Kjaramál
145 146 147 148 149 150 151 152 153 … 154 ›
Vonast eftir fleirum á útifund en fyrir 30 árum Vonir standa til að jafnmargir, og helst fleiri, mæti á útifundinn á kvennafrídaginn á morgun en fyrir þrjátíu árum. Erlendir fjölmiðlar sýna baráttunni hér á landi áhuga. Innlent 23.10.2005 22:55
Segist eiga inni sjö vikna hvíld Unglæknir telur sig eiga inni yfir 300 klukkustundir í hvíldartíma hjá Landspítala háskólasjúkarhúsi. Málaferli eru nú í gangi vegna ágreinings um hvíldartíma á annað hundrað unglækna, sem vinna eða hafa unnið hjá spítalanum.</font /></b /> Innlent 17.10.2005 23:47
Laun hækkuð hjá útvöldum "Fyrirtæki í verslun og þjónustu hafa að undanförnu hækkað laun þeirra starfsmanna sinna sem þykja eftirsóknarverðir til að tryggja að þeir hætti ekki," segir Sigurður Jónsson, framkvæmdastjóri Samtaka verslunar og þjónustu. Innlent 14.10.2005 06:41
Samstarfsnefnd ræðir ellilífeyri Jón Kristjánsson heilbrigðisráðherra segir það fagnaðarefni, að forráðamenn tiltekinna fyrirtækja skuli hafa tekið upp þá starfsmannastefnu að ráða eldra fólk með reynslu í vinnu, þannig að það hafi valfrelsi á ævikvöldinu. Innlent 13.10.2005 19:44
Frábært fordæmi Frábært fordæmi segir formaður Kjalar, stéttarfélags í almannaþjónustu, um þá starfsmannastefnu að ráða eldra fólk til starfa. Húsasmiðjan hefur stigið það skref að auglýsa eftir starfskröftum úr þeim aldurshópi. </font /></b /> Innlent 13.10.2005 19:42
Neita brotum á vinnulöggjöf "Það var algjörlega farið eftir vinnulöggjöf í þessum efnum, að höfðu samráði við lögfræðinga okkar," segir Sævar Gunnarsson formaður Sjómannasambands Íslands um fram komna stjórnsýslukæru til félagsmálaráðuneytis vegna framkvæmdar talningar atkvæða um kjarasamning sjómanna. Innlent 13.10.2005 19:40
Atkvæðagreiðsla um samninga kærð Framkvæmd atkvæðagreiðslu um kjarasamning sjómanna hefur verið kærð til félagsmálaráðuneytisins. Kærandi telur að um tvöfalt brot á vinnulöggjöfinni sé að ræða. Atkvæðagreiðslan sé því ógild og efna þurfi til nýrra kosninga. </font /></b /> Innlent 13.10.2005 19:39
59% samþykktu kjarasamninginn Starfsmannafélag Hafnarfjarðar hefur samþykkt kjarasamning félagsins við Hafnarfjarðarbæ með tæplega 60% greiddra atkvæða. Um 20 % félagsmanna, eða 113 manns, tóku þátt í atkvæðagreiðslu um samninginn. Atkvæði fóru þannig: Já sögðu 67 eða 59%, nei sögðu 45 eða 40%, einn seðill var auður eða 1%. Innlent 13.10.2005 19:24
Nýr kjarasamningur samþykktur Starfsmannafélag Hafnarfjarðar og launanefnd sveitarfélaga náðu samkomulagi um nýjan kjarasamning í dag. Samningurinn og bókanir eru á sömu nótum og samningur sem gerður var við Samflot bæjarstarfsmanna í lok maí. Innlent 13.10.2005 15:33
69% samþykktu kjarasamninginn Starfsmenn sveitarfélaga í Kili, stéttarfélagi starfsmanna í almannaþjónustu, samþykktu kjarasamning við launanefnd sveitarfélaganna með miklum meirihluta. 69 prósent þeirra samþykktu samninginn en 23 prósent vildu fella hann. Auðir og ógildir seðlar voru átta prósent. Innlent 13.10.2005 19:21
Samningaviðræðum slitið Starfsmannafélög Hafnarfjarðar, Kópavogs og Akraness hafa slitið samningaviðræðum við launanefnd sveitarfélaganna. Launanefndin hafði gert félögunum tilboð sem félögin töldu of lágt og í engu samræmi við hækkanir sem aðrar stéttir hafa fengið, eins og kennarar. Næstu skref í kjaradeilunni verða ákveðin á næstu dögum. Innlent 13.10.2005 19:17
Ekki launaskrið Ekki er um launaskrið að ræða, þótt laun hafi hækkað um 6,7 prósent síðastliðna tólf mánuði og kaupmáttur vaxið um 2,3 prósent, segir Alþýðusamband Íslands. Innlent 13.10.2005 19:15
Nefnd um framkvæmd kjarasamninga Impregilo og fulltrúar verkalýðsfélaga, sem aðild eiga að svo kölluðum virkjunarsamningi, hafa komið á fót nefnd með þátttöku fulltrúa ASÍ og Samtaka atvinnulífsins. Er nefndinni ætlað að verða vettvangur til ákvarðana um framkvæmd kjarasamninga. Innlent 13.10.2005 18:53
Ekki má halla á einstaka hópa Framkvæmdastjóri Alþýðusambands Íslands segir að kostnaður ríkisins vegna samninga Bandalags háskólamanna sé töluvert meiri en samið hafi verið um á almennum vinnumarkaði. Hann segir að tryggja verði að ekki halli á einstaka hópa. Innlent 13.10.2005 18:51
Rafiðnaðarmenn skrifuðu undir Rafiðnaðarmenn skrifuðu í gærkvöldi undir viðauka við kjarasamning við álver Alcan í Straumsvík sem felldur var í atkvæðagreiðslu fyrir nokkru. Í viðaukanum er komið til móts við þau atriði sem starfsmenn gagnrýndu í nýjum kjarasamningi. Samningurinn gildir til 30 nóvember 2008. Innlent 13.10.2005 18:51
Enginn kennari sagði upp störfum Allir grunnskólakennarar utan tveggja þeirra sem sögðu upp í hópum í Mosfellsbæ, Fáskrúðsfirði og Hólmavík í verkfallinu drógu uppsagnir sínar til baka að því loknu. Innlent 13.10.2005 18:50
Allir yfir 200 þúsund krónur Laun hjúkrunarfræðinga hækka að minnsta kosti um sautján prósent á einu ári með nýjum kjarasamningi Bandalags háskólamanna. Innlent 13.10.2005 18:50
Samningstilboðið skref aftur á bak Sjálfstætt starfandi sjúkraþjálfarar telja að tilboð samninganefndar heilbrigðis- og tryggingaráðuneytis feli í sér stórt skref aftur á bak fyrir stéttina og skjólstæðinga þeirra. Þeir telja að í tilboðinu felist ávísun á þá löngu biðlista og skertu þjónustu sem þegar einkenni heilbrigðiskerfið. Innlent 13.10.2005 18:49
Starfsmenn Járnblendisins semja Samninganefndir starfsmanna og eigenda Íslenska járnblendifélagins á Grundartanga undirrituðu kjarasamning í húsi ríkissáttasemjara í gær. Innlent 13.10.2005 15:30
Garðabær getur ekki ákveðið launin Sérsamningur við kennara í Sjálandsskóla, nýjum grunnskóla Garðabæjar, getur ekki orðið að veruleika nema launanefnd sveitarfélaga og Kennarasamband Íslands samþykki hann. Innlent 13.10.2005 15:29
Ótímabært að meta sérsamninginn Algerlega ótímabært er fyrir samninganefndir kennara og sveitarfélaga að tjá sig um hvernig þeim lítist á sérkjarasamning í Sjálandsskóla fyrr en þeir hafi hann í höndunum, segir Ásdís Halla Bragadóttir bæjarstjóri í Garðabæ. Innlent 13.10.2005 15:29
Leikskólakennarar samþykktu Nýr kjarasamningur Félags leikskólakennara var samþykktur með allsherjaratkvæðagreiðslu í dag. Atkvæði greiddu 1.365; 880 sögðu „já“, eða 64,5%, en 443 sögðu „nei“, eða 32,5%. Auðir seðlar og ógildir voru 42, eða 3,0%. 1.491 var á kjörskrá og þátttaka því 91,5%. Innlent 13.10.2005 15:29
Úrslitin kunn á morgun Úrslit í atkvæðagreiðslu um kjarasamning leikskólakennara verða kunn á morgun. Launanefnd sveitarfélaga samþykkti samninginn, sem var undirritaður tveimur dögum fyrir jól, í fyrradag. Innlent 13.10.2005 15:28
Tímamótajafnréttisdómur Nýjasti dómur Hæstaréttar í máli gegn Akureyrarbæ er varðar mismunun vegna kynbundins launamunar markar tímamót. Þetta segir Sif Konráðsdóttir hæstaréttarlögmaður. Innlent 13.10.2005 15:28
Impregilo vildi ekki funda með ASÍ Fundur var haldinn í félagsmálanefnd Alþingis í morgun til þess m.a. að fjalla um ágreining ASÍ og Impregilo. Gert var ráð fyrir að fulltrúar ASÍ og Impregilo yrðu samtímis á fundinum en þegar til kastanna kom neituðu fulltrúar Impregilo með öllu að sá háttur yrði hafður á og fengu það í gegn. Innlent 13.10.2005 15:22
Impregilo skuldar hundruð milljóna Impregilo skuldar hundruð milljóna króna í vangoldna staðgreiðslu launa portúgalskra starfsmanna sinna samkvæmt áætlun íslenskra skattayfirvalda. Impregilo segist ekki bera ábyrgð á skattskyldu starfsmanna frá Portúgal sem hafa starfað við Kárahnjúkavirkjun og vísar á starfsmannaleigur. Innlent 13.10.2005 15:20
Eins og vænn starfslokasamningur Umfram lífeyrisréttindi opinberra starfsmanna á launafólk á almennum markaði jafnast á við tíu milljóna króna starfslokasamning, miðað við ákveðnar forsendur. Framkvæmdastjóri Samtaka atvinnulífsins segir að jafna þurfi kjörin en það verði að gerast með því að draga úr réttindum opinberra starfsmanna. Innlent 13.10.2005 15:18
Ætla að kæra Impregilo Starfsgreinasambandið ætlar að kæra Impregilo til Vinnueftirlitsins fyrir að brjóta ákvæði um hámarksvinnutíma. Hitastig í svefnskálum við Kárahnjúkavirkjun fór niður í tíu stig í desember. Framkvæmdastjóri Starfsgreinasambandsins segir skálana ekki byggða fyrir íslenskar aðstæður. Innlent 13.10.2005 15:18
Kjarasamningur við LÍÚ samþykktur Félagsmenn í Sjómannasambandi Íslands og Farmanna- og fiskimannasambandinu samþykktu kjarasamning við Landssamband Útvegsmanna með tæplega 58% greiddra atkvæða. Lítil þátttaka var í atkvæðagreiðslunni því einungis 43% félagsmanna tóku þátt. Innlent 13.10.2005 15:18
Samningum við SA sagt upp? Alþýðusambandið telur sig hafa forsendur fyrir því að segja upp samningum við Samtök atvinnulífsins í haust, ef verðbólga lækkar ekki frá því sem nú er. Þetta segir Gylfi Arnbjörnsson, framkvæmdastjóri ASÍ. Innlent 13.10.2005 15:18