Netsambandslaust meðan mótmælt er í Íran Sólrún Dögg Jósefsdóttir skrifar 9. janúar 2026 00:05 Mótmæli gegn klerkastjórninni hafa staðið yfir í landinu í tólf daga. AP Fjölmenn mótmæli gegn írönskum stjórnvöldum héldu áfram víða um Íran í kvöld. Netsamband hefur rofnað um allt landið á sama tíma og aukin harka hefur færst í mótmælin og átök brotist út milli mótmælenda og öryggissveita klerkastjórnarinnar..
Í samfélagsmiðlafærslu frá samtökunum Netblocks, sem hafa eftirlit með netnotkun í heiminum, segir að netsambandsleysið komi í kjölfar „fjölda hertra stafrænna ritskoðunaraðgerða“ sem beinist að mótmælendum og komi í veg fyrir að almenningur geti átt samskipti á ögurstundu. Washington Post hefur eftir mannréttindasamtökum að allt að 36 manns séu taldir af eftir óeirðirnar og að börn séu meðal látinna. Rætur mótmælanna má að langmestu rekja til mjög slæms efnahagslegs ástands í Íran. Gjaldmiðill Íran hefur hríðfallið í virði undanfarið ár, verðlag hefur hækkað mjög þar sem verðbólga mælist fjörutíu prósent og aðstæður almennings hafa versnað til muna. Í myndböndum sem fréttastofa BBC hefur sannreynt að séu síðan í kvöld sjást mörg þúsund mótmælendur ganga um götur Teheran og fleiri íranskra borga. Þrátt fyrir að augljóslega sé um fjöldamótmæli að ræða hefur íranski ríkismiðillinn gert lítið úr mótmælunum og í einhverjum tilfellum hafnað því að þau eigi sér stað yfir höfuð. Donald Trump Bandaríkjaforseti ítrekaði í kvöld að klerkastjórnin fengi að „finna verulega fyrir því“ ef hún hætti ekki að drepa friðsama mótmælendur.
Íran Mest lesið Hafi selt alls konar fíkniefni í gegnum „Kannabis Inc“ Innlent Segist ekki munu biðja páfa afsökunar Erlent „Ég reikna sterklega með því að karma banki upp á hjá þeim“ Innlent Góðkunningjar lögreglu grunaðir í stóru dópmáli Innlent Svikarar við þjóðina verði dregnir til ábyrgðar Erlent Vara dýraeigendur við: Gruna að eitrað hafi verið fyrir tveimur dýrum Innlent Neitar að hafa beitt fósturbörnin á Gauksstöðum ofbeldi Innlent Milljarðar gætu farið í að flytja íslenskt sorp úr landi Innlent Lýsir yfir fyrsta sigri vélmenna á vígvellinum Erlent Betur fór en á horfðist á Mývatni: Lenti á þvervegi og tókst á loft Innlent Fleiri fréttir Staðfesting úrslita dönsku kosninganna í uppnámi Stórt smyglmál til rannsóknar og eitrað fyrir gæludýrum í Kjós Lýsir yfir fyrsta sigri vélmenna á vígvellinum Svikarar við þjóðina verði dregnir til ábyrgðar Segist ekki munu biðja páfa afsökunar Hezbollah mótmælir viðræðum og Íranir krefjast skaðabóta Mótmæla samruna Paramount og Warner Bros Öllum írönskum skipum útrýmt nálgist þau herkví Ótrúleg valdatíð Viktors Orban á enda Páfi hvergi banginn þrátt fyrir atyrði Trump Innanbúðarmaðurinn sem lagði Orbán Gerir yfirbót eftir vítisenglahótanir um páskana Trump hjólar í páfa Biður strengjabrúður Orbáns um að segja af sér Olíuverð hækkar enn meir í ljósi hótana Trumps Orbán játar sig sigraðan Orbán skákað í síðustu skoðanakönnuninni Faðir Mary drottningar látinn Mette Frederiksen leitar yfir miðju Trump setur blátt bann við siglingum um Hormússund Allra augu verða á Ungverjalandi í kvöld Íri réðst á bandaríska herflugvél með öxi Friðarviðræður runnu út í sandinn Komið að ögurstundu Níu ára drengur læstur í bíl föður síns í Frakklandi frá árinu 2024 Trump „alveg sama“ um hvort samkomulag náist við Íran Augliti til auglitis í fyrsta sinn frá íslömsku byltingunni „Arc de Trump“ rísi í Washington Fullkomin lending eftir sögulega ferð Sakfelldur vegna sjálfsvígs eiginkonunnar Sjá meira