Fréttir
164 165 166 167 168 169 170 171 172 … 334 ›
Chavez hótar Globovision Hugo Chavez, forseti Venesúela, hótaði í gær að loka annarri sjónvarpsstöð sem gagnrýnt hefur störf hans. Fjórða daginn í röð kom til átaka á milli lögreglu og fólks sem mótmælti lokun RCTV-sjónvarpsstöðvarinnar í síðustu viku. Erlent 30.5.2007 19:01
Síminn og Anza sameinast Stjórnir Símans og Anza hafa samþykkt að sameina fyrirtækin. Samruninn tekur gildi í júlí. Hreinn Jakobsson, fráfarandi framkvæmdastjóri Anza, mun setja á fót skrifstofu í Kaupmannahöfn til að byggja upp starfsemi Skipta hf, móðurfélags Símans, í Skandinavíu. Viðskipti innlent 30.5.2007 15:34
Síminn kynnir þriðju kynslóðina Síminn kynnir í verslunum sínum á morgun nýjungar í farsímaþjónustu, sem grundvallast á þriðju kynslóð farsímakerfa (3G). Gestum gefst kostur á að kynna sér þá byltingu sem í vændum er þegar þriðja kynslóð farsímakerfa verður tekin í notkun í fyrsta sinn á Íslandi í haust. Viðskipti innlent 30.5.2007 15:30
Fasteignaverð lækkar í Bandaríkjunum Verð á fasteignum lækkaði um 1,4 prósent á fyrstu þremur mánuðum ársins í Bandaríkjunum miðað við sama tíma í fyrra. Þetta er fyrsta verðlækkunin á almennum fasteignamarkaði vestanhafs í 16 ár. Viðskipti erlent 30.5.2007 15:15
Framleiðsluvísitalan lækkar í Japan Framleiðsluvísitalan í Japan lækkaði óvænt um 0,1 prósentustig á milli mánaða í apríl, einkum vegna minni eftirspurnar eftir bílum á innlandsmarkaði og í Bandaríkjunum. Þetta er þvert á væntingar greinenda sem höfðu gert ráð fyrir aukningu upp á hálft prósentustig. Viðskipti erlent 30.5.2007 11:21
FL Group selur í Bang & Olufsen FL Group hefur selt allan hlut sinn í danska fyrirtækinu Bang & Olufsen A/S, sem svaraði til 10,76 prósenta af hlutafé fyrirtækisins. Kaupverð nemur 10,2 milljörðum króna en kaupendur eru hópur danskra og alþjóðlegra stofnanafjárfesta. Viðskipti innlent 30.5.2007 09:48
Kínastjórn kældi markaðinn Gengi hlutabréfa lækkaði nokkuð í kauphöllinni í Sjanghæ í Kína í dag eftir að kínversk stjórnvöld ákváðu að þrefalda gjöld á viðskipti með hlutabréf. Aðgerðin er liður í því að koma í veg fyrir ofhitnun á hlutabréfamarkaði í Kína. Viðskipti erlent 30.5.2007 06:04
Prjónar og málar - einhent Hún er í sextíu prósent vinnu við að kenna geðfötluðum - án þess að þiggja laun. Hún málar og prjónar - með einni hendi. Catherine Ness er engin venjuleg kona. Innlent 29.5.2007 18:48
Ríkið hefur betur í þjóðlenduúrskurðum Óbyggðanefnd kvað upp úrskurði í fimm þjóðlendumálum á Norðausturlandi í dag. Stór hluti af kröfum fjármálaráðherra, fyrir hönd ríkisins, var tekinn til greina og eignarlandskröfum þar með að talsverðu leyti hafnað. Innlent 29.5.2007 18:45
Viðskiptaráðherra ekki mótfallinn kynjakvóta Nýr viðskiptaráðherra, Björgvin G. Sigurðsson, vill skoða þann möguleika að beita lagasetningu til að fjölga konum í stjórnum fyrirtækja. Til að ná stórstígum framförum, segir hann, þarf stundum róttækar aðgerðir. Innlent 29.5.2007 18:26
Meiri væntingar í Bandaríkjunum Væntingarvísitala Bandaríkjamanna hækkaði úr 106,3 stigum í 108 stig á milli mánaða í maí, samkvæmt upplýsingum bandaríska viðskiptaráðsins sem birtar voru í dag. Þetta er talsvert meira en greinendur höfðu gert ráð fyrir. Þetta virðist benda til að fréttir af samdrætti á bandarískum fasteignalánamarkaði í mars hafi ekki smitað út frá sér til neytenda til lengri tíma litið. Viðskipti erlent 29.5.2007 16:13
Velta á fasteignamarkaði eykst milli ára 246 kaupsamningum var þinglýst á höfuðborgarsvæðinu í síðustu viku, samkvæmt upplýsingum Fasteignamats ríkisins. Til samanburðar var 148 samningum þinglýst á sambærilegum tíma í fyrra. Meðalupphæð hvers samnings nam 29,4 milljónum krónum þá en nemur nú 28 milljónum króna. Kaupsamningum fjölgaði á Akureyri á sama tíma en meðalupphæð á samning lækkar á milli ára. Viðskipti innlent 29.5.2007 08:58
Krókódílum komið burt Íbúum Miami Lakes í Flórída brá nokkuð í brún þegar þeir tóku eftir því að tveir krókódílar höfðu hreiðrað um sig í skurði í bænum. Starfsmenn áhaldahúss bæjarins voru kallaðir til og höfðu þeir hröð tök við að handsama þessar háskalegu skepnur. Erlent 27.5.2007 19:01
Ráðist að samkynhneigðum Rússneska lögreglan handtók í dag hóp fólks sem barðist fyrir réttindum samkynhneigðra í landinu. Áður höfðu öfgamenn ráðist að þeim með barsmíðum, en enginn þeirra var tekinn höndum. Erlent 27.5.2007 18:58
36 pylsur á 12 mínútum Bandaríkjamenn keppa í öllu á milli himins og jarðar og engum þarf að koma á óvart að þessi mikla matarþjóð gerir pylsuát að æsispennandi keppni. Helstu pylsuætur Fíladelfíu öttu kappi í gær og eftir mikið át stóð Sonya nokkur Thomas uppi sem sigurvegari. Lífið 27.5.2007 13:01
Stjórnmálakreppunni afstýrt Vonast er til að stjórnmálakreppan í Úkraínu sé að leysast eftir að Viktor Jústsjenkó, forseti landsins, og Viktor Janukovits, forsætisráðherra, tókst loks að koma sér saman um kjördag fyrir þingkosningarnar í landinu. Ólgan náði hámarki í gær þegar Jústsjenkó lét setja herlið í viðbragðsstöðu. Erlent 27.5.2007 12:57
Uriah Heep enn í fullu fjöri Tvöfaldur skammtur Íslandsvina stígur á stokk í Laugardalshöllinni annað kvöld, hljómsveitirnar Deep Purple og Uriah Heep, tvær af goðsögnum rokksögunnar. Þótt Uriah Heep hafi rokkað í hartnær fjóra áratugi sýnir sveitin á sér lítil ellimerki. Innlent 26.5.2007 19:05
Herinn settur í viðbragðsstöðu Viktor Jústsjenkó, forseti Úkraínu, setti hersveitir sínar í viðbragðsstöðu í dag og skipaði þeim að halda til höfuðborgarinnar Kænugarðs. Sáttaumleitanir á milli þeirra Viktors Janukovits forsætisráðherra hafa engan árangur borið. Erlent 26.5.2007 18:58
Jabba og Jóda mættu á svæðið Þrjátíu ár eru um þessar myndir frá því að fyrsta Stjörnustríðskvikmyndin var frumsýnd og af því tilefni komu þúsundir aðdáenda myndanna saman í Los Angeles í Bandaríkjunum. Litríkar persónur úr myndunum létu sig ekki vanta á svæðið og geislasverðum var brugðið á loft. Erlent 26.5.2007 19:02
Fermingarbörn mögulegir hryðjuverkamenn Kona sem hugðist gefa fermingarbarni fimmþúsund króna inneign á lokaðri bankabók var krafin svara um þjóðerni, hjúskaparstöðu og uppruna fimmþúsundkrónanna í Sparisjóðnum. Innlent 26.5.2007 18:20
Síðasta reykingahelgi Íslands Síðasta reykingahelgin er runnin upp á veitinga- og skemmtistöðum landsins. Hópur veitingamanna í miðborg Reykjavíkur fór nýverið til Stokkhólms til að kynna sér lausnir þarlendra veitingamanna á reykingabanninu. Innlent 26.5.2007 18:12
Hvölum sprautað á haf út Líffræðingar hjá bandarísku strandgæslunni brugðu í gær á nýstárlegt ráð til að koma tveimur hnúfubökum sem villst höfðu upp í Sacramento-fljót í Kaliforníu aftur út haf. Þeir sprautuðu einfaldlega vatni á hvalina með kröftugum vatnsdælum og við þær aðfarir hröktust þeir frá bátnum og niður með ánni. Erlent 26.5.2007 12:24
Írska stjórnin líklega fallin Allt bendir til að Bertie Ahern, forsætisráðherra Írlands, haldi embætti sínu eftir þingkosningarnar sem fram fóru í landinu í gær. Slæmu fréttirnar fyrir Ahern eru hins vegar þær að samstarfsflokkurinn í ríkisstjórninni þurrkaðist nánast út og stjórnin því að líkindum fallin. Erlent 26.5.2007 12:21
Fyrsta skemmtiferðaskip sumarsins Einn af vorboðunum sigldi inn Reykjavíkurhöfn í morgun. Það var fyrsta skemmtiferðaskip sumarsins, MS Fram, sem liggur við Miðbakkann í dag. Innlent 26.5.2007 12:37
Öðrum ráðherra rænt Að minnsta kosti fimm manns hafa fallið í loftárásum Ísraelshers á Gaza-ströndina það sem af er degi. Þá var einum af ráðherrum palestínsku heimastjórnarinnar rænt á Vesturbakkanum í morgun. Erlent 26.5.2007 12:15
Herlið sagt á leið til Kænugarðs Sáttafundur Viktors Jústjenskó, forseta Úkraínu og Viktors Janukovits forsætisráðherra Úkraínu í nótt skilaði engum árangri en áframhaldandi fundir hafa verið boðaðir í dag. Í morgun bárust fregnir af því að sá armur hersveitanna sem væri hliðhollur Jústsjenkó væri á leið til höfuðborgarinnar en á tólfta tímanum fullyrti AFP-fréttastofan að liðsflutningarnir hefðu stöðvast. Erlent 26.5.2007 12:11
Enn ósamið í kjaradeilu SAS Ekki er útlit fyrir að verkfall flugliða hjá Svíþjóðararmi SAS-flugfélagsins leysist um hádegisbilið eins og vonast hafði verið til og því er útlit fyrir að flug þess liggi áfram niðri að minnsta kosti fram á mánudag. Erlent 26.5.2007 10:03
Ráðherra tekinn höndum Ísraelskar hersveitir réðust inn í hús í Jenín á Vesturbakkanum í morgun og tóku þar fastan einn af ráðherrum palestínsku heimastjórnarinnar, án nokkurra skýringa. Þetta er í annað skipti á þremur dögum sem Ísraelar handtaka palestínskan ráðherra því í fyrradag var menntamálaráðherrann tekinn höndum ásamt tugum háttsettra liðsmanna Hamas. Erlent 26.5.2007 10:01
Rigning á Spáni Mörg hundruð manns hafa þurft að hverfa frá heimilum sínum á Mið-Spáni þar sem mikið hefur ringt í vikunni. Vegir hafa farið í sundur í flóðum á svæðinu og vatn flætt yfir lestarteina. 400 íbúar í bænum Alcazar de San Juan urðu að flýja en vatnshæð sumstaðar þar hefur náð einum og hálfum metra að sögn yfirvalda. Erlent 25.5.2007 19:10
Strandsiglingar hefjast Norðlendingar hafa ákveðið að hefja strandsiglingar hringinn í kringum landið. Siglt verður héðan til Danmerkur og Eystrasaltsríkjanna. Til þess hefur verið keypt rúmlega þrjú þúsund tonna fjölnota flutningaskip sem siglt verður hingað frá Lettlandi eftir helgi. Innlent 25.5.2007 19:09