
Ítalía

Rauðar viðvaranir og skógareldar í Suður-Evrópu
Ekkert lát virðist ætla að verða á hitabylgjum sem ganga nú yfir Suður-Evrópu. Á Ítalíu, Spáni og Grikklandi er hitanum lýst sem óbærilegum og íbúar hafa þurft að flýja heimili sín vegna skógarelda.

Rúmlega þúsund flugferðum aflýst vegna verkfalls
Rúmlega þúsund flugferðum til, frá og innan Ítalíu hefur verið aflýst í dag vegna verkfalls flugvallarstarfsmanna þar í landi. Ferðaplön mörg hundruð þúsund ferðamanna eru því í uppnámi.

Afganskan konan ekki borin út og getur sótt um aftur
Útlendingastofnun skoðar að breyta verklagi hvað varðar mál flóttafólks sem kemur hingað frá Ítalíu. Þar er yfirlýst neyðarástand vegna mikils álags og fjölda flóttafólks.

Sögulegt hitamet gæti fallið á Ítalíu
Hitabylgja gengur nú yfir Evrópu og er búist við að hitatölur fari yfir fjörutíu gráðurnar sumstaðar á Spáni, Grikklandi, í Frakklandi, Króatíu og Tyrklandi í dag.

Lögreglan mætti til að bera konuna út en hætti svo við
Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu var mætt við búsetuúrræði flóttafólks síðdegis í dag til að bera út afganska konu og tólf ára gamlan son hennar, en hætti svo við.

Love Island stjarna rýfur þögnina um hvíta duftið
Davide Sanclimenti, samfélagsmiðlastjarna sem gerði garðinn frægan í Love Island, hefur rofið þögnina eftir að myndband birtist af honum á samfélagsmiðlum þar sem hann virtist neyta eiturlyfja á skemmtistað á Ibiza.

Elstu börn Berlusconi fá viðskiptaveldið í arf
Silvio Berlusconi, fyrrverandi forsætisráðherra Ítalíu og einn auðugasti maður landsins, eftirlét elstu börnum sínum tveimur forræði yfir viðskiptaveldi hans. Kærasta Berlusconi sem var meira en hálfri öld yngri en hann fær milljarða samkvæmt erfðaskrá hans sem hefur nú verið gerð opinber.

Segist ekki hafa gert sér grein fyrir aldri Kólosseum
Enskur ferðamaður, sem skar á dögunum nafn sitt og kærustu sinnar á vegg ítalska hringleikahússins Kólosseum, segist ekki hafa gert sér grein fyrir aldri mannvirkisins. Hann hefur nú beðið borgarstjóra Rómarborgar afsökunar á athæfinu og segir það „vandræðalegt“ að hann hafi ekki verið meðvitaður um háan aldur Kólosseum.

Þurfa að endurgreiða skíðaferðir: „Þessi dómur er okkur með öllu óskiljanlegur“
Forstjóri Ferðaskrifstofu Íslands segir fyrirtækið harma dóma Hæstaréttar þess efnis að því beri að endurgreiða pakkaferðir sem afpantaðar voru skömmu fyrir brottför.

Ferðamaður skar nafn unnustu sinnar á vegg Kólosseum
Menningarmálaráðherra Ítalíu vill að ferðamanni sem skar nafn sitt og unnustu sinnar á vegg hringleikahússins Kolossum í Róm verði refsað. Myndband var tekið af manninum þar sem hann skar nafnið og það birt á samfélagsmiðlum.

Brúðgumasveinar þóttust vera hryðjuverkamenn
Níu karlmenn hafa verið ákærðir fyrir að valda óreiðu meðal almennings í bænum Trofarello á Ítalíu. Mennirnir þóttust ræna vini sínum sem var að gifta sig daginn eftir og létu eins og þeir væru hluti af Íslamska ríkinu (ISIS).

Plastbarkalæknirinn hlaut þungan dóm
Ítalski skurðlæknirinn Paulo Macchiarini var í dag dæmdur til tveggja og hálfs árs fangelsisvistar fyrir grófar líkamsárásir gagnvart þremur einstaklingum, sem fengu grædda í sig plastbarka hjá lækninum. Sjúklingarnir létust allir fáeinum mánuðum eftir aðgerðirnar.

Berlusconi var maður lífsþorsta, ástar og gleði
Silvio Berlusconi fyrrverandi forsætisráðherra Ítalíu var borinn til grafar í opinberri útför frá dómkirkjunni í Milanó á Ítalíu í dag. Hann lést á mánudag 86 ára gamall. Mikill fjöldi fólks fylgdi honum síðasta spölinn.

Dólgurinn sem drottnaði yfir ítalska boltanum
Stjórnmálamaður, fasteignamógull, spillingargosi, bunga bunga dólgurinn, skemmtikraftur á skemmtiferðarskipum, lifandi vaxmynd og svo mætti áfram telja. Já, Silvio Berlusconi var margt og mikið. En stór hópur fólks, ekki síst þeir sem ólust upp á gullaldarskeiði ítalska boltans, tengir hann fyrst og síðast við AC Milan sem hann átti í rúm þrjátíu ár.

Skilur eftir sig tómarúm í stjórnmálum og viðskiptum
Andlát Silvios Berlusconi, fyrrverandi forsætisráðherra Ítalíu, er talið geta valdið óróa í ítölskum stjórnmálum á næstunni. Þá liggur ekki ljóst fyrir hver tekur við viðskiptaveldi Berlusconi sem á meðal annars helstu fjölmiðla landsins.

Silvio Berlusconi er látinn
Silvio Berlusconi, umdeildur fyrrverandi forsætisráðherra Ítalíu, er látinn. Hann var 86 ára. Berlusconi umbylti ítölskum stjórnmálum og fjölmiðlum en forsætisráðherratíð hans endaði í skugga efnahagsóstjórnar og kynlífshneykslismála.

Þrír látnir eftir að bát hvolfdi í stormviðri
Þrír hafa verið úrskurðaðir látnir og eins er enn saknað eftir að bát hvolfdi í skyndilegu stormviðri á Maggiore-vatni á Ítalíu í gær. Nítján hefur verið bjargað.

Ferðamönnum brugðið við svartan Trevi-gosbrunninn
Ítalskir loftslagsaðgerðarsinnar helltu svörtu efni í fjölsótta Trevi gosbrunninn í Róm í dag. Lögregla handtók mótmælendur á vettvangi.

Hefði „að sjálfsögðu ekki“ átt að vera kuldalegri við Meloni
Forsætisráðherra vísar á bug gagnrýni vegna samskipta sinna við forsætisráðherra Ítalíu á leiðtogafundi Evrópuráðsins. Óljóst er hvað verður um byssur sem fluttar voru inn vegna fundarins en búið er að selja fjölda lúxusbíla.

Ferrari leggur sitt af mörkum í kjölfar mannskæðra flóða á Ítalíu
Formúlu 1 lið Ferrari hefur gefið eina milljón evra, yfir 150 milljónum íslenskra króna, til hjálparstarfs í Emilia-Romagna héraði en flóð hafa valdið manntjóni og mikilli eyðileggingu á svæðinu.

Úrhelli síðustu tvo sólarhringa meira en meðalrigning yfir hálft ár
Hátt í tuttugu þúsund hafa flúið heimili sín og þrettán farist vegna gríðarlegra flóða í norðausturhluta Ítalíu. Yfir tuttugu ár hafa flætt yfir bakka sína og á þriðja hundrað aurskriður féllu í nótt.

Katrín sökuð um að flissa með fasistum
Katrín Jakobsdóttir, forsætisráðherra, er harðlega gagnrýnd á samfélagsmiðlum fyrir móttöku sína á Girogiu Meloni, forsætisráðherra Ítalíu. Vel fór á með þeim á móttöku Leiðtogafundarins í Hörpu í gær og hefur Katrín verið sökuð um að vingast við fasista.

Ræðir vopn og nánara samstarf við þýska leiðtoga
Volodýmýr Selenskíj, forseti Úkraínu, er nú í Þýskalandi í fyrsta skipti frá því að Rússar réðust inn í heimaland hans í fyrra. Hann segist ætla að ræða hernaðaraðstoð og aðild að Evrópusambandinu og NATO í heimsókninni. Ítalskir leiðtogar hétu honum áframhaldandi stuðningi í Róm í gær.

Selenskíj til fundar við páfa
Volodýmýr Selenskíj, forseti Úkraínu, kom til Rómarborgar í morgun en hann hygst funda með Frans páfa og ítölskum ráðamönnum. Páfi heldur því fram að Páfagarður vinni að því að koma á friði í Úkraínu á bak við tjöldin.

Ítalir uggandi vegna hærra verðs á pasta
Ríkisstjórn Ítalíu boðaði í vikunni til neyðarfundar vegna hás pastaverðs. Verð pasta, sem er gífurlega vinsælt á diskum Ítala, var í mars 17,5 prósentum hærra en það var ári áður, þrátt fyrir að verðlag hefði einungis hækkað um 8,1 prósent á sama tímabili og verð hveitis hefði lækkað.

Kergja hlaupin í samskipti Frakklands og Ítalíu
Kergja er hlaupin í samskipti Frakklands og Ítalíu eftir að innanríkisráðherra Frakklands kallaði forsætisráðherra Ítalíu lygara í útvarpsviðtali í vikunni. Utanríkisráðherra Ítalíu aflýsti fyrirhugaðri heimsókn sinni til Parísar í lok vikunnar.

Fjórir skotnir og einn látinn þegar Napoli fagnaði titlinum
Fjórir voru skotnir í Napoli á Ítalíu í gærkvöldi þar sem borgarbúar fögnuðu sínum fyrsta Ítalíumeistaratitli í fótbolta í heil 33 ár. Ítalski fjölmiðillinn Ansa segir að 26 ára karlmaður hafi látist af sárum sínum á sjúkrahúsi.

Play bætir við tveimur áfangastöðum næsta vetur
Flugfélagið Play hefur hafið sölu á áætlunarferðum til Verona á Ítalíu og Fuerteventura á Kanaríeyjum.

Flúði frá Ítalíu eftir manndrápstilraun og fór huldu höfði á Íslandi
43 ára Nígeríumaður sem flúði óafplánaðan fangelsisdóm á Ítalíu og fór huldu höfði á Íslandi hefur nú verið afhentur lögregluyfirvöldum í Róm. Fjölmargir ítalskir fjölmiðlar greina frá málinu.

Brjóstgóð stytta fer fyrir brjóstið á Ítölum
Stytta af hafmeyju í héraðinu Puglia, sunnarlega á Ítalíu, hefur vakið mikla athygli og segja einhverjir hana vera of ögrandi. Styttan var gerð af listnemum í skóla í nágrenninu.