virtist alvarlega, á ökkla um stundarfjórðungi síðar. Didier Drogba jafnaði leikinn í uppbótartíma. Sport 31.10.2006 21:33
Barcelona leiðir í hálfleik Staðan á Nou Camp leikvanginum í Barcelona er 1-0 fyrir heimamönnum gegn Chelsea þegar flautað hefur verið til hálfleiks í leik liðanna í Meistaradeildinni. Það var Portúgalinn Deco sem skoraði markið strax á 4. mínútu leiksins. Liverpool er yfir gegn Bordeaux á Anfield. Sport 31.10.2006 20:35
Eiður Smári í byrjunarliðinu Eiður Smári Guðjohnsen er í byrjunarliði Barcelona sem tekur á móti Chelsea í Meistaradeild Evrópu eftir örfáar mínútur. Leikurinn hefst kl. 19:45 og er í beinni útsendingu á Sýn. Sport 31.10.2006 19:18
Flestir vilja sjá Saviola taka sæti Eiðs Ratomir Antic, fyrrverandi knattspyrnustjóri Barcelona, segir að Eiður Smári Guðjohnsen sé ekki að spila vel fyrir félagið og að flestir myndu frekar vilja sjá Javier Saviola í fremstu víglínu liðsins. Fótbolti 31.10.2006 18:07
Aldrei lent í öðru eins Marel Baldvinsson var í tapliði Molde í norsku úrvalsdeildinni en þá tapaði liðið fyrir Veigar Páli Gunnarssyni og félögum í Stabæk, 8-0. Veigar skoraði tvö markanna og var að sögn Marels óstöðvandi. „Hann svoleiðis rúllaði vörninni okkar upp," sagði Marel. Fótbolti 30.10.2006 22:14
Ásthildur varð þriðja markahæst Íslenski landsliðsfyrirliðinn Ásthildur Helgadóttir varð þriðja markahæst í sænsku úrvalsdeildinni sem lauk í gær. Ásthildur skoraði 19 mörk en Lotta Schelin varð markahæst með 21 mark og hin brasilíska Marta varð næstmarkahæst með 20 mörk. Fótbolti 29.10.2006 19:35
Króatar hrósuðu sigri Króatar sigruðu í dag á heimsbikarmótinu í handbolta með því að leggja Túnisa að velli 33-31 í rafmögnuðum úrlslitaleik þar sem úrslitin réðust í vítakeppni eftir framlengingu. Ljubo Vukic skoraði 7 mörk fyrir Króata í dag en markamaskínan Wissem Hmam skoraði 13 mörk fyrir Túnisa. Handbolti 29.10.2006 18:42
Nemanja Sovic bestur í 3. umferð Framherjinn Nemanja Sovic hjá Fjölni var í dag útnefndur leikmaður 3. umferðar í úrvalsdeild karla í körfubolta samkvæmt frammistöðuformúlu á tölfræðivef KKÍ. Sovic fékk 44 stig fyrir frammistöðu sína gegn Keflavík á dögunum þar sem hann skoraði 35 stig, hirti 11 fráköst og hitti mjög vel úr skotum sínum í sigri Fjölnis. Körfubolti 29.10.2006 17:58
Langþráður sigur West Ham West Ham vann í dag mjög langþráðan sigur í ensku úrvalsdeildinni þegar liðið skellti Blackburn 2-1 á heimavelli sínum Upton Park. Gamla brýnið Teddy Sheringham skoraði fyrra mark West Ham í fyrri hálfleik og Hayden Mullins bætti öðru við á 79. mínútu. Nokkuð fór um áhorfendur þegar David Bentley minnkaði muninn í uppbótartíma en West Ham náði að halda forskotinu þar til flautað var af. Enski boltinn 29.10.2006 17:52
Valsstúlkur á toppinn Kvennalið Vals skellti sér á toppinn í DHL deild kvenna í dag með sigri á Akureyri 27-20 í Laugardalshöll. Markahæst í liði Vals var Hildigunnur Einarsdóttir með 10 mörk en Ester Óskarsdóttir skoraði 11 mörk fyrir Akureyri. Valur er í toppsætinu með 11 stig en Stjarnan hefur 10 stig í öðru sætinu en á leik til góða. Handbolti 29.10.2006 17:44
Fimm leikir í kvöld Fimm leikir eru á dagskrá í körfuboltanum hér heima í kvöld. Fjórir leikir eru hjá körlunum og einn í kvennaflokki þar sem Íslandsmeistarar Hauka taka á móti nýliðum Hamars/Selfoss. Sá leikur hefst klukkan 19:15 eins og raunar allir leikir kvöldsins. Körfubolti 29.10.2006 17:36
Osasuna - Bilbao í beinni Leikur Osasuna og Atletic Bilbao verður sýndur beint á Sýn klukkan 17:50 í kvöld og strax að leiknum loknum verður á dagská viðureign Denver og Indianapolis í bandarísku NFL deildinni. Fótbolti 29.10.2006 17:30
Singh sigraði óvænt Indverjinn Milkha Singh sigraði óvænt á Volvo Masters mótinu í golfi sem lauk í dag og lauk keppni á tveimur höggum undir pari. Sigur Singh féll þó nokkuð í skuggann af æsispennandi baráttu um efsta sæti peningalistans á tímabilinu, en það tryggði Írinn Padraig Harrington sér í dag með góðum endaspretti. Hann hafnaði í öðru sæti Volvo mótsins ásamt þeim Sergio Garcia og Luke Donald. Golf 29.10.2006 17:17
A-lið Íslands sigraði A-lið Íslands hafði í dag sigur á fyrsta alþjóðlega glímumótinu sem haldið var hér á landi í dag í tilfefni af 100 ára afmæli Glímusambands Íslands. Alls tóku 60 glímumenn þátt í mótinu, þar af 20 erlendir, en keppt var í nýju íþróttahúsi Ármanns í Laugardalnum. Sport 29.10.2006 16:40
Trevor Berbick myrtur Fyrrum þungavigtarmeistarinn í hnefaleikum, Trevor Berbick, fannst látinn í Norwich á Jamaíku í gær. Einn maður hefur verið handtekinn vegna málsins en Berbick var með ljóta höfuðáverka þegar hann fannst. Sport 29.10.2006 16:33