SpaceX
1 2 3 4 5 … 5 ›
Færast nær fyrsta geimskoti Starship Starfsmenn geimferðafyrirtækisins SpaceX náðu nýjum áfanga í Texas í vikunni þegar tilraunir voru gerðar með Starship-geimfarið. Kveikt var á hreyflum fyrra og seinna stigs Starship en þetta var í fyrsta sinn sem tilraunir eru gerðar með fyrra stigið, sem kallast Super Heavy. Erlent 11.8.2022 16:33
Musk vill hætta við en Twitter ætlar í mál Auðjöfurinn Elon Musk segir að hann vilji hætta við að kaupa samfélagsmiðilinn Twitter á 44 milljarða dala. Forsvarsmenn fyrirtækisins segjast ætla að höfða mál gegn Musk og segjast vongóðir um að þeir muni bera sigur úr bítum. Viðskipti erlent 8.7.2022 22:15
Kaup Musks á Twitter sögð „í hættu“ Kaup auðjöfursins Elons Musk á samfélagsmiðlinum Twitter eru sögð í hættu. Musk heldur því fram að ekki sé hægt að sannreyna tölur Twitter um fjölda falskra reikninga og svokallaðra botta á samfélagsmiðlinum og er auðjöfurinn sagður vera hættur viðræðum um fjármögnun kaupanna. Viðskipti erlent 7.7.2022 23:29
Eignaðist tvíbura með stjórnanda hjá fyrirtæki í sinni eigu Elon Musk, eigandi Tesla og SpaceX, eignaðist tvíbura á síðasta ári með Shivon Zilis, stjórnanda hjá Neuralink, en fyrirtækið er í eigu Musk. Erlent 7.7.2022 08:52
Musk og fyrirtækjum hans stefnt vegna pýramídasvindls með rafmynt Fjárfestir í rafmyntinni Dogecoin stefndi Elon Musk, rafbílaframleiðandanum Tesla og og geimferðafyrirtækinu SpaceX vegna meints pýramídasvindls með myntina í dag. Hann krefst 258 milljarða króna frá Musk og fyrirtækjum hans. Viðskipti erlent 16.6.2022 20:16
Fá grænt ljós á frekari geimskot frá Texas Verkfræðingar og vísindamenn SpaceX mega halda áfram tilraunum sínum með geimfarið Starship í Suður-Flórída. Tilraunirnar voru stöðvaðar á meðan umhverfismat fór fram. Framkvæmd matsins dróst verulega á langinn. Erlent 14.6.2022 14:52
Musk hafnar ásökunum og vill koma á fót málsóknarteymi Ríkasti maður heims, Elon Musk, hafnar þeim ásökunum sem á hann eru bornar um kynferðislega áreitni. Greint var frá því á dögunum að flugfreyja sem starfaði fyrir fyrirtæki hans sakaði hann um að hafa berað sig við konuna, káfað á henni og boðið henni greiðslu fyrir kynlíf. Erlent 21.5.2022 11:07
Skorar á heimildarmanninn að lýsa óþekktum örum eða húðflúrum á líkama Musk Auðjöfurinn Elon Musk þvertekur fyrir að hafa berað sig fyrir framan flugfreyju, líkt og haldið var fram í frétt Business Insider í gær Hann skorar á heimildarmann fjölmiðilsins að stíga fram og lýsa örum eða húðflúrum á líkama Musk sem almenningur veit ekki af. Erlent 20.5.2022 13:46
Musk sagður hafa berað sig við flugfreyju Geimferðafyrirtækið SpaceX greiddi flugfreyju kvartmilljón dollara eftir að hún sakaði Elon Musk, eiganda fyrirtækisins, um að hafa berað sig fyrir framan hana og falast eftir kynlífi með henni. Atvikið er sagt hafa átt sér stað árið 2016. Erlent 19.5.2022 23:11
Musk tekur ekki sæti í stjórn Twitter Bandaríski auðjöfurinn Elon Musk hefur ákveðið að taka ekki sæti í stjórn samfélagsmiðlarisans Twitter. Parag Agrawal, framkvæmdastjóri Twitter, greindi frá þessu í dag, en Elon Musk varð á dögunum stærsti einstaki hluthafinn í Twitter eftir að hafa keypt 9,2 prósenta hlut. Viðskipti erlent 11.4.2022 07:47
Bein útsending: Ferðamönnum skotið til geimstöðvarinnar Fyrsta mannaða geimferð Axiom Space verður farin í dag. Þremur ferðamönnum og einum geimfara verður skotið til geimstöðvarinnar með eldflaug og í geimfari SpaceX. Erlent 8.4.2022 14:01
Elon Musk kaupir 9,2 prósenta hlut í Twitter Auðjöfurinn Elon Musk, ríkasti maður heims og eigandi SpaceX og Tesla, hefur keypt 9,2 prósenta hlut í samfélagsmiðlarisanum Twitter. Viðskipti erlent 4.4.2022 11:30
Tapa allt að fjörutíu nýjum gervihnöttum vegna segulstorms Forsvarsmenn fyrirtækisins SpaceX tilkynntu í gær að útlit sé fyrir að allt að fjörutíu nýir Starlink-gervihnettir munu tapast vegna segulstorms. Gervihnettirnir munu brenna upp í gufuhvolfinu. Erlent 9.2.2022 22:10
Fönguðu tvo áfanga í geimskoti með myndavélum á jörðu niðri Geimferðafyrirtækið SpaceX birti um helgina nýtt myndband af geimskoti sem fangaði tvo atburði í geimskotum sem sjást iðulega ekki. Það er þegar eldflaugin sendir farminn af stað og snýr við til jarðar og þegar farmhlífinni er sleppt og hún látin falla til jarðar. Erlent 7.2.2022 18:56
Gömul eldflaug SpaceX stefnir hraðbyr á tunglið Falcon 9 eldflaug sem starfsmenn SpaceX skutu út í geim frá Flórída árið 2015 virðist ætla að brotlenda á tunglinu á næstu vikum. Síðan þá hefur eldflaugin verið á fleygiferð í kringum jörðina og tunglið. Erlent 26.1.2022 14:00
Kvarta eftir að hafa þurft að færa geimstöðina vegna gervihnatta Musk Yfirvöld í Kína hafa kvartað til Sameinuðu þjóðanna eftir að gervihnettir á vegum SpaceX, geimfyrirtækis auðkýfingsins Elon Musk, voru nærri því að að klessa á kínversku geimstöðina á árinu. Erlent 28.12.2021 08:07
Elon Musk manneskja ársins hjá tímaritinu Time Athafnamaðurinn og auðjöfurinn Elon Musk hefur verið valinn „manneskja ársins“ af bandaríska tímaritinu Time. Erlent 13.12.2021 13:23
Annað hvort dreifum við okkur um Vetrarbrautina eða deyjum út Mannkynið er dauðadæmt, dreifi það sér ekki um sólkerfið og jafnvel lengra en það. Án þess að mannkynið verði tegund margra reikistjarna er tölfræðilega óhjákvæmilegt að það muni þurrkast út. Hvort sem það gerist á næstu áratugum eða jafnvel milljörðum ára, þá munum við deyja og jörðin þurrkast út. Erlent 11.12.2021 08:01
Musk segir SpaceX í krísu og gjaldþrot mögulegt Elon Musk, stofnandi og framkvæmdastjóri SpaceX, segir fyrirtækið í krísu vegna hægrar framleiðslu á eldflaugarhreyflum og að gjaldþrot sé mögulegt. Fyrirtækið þurfi nauðsynlega að auka framleiðslu. Viðskipti erlent 30.11.2021 23:01
Kanna leiðir til að draga úr áhrifum geimferða Fjórum geimförum verður skotið út í geim á sunnudagsmorgun. Þau munu verja næstu mánuðum við störf og rannsóknir í Alþjóðlegu geimstöðinni. Geimförunum verður skotið út í geim um borð í Crew Dragon geimfari SpaceX. Erlent 27.10.2021 13:55
Geimklósettið til vandræða í geimfari SpaceX Allt leit út fyrir að geimskot SpaceX í september, þar sem fjórir geimfarar fóru hringinn í kringum jörðina í Crew Dragon geimfarinu, hafi gengið hnökralaust fyrir sig. Annað kom á daginn þegar heim var komið. Gat hafði komið á pípulagnir geimklósettsins um borð. Erlent 27.10.2021 08:58
Ekki Tesla heldur SpaceX sem muni gera Musk að billjónamæringi Það verður ekki bílafyrirtækið Tesla sem mun mögulega gera Elon Musk, auðugasta mann heims, að fyrsta billjónamæringnum (í dölum talið) heldur geimfyrirtækið SpaceX. Greinendur bandaríska fjárfestingabankans Morgan Stanley telja að SpaceX muni hafa gífurleg áhrif á heiminn og geimferðir. Viðskipti erlent 19.10.2021 21:53
NASA horfir lengra út í geim Forsvarsmenn Geimvísindastofnunar Bandaríkjanna (NASA) hafa ákveðið að gera breytingar á starfseminni, sem eiga að stjórna áherslum opinberra geimferða næstu áratugina. Markmiðið er að leggja meiri áherslu á lengri geimferðir og þróun tækni sem þarf til þeirra. Erlent 28.9.2021 13:07
Vildi sýna að venjulegt fólk gæti farið út í geim Fjórir almennir borgarar sem skotið var á braut um jörðu á miðvikudag sneru aftur heilu og höldnu í nótt þegar SpaceX Crew Dragon geimfar þeirra lenti á sjó nærri strönd Flórída. Erlent 19.9.2021 10:01
Hafa ekki skotið geimfari hærra en gert var í nótt Starfsmenn SpaceX skutu í nótt fjórum geimförum í um 585 kílómetra hæð yfir jörðu. Þar munu þau verja þremur dögum á braut um jörðina. Erlent 16.9.2021 10:54
Netflix-geimskotið: Senda borgara í þriggja daga geimferð Til stendur að skjóta fjórum almennum borgurum á braut um jörðu í kvöld. Starfsmenn SpaceX munu nota Falcon 9 eldflaug til að skjóta Crew Dragon geimfari á loft. Geimfararnir þar um borð verða svo á braut um jörðu í þrjá daga og mun Netflix sýna þætti um geimferðina. Erlent 15.9.2021 19:45
Stefna á tímamótageimskot á miðvikudagskvöldið SpaceX stefnir að því að skjóta fjórum almennum borgurum á braut um jörðu á miðvikudagskvöld. Búið er að koma Falcon 9 eldflaug og Crew Dragon geimfari fyrir á skotpalli og virðist allt tilbúið fyrir geimskotið, sem er það fyrsta sinnar tegundar. Erlent 13.9.2021 14:46
Ekki hægt að lenda á tunglinu 2024 vegna tafa við þróun geimbúninga Geimvísindastofnun Bandaríkjanna (NASA) mun líklegast ekki geta lent geimförum á tunglinu aftur árið 2024 eins og til hefur staðið í tengslum við Artemis-áætlunina svokölluðu. Það má meðal annars rekja til væntanlegra tafa við þróun og framleiðslu nýrra geimbúninga stofnunarinnar. Erlent 12.8.2021 13:15
SpaceX skýtur þeim á braut um jörðu og Netflix fangar ævintýrið á filmu SpaceX ætlar að skjóta hópi almennra borgara á braut um jörðu í næsta mánuði og verður geimskotinu og aðdraganda þess gerð skil í heimildaþáttum Netflix. Forsvarsmenn streymisveitunnar segja þetta í fyrsta sinn sem fyrirtækið sýni heimildaþætti „nærri því í rauntíma“. Bíó og sjónvarp 4.8.2021 15:30
Auðjöfrar fjölmenna í geimnum Auðjöfurinn Richard Branson ætlar að láta skjóta sér út í geim á sunnudaginn. Hinn 70 ára gamli Branson mun fara út í geim um borð í VSS Unity, geimflaug fyrirtækisins Virgin Galactic, sem Branson á. Viðskipti erlent 9.7.2021 13:42