Auka sýnileika hjá úkraínsku listafólki á Íslandi Dóra Júlía Agnarsdóttir skrifar 26. apríl 2022 12:30 Alexander Zaklynsky og Julia Mai Linnéa Maria, stofnendur ARTISTS4UKRAINE, í listgalleríinu á Laugavegi 12. Ómar Sverrisson Samtökin ARTISTS4UKRAINE opnuðu á dögunum listgallerí á Laugavegi 12, í sama húsi og Prikið er staðsett. Þar sýna úkraínskir listamenn verk sín ásamt öðrum og stefnt er að því að hafa galleríið gangandi í að minnsta kosti tvo mánuði til viðbótar. Blaðamaður ræddi við Alexander Zaklynsky, sem stofnaði ARTISTS4UKRAINE ásamt Juliu Mai Linnéu Mariu.
View this post on Instagram A post shared by ARTISTS4UKRAINE (@rvkart4ukraine) Tveir úkraínskir listamenn sýna verk sín í galleríinu um þessar mundir, þeir Eliash Strongowsky og Yevgen Samborsky. Samkvæmt Alexander verða nýjar sýningar settar upp á tveggja vikna fresti og stefnt er að því að halda viðburði í kringum opnanir. Í maí á meðal annars að vera pop up súpu viðburður með úkraínskri borscht súpu. Á döfinni er einnig að skipuleggja listasmiðju fyrir úkraínsk börn á Íslandi. View this post on Instagram A post shared by ARTISTS4UKRAINE (@rvkart4ukraine) „Þetta gallerí er í stöðugri þróun og við vonumst til að geta nýtt okkur það sem upplýsingahlið og aukinn sýnileika fyrir úkraínskt listafólk og heimamenn sem vilja styðja við Úkraínu,“ segir Alexander og bætir við að þau séu að vinna að því að finna góðgerðasamtök úti til að styðja við. Viðburðirnir hafa hingað til stutt við ýmis úkraínsk góðgerðasamtök þar sem mannréttindi og menning mætast á öflugan hátt. Listamenn sem hafa áhuga á að vera með á sýningum gallerísins er velkomið að sækja um í gegnum heimasíðu samtakanna hér. View this post on Instagram A post shared by ARTISTS4UKRAINE (@rvkart4ukraine) Viðburðir í Bíó Paradís ARTIST4UKRAINE eru með ýmislegt á döfinni og má þar á meðal nefna bíó sýningu annað kvöld í Bíó Paradís þar sem kvikmyndin Babushkas of Chernobyl verður sýnt í tilefni af því að 36 ár eru liðin frá hörmungunum í Chernobyl. Dagskráin hefst klukkan 19:00 og fyrir sýningu halda Gunnar Þorri Pétursson, þýðandi, og Valur Gunnarsson, rithöfundur og sagnfræðingur, erindi og umræður tengdar kvikmyndinni. Nánari upplýsingar má finna hér.
Myndlist Menning Mannréttindi Tengdar fréttir Góðgerðarmál og menning sameinast á kraftmikinn hátt til styrktar Úkraínu Samtökin Artists4Ukraine standa að ýmsum menningartengdum viðburðum í Bíó Paradís þar sem allur ágóði frá viðburðunum rennur til fjölbreyttra góðgerðarfélaga í Úkraínu. Í kvöld, miðvikudaginn 6. apríl, munu Arists4Ukraine í samstarfi við úkraínska kvikmyndafyrirtækið MaGiKa films sýna kvikmyndina Ivan’s Land eftir úkraínska leikstjórann Andrii Lysetskyi. 6. apríl 2022 10:00 Mest lesið Eignuðust stúlku með hjálp staðgöngumóður Lífið Vestfirski hryllingurinn: „Þetta er það erfiðasta sem ég hef gert“ Bíó og sjónvarp „Auðvitað kom heilmikið rót á mig eftir þetta“ Lífið Segir neytendur rænda við skókaup og bendir þeim á mikilvægan límmiða Lífið Eitt frægasta hús landsins enn á sölu Lífið Páll Óskar féll í yfirlið og þríkjálkabrotnaði Lífið „Ósmekklegu plastblómin“ ekki frá forsetanum heldur RÚV Lífið Fjölgar í „költinu“ hjá Kötu Odds og Þorgerði Lífið Þurfti að gegna fjölmörgum hlutverkum samtímis sem aðstandandi Lífið Fréttatía vikunnar: Þorrinn, gervigreind og háloftin Lífið Fleiri fréttir Hryllingsleikrit um árið án sumars en þó ekki 2024 Margar milljónir í menninguna Halli með nýtt hlaðvarp: Getur loksins verið í augnhæð með fólki Skiluðu tillögum um uppbyggingu Jónasarstofu í Öxnadal Fullt út úr dyrum á sjóðheitri ljósmyndasýningu Ætla að halda Lífskviðuna þrátt fyrir andlát Ásgeirs í nótt Katrín dustar rykið af visku sinni Anna Rós hlaut Ljóðstaf Jóns úr Vör Létu sig ekki vanta á frumsýningu Ungfrú Íslands Bókamarkaðurinn færir sig um set Troðfullt hús og standandi lófaklapp „Persónan Elmar er alls ekki Helgi“ Skrumskæld mynd af Helga Skúla í Vigdísarþáttum Ætlar aldrei aftur til Tenerife: „Þetta er hræðilegur staður“ Metsölulisti bókaútgefenda sé „ómarktækur“ Þetta voru mest seldu bækur ársins 2024 Af hverju er þessi kona á öllum auglýsingaskiltum? Sjá meira
Góðgerðarmál og menning sameinast á kraftmikinn hátt til styrktar Úkraínu Samtökin Artists4Ukraine standa að ýmsum menningartengdum viðburðum í Bíó Paradís þar sem allur ágóði frá viðburðunum rennur til fjölbreyttra góðgerðarfélaga í Úkraínu. Í kvöld, miðvikudaginn 6. apríl, munu Arists4Ukraine í samstarfi við úkraínska kvikmyndafyrirtækið MaGiKa films sýna kvikmyndina Ivan’s Land eftir úkraínska leikstjórann Andrii Lysetskyi. 6. apríl 2022 10:00