
Vopnafjörður

Loðnan við Vestfirði ekki nægilega mikil
Loðnan sem fannst undan Patreksfirði í gær reyndist ekki vera í nægilegu magni til að unnt sé að heimila veiðar. Von um loðnuvertíð er því orðin veik og blasir loðnubrestur við þennan veturinn. Fulltrúar Hafrannsóknastofnunar funda með fulltrúum útgerðarinnar í dag um stöðuna.

Hafði lokið loðnuleit en snúið við til að kanna vestangöngu
Fiskiskipið Heimaey VE var á siglingu af Vestfjarðamiðum í dag áleiðis til heimahafnar eftir að hafa lokið loðnuleit þegar ákvörðun var tekin um að snúa skipinu til frekari leitar. Ástæðan er vísbending sem barst síðdegis um loðnugöngu undan Patreksfirði.

Vopnfirðingurinn skaut öllum ref fyrir rass á sögulegum viðburði
Dilyan Kolev naut sín vel á stóra sviðinu meðal fremstu pílukastara landsins og stóð uppi sem sigurvegari á Akureyri Open, pílukastmóti sem fór fram í Sjallanum um helgina. Þrátt fyrir stífar æfingar í stofunni heima á Vopnafirði átti hann ekki von á sigri.

Síðasta vonin gæti verið Húnaflóatorfa
Eftir árangurslausar tilraunir til að finna loðnuna hefur verið ákveðið að efna til nýs leitarleiðangurs í von um að afstýra loðnubresti. Skammur tími er til stefnu áður en loðnan drepst og verður lagt í hann strax á morgun.

Byggðirnar bíða spenntar fregna um hvort loðnuganga sé fundin
Vonir um loðnuvertíð þennan veturinn hafa glæðst eftir að fiskiskip urðu vör við flekki djúpt út af Suðausturlandi í gær, sem líklegt þykir að séu stórar loðnutorfur. Í loðnubyggðum landsins bíða menn spenntir fregna um hvort loðna sé fundin í nægilegu magni til að leyfa veiðar.

Halda í vonina um loðnuvertíð í vetur
Vonir um loðnuvertíð þennan veturinn dvínuðu í dag þegar Hafrannsóknastofnun tilkynnti að sáralítið hefði fundist af loðnu í þeirri loðnuleit sem núna stendur yfir. Útgerðarmenn halda þó enn í vonina um að loðnan finnist og að hægt verði að hefja veiðar.

Ágæt von um að loðnan sem upp á vantar finnist
Loðnubrestur með tugmilljarða efnahagsáfalli blasir við ef lítið finnst í loðnuleit þriggja fiskiskipa sem hefst í kvöld. Leiðangursstjórinn telur samt ágæta von um að nægilegt magn finnist til að hægt verði að leyfa einhverjar veiðar.

Tugmilljarða verðmæti í húfi og halda í vonina um loðnuvertíð
Ráðamenn sjávarútvegsfyrirtækja halda enn í vonina um loðnuvertíð í vetur þrátt fyrir að Hafrannsóknastofnun hafi tilkynnt í dag að enginn loðnukvóti verði gefinn út eftir nýafstaðna loðnuleit. Gríðarlegir hagsmunir eru í húfi fyrir þjóðarbúið.

Skólabörn frá Vopnafirði urðu strandaglópar í Amsterdam
Skólabörn frá Vopnafjarðarskóla urðu strandaglópar í Amsterdam í dag eftir að yfirbókað var í flugvél frá Play sem flogið var heim til Íslands. Þau verða flutt til Brussel og flogið til Íslands á morgun.

Segir blendnar tilfinningar fylgja lokun Bragabúðar á Vopnafirði
Versluninni Bragabúð á Vopnafirði var endanlega skellt í lás í gær eftir að hafa veitt Vopnfirðingum þjónustu um rúmlega þrjátíu ára skeið. Eigandi verslunarinnar segir blendnar tilfinningar fylgja lokuninni.

Búið að girða af slysstaðinn á Vopnafirði
Búið er að girða af klettótt svæði við smábátahöfnina á Vopnafirði þar sem tvö slys hafa orðið á síðustu dögum, þar af eitt banaslys.

Skagakonur spila til styrktar fjölskyldu Violetu
Skagakonur hafa ákveðið að styðja við bakið fjölskyldu Violetu Mitul, leikmanns Einherja, sem lést af slysförum í smábátahöfninni á Vopnafirði á þriðjudaginn.

Nafn konunnar sem lést á Vopnafirði
Nafn konunnar sem lést í smábátahöfninni á Vopnafirði í gærmorgun var Violeta Mitul. Hún var 26 ára gömul.

Lést eftir að hafa fallið fram af klettum á Vopnafirði
Kona á þrítugsaldri lést eftir að hafa fallið fram af klettum við smábátahöfnina á Vopnafirði í nótt.

Svona verður Sjómannadagurinn haldinn hátíðlegur um land allt
Sjómannadagurinn verður haldinn hátíðlegur á sunnudaginn og verða af því tilefni mikil dagskrá víða um land og sums staðar alla helgina.

Segir Finnafjörð fastan í þagnarmúr ríkisstjórnar
Framgangur hugmynda um stórskipahöfn í Finnafirði við Langanes tafðist vegna covid-faraldursins. Áform um að taka upp þráðinn á ný eru sögð stranda á því að engin áheyrn fáist hjá íslenska ríkinu.

Óvænt loðna í Húnaflóa ávísun á mikil verðmæti
Miklar loðnutorfur hafa óvænt fundist norður af Húnaflóa og tilkynnti Hafrannsóknastofnun í dag að búast mætti við að minnsta kosti eitthundrað þúsund tonna aukningu loðnukvótans. Viðbótin gæti skilað tíu milljarða króna útflutningsverðmæti.

Bræðslur keyrðar á olíu vegna raforkuskerðingar
Annan veturinn í röð hafa fiskimjölsverksmiðjur neyðst til að brenna dísilolíu vegna raforkuskerðingar. Landsvirkjun segir þetta vegna mikils álags, kerfið sé nánast uppselt.

„Alltaf brælur í kortunum, lægðagangur og ógeð“
Loðnuvertíðin er að fara á fulla ferð þessa dagana og styttist í að loðnan verði hæf til frystingar á Japansmarkað. Síendurteknar brælur eru hins vegar í veðurkortunum og gætu hamlað veiðum.

Loðna flæðir inn í vinnslur á Vopnafirði og Norðfirði
Fyrstu loðnuförmum vertíðarinnar var landað í tveimur Austfjarðahöfnum í dag. Á Vopnafirði sögðu menn loðnuna sannkallaðan jólabónus en áratugur er liðinn frá því síðast tókst að hefja þar loðnuvinnslu fyrir jól.

Jólabónus Vopnfirðinga að hefja loðnuvinnslu fyrir jól
Fyrsti loðnufarmur þessarar vertíðar kom til Vopnafjarðar í morgun en þar stendur núna yfir löndun úr Víkingi AK, skipi Brims. Rekstrarstjóri Brims segir loðnuna sannkallaðan jólabónus en tíu ár eru frá því loðnuvinnsla hófst síðast á Vopnafirði fyrir jól.

Fyrstu loðnufarmarnir á leið til Vopnafjarðar og Norðfjarðar
Búist er við að fyrstu loðnu þessarar vertíðar verði landað á Austfjörðum á morgun. Von er á farmi til Vopnafjarðar í fyrramálið og öðrum til Norðfjarðar eftir hádegi. Nýafstaðin loðnuleit gefur ekki tilefni til að auka loðnukvótann, að mati Hafrannsóknastofnunar.

Efna til viðbótar leiðangurs í von um stærri loðnuvertíð
Hafrannsóknastofnun og útgerðir loðnuskipa hafa sameinast um viðbótar leitarleiðangur í von um að meiri loðna finnist fyrir komandi vertíð. Útgerðin mun greiða kostnaðinn og verður lagt í hann strax eftir helgi.

Brim kaupir aukinn kvóta og nýtt skip
Brim hf. hefur gengið frá samkomulagi við Útgerðarfélag Reykjavíkur hf. um kaup á félaginu RE 27 ehf. en eignir þess eru frystitogarinn Sólborg RE og veiðiheimildir. Markmið viðskiptanna er sagt vera að efla uppsjávarsvið Brims og styrkja uppsjávarvinnslu félagsins á Vopnafirði.

Þoka gert hreindýraveiðimönnum erfitt fyrir
Jóhann G. Gunnarsson, sérfræðingur hjá umhverfisstofnun á Egilsstöðum, segir að hreindýraveiðarnar fari rólega af stað.

Ný bortækni gæti valdið byltingu í jarðgangagerð
Ný aðferð í jarðgangagerð sem felst í að nota plasma-ljósboga til að mölva sér leið í gegnum berg vekur vonir um að jafnvel villtustu draumar margra á Íslandi um veggöng gætu ræst. Fullyrt er að með þessari tækni megi grafa göng margfalt hraðar og margfalt ódýrar en með núverandi tækni og með mun minni umhverfisáhrifum.

Sara Elísabet endurráðin sveitarstjóri Vopnafjarðarhrepps
Sveitarstjórn Vopnafjarðarhrepps samþykkti á fundi sínum þann 30. júní síðastliðinn að Sara Elísabet Svansdóttir yrði ráðin sveitarstjóri Vopnafjarðarhrepps frá 2022 til ársins 2026.

Kosningaloforðið uppfyllt átta árum eftir að Betra Sigtún bauð fram
Þau tíðindi urðu á Vopnafirði í vikunni að gatan Sigtún var malbikuð. Árið 2014 bauð framboðið Betra Sigtún þar sem malbikun götunnar var eitt helsta stefnumálið.

Hitaveita á köldum svæðum álitlegri með tækniframförum í jarðhitaleit
Ísafjörður, Patreksfjörður og Grundarfjörður eru í flokki álitlegustu þéttbýlisstaða á Íslandi til að fá hitaveitu, að mati jarðfræðings hjá ÍSOR, sem segir tækniframfarir í jarðhitaleit kalla á endurmat á svokölluðum köldum svæðum hérlendis.

Hækka afurðaverð um 31 prósent
Sláturfélag Vopnafjarðar hefur hækkað afurðaverð sláturleyfishafa um 31 prósent. Þetta kemur fram í nýbirtri verðskrá félagins.