Leiðir gönguhópa um Ítalíu - hreyfiferðir Bændaferða njóta mikilla vinsælda Bændaferðir 19. mars 2024 08:38 Guðrún Sigurðardóttir, fararstjóri hjá Bændaferðum býr til skiptis á Ítalíu og á Íslandi og hefur undanfarin ár skipulagt og verið fararstjóri í afar vinsælum gönguferðum til Portofino & Cinque Terre og til Comovatns. Bændaferðir bjóða upp á fjölbreyttar göngu- og útivistarferðir um ævintýraleg svæði víðsvegar í Evrópu. Vinsældir gönguferða hafa aukist síðastliðin ár enda fátt sem veitir fólki jafn mikið frelsi og að ferðast á tveimur jafnfljótum og njóta þannig að hreyfa sig í fallegu umhverfi í frábærum félagsskap. „
Það er alltaf jafn gaman að ganga um nýtt landsvæði, kynnast sérkennum þess, náttúru og menningu. Njóta um leið útivistar og hollrar hreyfingar í einstakri náttúrufegurð, léttklæddur í sólinni. Jákvæð áhrif gönguferða í náttúrunni eru marg staðfest og það eru engar ýkjur að segja að allir komi endurnærðir á líkama og sál úr slíkri ferð." Þetta segir Guðrún Sigurðardóttir, fararstjóri hjá Bændaferðum en hún kom fyrst til Ítalíu árið 1980 og hefur verið þar að mestu leyti síðan. Guðrún bjó í næstum þrjá áratugi við Como vatn og býr nú til skiptis á Ítalíu og á Íslandi. Guðrún hefur undanfarin ár skipulagt og verið fararstjóri í afar vinsælum gönguferðum til Portofino & Cinque Terre og til Comovatns. Umhverfið við Comovatnið er ævintýralegt. „Í gönguferðunum á Ítalíu legg ég áherslu á að mínir farþegar kynnist landi og þjóð, og öllu því áhugaverðasta sem viðkomandi svæði býður upp á. Það er svo sannarlega af nægu að taka, hvort sem við erum við sjávarsíðuna á Portofinoskaganum eða við hið undurfagra Comovatn.“ Njóta en ekki þjóta Hópmynd úr ferðinni Þriggja landa ganga við Adríahafið sem farin var 2023 Gönguferðir Bændaferða henta flestum þeim sem eru við góða heilsu, njóta þess að hreyfa sig utandyra og eru örugg á göngu á náttúrustígum. Ferðirnar eru hugsaðar til að njóta náttúrunnar og kynnast landi og þjóð, ekki er keppt við tímann heldur lögð áhersla á að njóta líðandi stundar. Fararstjóri gefur þátttakendum góðan tíma til hvíldar með reglulegu millibili til að nærast og njóta útsýnisins. Njóttu hressandi útivistar í sumar í frábærum félagsskap „Við hjá Bændaferðum höfum sérstakan áhuga á útivist og öllu því sem henni tengist og bjóðum upp á breitt úrval af frábærum hreyfiferðum. Til samanburðar þá er munurinn á gönguferð og útivistarferð sá að í útivistarferðunum okkar gefst fólki tækifæri á að stunda blandaða hreyfingu, þar er alltaf að minnsta kosti einn rafhjóladagur og fjórir göngudagar. Í gönguferð eru yfirleitt fimm göngudagar," útskýrir Helga Björg Ragnarsdóttir, verkefnastjóri hjá Bændaferðum. Kynnast matarmenningu hvers svæðis Hótelin í ferðunum eru sérvalin og lögð rík áhersla á að bjóða upp á góða gististaði þar sem hægt er að hvíla lúin bein eftir góðan útivistardag. Mjög oft bjóða hótelin upp á heilsulind og sundlaug. Oftast er dvalið á einu hóteli allan tímann og gengið um nærliggjandi svæði. Þannig gefst kostur á að kynnast vel umhverfi og matarmenningu svæðisins. Áfangastaðirnir eru fjölbreyttir og í ár bjóða Bændaferðir m.a. upp á gönguferðir til Portofino & Cinque Terre, til Pýrenafjallanna á Spáni, til Grænlands, Portúgals, að Comovatni, í dali Dólómítafjallanna í Suður-Tíról og þriggja landa göngu við Adríahafið þar sem gengið er um Ítalíu, Slóveníu og Króatíu. Einnig er boðið upp á ferð þar sem siglt verður á fljótabát á Mósel, Saar og Rín og farið í gönguferðir frá nýjum stað á hverjum degi. Útivistarferðir ársins eru á Costa Brava ströndina á Spáni, við Bled vatn í Slóveníu og við Achensee í Austurríki.
Ferðalög Ítalía Fjallamennska Spánn Portúgal Slóvenía Króatía Austurríki Mest lesið „Það braut ísinn að við hefðum deitað sama gaurinn“ Lífið „Ég var heppinn. En ekki hann“ Lífið „Það er önnur hver gella með í vörunum“ Lífið Karlmennskuhlaðvarpið heyrir sögunni til Lífið Fréttatía vikunnar: Körfubolti, laxaastmi og stýrivextir Lífið Gómsætar haustkökur að hætti Elenoru Lífið Ólafur Ragnar skellti sér á sæþotu eftir langan dag Lífið Simmi Vill og Sunneva Einars létu sig ekki vanta á Jókerinn Lífið Skrúfaði titrarann í sundur til að forða nágrönnum frá ónæði Lífið „Hrátt háþróað krass, langt leitt krot“ Menning Fleiri fréttir Ný vetrarlína Moomin væntanleg í takmörkuðu upplagi „Bio-Kult er eitt af því sem er alltaf til á okkar heimili“ Bragi Páll og Bergþóra með hryllilega fyndnar hrekkjavökusögur Ný eldhúslína sem sækir innblástur í náttúruna Sprite Zero Klan gefur út SS pylsulagið í fullri lengd Tilkoma Neubria leikbreytir að sögn Bergsveins Náttúruleg leið til að endurbæta meltinguna! Um 12.000 manns hafa séð sýninguna Orð gegn orði í Þjóðleikhúsinu MZ Skin – Lúxus húðvörur sem byggja á vísindum og fagurfræði Þetta þurfum við í útihlaupin í vetur Osteostrong á erindi við alla aldurshópa Sprenghlægilegur gamanleikur frumsýndur í október í Þjóðleikhúsinu Fólk öðlast frelsi og hugarró og sumir jafnvel nýtt líf Heitustu haust- og vetrartrendin 2024 Inga Lilý hlaut aðalvinninginn í ár Hefur tekið Nutrilenk í 20 ár og gæti ekki án þess verið Getur hundur hjálpað mér að reima? - Ráðstefna um dýr í starfi með fólki Fallegur golfvöllur á sögulegum slóðum Aldrei haft jafn þykkt hár Eva Ruza skipuleggur húðrútínu sína með L´Oréal Paris Skemmtilegur golfvöllur umkringdur stórkostlegri náttúru Sjá meira