Skaftárhreppur

Pilturinn fundinn heill á húfi
Pilturinn sem lögreglan lýsti eftir fyrr í kvöld er fundinn heill á húfi.

Hlaupið í Skaftá nú mjög lítið
Náttúruvársérfræðingur hjá Veðurstofu Íslands segir hlaupið í Skaftá nú mjög lítið. Það sem sýni skýr merki hlaups sé hækkuð rafleiðini. Vatnsyfirborð hefur lítið vaxið.

Hlaup hafið í Skaftá
Hlaupið kemur úr Vestari-Skaftárkatli.

Nýja brúin yfir Eldvatn hjá Ásum senn opnuð umferð
Smíði nýrrar glæsibrúar yfir Eldvatn í Skaftárhreppi er núna á lokametrunum og vonast Vegagerðin til að hún verði opnuð umferð í október.

Bílvelta á Suðurlandsvegi við Lómagnúp
Lögreglan á Suðurlandi er nú við vinnu á vettvangi umferðarslyss á Suðurlandsvegi við Lómagnúp nærri Núpsvötnum við suðvesturhorn Vatnajökuls.

Vísbendingar um að eldstöðin Katla sé nálægt brotmörkum
Merki eru um að Katla sé að undirbúa gos og vísbendingar um að eldfjallið sé komið nálægt brotmörkum. Aðdragandi eldgoss gæti orðið stuttur.

Prófuðu Mars-geimbúning á Íslandi
Hópur á vegum Iceland Space Agency dvaldi fyrr í mánuðinum við Grímsvötn á Vatnajökli til þess að safna gögnum og prófa geimbúning sem iðnhönnuður hannaði í samstarfi við NASA, bandarísku geimferðastofnunina. Markmiðið var að kanna hvernig geimbúningurinn virkar í umhverfi sem líkist því sem finna má á Mars

Þrír á sviptingarhraða á Suðurlandi
Lögreglan á Suðurlandi segist hafa kært 45 ökumenn fyrir of hraðan akstur í gær.

Annað barnanna mest slasað
Einstaklingarnir fjórir sem fluttir voru með þyrlu Landhelgisgæslunnar á sjúkrahús í Reykjavík eftir alvarlegt umferðarslys á Suðurlandsvegi í Eldhrauni í gærkvöldi voru erlendir ferðamenn. Um var að ræða hjón með tvö börn.

Þyrla sótti slasaða í alvarlegu slysi í Eldhrauni
Slysið átti sér stað á Suðurlandsvegi í Eldhrauni vestan við Kirkjubæjarklaustur.

Vongóður um nýjan Uxa eftir „aftökuna“ 1995
Kristinn Sæmundsson, einn skipuleggjenda hinnar umdeildu tónlistarhátíðar Uxa '95 sem haldin var á Kirkjubæjarklaustri árið 1995, segist vonast til þess að endurvekja hátíðina á 25 ára afmæli hennar á næsta ári.

Jarðskjálfti af stærðinni 3,3 mældist í Torfajökli
Samkvæmt upplýsingum frá Veðurstofu Íslands hefur hrina staðið yfir á svæðinu frá því í nótt þar sem minni skjálftar hafa mælst. Stærsti þeirra var 2,1 að stærð.

Bjargaði nýbornum lambhrúti í Meðallandi
Edda Björk Arnardóttir og fjölskylda lentu í miklum ævintýrum um helgina.

Vatnajökulsþjóðgarður kominn á heimsminjaskrá UNESCO
Vatnajökulsþjóðgarður er kominn á heimsminjaskrá Menningarmálastofnunar Sameinuðu þjóðanna, UNESCO. Þetta kemur fram í tilkynningu frá mennta- og menningarmálaráðuneytinu og umhverfis- og auðlindaráðuneytinu.

Rútubílstjórinn í slysinu við Kirkjubæjarklaustur lýsir mikilli pressu og álagi í stéttinni
Helgi Haraldsson, hópferðabílstjórinn sem fyrir helgi var dæmdur í sex mánaða skilorðsbundið fangelsi fyrir slysið í desember 2017 á Suðurlandsvegi vestur af Kirkjubæjarklaustri, slasaðist sjálfur alvarlega í þegar rútan valt. Slysið gjörbreytti lífi hans.

Sex mánaða fangelsisdómur yfir rútubílstjóra í banaslysi
Rútubílstjóri sem ók rútu sem ekið var aftan á fólksbíl og valt út af Suðurlandsvegi vestur af Kirkjubæjarklaustri í desember 2017 hefur verið dæmdur í sex mánaða skilorðsbundið fangelsi.

Fjaðrárgljúfur opnað á ný
Umhverfisstofnun hefur opnað fyrir umferð gesta um Fjaðrárgljúfur á ný. Svæðinu var lokað fyrir allri umferð í febrúar síðastliðnum vegna aurbleytu og gróðurskemmda í kjölfar leysinga.

Hnattræn áhrif Skaftárelda staðfest í nýrri rannsókn
Áhrifa Skaftárelda, stærsta eldgoss síðustu þúsund ára, gætti um allt norðurhvel. Ný rannsókn sýnir að áhrifin náðu allt suður á suðurhvel jarðar en að gosið hafi þó ekki tengst hitabylgju sem gekk yfir Evrópu um það leyti sem gaus.

Landverði við Fjaðrárgljúfur boðnar mútur fyrir aðgang
Tónlistarmaðurinn Justin Bieber gerði gljúfrið heimsfrægt þegar hann tók upp myndband við lagið I'll Show You sem birt var í nóvember 2015. Síðan þá hefur ágangur á svæðið aukist til muna og er farið að sjá verulega á umhverfinu.

Ruslamál í Öræfunum ófullnægjandi
Hótelstjóri í Skaftafelli segir að ruslamál í Öræfunum séu ófullnægjandi. Engin grenndarstöð sé á svæðinu þrátt fyrir yfir 500 gistirými og fjölda ferðaþjónustuaðila. Reynt hafi verið að vekja athygli sveitarfélagsins á málinu sem skilji öræfin út undan í aðgerðum sínum í umhverfismálum.

Kyndill nýtur góðs af minningarsjóði Jennýjar Lilju
Minningarsjóður Jennýjar Lilju Gunnarsdóttur afhendir í dag Björgunarsveitinni Kyndli þrjú loftdýnusett til að auðvelda sveitinni störf á vettvangi slysa.

Stefnt að því að vígja brúna yfir Eldvatn í sumarlok
Vegagerðin stefnir á það að vígja nýju brúna yfir Eldvatn í sumarlok en góður gangur er í brúarsmíðinni að því er segir á vef Vegagerðarinnar.

Banaslysið í Eldhrauni: Rútunni ekið of hratt með lélegt hemlakerfi
Rannsóknarnefnd samgönguslysa telur að rútunni sem valt þann 27. desember 2017 með þeim afleiðingum að tveir létust og fjölmargir slösuðust hafi verið ekið of hratt. Hemlageta rútunnar var lítil og líklegt er að afstýra hefði mátt slysinu hefði hemlakerfið verið í lagi.

Enn er straumlaust í Mýrdal
Línur og staurar brotnuði í ísingu.

Fjaðrárgljúfri lokað til 1. júní
Svæðið umhverfis hið vinsæla Fjaðrárgljúfur verður lokað til 1. júní næstkomandi svo að það geti jafnað sig, eftir mikinn ágang ferðamanna.

Búist við að vindur nái fárviðrisstyrk
Búið að loka veginum milli Hvolsvallar og Víkur.

Sláandi munur á klettasnös við Fjaðrárgljúfur fyrir og eftir Bieber
Umhverfisstofnun birti í dag færslu á Facebook-síðu sinni þar sem sjá má tvær myndir af sömu klettasnösinni við Fjaðrárgljúfur.

Fjaðrárgljúfur lokað næstu tvær vikurnar
Umhverfisstofnun mun loka Fjaðrárgljúfri í Skaftárhreppi fyrir umferð gesta klukkan níu í fyrramálið, miðvikudaginn 27. febrúar.

Ræktar feldfé til að fá mjúka og fíngerða ull
Nokkrir sauðfjárbændur eru farnir að rækta svokallað feldfé, þar sem áhersla er lögð á gæði ullarinnar, en mjúk og fíngerð feldfjárull er eftirsótt í handverki.

Fjórir slasaðir færðir með þyrlu á Landspítalann í Fossvogi
Klukkan hálfníu lenti þyrla Landhelgisgæslunnar við Landspítalann í Fossvogi með fjóra slasaða úr umferðarslysinu austan við Vík í Mýrdal.