Heilbrigðismál

Alvarleg staða blasir við á Landspítalanum
Forstjóri Landspítalans hvetur samninganefndir ljósmæðra og ríkisins til að setjast strax aftur að samningaborði.

Vonast til að blóðsýni úr tilvonandi mæðrum geti sagt til um meðgöngutíma
Vísindamenn við Stanford-háskóla í Bandaríkjunum kanna nú hvort lestur blóðsýna á tilvonandi mæðrum geti verið skilvirk aðferð til að segja til um meðgöngutíma kvenna.

„Sjúklingarnir eru ekkert að hverfa“
Tveir sérfræðilæknar, sem báðir fengu synjun um aðild að rammasamningi Sjúkratrygginga Íslands fyrir sérfræðilækna, segja núverandi fyrirkomulag bitna á sjúklingum og koma í veg fyrir nýliðun innan læknastéttarinnar, þrátt fyrir alvarlegan læknaskort.

Fimmtíu líffæragjafar gáfu 186 líffæri síðastliðinn áratug
Líffæragjöfum hefur fjölgað undanfarinn áratug. Mest er gefið af nýrum og næstmest af lifrum. Yfirlæknir líffæraígræðsluteymis segir nýja löggjöf sem samþykkt var í vikunni um áætlað samþykki þýðingarmikla.

Nánasti vandamaður getur virt fyrirmæli hins látna að vettugi
Frumvarp um ætlað samþykki til líffæragjafar varð að lögum í gær og tekur gildi um áramótin. Almennt ríkir ánægja með efni laganna meðal þeirra sem starfa í stéttinni.

Tólfumenn drifu sig í bólusetningu fyrir HM
Töluvert hefur verið hringt í Heilsugæslu höfuðborgarsvæðisins undanfarið til að spyrjast fyrir um bólusetningar vegna ferða á HM í Rússlandi. Sóttvarnalæknir hvetur fólk almennt til að huga að bólusetningum.

Sóttvarnalæknir frétti af mislingasmiti í vélum Icelandair í fjölmiðlum
Segir fulltrúa Icelandair einnig hafa komið af fjöllum og engin tilkynning hafi borist frá Kanada.

Gleymdu börnin á Íslandi
Á Vesturlöndum er heilaskaði talinn ein helsta ástæðan fyrir heilsufarsvandamálum hjá börnum, unglingum og ungu fólki á fullorðinsaldri.

Opið bréf til heilbrigðisráðherra
Kæra Svandís. Eins og þér er kunnugt um er ég taugalæknir með sérmenntun í Parkinsonsjúkdómi og öðrum hreyfiröskunum.

Segir rafrettufrumvarpið ganga of langt
Halldóra Mogensen, þingmaður Pírata og formaður velferðarnefndar, telur það óþarfa að banna notkun rafrettna á veitinga- og skemmtistöðum eins og meirihluti nefndarinnar leggur til.

Hulda setur ekki verðmiða á líf barnsins síns
Móðir drengs með banvænan vöðvahrörnunarsjúkdóm hefur barist í tvö ár fyrir að hann fái lyf sem hægir á sjúkdómnum en hefur í tvígang verið hafnað af Lyfjanefnd Landspítalans.

Eins og blaut tuska í andlit sjúklinga og samstarfsfélaga
Tómas Guðbjartsson, hjartaskurðlæknir á Landspítala, gagnrýnir ákvörðun heilbrigðisyfirvalda um að hafna umsókn taugalæknisins Önnu Björnsdóttur um aðild að rammasamningi Sjúkratrygginga Íslands, SÍ. Enginn sérfræðilæknir hefur fengið aðild að samningnum síðan 1. janúar 2016.

Íslenskar konur hlynntar því að nýta erfðaupplýsingar í vísindaskyni
Þetta eru niðurstöður nýrrar íslenskrar rannsóknar.


Páll telur sjúklinginn ekki hafa gleymst
Forstjóri Landspítalans segist ekki telja að sjúklingur hafi gleymst á hjartagátt spítalans eins og segir í Fréttablaðinu í dag, heldur hafi biðin verið óvenju löng vegna manneklu. Ekki fást sérhæfðir hjúkrunarfræðingar í sumarafleysingar á deildina og er starfsfólk að fresta sumarfríum til að halda skertri þjónustu gangandi.

Sjúklingur í lífshættu segist hafa gleymst
Hjartveikur maður hefur kvartað til Landlæknis eftir að hafa gleymst á gangi hjartagáttar Landspítalans í síðustu viku. Sat afskiptur með hjartaverk í fimm tíma. Tveimur dögum eftir að hann leitaði fyrst á deildina fór hann í þræðingu. Slagæð reyndist nær alveg lokuð.

Álagið á bráðamóttöku eykst frekar
Tekin hefur verið ákvörðun um að loka Hjartagáttinni, eða deild 10D, þann 7. júlí næstkomandi og flytja bráðastarfsemina á bráðamóttöku.

Mannekla veldur kvíða
Alvarleg staða er komin upp í heimahjúkrun í Reykjavík þar sem illa hefur gengið að manna stöður fyrir sumarið. Fólki tilkynnt um minni stuðning.

Heilbrigðisþjónustan – hvert stefnir?
Hvað er betra? Að fyrirbyggja eða bíða og laga seinna ?

Átak í uppbyggingu hjúkrunarrýma
Skortur á hjúkrunarrýmum hefur leitt til þess að biðtími eftir þeim hefur lengst.

Controlant hyggst umbreyta 13,4 milljarða dollara markaði
Umtalsverður hluti bóluefna og matvæla skemmist í flutningi vegna breytinga á hitastigi. Neytendur greiða fyrir sóunina. Vodafone Global birti grein um íslenska tæknifyrirtækið Controlant og dreifði á heimsvísu. Controlant er farið að þjónusta stór alþjóðleg fyrirtæki og sækir fjármagn til fjárfesta til að vaxa frekar.

Gengið illa að manna og biðlistar yfirvofandi í heimahjúkrun
Fyrirsjáanlegt er að draga þurfi úr þjónustu hjá heimahjúkrun og félagslegri heimaþjónustu Reykjavíkurborgar þar sem illa hefur gengið að manna stöður fyrir sumarið.

Þúsundir Íslendinga gætu komist hjá krabbameinum ef færri reyktu
Hægt væri að koma í veg fyrir þúsundir krabbameinstilfella á Íslandi ef færri reyktu.

Öld síðar
Þann 6. nóvember árið 1918 greindi Morgunblaðið frá óvenjulegri örtröð sem myndaðist í Apóteki P.O. Christensens í Reykjavík.

Hefur áhrif á meðgöngu
Börn þeirra mæðra, sem notuðu parasetamól á meðgöngu í lengri tíma (meira en 29 daga), eru meira en tvisvar sinnum líklegri til að greinast með ADHD en aðrar mæður.

Þjóðarsjúkrahús að Keldum
Fagna ber að hreyfing er loksins komin á byggingu meðferðarkjarna við Landspítala Háskólasjúkrahús við Hringbraut þótt mikill meirihluti Reykvíkinga og þjóðarinnar telji mun skynsamlegra að byggja þess í stað nýtt Þjóðarsjúkrahús á betri stað eins og á Keldum.

Grípa til örþrifaráða til að fá lífsnauðsynleg lyf
Dæmi eru um að foreldrar langveikra barna hafi leitað út fyrir landsteinana til að útvega nauðsynleg lyf sem illa gengur að afgreiða hér á landi. Hópar til slíks eru til á samskiptamiðlum.

Fjórðungur heimsbyggðarinnar of feitur árið 2045
Haldi núverandi þróun í lýðheilsumálum áfram næstu árin mun tæplega fjórðungur mannkyns, eða um 22 prósent, glíma við offitu árið 2045.

Talsverð aukning á sýklalyfjaónæmi
Þetta kemur fram í nýrri farsóttarskýrslu sem gefin er út af Embætti landlæknis.

Þróunarmiðstöð heilsugæslu á landsvísu sett á fót
Svandís Svavarsdóttir heilbrigðisráðherra kynnti í dag ákvörðun sína um að auka til muna fjármuni til að efla og þróa heilsugæsluþjónustu um allt land.