
EM 2018 í handbolta

Ólafur: Höfum verið upp og niður sem lið
Ólafur Guðmundssom átti góðan leik í dag með þegar að íslenska landsliðið í handbolta mætti því úkraínska í Laugardalshöll í dag.

Geir: Það er kominn betri bragur á liðið
Það var þungu fargi létt af landsliðsþjálfarnum eftir sigurinn á Úkraínu.

Umfjöllun: Ísland - Úkraína 34-26 | Strákarnir komnir á tíunda Evrópumótið í röð
Ísland tryggði sér sæti á EM 2018 í handbolta með stórsigri á Úkraínu, 34-26, í Laugardalshöllinni í kvöld.

Ómar Ingi: Þurfum að laga smáatriðin
Ómar Ingi Magnússon átti ágæta innkomu þegar íslenska karlalandsliðið í handbolta tapaði fyrir því tékkneska í undankeppni EM 2018 á miðvikudaginn. Hann skoraði eitt mark og gaf nokkrar stoðsendingar á félaga sína.

Þjóðverjar fóru taplausir í gegnum undankeppnina
Þremur leikjum er nú lokið í undankeppni EM í handbolta 2018.

Ýmir kemur inn fyrir Gunnar Stein
Geir Sveinsson gerir eina breytingu á íslenska landsliðinu sem mætir Úkraínu í undankeppni EM 2018 í kvöld.

Aron: Eigum harma að hefna
Aron Pálmarsson segir að leikmenn íslenska karlalandsliðsins í handbolta séu staðráðnir í að vinna það úkraínska í kvöld og tryggja sér þar með sæti á EM.

Patrekur kom Austurríki á EM
Strákarnir hans Patreks Jóhannessonar í austurríska landsliðinu tryggðu sér í kvöld sæti á EM 2018 í Króatíu með sigri á Bosníu, 34-32, í Vín í hreinum úrslitaleik um sæti í lokakeppninni.

Janus Daði: Verð að nýta plássið sem ég fæ
Janus Daði Smárason átti afar góða innkomu í leik Íslands og Tékklands í undankeppni EM 2018 á miðvikudaginn var.

Rúnar: Ekki hægt að bjóða mönnum upp á 12 tíma soðið kjöt í öll mál
Rúnar Kárason segir að leikmenn íslenska landsliðsins í handbolta séu staðráðnir í að kvitta fyrir slakan leik gegn Tékkum á miðvikudaginn gegn Úkraínu í Laugardalshöllinni annað kvöld.

Rússar ekki með á EM í fyrsta sinn
Rússneska karlalandsliðið í handbolta verður ekki á meðal þátttökuliða á EM í Króatíu á næsta ári. Þetta var ljóst eftir 27-27 jafntefli Rússlands og Svartfjallalands í síðasta leik liðsins í undankeppni EM í dag.

Þurfum að nýta heimavöllinn
Íslenska karlalandsliðið í handbolta er einum sigri frá því að tryggja sér sæti á tíunda Evrópumótinu í röð. Annað kvöld mæta íslensku strákarnir ólseigum Úkraínumönnum sem unnu fyrri leik liðanna ytra.

Sækir Úkraína innblástur í tíu ára gömul vonbrigði?
"Við frömdum sjálfsmorð í þessum leik,“ sagði Alfreð Gíslason, þáverandi landsliðsþjálfari, eftir að Ísland hafði tapað mjög óvænt gegn Úkraínu á HM í Þýskalandi árið 2007.

Hvít-Rússar gerðu strákunum okkar stóran greiða
Hvíta-Rússland tryggði sér í dag sæti á EM 2018 í Króatíu með stórsigri á Rúmeníu, 22-32.

Atli Ævar og Ágúst Elí koma inn í hópinn
Geir Sveinsson hefur kallað markvörð og línumann til æfinga fyrir leikinn á móti Úkraínu.

Nánast búnir að Tékka sig út
Von íslenska karlalandsliðsins í handbolta um að komast á tíunda Evrópumótið í röð er orðin ansi veik eftir tap fyrir Tékklandi, 27-24, í Brno í gær. Afleitur fyrri hálfleikur varð Íslendingum að falli í leiknum.

Þjóðverjar, Frakkar og Danir tryggðu sér farseðilinn til Króatíu
Evrópumeistarar Þjóðverja, heimsmeistarar Frakka og Danir tryggðu sér sæti í lokakeppni EM 2018 í Króatíu í dag.

Umfjöllun: Tékkland - Ísland 27-24 | Strákarnir sjálfum sér verstir í Tékklandi
EM-draumur strákanna okkar er svo gott sem dáinn eftir grátlegt tap gegn Tékkum ytra. Ísland átti möguleika að fá að minnsta kosti stig úr leiknum en fór hrikalega illa að ráði sínu.

Strákarnir hans Patreks í góðri stöðu eftir sigur í miklum markaleik
Lærisveinar Patreks Jóhannessonar í austurríska landsliðinu unnu þriggja marka sigur á því finnska, 36-39, í miklum markaleik í undankeppni EM 2018 í dag.

Verður Ými hent út í djúpu laugina?
Ísland mætir Tékklandi í Brno í gríðarlega mikilvægum leik í undankeppni EM 2018 í handbolta klukkan 16.10 í dag.

Ýmir fór með til Tékklands
Hinn ungi og stórefnilegi Ýmir Örn Gíslason er í íslenska landsliðshópnum sem spilar gríðarlega mikilvægan leik gegn Tékkum í undankeppni EM á miðvikudag.

Ég hef bætt mig mikið á þessu ári
Strákarnir okkar æfa nú af kappi fyrir æfingamót í Noregi sem fer fram 8. til 11. júní. Flesta sterkustu leikmenn liðsins vantar í þetta verkefni og því gullið tækifæri fyrir marga aðra að láta ljós sitt skína.

„Erum að reyna að búa til fleiri landsliðsmenn“
Íslenska karlalandsliðið í handbolta heldur út til Noregs á morgun þar sem það tekur þátt í Gjensidige Cup, fjögurra liða æfingamóti.

Þetta eru 28 bestu handboltamenn Íslands í dag að mati Geirs
Geir Sveinsson, landsliðsþjálfari karla í handbolta, hefur valið þá 28 leikmenn sem koma til greina fyrir leikina gegn Tékkum og Úkraínu.

Björgvin Páll átti eitt flottasta markið | Myndband
Björgvin Páll Gústavsson skoraði eitt af flottustu mörkum síðustu tveggja umferða í undankeppni EM 2018 í handbolta.

Naumur sigur og EM-draumurinn lifir
Draumur Íslendinga um sæti á EM í Króatíu á næsta ári er enn á lífi eftir eins marks sigur á Makedóníumönnum, 30-29, í Laugardalshöllinni í gærkvöldi. Breyting á varnarleik um miðjan fyrri hálfleik gerði gæfumuninn. Þá var sókn

Geir: Mér leið aldrei illa með sóknarleikinn, við náðum stöðugt að búa til færi
Geir Sveinsson var eðlilega mjög ánægður með að hafa tekið tvö stig gegn Makedóníu í Laugardalshöll í kvöld. Sigurinn þýðir að öll liðin í riðlinum eru með fjögur stig þegar tvær umferðir eru eftir.

Ólafur Guðmundsson: Við náðum að rugla aðeins í þeim með breyttum varnarleik
"Við fórum í 5-1 vörn og náðum að rugla þá aðeins. Tókum taktinn úr þeirra spili og ég myndi segja að það hafi virkað. Það var kannski engin stór breyting en þeir þurftu að fara út úr sínu kerfi og það virkaði í dag."

Umfjöllun og viðtöl: Ísland - Makedónía 30-29 | Lífsnauðsynlegur sigur hjá strákunum
Ísland vann Makedóníu 30-29 í æsispennandi leik í Laugardalshöllinni. Ísland náði undirtökum í lok síðari hálfleiks og hélt forystunni til enda. Ólafur Guðmundsson var markahæsti leikmaður Íslands með 7 mörk.

Guðjón Valur Sigurðsson: Gríðarlegur styrkur að klára þetta
Guðjón Valur Sigurðsson, fyrirliði Íslands, var mjög ánægður með sigurinn í kvöld. Guðjón sagði að bæting á varnarleik liðsins frá síðasta leik hafi verið lykillinn og sagði að sterk liðsheild hafi gert gæfumuninn.