Birtist í Fréttablaðinu

Hætti að drekka og allt blómstraði
"Íslendingar hlæja að mér,“ segir Unnar Helgi Daníelsson sem sneri lífinu við eftir misheppnað viðskiptaævintýri. Á innan við tveimur árum hefur hann byggt upp mjög vinsælan veitingastað sem fáir Íslendingar vita þó af og færir nú út kvíarnar án þess að taka lán.

Segir forsætisráðherra vera leiddan í gildru
Sendiherra Marokkó segir að forseti Vestur-Sahara hljóti að hafa leitt forsætisráðherra Íslands í gildru þegar hún fundaði með honum fyrr í mánuðinum. Sendiherrann bendir á alvarleika stríðsglæpaásakana á hendur forsetanum.

Telja veiðileyfi Hvals hafa verið útrunnið árið 2018
Jarðarvinir telja að leyfi Hvals hf. til veiða á langreyði hafi verið útrunnið þar sem fyrirtækið lagði niður veiðar á löngum kafla.

Þúsundir hlaða enn niður sjónvarpsefni
Atvinnumönnunum okkar og Game of Thrones hlaðið niður þúsundum skipta á deildu.net. Stjórnarformaður FRÍSK segir þetta óþolandi. Hann segir niðurhalið bitna á íslenskri framleiðslu en vera því miður ekki nýtt af nálinni.

Verðhækkanir boðaðar vegna kjarasamninga
ÍSAM, heildsölu- og framleiðslufyrirtæki sem á Mylluna, Ora, Kexverksmiðjuna Frón og Kexsmiðjuna boðar 3,9% hækkun á öllum vörum fyrirtækjanna verði kjarasamningar samþykktir.

Tveir bikarar fara á loft í dag
Tveir titlar gætu komið í hús hjá Val í dag þegar karla- og kvennalið félagsins leika til úrslita, Valskonur í Lengjubikarnum og karlaliðið í Meistarakeppni KSÍ.

Lít á lögin mín sem eitt verk við tólf ljóð
Kór Neskirkju fagnar vori með útgáfutónleikum á annan í páskum vegna nýs hljómdisks, Tólf blik og tónar. Þar eru lög eftir stjórnandann, Steingrím Þórhallsson, við ljóð Snorra Hjartarsonar.

Er mest fyrir okkur gert
Skólahljómsveitin Rassar sem stofnuð var á Núpi í Dýrafirði 1969 er komin vestur á firði og fagnar þar hálfrar aldar afmæli með því að spila, sér og öðrum til gamans.

Engin klisja að vinna í sjálfum sér
Kolbrún Pálína Helgadóttir og Kristborg Bóel ákváðu að leiða saman hesta sína og gera þætti um skilnaði. Hugmynd þeirra á rætur sínar að rekja í persónulega reynslu þeirra beggja en Kristborg skrifaði bókina 261 dagur sem byggð er á dagbók hennar eftir skilnað.

Skilnaður er ólíkt ferðalag einstaklinga
Að skilja er stórt verkefni sem tekur mikinn toll á einstaklinginn, fyrrverandi parið, börnin sem og aðra nána ættingja.

Hátt í hundrað ára og ennþá á fleygiferð
Ieda Herman er á tíræðisaldri en tekur sér ýmislegt fyrir hendur sem yngra fólk veigrar við sér við.

Jokowi endurkjörinn sem forseti Indónesíu
Útgönguspár og svokallaðar hraðtalningar bentu til endurkjörs Joko Widodo, forseta Indónesíu, í stærstu kosningunum í sögu landsins.

Ekki jafn fýsilegt og áður að sækja erlent vinnuafl að utan
Launahækkanir samkvæmt nýjum kjarasamningum eru líklegar til þess að draga úr eftirspurn eftir erlendu vinnuafli. Hefur þannig mikil áhrif á ferðaþjónustuna að sögn hagfræðings.

Bakland iðnaðarmanna orðið óþreyjufullt
Samtök atvinnulífsins (SA) og samflot iðnaðarmanna héldu kjaraviðræðum sínum áfram hjá ríkissáttasemjara í gær.

Afskiptur hópur í kerfinu sem býr við mjög skert lífsgæði
Löng bið er eftir sérhæfðri þjónustu við vefjagigt sem talið er að um tólf þúsund Íslendingar þjáist af. Framkvæmdastjóri Þrautar, miðstöðvar vefjagigtar og tengdra sjúkdóma, segir þennan hóp afskiptan í heilbrigðiskerfinu.

Öfgaflokkur ekki með í kappræðum
Öfgaíhaldsflokknum Vox hefur verið meinað að taka þátt í einu staðfestu sjónvarpskappræðunum fyrir spænsku þingkosningarnar sem fara fram þann 28. apríl.

Reykjaneshöfn stendur ekki undir sér óbreytt
Þrátt fyrir að Reykjanesbær hafi sett tæplega tvö hundruð milljónir króna inn í rekstur Reykjaneshafnar í fyrra var reksturinn neikvæður um 44 milljónir króna. Hafnarstjóri segir höfnina ekki rekstrarhæfa í óbreyttri mynd.

Íslendingar eyddu 200 milljörðum í útlöndum
Íslendingar fóru í 668 þúsund ferðir til útlanda í fyrra.

Starfsnám opnar dyr
Mikil tækifæri bíða þeirra stelpna og stráka sem ljúka starfs- og tækninámi. Atvinnulífið bíður starfskrafta þeirra en þorri þeirra félagsmanna Samtaka iðnaðarins sem vilja bæta við sig starfsfólki leitar að starfsmenntuðu fólki.

Kirkjan
Meðan Notre Dame dómkirkjan í París brann safnaðist fólk saman í grenndinni og sameinaðist í söng fyrir kirkjuna sína. Víða um borgina mátti sjá fólk á hnjánum biðjandi bænir.

Gráttu mig ei, Argentína
Buenos Aires – Sem ég gekk inn í tangóklúbbinn hér í Buenos Aires fyrir allmörgum árum, þá blasti þar við mér í móttökunni risavaxið gljáandi olíumálverk með þverhandarþykkum gullramma.

Þegar ég fór í sveit
Ég fór í sveit að Hrauni í Ölfusi nokkur sumur á níunda áratugnum.

Ísland heldur fullum yfirráðum yfir orkuauðlindum
Þriðji orkupakkinn hefur engin áhrif á forræði íslenska ríkisins yfir náttúruauðlindum. Full yfirráð yfir þeim verða áfram hjá íslenskum stjórnvöldum.

Málum um ofbeldi gegn lögreglu fjölgar milli mánaða
Skráð mál um ofbeldi gagnvart lögreglumönnum hjá lögreglunni á höfuðborgarsvæðinu hafa verið 25 prósentum fleiri það sem af er ári, miðað við sama tímabil síðustu þriggja ára.

Gjörgæslan gæti tekið mun fleiri
Skortur á starfsfólki er ástæða fyrir plássleysi gjörgæsludeildar Landspítalans, segir deildarstjóri gjörgæslu við Hringbraut. Fresta þurfti tíu aðgerðum á spítalanum fyrstu þrjá mánuði ársins vegna plássleysisins.

Fleiri snappa undir stýri
Fleiri framhaldsskólanemendur senda Snapchat-skilaboð eða leita að upplýsingum á netinu undir stýri en fyrir þremur árum. Þetta kemur fram í nýrri könnun Sjóvár.

Lægðin í Simbabve dýpkar enn
Brauðverð tvöfaldaðist í Harare, höfuðborg Simbabve, á einum degi í gær.

Íslensk reglubyrði sú þyngsta innan OECD
Íslenska hagkerfið er það hagkerfi innan OECD sem býr við mestar reglubyrðar í þjónustugreinum.

Endurskoða þarf regluverk um lífeyrissparnað
Fyrir réttum tuttugu árum var lagður grunnur að nýju formi lífeyrissparnaðar hér á landi sem ýmist hefur verið nefnt séreignarsparnaður eða viðbótarlífeyrissparnaður.

Getur heimsbyggðin hindrað kjarnorkustríð?
Nú eru 74 ár eru liðin frá því að kjarnorkuvopnum var beitt í hernaði í fyrsta skipti. Heimsbyggðin stendur öll frammi fyrir áframhaldandi hættu og líkum á því að slíkum vopnum verði beitt aftur.