Rússland
31 32 33 34 35 36 37 38 39 … 98 ›
Vill að heimurinn þvingi Pútín til raunverulegra viðræðna Vólódímír Selenskí, forseti Úkraínu, tók í gærkvöldi harða afstöðu varðandi mögulegar viðræður við Vladimír Pútín, forseta Rússlands. Hann sagði að viðræður myndu ekki eiga sér stað nema Rússar létu af tilkalli til landsvæðis Úkraínu og hét hann því að Úkraínumenn myndu ekki hætta að berjast gegn innrás Rússa ef bakhjarlar ríkisins létu af stuðningi þeirra. Erlent 8.11.2022 16:14
Kokkur Pútíns viðurkenndi afskipti af kosningunum í Bandaríkjunum Rússneski auðjöfurinn Yevgeny Prigozhin viðurkenndi í morgun að hafa afskipti af kosningunum í Bandaríkjunum og sagðist ætla að halda því áfram. Þetta er í fyrsta sinn sem auðjöfurinn viðurkennir þetta opinberlega en hann hefur verið ákærður í Bandaríkjunum fyrir afskipti sín og er eftirlýstur þar. Erlent 7.11.2022 14:07
Rýnt í stöðuna í Úkraínu: Ein herdeild sögð hafa misst þrjú hundruð menn á fjórum dögum Rússneskir landgönguliðar neituðu nýverið að sækja fram og gagnrýndu yfirmenn sína harðlega eftir að þeir misstu þrjú hundruð menn á nokkrum dögum. Mennirnir féllu eða særðust í umfangsmikilli árás á Úkraínumenn í og við Pavlivka í suðaustanverðri Úkraínu. Erlent 7.11.2022 11:45
Rússar þykist fara frá Kherson til að lokka hermenn í gildru Yfirvöld í Úkraínu segja að Rússar beiti blekkingum í Kherson með því að þykjast hörfa frá borginni. Með blekkingunni ætli þeir að lokka hermenn í gildru og sitja fyrir þeim. Erlent 6.11.2022 20:15
Gangast loks við því að útvega Rússum dróna Utanríkisráðherra Írans viðurkenndi í fyrsta skipti í dag að ríkisstjórn hans hefði útvegað Rússum dróna sem hafa verið notaðir í sprengjuárásir í Úkraínu. Hann fullyrðir að drónarnir hafi verið afhentir áður en innrás Rússa í Úkraínu hófst. Erlent 5.11.2022 09:10
Kölluðu ódæðin í Bucha „hreinsanir“: „Ég er búinn að drepa svo mikið af borgurum“ Þegar rússneskir hermenn tóku yfir bæinn Bucha, norður af Kænugarði, snemma eftir að innrás Rússa í Úkraínu hófst í febrúar, fóru hermenn um bæinn með lista. Á þeim listum, sem voru frá leyniþjónustum Rússlands, voru nöfn fólks sem talið var geta ógnað Rússum. Erlent 4.11.2022 10:53
Fjarlægðu rússneska fánann af ráðhúsinu í Kherson og sagðir líklegir til að hörfa Einn af leppstjórum Rússa í Kherson-héraði í Úkraínu sagði í morgun að líklegt væri að rússneskir hermenn myndu hörfa frá vesturbakka Dniproár og þar með Kherson-borg, einu héraðshöfuðborginni sem Rússar hafa náð tökum á frá því innrás þeirra hófst í febrúar. Erlent 3.11.2022 14:29
Rússar hættir við að hætta við Rússar hættu í gær við að hætta við þátttöku í samningi sem náðst hafði um öruggan flutning kornvöru frá Úkraínu. Varnarmálaráðuneyti Rússlands sagði í gær að Rússar hefðu verið fullvissaðir um að „kornhliðið“ yrði ekki notað til að gera árásir á rússneska flotann. Erlent 3.11.2022 08:16
Rússneskur bardagakappi lést eftir að hafa borðað eitraða melónu Alexander Pisarev, rússneskur bardagamaður, er látinn, 33 ára. Talið er að rekja megi orsök andlátsins til eitraðrar vatnsmelónu sem hann borðaði. Sport 2.11.2022 15:31
Herforingjar ræddu mögulega notkun kjarnorkuvopna Æðstu leiðtogar rússneska hersins ræddu mögulega notkun smárra kjarnorkuvopna í Úkraínu og hvort rússneski herinn gæti gagnast á því. Umræðan leiddi til aukinna áhyggja í Bandaríkjunum og víðar og þykir til marks um að Rússar séu verulega ósáttir við gang „sértæku hernaðaraðgerðarinnar“ svokölluðu. Erlent 2.11.2022 10:45
75 ára kona barin, skorin og nauðgað Leppstjórar Rússlands í suðurhluta Úkraínu hafa tilkynnt að fleiri íbúar verði fluttir frá Kherson-héraði en þegar hefur verið gert. Yfirvöld í Kænugarði segir að verið sé þvinga íbúa á brott en Rússar vinna hörðum höndum að því að byggja upp varnir á vestur-bakka Dniproár í kringum Kherson-borg, höfuðborg héraðsins. Erlent 1.11.2022 15:10
Leðjutímabil hafi áhrif á frammistöðu í stríðinu Íbúi í Kænugarði segir að magn sprenginga sem urðu á svæðinu í morgun sé svar Rússa við árás Úkraínumanna á Svartahafsflotann. Úkraínumenn séu enn í mikilli sókn en veðurfar hafi nú áhrif á frammistöðu beggja ríkja. Erlent 31.10.2022 13:00
Neyðarskömmtun víða í gildi eftir umfangsmiklar loftárásir Rússa Loftvarnaflautur fóru í gang og sprengingar heyrðust víða um Úkraínu í morgun. Íbúar voru hvattir til að leita skjóls, meðal annars í Kænugarði og á að minnsta kosti tíu öðrum svæðum. Erlent 31.10.2022 11:45
Úkraínumenn vakna við loftvarnaflautur og sprengingar Loftvarnaflautur ómuðu víða í Úkraínu í morgun og sprengingar hafa heyrst í Kænugarði. Fregnir herma að um hafi verið að ræða sjö til átta sprengingar en að sögn Anton Gerashchenko, ráðgjafa Úkraínuforseta, skutu Rússar um það bil 40 eldflaugum á hin ýmsu skotmörk í morgun. Erlent 31.10.2022 07:13
Rússar sagðir hafa hakkað síma Truss Ríkisstjórn Bretlands stendur frammi fyrir háværum köllum eftir því að fregnir varðandi mögulega tölvuáárás á síma Liz Truss, þegar hún var utanríkisráðherra, verði rannsakaðar. Fjölmiðlar í Bretlandi hafa sagt frá því að rússneskir útsendarar hafi brotið sér leið inn í síma Truss í sumar. Erlent 30.10.2022 14:23
Neanderdalsfjölskylda finnst í fyrsta sinn Vísindamenn hafa í fyrsta sinn fundið fjölskyldu Neanderdalsmanna á einum og sama staðnum. Uppgötvunin veitir meiri upplýsingar en nokkru sinni fyrr um samfélag þessa nána ættingja nútímamannsins. Erlent 30.10.2022 14:00
Rússar slíta sig frá kornsamkomulaginu vegna árásar við Krímskaga Yfirvöld í Rússlandi lýstu því yfir í gærkvöldi að ríkið myndi ekki langur taka þátt í samkomulagi sem hefur orðið til þess að rúm níu milljón tonn af korni hafa verið flutt frá Úkraínu frá því innrás Rússa hófst. Úkraínumenn saka Rússa um að reyna að beita hungri sem vopni. Erlent 30.10.2022 08:24
Skemmdu nýja flaggskip Rússa í drónaárás Úkraínumenn gerðu í nótt árásir á rússneska flotann í Svartahafi við Krímskaga. Notast var við dróna við árásina og þá bæði fljúgandi og siglandi dróna en Úkraínumenn eru sagðir hafa skemmt Makarov aðmírál, flaggskip svartahafsflota Rússa. Erlent 29.10.2022 14:48
Njósnarinn í Tromsö sagður vera ofursti í GRU Yfirvöld í Noregi hafa nafngreint rússneskan njósnara sem handtekinn var nýverið í Tromsö. Sá heitir Mikhail Valerievich Mikushin og er fæddur árið 1978 í Rússlandi. Hann er talinn vera ofursti í GRU, leyniþjónustu rússneska hersins. Erlent 28.10.2022 15:40
Segja mögulegt að skjóta niður bandaríska gervihnetti Rússar segjast mögulega geta skotið niður gervihnetti Bandaríkjanna sem notaðir eru til að afla upplýsinga fyrir Úkraínumenn eða hjálpa þeim að öðru leyti. Erlent 28.10.2022 12:27
Segir næsta áratug þann hættulegasta frá seinni heimsstyrjöldinni Heimsbúar standa frammi fyrir hættulegasta áratug heimsins frá seinni heimsstyrjöldinni. Þetta sagði Vladimír Pútín, forseti Rússlands, í ræðu sem hann flutti í dag þar sem hann sakaði meðal annars Vesturlönd um að bera ábyrgð á innrás hans í Úkraínu og valda usla í heiminum. Erlent 27.10.2022 21:53
Skildu eftir sig skjöl sem varpa ljósi á vandræði Rússa Þegar hersveitir Rússa hörfuðu með hraði frá austanverðu Kharkív-héraði í Úkraínu í september, skyldu þeir ýmislegt eftir sig. Þar á meðal mikið magn þungavopna eins og skrið- og bryndreka auk stórskotaliðsvopna. Þeir skyldu þó einnig eftir sig mikið magn gagna. Erlent 27.10.2022 15:15
Herða bann við „hinsegin áróðri“ í Rússlandi Rússneska þingið samþykkti að herða núgildandi bann við svonefndum „hinsegin áróðri“ þannig að það nái ekki lengur aðeins til barna og ungmenna heldur fólks af öllum aldri. Þannig verður nú hægt að sekta vegna viðburða, kvikmynda eða vefsíða sem eru talnar auglýsa samkynhneigð. Erlent 27.10.2022 10:12
Selenskí segir hegðun Rússa brjálæðislega Volodomír Selenskí Úkraínuforseti sakar rússneska herforingja úr innrásarliðinu um brjálæðislega hegðun þegar kemur að því að reyna að ná bænum Bakhmut á sitt vald. Erlent 27.10.2022 06:56
Eitt fyrstu verka Sunaks að hringja til Úkraínuforseta Rishi Sunak nýr forsætisráðherra Bretlands hét forseta Úkraínu í gær áframhaldandi stuðningi Breta í baráttunni gegn innrás Rússa. Forseti Þýskalands dáðist af hughrekki Úkraínumanna í heimsókn til Kænugarðs í gær og lofaði aukinni hernaðaraðstoð. Erlent 26.10.2022 11:40
Rýnt í stöðuna í Úkraínu: Vegnar vel á víglínunum en þurfa mikla aðstoð Úkraínumönnum hefur vegnað ágætlega á víglínunum síðustu vikur en árásir Rússa á innviði og borgaraleg skotmörk hafa kostað sitt. Ráðamenn í Úkraínu og Vesturlöndum segja ríkið þurfa mikla fjárhagslega aðstoð á komandi árum. Erlent 26.10.2022 11:07
Rússar búa sig undir árás á Kherson Rússneskar hersveitir í Kherson héraði búa sig nú undir mikinn bardaga við úkraínska herinn að sögn úkraínsks embættismanns. Erlent 26.10.2022 06:52
Setti bókstafinn Z á bílinn og fékk hálfa milljón í sekt Manni í Þýskalandi hefur verið gert að greiða fjögur þúsund evrur, eða rúmar 570 þúsund krónur, í sekt fyrir að hafa sett bókstafinn Z á bílinn sinn. Merkið hefur verið notað til marks um stuðning við innrás Rússa í Úkraínu. Maðurinn hefur áfrýjað. Erlent 25.10.2022 23:28
Telja sig hafa gripið rússneskan njósnara í Tromsö Norska öryggislögreglan hefur handtekið mann sem lögreglu grunar að hafi dvalið í Noregi í um eitt ár sem rússneskur njósnari undir fölsku flaggi sem brasilískur vísindamaður. Lögregla vill að honum verði vísað úr landi. Erlent 25.10.2022 14:44
Höfnuðu áfrýjunarbeiðni Griner sem hlaut níu ára fangelsisdóm Rússneskir dómstólar hafa hafnað áfrýjunarbeiðni körfuboltakonunnar Brittney Griner. Griner hlaut níu ára fangelsisdóm þar í landi fyrir vörslu eiturlyfja. Körfubolti 25.10.2022 13:41