
Myndlist

Hefur unnið að sýningunni í eitt ár
Listamaðurinn Árni Már Erlingsson opnar sýninguna Formfast þann 21. nóvember í Gallery Port.

Tryggja fjármagn til að færa íslenska skálann á aðalsvæði Feneyjartvíæringsins
Ákveðið hefur verið að færa sýningarsvæði Íslands á Feneyjartvíæringnum 2022 á aðalsvæði hátíðarinnar og hefur mennta- og menningarmálaráðuneyti tryggt fjármagn til þess.

„Við gerum óspart grín að veikindum okkar og fylgikvillum“
Hafdís Magnúsdóttir sjúkraliði greindist með brjóstakrabbamein í febrúar árið 2019 og var það mikið áfall. Í endurhæfingunni uppgötvaði Hafdís nýja ástríðu á meðan hún lærði að kynnast sjálfri sér upp á nýtt, í félagsskap sem hefur haft ótrúlega jákvæð áhrif á hennar líðan.

Skemmdarverk unnin á tugum listaverka á safnaeyjunni í Berlín
Skemmdarverk hafa verið unnin á um sjötíu listaverkum og öðrum safngripum á þremur af frægustu listasöfnum þýsku höfuðborgarinnar Berlín.

Krakkar að leik fundu stolið málverk í Mosfellsbæ
Málverk til minningar látinnar konu, sem stolið var úr íbúðakjarna í Þverholti í Mosfellsbæ fyrir um tíu dögum síðan, er komið í leitirnar. Það voru krakkar sem fundu málverkið sem nú er komið aftur á sinn stað.

Myndlistin einmanaleg atvinnugrein
Rakel Tomas gefur í næsta mánuði út sína fyrstu listaverkabók og er forsalan nú þegar hafin. Rakel er myndlistakona sem vinnur með kvenlíkamann á súrrelaískan hátt í verkum sínum.

Málverki til minningar látinnar konu stolið
Málverki til minningar látinnar konu var stolið á föstudagsmorgunn úr íbúðakjarna í Þverholti í Mosfellsbæ. Faðir konunnar segir mjög erfitt að málverkinu hafi verið stolið en það hafi mikið tilfinningalegt gildi fyrir fjölskylduna.

Ólöf endurráðin safnstjóri Listasafns Reykjavíkur
Ólöf Kristín Sigurðardóttir hefur verið endurráðin til fimm ára sem forstöðumaður Listasafns Reykjavíkur.

Vildu gefa innflytjendum og flóttafólki á Íslandi sterkari rödd
Julius Pollux Rothlaender og Claire Paugham vildu með verkefninu Vestur í bláinn, heyra meira í röddum, manneskjum og tungumálum sem ekki heyrist nógu mikið í hér á landi. Hvorki í listaheiminum né á opinberum vettvangi.

Rakel og Hulda opna saman sýningu og frumsýna nýtt samstarfsverkefni
Fimmtudaginn 3. september opnar sýningin Andlit í Studio Rakel Tomas, Grettisgötu 3. Sérstakt opnunarhóf verður á milli 17 og 20. Til sýnis og sölu verða málverk eftir Rakel Tomas ásamt skúlptúrum sem eru samstarfsverkefni hennar og Huldu Katarínu keramik listakonu.

Þurftu að snúa öllu á hvolf svo Plan-B gengi upp
Einn stofnenda hátíðarinnar segir að grípa hafi þurft til ýmissa ráðstafana vegna kórónuveirufaraldursins og leitað sé á ný mið hvað varði framsetningu listaverka á hátíðinni.

Fyrsta einkasýningin af þessari stærðargráðu
Í gær opnaði Sigurður Atli Sigurðsson myndlistarsýninguna, Stigveldi, í Ásmundarsal. Þetta er fyrsta einkasýning Sigurðar Atla í Reykjavík sem er af þessari stærðargráðu en hún er framhald af þeim verkum sem hann hefur verið að þróa aðferðir við að vinna með kartonskurð sem aðferð við listsköpun og silkyþrykk á striga.

Áður óséð verk eftir Picasso á uppboði
Teikning eftir spænska listmálarann Pablo Picasso, sem ekki hefur áður komið fyrir sjónir almennings, verður á uppboði í lok þessa mánaðar. Verkið er frá 1931 og er metið á allt að einn og hálfan milljarð íslenskra króna.

Hönnun og myndlist mætast í einu og sama efninu
Á sýningunni efni:viður í Hafnarborg í Hafnarfirði er viður í forgrunni. Um er að ræða sýningu sem tvinnar saman innanhúshönnun, vöruhönnun og upplifunarhönnun.

Listamenn fá 244 milljónir aukreitis vegna kórónuveiru
Aukaúthlutun úr Launasjóði listamanna hefur verið afgreidd.

Fann upp plöntur sem þarf ekki að vökva
Listamaðurinn Halldór Eldjárn kynnir verk sín á HönnunarMars í næstu viku. Hann segir mikilvægt að halda líka utan um listamenn sem kjósa að fara ekki í hefðbundið listnám.

Stolið Bataclan-verk Banksy fannst á ítölskum bóndabæ
Lögregla á Ítalíu hefur fundið hurð neyðarútgangs tónleikastaðarins Bataclan í París með verki Banksy á ítölskum bóndabæ. Hurðinni var stolið á síðasta ári.

Abramovich keypti Ópið fyrir sextán milljarða
Eigandi Chelsea hefur keypt eitt þekktasta málverk listasögunnar; Ópið eftir Norðmanninn Edvard Munch.

„Hver plata stendur ein og sér sem lítið meistaraverk“
Aðalverðlaun FÍT, Félag íslenskra teiknara, í ár hljóta Davíð Arnar Baldursson, Jón Sæmundur Auðarson og Ragnar Þórhallsson fyrir plötuumslög Fever Dream sem gefin var út af hljómsveitinni Of Monsters and Men.

Skipar starfshóp um Errósetur á Klaustri
Markmiðið með verkefninu er að koma upp safni og/eða sýningu um líf og uppvöxt listamannsins og miðla listferli hans í máli og myndum.

Bestu myndir ársins 2019
Í dag voru afhent verðlaun fyrir bestu myndir ársins í Ljósmyndasafni Reykjavíkur.

Banksy hyllir heilbrigðisstarfsfólk
Nýtt listaverk eftir breska götulistamanninn Banksy hefur dúkkað upp á spítalanum í Southampton í Bretlandi. Listaverkið hyllir heilbrigðisstarfsmenn á sama tíma og þeir eru í framlínunni í baráttunni gegn kórónuveirufaraldrinum.

Gefur gömlum málverkum nýtt líf
Julian Baumgartner starfar hjá Baumgartner Fine Art Restoration og sérhæfir sig í því að gefa eldri málverkum nýtt líf.

Segir listina hafa heilmikið gildi í kreppu og heimsfaraldri
Fjórði maí er runninn upp sem þýðir að samkomubannið, sem hefur verið í gildi, verður í dag að hluta til aflétt. Fjöldamörk samkomubannsins hafa verið hækkuð úr tuttugu í fimmtíu.

Skammgóður vermir í Vesturbænum: Eiganda grindverksins langar til þess að vola
Fjölmörgum Vesturbæingum er ekki skemmt þessa stundina. Í annað skiptið á fjórum dögum hafa verið unnin skemmdarverk á vegglistaverki á grindverki á Hofsvallagötu.

Má ekki klippa og fór því að teikna: „List á líka að vera skemmtileg“
„Þetta var mjög súrt en heilsa trompar allt annað á þessum síðustu og verstu,“ segir hárgreiðslumaðurinn og listamaðurinn Vilberg Hafsteinn Jónsson sem tók upp á því að byrja gera teikningar eftir hert samkomubannið skall á.

Skemmdarverk unnin á vinsælu vegglistaverki í Vesturbæ
Listaverkið er eftir listamanninn Joan Pictures og er upp úr tölvuleiknum sívinsæla Super Mario.

Leið til að færa myndlistina nær fólki
Elísabet Alma Svendsen starfar við að aðstoða fólk og fyrirtæki við að velja myndlist. Hún fékk á dögunum þá hugmynd að kynna íslenska listamenn í gegnum Instagram.

Konan með kórónu-húmorinn reynir að fela ógreitt hárið á morgnana
Í kaffispjalli um helgar er talað við fólk í ólíkum störfum. Þessa helgina er rætt við Lóu Hlín Hjálmtýsdóttir, myndasögu- og handritstöfund, teiknara, rithöfund og konuna á bakvið óborganlegan húmor Lóuboratoríum myndasögunnar.

Gerði myndasögu á íslensku sem útskýrir kórónuveiruna fyrir börnum
Barnasálfræðingurinn Guðlaug Marion Mitchison hefur útbúið myndasögu sem útskýrir kórónuveiruna fyrir börnum. Bókin er á PDF formi og áhugasamir geta nálgast hana í fréttinni.