Sjáðu lætin í lokin: „Þetta var algjörlega til skammar“ Sindri Sverrisson skrifar 8. janúar 2026 22:39 Menn hópuðust að Martinelli sem fékk að lokum gult spjald. Getty/John Walton Það sauð aðeins upp úr í lokin á stórleik Arsenal og Liverpool í kvöld, þegar Gabriel Martinelli kom illa fram við meiddan Conor Bradley úti við hliðarlínu, kastaði í hann bolta og reyndi að ýta honum yfir línuna.
Leikurinn sjálfur var ekki eins fjörugur og vonir stóðu til og endaði með markalausu jafntefli. Undir lokin hitnaði þó í kolunum eins og fyrr segir, en hér að neðan má sjá viðskipti þeirra Martinelli og Bradley sem var svo borinn á börum af velli og hafði greinilega meiðst. Klippa: Martinelli með leiðindi við Bradley Það var komið fram í uppbótartíma þegar Bradley meiddist og gæti Martinelli hafa haldið að um leikaraskap væri að ræða, því hann byrjaði á að kasta boltanum í Norður-Írann. Því næst reyndi hann að ýta honum yfir hliðarlínuna og út af vellinum, svo að engin töf yrði á því að leikurinn gæti haldið áfram. Martinelli fékk gula spjaldið fyrir þetta og var látinn heyra það af liðsfélögum Bradley, áður en lokamínúturnar voru spilaðar. Gary Neville, sérfræðingur Sky Sports, var vægast sagt ekki hrifinn af framgöngu Martinelli: „Ég er brjálaður yfir Martinelli. Í hreinskilni sagt þá skil ég ekki af hverju Liverpool-mennirnir fóru ekki bara og réðust á hann, og tóku á sig rautt spjald. Þetta var algjörlega til skammar.“ Mikel Arteta, stjóri Arsenal, kom sínum manni til varnar eftir leik og sagði alveg ljóst að hann vildi ekki neinum illt.
Enski boltinn Liverpool FC Arsenal FC Tengdar fréttir Arsenal með sex stiga forskot eftir blautan slag Þrátt fyrir að sigurgöngu Arsenal hafi lokið í kvöld er liðið komið með sex stiga forskot á toppi ensku úrvalsdeildarinnar í fótbolta, eftir markalaust jafntefli í stórleiknum gegn Liverpool í Lundúnum. 8. janúar 2026 21:40 Mest lesið Bað dómarann um hjálp út af megnri marijúanalykt Sport Myndband ekki fyrir viðkvæma: „Horfi niður og sé höndina mína í einhverri steik“ Íslenski boltinn Enn kynt upp í rígnum: Ekroth keyrði utan í Aron Íslenski boltinn Fallin vonarstjarna Liverpool dæmd en sleppur við fangelsi Enski boltinn City marði Coventry Enski boltinn Stólpagrín gert að leikmanni Ipswich Enski boltinn Sjáðu mörk Isaks í fyrsta leik Barcola Enski boltinn Norðmaðurinn fjórði en reif kjaft: „Hvaða lúsera er ég að keppa við?“ Sport Hágrét í bílnum með mömmu Fótbolti Fyrsta tap Mourinho eftir ótrúlega dramatík Fótbolti Fleiri fréttir Arbeloa í brasi City marði Coventry Steindautt er Tottenham náði í fyrsta stigið Ramsey bjargaði stigi Fallin vonarstjarna Liverpool dæmd en sleppur við fangelsi Stólpagrín gert að leikmanni Ipswich Yfirgefur Liverpool fyrir Sádi-Arabíu Segist aldrei hafa efast um Gakpo Sjáðu mörk Isaks í fyrsta leik Barcola Isak heitur í sigri Liverpool og strax búinn að jafna síðustu leiktíð Carrick himinlifandi eftir kaup sumarsins Mætir gömlu félögunum í Manchester United í endurkomunni til Englands Fékk bombu í andlitið en meiddist á hné Tróð inn lagatitlum og enginn tók eftir því Sér enn eftir að hafa hafnað tækifærinu „Gangandi martröð“ Stórir póstar utan Meistaradeildarhóps Liverpool Skaðar orðspor dómara: Lék sér að því að flauta ekki upp á grín Tielemans tók vítið með Bruno Martinelli seldur til Sádi-Arabíu Bestu kaupin í sögu enska boltans Barcola í hóp á morgun Liðin í enska boltanum eyddu meira en stærstu deildir Evrópu til saman Liverpool fékk nýjan markvörð Stóðst læknisskoðun og stakk svo af Liverpool hringdi svo hann sagði nei við Chelsea Lækkaði launin til að upplifa drauminn Fengu þrjá á lokadegi Tókst ekki að ræna Belganum Dagskráin í dag: Einn leikur á sviðið út af fyrir sig Sjá meira
Arsenal með sex stiga forskot eftir blautan slag Þrátt fyrir að sigurgöngu Arsenal hafi lokið í kvöld er liðið komið með sex stiga forskot á toppi ensku úrvalsdeildarinnar í fótbolta, eftir markalaust jafntefli í stórleiknum gegn Liverpool í Lundúnum. 8. janúar 2026 21:40