Samfylkingin
42 43 44 45 46 ›
Aldrei fleiri kosið Ingibjörg Sólrún Gísladóttir er nýr formaður Samfylkingarinnar. Hún hlaut tvo þriðju allra atkvæða í póstkosningu meðal tólf þúsund félaga flokksins. Aldrei hafa fleiri kosið í formannskosningum hjá íslenskum stjórnmálaflokki. Innlent 13.10.2005 19:14
Þjóðin vill nýja stjórn Össur Skarphéðinsson, formaður Samfylkingarinnar, sagði við setningu landsfundar flokksins í Egilshöll í dag að á skömmum tíma hefði Samfylkingin náð þeim trúnaði fólksins í landinu að verða annað stóra aflið í íslenskum stjórnmálum. Þjóðin vildi nýjar hugmyndir, nýjar lausnir og nýja landsstjórn. Innlent 13.10.2005 19:14
Landsfundurinn hefst í dag Landsfundur Samfylkingarinnar hefst í dag en á fundinum verður kosið til formanns eins og kunnugt er. Formannskjöri verður lýst klukkan tólf á morgun en á dagskránni í dag eru kosningar í ýmis embætti á fundinum og skýrslur ýmissa hópa, þ.á m. framtíðarhóps flokksins sem Ingibjörg Sólrún Gísladóttir stýrði. Innlent 13.10.2005 19:14
Samfylkingin vanbúin síðast Ingibjörg Sólrún Gísladóttir segir að Samfylkingin hafi farið vanbúin í kosningabaráttuna fyrir síðustu kosningar, stefnuvinnu hafi ekki verið gefinn nægur gaumur. Samfylkinguna hafi því skort trúverðugleika. Hún leggur til stofnun skuggaráðuneyta. </font /></b /> Innlent 13.10.2005 19:14
Búist við sigri Ingibjargar Búist er við því að Ingibjörg Sólrún Gísladóttir beri sigurorð af sitjandi formanni, Össuri Skarphéðinssyni, í formannskosningu Samfylkingarinnar. Úrslit verða kynnt á hádegi í dag á landsfundi flokksins. Talið er að þrír muni gefa kost á sér í varaformanninn, Ágúst Ólafur Ágústsson, Lúðvík Bergvinsson og Björgvin G. Sigurðsson. </font /></b /> Innlent 13.10.2005 19:14
Leggjum niður allar deilur Össur Skarphéðinsson, formaður Samfylkingarinnar, talaði fyrir sáttum fylkinga innan flokksins að loknum formannsslagnum. Tímabilið fram að næstu kosningum verði hið mikilvægasta í sögu flokksins. Flokkurinn ætli sér að verða stærsti flokkurinn í næstu kosningum. </font /></b /> Innlent 13.10.2005 19:14
Lúðvík í varaformanninn Lúðvík Bergvinsson hefur ákveðið að gefa kost á sér til embættis varaformanns Samfylkingarinnar á landsfundi flokksins sem haldinn verður um næstu helgi. Ágúst Ólafur Ágústsson hafði áður lýst yfir framboði til varaformanns. Innlent 13.10.2005 19:13
7-10 þúsund atkvæði í húsi Á bilinu sjö til tíu þúsund atkvæði í formannskjöri Samfylkingarinnar eru komin í hús en tæplega tuttugu þúsund félagsmenn í Samfylkingunni eru á kjörskrá. Frestur til að skila inn atkvæðum rennur út á fimmtudag. Innlent 13.10.2005 19:13
Kærir kjörstjórn Samfylkingarinnar Starfsmanni á skrifstofu Samfylkingarinnar var sagt upp störfum eftir að upp komst að átt hafði verið við kjörskrár og upplýsingar sendar út í heimildarleysi. Starfsmaðurinn hefur kært málið til Persónuverndar á þeirri forsendu að farið hafi verið í gegnum tölvupóst hans í heimildarleysi. Innlent 13.10.2005 19:12
Má kjósa í formannskjörinu Steingrímur Sævarr Ólafsson, upplýsingafulltrúi forsætisráðuneytisins, öðlaðist óvænt kosningarétt í formannskjöri Samfylkingarinnar. Innlent 13.10.2005 19:07
Vafasamar skráningar í flokkinn Móðir misþroska drengs hringdi öskureið á skrifstofu Samfylkingarinnar í gær og kvartaði undan því að fimmtán ára sonur hennar hefði verið skráður í Samfylkinguna. Flosi Eiríksson, formaður kjörstjórnar Samfylkingarinnar, segir nokkuð ljóst að menn hafi farið offari og skráð einhverja sem ekki vilji vera í flokknum. Innlent 13.10.2005 19:07
Kjörseðlar sendir út í dag Kjörstjórn Samfylkingarinnar vegna formannskosninganna sendir í dag út tæplega 20 þúsund kjörseðla til allra sem skráðir eru í flokkinn. Flokksmönnum hefur fjölgað um 54 prósent frá áramótum, langmest síðustu dagana og vikurnar áður en skráningarfrestur til þátttöku í formannskjörinu rann út. Innlent 13.10.2005 19:06
Fannst Össur tala niður til sín Ingibjörg Sólrún Gísladóttir sakar Össur Skarphéðinsson um að tala niður til sín með því að segjast sjálfur hafa lagt allt undir til að gera hana að forsætisráðherra fyrir síðustu þingkosningar. Össur segist síður en svo hafa talað niður til Ingibjargar. Innlent 13.10.2005 19:05
Skortur á samráði í Samfylkingunni Misræmi í yfirlýsingum Össurar Skarphéðinssonar og Ingibjargar Sólrúnar Gísladóttur, þegar tilkynnt var um framboð hennar í síðustu Alþingiskosningum, var til komið vegna skorts á samráði. Össur lýsti yfir framboði hennar á sama tíma og R-listafólk í borginni var að reyna að telja henni hughvarf. Innlent 13.10.2005 19:05
7000 nýskráningar í Samfylkinguna Gríðarleg smölun stuðningsmanna formannsefnanna í Samfylkingunni hefur skilað sjö þúsund nýjum flokksmönnum sem er aukning um tæp 54 prósent frá áramótum. Þá voru skráðir flokksmenn u.þ.b. þrettán þúsund en eru nú rétt um tuttugu þúsund eftir að frestur til að skrá sig í flokkinn, til að geta tekið þátt í formannskjörinu, rann út á föstudag. Innlent 13.10.2005 19:04
Kosningarnar byggðar á trausti Tæplega tuttugu þúsund flokksmenn Samfylkingarinnar fá að um það bil viku liðinni senda heim til sín kjörseðla vegna formannskjörsins. Innlent 13.10.2005 19:04
Fjölgað um helming í Samfylkingu Stuðningsmenn Ingibjargar söfnuðu rúmlega þrjú þúsund nýjum Samfylkingarmönnum og stuðningsmenn Össurar tvö þúsund. Tvö þúsund að auki komu í gegnum skrifstofu. Samfylkingarmönnum hefur fjölgað um rúman helming frá áramótum, úr þrettán þúsund í tuttugu. </font /></b /> Innlent 13.10.2005 19:04
Vilja Ágúst Ólaf sem varaformann Framkvæmdastjórn Ungra jafnaðarmanna, ungliðahreyfingar Samfylkingarinnar, hvetur þingmanninn Ágúst Ólaf Ágústsson til að gefa kost á sér sem varaformaður flokksins á landsfundinum í Maí. </font /> Innlent 13.10.2005 19:02
Össur sendir Ingibjörgu sneið Össur Skarphéðinsson, formaður Samfylkingarinnar, segir fátt nýtt koma frá framtíðarhópi flokksins en honum stýrir Ingibjörg Sólrún Gísladóttir, keppinautur hans um formannssætið í flokknum. Innlent 13.10.2005 19:02
Stuðningsmenn Össurar mótmæla Stuðningsmenn Össurar Skarphéðinssonar í formannskjöri Samfylkingarinnar mótmæla afskiptum fyrirtækisins Plúsinn.is af innanflokksmálum Samfylkingarinnar og benda á að fyrirtækið hafi sent frá sér áróður í formi skoðanakönnunar í þágu Ingibjargar Sólrúnar Gísladóttur. Innlent 13.10.2005 19:01
Neita afskiptum af Samfylkingunni Forsvarsmenn Plússins.is segjast ekki hafa skipt sér af innanflokksmálum Samfylkingarinnar eins og stuðningsmenn Össurar Skarphéðinssonar í formannskjöri flokksins hafa haldið fram. Innlent 13.10.2005 19:01
60% nefndu Ingibjörgu Sólrúnu Sextíu prósent þeirra sem svöruðu í skoðanakönnun Frjálsar verslunar nefndu Ingibjörgu Sólrúnu Gísladóttur þegar spurt var hvern viðkomandi vildi sjá sem formann Samfylkingarinnar. Fjörutíu prósent nefndu Össur Skarphéðinsson. Innlent 13.10.2005 18:45
Könnunin skemmtilegt gisk Össur Skarphéðinsson, formaður Samfylkingarinnar, segir könnun Fréttablaðsins í raun skemmtilegt gisk blaðsins. Spurt sé „hverju menn spái“ en „ekki hvað menn vilji“. Það sé stór galli á könnuninni. Innlent 13.10.2005 15:30
Sérdeild fyrir unga fanga Ungir fangar koma hættulegri úr fangelsunum heldur en þeir voru þegar þeir fóru inn, segir Ólafur Ágúst Ólafsson alþingismaður. Hann vill sérdeild fyrir fanga á aldrinum 18 til 24 ára í nýju fangelsi. </font /></b /> Innlent 13.10.2005 15:30
Varaformannsslagur í uppsiglingu? Varaformannsslagur gæti verið í uppsiglingu í Samfylkingunni. Til stóð að formannsframbjóðendur Samfylkingarinnar mættust á opnum fundi Samfylkingarinnar á Akureyri í dag í fyrsta sinn síðan formannsslagurinn hófst. Ekkert varð úr því þar sem Ingibjörg Sólrún varð verðurteppt í Reykjavík. Innlent 13.10.2005 15:29
Össur og Ingibjörg takast á Formannsframbjóðendur Samfylkingarinnar takast á á opnum fundi í dag í fyrsta sinn síðan formannsslagur flokksins hófst. Össur Skarphéðinssonm, formaður Samfylkingarinnar, og Ingibjörg Sólrún Gísladóttir varaformaður munu mætast á almennum, opnum stjórnmálafundi sem hefst á Akureyri klukkan hálffjögur. Innlent 13.10.2005 15:29
Pólitísk endalok Ingibjargar? Ingibjörg Sólrún Gísladóttir segir mögulegt að hún hætti í stjórnmálum bíði hún ósigur fyrir Össuri Skarphéðinssyni í formannskosningu í Samfylkingunni. Hún segir að komið sé að hugmyndafræðilegri endurnýjun í flokknum. Innlent 13.10.2005 15:27
Landsfundur Samfylkingar í vor Landsfundur Samfylkingarinnar verður haldinn dagana 22.-23. maí í vor. Þetta var ákveðið á fundi framkvæmdastjórnar flokksins í gærkvöldi eftir umræður um að halda fundinn jafnvel fyrr. Í upphafi fundarins verður tilkynnt um hver verður formaður flokksins, að undangenginni póstkosningu, en varaformaður verður kjörinn á fundinum sjálfum. Innlent 13.10.2005 15:27
Reiði Össurar tilefnislaus IMG Gallup er ekki að gera skoðanakönnun fyrir stuðningsmenn Ingibjargar Sólrúnar Gísladóttur, eins og Össur Skarphéðinsson hélt fram í fréttum Stöðvar 2 í gærkvöldi. Varaþingmaður Samfylkingarinnar segir Össur hafa sýnt tilefnislausa reiði með ummælum sínum. Innlent 13.10.2005 15:26
Ekki skoðanir verkalýðsmálaráðs Sex menn úr forystu verkalýðshreyfinga og allir fulltrúar í verkalýðsmálaráði Samfylkingarinnar sendu í gærkvöldi frá sér yfirlýsingu þar sem þeir segja að skoðanir Gylfa Arnbjörnssonar, framkvæmdastjóra ASÍ, í hádegisfréttum Ríkisútvarpsins í gær séu ekki skoðanir verkalýðsmálaráðsins. Innlent 13.10.2005 15:26