Forseti Íslands
6 7 8 9 10 11 12 13 14 … 30 ›
Sterkir forsetaframbjóðendur geta gjörbreytt stöðunni Jón Gnarr tilkynnir væntanlega í kvöld hvort hann bjóði sig fram til embættis forseta Íslands eða ekki. Þá styttist í að forsætisráðherra geri upp hug sinn. Stjórnmálafræðingur segir framboð þeirra og nokkurra annarra geta ráðið miklu í kosningabaráttunni. Innlent 2.4.2024 19:20
„Veit að hún er að hugsa málið“ Orri Páll Jóhannsson, þingflokksformaður Vinstri grænna, segist ekki átta sig á því hvort tal um mögulegt forsetaframboð Katrínar Jakobsdóttur, forsætisráðherra, hafi orsakað skjálfta í ríkisstjórnarsamstarfinu. Hann segist vita að Katrín sé að velta fyrir sér framboðinu. Innlent 2.4.2024 19:10
Katrín ekki með sigur vísan bjóði hún sig fram Ólafur Þ. Harðarson stjórnmálafræðingur segist ekki vera viss um að Katrín Jakobsdóttir forsætisráðherra eigi sigurinn vísan í forsetakosningum bjóði hún sig fram. Hann segir þjóðina vera mikið ólíkindatól þegar það kemur að forsetakosningum. Innlent 2.4.2024 09:58
Starfaði í 39 ár á skrifstofu forseta og segist vita hvað þarf í embættið Fyrrverandi deildarstjóri á skrifstofu forseta Íslands segir að forseti þurfi fyrst og fremst að vera afar vel menntaður, heiðarlegur og heilsteyptur einstaklingur sem komi vel fram. Þar að auki þurfi hann að búa yfir tungumálakunnáttu, hafa gott bakland og kjark til að taka ákvarðanir þó þær séu ekki vinsælar. Innlent 31.3.2024 22:03
Stuðmaður leggst undir feldinn Jakob Frímann Magnússon, Stuðmaður og þingmaður Flokks fólksins, íhugar alvarlega að gefa kost á sér til embættis forseta Íslands. Innlent 29.3.2024 22:18
Hætt við framboð og vonast eftir þjóðhollum og guðræknum forseta Margrét Friðriksdóttir, ritstjóri Fréttarinnar.is, er hætt við forsetaframboð. Hún stofnaði til meðmælalista fyrir fimm dögum síðan, en segir að sér hafi raunar ekki verið alvara með framboðinu. Innlent 28.3.2024 17:00
Fullkomlega sáttur við ákvörðun sína en útilokar ekkert Guðni Th. Jóhannesson, forseti Íslands, segir að sér hafi ekki snúist hugur um að láta af embætti í sumar. Hann vill þó ekki útiloka að það geti breyst, komi upp ófyrirsjáanlegar aðstæður. Innlent 28.3.2024 12:05
Helga hellir sér í forsetaslaginn Helga Þórisdóttir forstjóri Persónuverndar ætlar að gefa kost á sér til embættis forseta Íslands. Helga upplýsti um þetta á blaðamannafundi á heimili sínu í Fossvoginum í hádeginu. Innlent 27.3.2024 12:05
Svona kynnti Helga framboð sitt til forseta Íslands Helga Þórisdóttir, forstjóri Persónuverndar, greinir frá ákvörðun sinni um framboð til forseta Íslands á blaðamannafundi á heimili sínu. Innlent 27.3.2024 11:30
Telur að nokkrir bíði átekta vegna forsætisráðherra Almannatengill hjá ráðgjafafyrirtæki telur að nokkrir hugsanlegir frambjóðendur til forseta Íslands neyðist til að bíða átekta því forsætisráðherra hefur ekki enn sagt af eða á með framboð. Innlent 25.3.2024 19:30
Það sem Guðni ætlar að gera eftir að hann lætur af embætti Guðni Th. Jóhannesson ætlar að snúa sér að sagnfræðirannsóknum og kennslu þegar hann lætur af embætti forseta Íslands. Hann eigi meðal annars eftir að ljúka sögu landhelgismálsins og segir kíminn, að engir hafi breytt gangi sögunnar jafn mikið og sagnfræðingarnir. Innlent 24.3.2024 20:01
Baldur tjáir sig um málskotsréttinn Baldur Þórhallsson, forsetaframbjóðandi og prófessor í stjórnmálafræði, segir það hafa verið hárrétt af Ólafi Ragnari Grímssyni að vísa ICESAVE-málunum til þjóðarinnar á sínum tíma. Innlent 24.3.2024 18:41
Margrét Friðriks safnar undirskriftum til að kanna áhugann Margrét Friðriksdóttir ritstjóri Fréttarinnar.is er á lista yfir þá einstaklinga sem safna undirskriftum fyrir forsetaframboð. Hún segist með því vera að kanna áhugann fyrir forsetaframboði hennar. Innlent 23.3.2024 14:53
Með skemmtilegri embættisverkum forseta Íslands Forseti Íslands segir það með skemmtilegri embættisverkum að taka á móti fulltrúum Félags áhugafólks um Downs heilkennið og þiggja að gjöf nýtt par af mislitum sokkum. Dagur Downs heilkennisins er haldinn hátíðlegur um allan heim í dag. Innlent 21.3.2024 19:57
Færðu forseta Íslands mislita sokka Það var líf og fjör á Bessastöðum í morgun þegar forseti Íslands tók á móti fulltrúum Félags áhugafólks um Downs heilkennið sem afhentu honum mislita sokka í tilefni alþjóðlega Downs dagsins. Forsetinn var hæst ánægður með sokkana sem voru hannaðir af listamanni með Downs heilkenni. Lífið 21.3.2024 14:13
„Við höfum verið mjög feimnir gagnvart þessu“ „Við erum í raun að bjóða okkur fram saman. Við erum að bjóða okkur fram sameiginlega að þessum verkefnum. Við höfum tekist þannig á við öll okkar verkefni í lífinu,“ segir Baldur Þórhallsson, stjórnmálafræðiprófessor, um eiginmann hans fjölmiðlamanninn Felix Bergsson. Innlent 20.3.2024 14:02
Baldur býður sig fram Baldur Þórhallsson, prófessor í stjórnmálafræði, hefur tilkynnt um framboð sitt til embættis forseta Íslands. Það gerði hann á opnum fundi í Bæjarbíói í Hafnarfirði rétt í þessu. Innlent 20.3.2024 12:10
Bein útsending: Baldur tilkynnir um ákvörðun sína Baldur Þórhallsson, prófessor í stjórnmálafræði við Háskóla Íslands, og Felix Bergsson, eiginmaður hans, munu í hádeginu í dag, funda með þeim hópi fólks sem hvatt hefur Baldur til að gefa kost á sér til embættis forseta Íslands. Innlent 20.3.2024 11:01
„Ég ætla að fórna mér í framboðsbaráttu fyrir þig“ Ásdís Rán Gunnarsdóttir, athafnakona og fyrirsæta, vill að hópur frambjóðenda í forsetakosningunum í sumar sé sem fjölbreyttastur. Því hyggst hún fórna sér í baráttuna, segist vera komin í óformlegt forsetaframboð og safnar nú undirskriftum til þess að geta tekið þátt í kosningunum. Innlent 20.3.2024 09:11
Baldur boðar til blaðamannafundar Baldur Þórhallsson, prófessor í stjórnmálafræði við Háskóla Íslands, ætlar á morgun að upplýsa um ákvörðun sína varðandi framboð til embættis forseta Íslands á blaðamannafundi í Bæjarbíói í Hafnarfirði. Þetta kemur fram í tilkynningu. Innlent 19.3.2024 15:12
Ástþór eyðir milljónum en næsti frambjóðandi þúsundköllum: „Það væsir ekkert um mig fjárhagslega“ Ástþór Magnússon hefur 28 ára reynslu af því að bjóða sig fram til forseta og hann er hvergi nærri hættur. Hann er byrjaður snemma að auglýsa framboð sitt að þessu sinni og notar samfélagsmiðla til þess. Innlent 18.3.2024 08:01
Ísdrottningin safnar undirskriftum til að komast á Bessastaði Ásdís Rán Gunnarsdóttir, einnig þekkt sem Ísdrottningin, er byrjuð að safna meðmælum fyrir forsetaframboð í komandi kosningum. Þetta má sjá á vefnum Ísland.is, en þegar þetta er skrifað eru 25 að safna meðmælum. Innlent 17.3.2024 22:54
Halla býður sig fram til forseta Halla Tómasdóttir stefnir að því að verða næsti forseti Íslands. Halla tilkynnti um framboð sitt til forseta á blaðamannafundi í Grósku í Vatnsmýri í Reykjavík í hádeginu í dag. Fjöldi stuðningsmanna Höllu hafði þar safnast saman. Innlent 17.3.2024 12:09
Bein útsending: Blaðamannafundur Höllu Tómasdóttur Blaðamannafundur sem Halla Tómasdóttir, rekstrarhagfræðingur og forstjóri B Team, hefur boðað til hefst í Grósku í Vatnsmýri klukkan 12 í dag. Innlent 17.3.2024 11:01
Baldur opinberar ákvörðun sína í næstu viku Baldur Þórhallsson, prófessor í stjórnmálafræði, segist ætla að gefa upp ákvörðun sína um mögulegt forsetaframboð í næstu viku. Margir hafa hvatt Baldur til framboðs að undanförnu og er Baldur sagður hafa íhugað það alvarlega. Innlent 16.3.2024 15:59
Halla boðar til blaðamannafundar Halla Tómasdóttir, rekstrarhagfræðingur og forstjóri B Team, hefur boðað til blaðamannafundar í Grósku í Vatnsmýri í hádeginu á morgun. Halla hefur að undanförnu verið orðuð við framboð til embættis forseta Íslands og má leiða líkur að því að hún komi á fundinum til með að tilkynna um framboð. Innlent 16.3.2024 09:58
Katrín noti mögulega orðróm um forsetaframboð í pólitískri skák Katrín Jakobsdóttir forsætisráðherra gæti verið að nota umræðu um mögulegt forsetaframboð sitt til að styrkja pólitíska stöðu sína. Þessari tilgátu vörpuðu bæði Einar Bárðarson, umboðsmaður Íslands, og Stefanía Sigurðardóttir, framkvæmdastjóri þingflokks Viðreisnar og fyrrverandi forsetaframboðsstýra, í Pallborðinu á Vísi í dag. Innlent 14.3.2024 15:30
Gefur ekki kost á sér Ólafur Jóhann Ólafsson mun ekki gefa kost á sér í embætti forseta Íslands. Innlent 14.3.2024 14:40
Vöruð við því strax í upphafi að hún ætti ekki séns Þóra Arnórsdóttir segist aldrei hafa gert ráð fyrir að ná kjöri sem forseti Íslands í kosningunum 2012, þar sem hún bauð sig fram á móti Ólafi Ragnari Grímssyni, sitjandi forseta. Þóra ræddi hæðir og lægðir forsetaframboðs í Íslandi í dag í fyrradag. Lífið 14.3.2024 14:23
Forstjóri Persónuverndar íhugar alvarlega að gefa kost á sér Helga Þórisdóttir, forstjóri Persónuverndar og formaður stjórnar Félags forstöðumanna ríkisstofnana, segir meiri líkur en minni á að hún bjóði sig fram til embættis forseta Íslands. Innlent 13.3.2024 14:56