Lífið

Stefnir Eiði vegna meðlagsskuldar

Magnús Jochum Pálsson skrifar
Ragnhildur Sveinsdóttir hefur höfðað mál gegn fyrrverandi eiginmanni sínum, Eiði Smára Guðjohnsen, vegna meðlagsskuldar.
Ragnhildur Sveinsdóttir hefur höfðað mál gegn fyrrverandi eiginmanni sínum, Eiði Smára Guðjohnsen, vegna meðlagsskuldar. Vísir/Anton Brink/Guðmundur

Ragnhildur Sveinsdóttir hefur höfðað mál gegn fyrrverandi eiginmanni sínum, Eiði Smára Guðjohnsen, fyrir Héraðsdómi Reykjavíkur. Samkvæmt heimildum fréttastofu er um meðlagsskuld að ræða en málið verður tekið fyrir 2. nóvember. Ragnhildur stefndi Eiði árið 2022 vegna sambærilegs máls en það var leyst utan dómstóla.

Mannlíf greindi fyrst frá málinu. 

Á vef héraðsdómstólanna má sjá að málið er skráð sem skuldamál og verður tekið fyrir að morgni dags mánudaginn 2. nóvember. Lögmaðurinn Vilhjálmur H. Vilhjálmsson gætir hagsmuna Ragnhildar en Þorsteinn Einarsson fer með málið fyrir hönd Eiðs Smára.

Ekki liggja frekari upplýsingar um málið en samkvæmt heimildum fréttastofu snýst málið um meðlagsskuld Eiðs Smára. Ragnhildur höfðaði einnig mál gegn Eiði fyrir Héraðsdómi Reyjavíkur árið 2022 vegna sambærilegra saka en það mál var á endanum leyst utan dómstóla.

Ragnhildur og Eiður Smári byrjuðu saman ung að árum og eiga þrjá syni og eina dóttur. Þau bjuggu lengi saman erlendis vegna atvinnumannaferils Eiðs sem spilaði víða á sínum ferli, meðal annars á Englandi, Spáni, Grikklandi, Belgíu og í Mónakó. Þau skildu árið 2017 eftir 23 ára hjónaband.

Ragnhildur starfar sem pílatesþjálfari en Eiður hefur starfað sem álitsgjafi og knattspyrnuþjálfari eftir að hann lagði skóna á hilluna. Eiður tók síðast að sér að þjálfa Kmattspyrnufélag Akureyrar í Bestu deildinni og náði að snúa hræðilegu gengi liðsins við en tókst samt ekki að bjarga því frá falli.


Tengdar fréttir

Eiður Smári og Halla Vilhjálms í skíðaævintýri

Eiður Smári Guðjohnsen, einn besti knattspyrnumaður Íslandssögunnar, er í skíðaferð í Sviss ásamt Höllu Vilhjálmsdóttur Koppel, leikkonu og verðbréfamiðlara. Samkvæmt heimildum fréttastofu hafa þau verið að hittast undanfarið.

Keyptu hús Eiðs Smára og Ragnhildar

„Við erum mjög spennt og planið er að gera húsið aðeins upp áður en við flytjum. Við höfum alltaf heillast af Fossvoginum og svo skemmir það ekki að systir mín er búsett rétt hjá,“ segir Móeiður Lárusdóttir í samtali við Vísi.

Ragga Sveins snýr aftur til Íslands

Ragnhildur Sveinsdóttir, betur þekkt sem Ragga Sveins, mun snúa aftur til Íslands og starfa sem pilateskennari hjá Eldrún Pilates í byrjun desember.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.