Fréttir
142 143 144 145 146 147 148 149 150 … 334 ›
Sveitarfélögin vilja jafnlaunastefnu - ekki KÍ Formaður leikskólakennara vísar meintri jafnlaunastefnu KÍ til föðurhúsanna og segir að það séu sveitarfélögin sem komi í veg fyrir að hægt sé að bæta kjör leikskólakennara á höfuðborgarsvæðinu. Hugmyndir meirihlutans um fyrirtækjaleikskóla myndu ýta undir stéttskiptingu, segir fulltrúi Samfylkingarinnar í leikskólaráði. Innlent 10.9.2007 17:35
Sveiflur á bandarískum hlutabréfamarkaði Gengi hlutabréfa hefur sveiflast nokkuð eftir opnun fjármálamarkaða í Bandaríkjunum í dag. Fjárfestar þykja bjartsýnir á að seðlabanki Bandaríkjanna lækki stýrivexti síðar í mánuðinum. Þeir rýna síðar í dag í orð nokkurra af stjórnendum seðlabankans um bandarísk efnahagsmál. Þar á meðal er hagfræðingurinn Frederic Mishkin, einn af bankastjórum seðlabankans, sem vann skýrslu um íslenskt efnahagslíf í fyrra í félagi við Tryggva Þór Herbertsson, forstjóra Askar Capital. Viðskipti erlent 10.9.2007 14:42
Barinn í beinni Íþróttafréttamaður ástralskrar sjónvarpsstöðvar varð fyrir heldur óskemmtilegri reynslu í beinni útsendinu í gærkvöldi. Hann var að greina frá úrslitum í rúgbí leik fyrir utan leikvang í Melborun þegar óð rúgbíbulla tæklaði hann til jarðar. Hópur manna réðst þá að fréttamanninum, Ben Davis, og gekk í skrokk á honum. Erlent 10.9.2007 12:05
Abbas og Olmert funda Mahmoud Abbas, forseti Palestínumanna, og Ehud Olmert, forsætisráðherra Ísraels, hittust til að ræða mögulega stofnun palestínsk ríkis á fundi í Jerúsalem í morgun. Fundur leiðtoganna er haldinn svo þeir geti stillt saman strengi sína fyrir ráðstefnu um málið í nóvember sem Bandaríkjamenn hafa boðað til. Erlent 10.9.2007 12:03
Kom og fór Sjö ára útlegð Nawas Sharifs, fyrrverandi forsætisráðherra Pakistans, lauk í morgun en hún hófst aftur sex klukkustundum eftir heimkomuna. Músharraf lét vísa þessu svarna óvini sínum úr landi til að forða sér frá hatrammri deilu um forsetaembættið. Erlent 10.9.2007 12:02
Saksóknari fær gögn Saksóknari í Portúgal fær í dag í hendurnar gögn vegna rannsóknar á hvarfinu á bresku telpunni Madeleine McCann. Um er að ræða það sem lögregla hefur aflað eftir að foreldrar stúlkunnar fengu réttarstöðu grunaðra í málinu í síðustu viku. Erlent 10.9.2007 11:59
Kópavogur getur ekki fríað sig ábyrgð Mannekla leikskólanna er stærra vandamál en svo að bærinn geti fríað sig ábyrgð á starfsmannahaldi einkarekinna leikskóla, segir Áslaug Daníelsdóttir, leikskólastjóri á Hvarfi. Leikskólafulltrúi Kópavogsbæjar segir bæinn eingöngu bera faglega ábyrgð á slíkum leikskólum. Innlent 10.9.2007 12:05
14,7% launamunur hjá SFR Konur eru að jafnaði með þrjá fjórðu af launum karla samkvæmt nýrri launakönnun SFR - stéttarfélags í almannaþjónustu. Núverandi ríkisstjórn hyggst minnka óútskýrðan kynbundinn launamun hjá ríkinu um helming innan fjögurra ára. Innlent 10.9.2007 11:57
FL Group með tæp 38 prósent í TM FL Group hefur keypt alla hluthafa Kjarrhólma ehf. út úr félaginu og með því eignast 37,57 prósent hlutafjár í Tryggingamiðstöðinni. Kjarrhólmi er annar stærsti hluthafinn í TM á eftir Glitni, sem keypti stærsta hluthafann og aðra út í síðustu viku en hefur gefið út að hann ætli að selja hlutinn áfram til fjárfesta. Viðskipti innlent 10.9.2007 11:55
Nýr forstjóri hjá Eimskipi í Ameríku Brent Sugden, forstjóri kanadíska kæli- og frystigeymslufélagsins Versacold, hefur í kjölfar skipulagsbreytinga verið ráðinn forstjóri yfir kæli- og frystigeymslusviði Eimskips í Ameríku. Reynir Gíslason sem gegnt hefur bæði stöðu forstjóra Eimskips í Ameríku frá júlí 2006 svo og forstjóra Atlas frá nóvember 2006 heldur áfram sem forstjóri yfir annarri starfsemi Eimskips í Ameríku. Viðskipti innlent 10.9.2007 11:34
Nýnasistar handteknir í Ísrael Fyrirfram hefði mátt ætla að engir nýnasistar væru í Ísrael. Lögreglan þar í landi hefur þó handtekið átta slíka. Erlent 9.9.2007 19:02
Kreppu spáð Breskir bankasérfræðingar spá bankakreppu í vikunni sem eigi sér ekki líka síðustu tuttugu ár. Bankar sem þurfi að endurfjármagna lendi í vandræðum. Hagfræðingur hjá Seðlabanka Íslands segir íslenska banka betur í stakk búna til að takast á við slíkt en þegar næddi um þá fyrir einu og hálfu ári. Innlent 9.9.2007 18:56
Nýnasistar handteknir í Ísrael Ísraelska lögreglan hefur handtekið átta nýnasista þar í landi og leyst upp samtök sem mennirnir höfðu stofnað. Þeir eru á aldrinum 16 til 21 árs - allir ísraelskir ríkisborgarar, aðfluttir frá Austur-Evrópu. Þeim er gefið að sök að hafa ráðist með ofbeldi gegn útlendingum, samkynhneigðum og trúræknum gyðingum. Erlent 9.9.2007 12:18
Sharif snýr heim Musharraf, forseti Pakistans, óttast endurkomu eins höfuð andstæðings síns á morgun. Sá ætlar að koma forsetanum frá völdum. Músaraff hefur látið handtaka tvö þúsund stuðningsmenn hans og hert gæslu á flugvellinum í höfuðborginni. Erlent 9.9.2007 12:15
McCann-hjónin komin heim Hjónin Kate og Gerry McCann, sem bæði eru með réttarstöðu grunaðra vegna hvarfs dóttur þeirra Madeleine í Portúgal í vor, eru komin heim til Englands. Heim fóru þau með leyfi portúgalskra yfirvalda. Erlent 9.9.2007 12:11
Símaviðtal við Jens Einarsson nýráðin ritstjóra LH Hestar Eins og fram hefur komið þá hefur Landssamband hestamannafélaga gert samning við 365 miðla um útgáfu á átta síðna blaði um hesta og hestamennsku, sem mun koma sem innblað í Fréttablaðinu einu sinni í mánuði. Ritstjóri þessa nýja blaðs er Jens Einarsson, einn mesti hestapenni landsins, Hestafréttir sló á þráðinn til Jens og ræddi við hann um nýja verkefnið. Sport 8.9.2007 13:54
Jafnlaunastefna KÍ úrelt Formaður leikskólaráðs Reykjavíkur efast um að opinbert kerfi leikskóla þrífist í markaðsdrifnu hagkerfi Íslands. Hún segir jafnlaunastefnu Kennarasambandsins úrelta í þjóðfélaginu í dag. Innlent 7.9.2007 18:58
Einhliða upptaka ekki sniðug Einhliða upptaka evru nú gæti leitt til atvinnuleysis segir framkvæmdastjóri ASÍ. Hann telur skynsamlegast að Ísland gangi í Evrópusambandið í framtíðinni. Innlent 7.9.2007 18:53
Dregur úr veltu á fasteignamarkaði Þinglýstir kaupsamningar á höfuðborgarsvæðinu voru 864 talsins í ágúst samanborið við 999 í júlí, samkvæmt tölum Fasteignamats ríkisins. Greiningardeild Kaupþings segir að þótt dregið hafi úr veltu kaupsamninga séu þeir tvöfalt fleiri en á sama tíma í fyrra. Greiningardeildin reiknar með áframhaldandi hækkun á fasteignaverði í september en telur að eftirspurn muni minnka á næstu mánuðum vegna hærri vaxta. Viðskipti innlent 7.9.2007 16:24
Skuldatryggingarálag í hæstu hæðum Skuldatryggingarálag íslensku viðskiptabankanna hefur hækkað töluvert undanfarinn mánuð í kjölfar óróa á erlendum fjármálamörkuðum. Álagið hefur farið hækkandi frá því um miðjan júní og hefur vísitala yfir skuldatryggingarálag fjármálafyrirtækja rúmlega fimmfaldast á tímabilinu. Skuldatryggingarálag Kaupþings hefur hækkað mest en það hefur þrefaldast. Viðskipti innlent 7.9.2007 16:11
Úrvalsvísitalan lækkar í Kauphöllinni Gengi hlutabréfa lækkaði í Kauphöllinni í dag. Þetta er í takti við lækkun á helstu hlutabréfamörkuðum. Gengi bréfa í FL Group lækkaði mest, eða um 3,75 prósent. Gengi einungis tveggja félaga hækkaði, Atlantic Petroleum og Alfesca. Viðskipti innlent 7.9.2007 15:40
Þröng á þingi hjá Marel Food Systems Þröng mun vera á þingi í höfuðstöðvum Marel Food Systems í Garðabænum þessa dagana en þar stendur nú yfir þriggja daga stjórnendafundur samsteypunnar. Þar koma saman allir forstjórar og framkvæmdastjórar, sölustjórar, þjónustustjórar og fjármálastjórar allra dótturfélaga. Alls eru þetta um 150 stjórnendur frá 25 löndum. Viðskipti innlent 7.9.2007 14:51
Störfum fækkaði í Bandaríkjunum í ágúst Nýbirtar tölur frá bandaríska vinnumálastofnunni benda til að fyrirtæki þar í landi hafi sagt upp 4.000 starfsmönnum í nýliðnum mánuði. Þetta er þvert á væntingar enda talið að fyrirtæki myndu halda áfram að ráða til sín fleira starfsfólk. Niðursveiflu á fjármálamörkuðum vegna vanskila á fasteignalánum í vor er kennt um ástandið. Viðskipti erlent 7.9.2007 13:18
Skoða evruna fordómalaust Það á að skoða einhliða upptöku evru fordómalaust, segir stjórnarformaður Kaupþings, sem telur það vel gerlegt og hreint ekki sprenghlægilegt eins og fyrrverandi forsætisráðherra og núverandi seðlabankastjóra, Davíð Oddssyni. Innlent 7.9.2007 12:09
Metvelta á gjaldeyrismarkaði í ágúst Velta á millibankamarkaði með gjaldeyri nam 750 milljörðum króna í síðasta mánuði og hefur hún aldrei verið jafn mikil í einum mánuði. Greiningardeild Glitnis segir ástæðuna óróa á fjármálamörkuðum heims í kjölfar vandræða í Bandaríkjunum tengdum annars flokks húsnæðislánum (e. subprime). Viðskipti innlent 7.9.2007 11:41
Greenspan segir fjárfesta áhyggjufulla Alan Greenspan, fyrrum seðlabankastjóri Bandaríkjanna, segir fjárfesta áhyggjufulla og einkenni ótti þeirra stöðuna á fjármálamarkaði upp á síðkastið. Hann líkti ástandinu á hlutabréfamörkuðum í kjölfar mikilla vanskila á bandarískum fasteignalánamarkaði nú við fall á mörkuðum árið 1987 og 1998. Viðskipti erlent 7.9.2007 10:11
Nýr forstjóri Eimskips á Íslandi Guðmundur Davíðsson hefur verið ráðinn forstjóri yfir starfsemi Eimskips á Íslandi En Bragi Þór Marinósson verður forstjóri yfir Norður-Atlantshafssvæði félagsins. Í tilkynningu frá félaginu segir að ráðningin sé til komin vegna skipulagsbreytinga en gífurlegur vöxtur Eimskips á undanförnum mánuðum hafi kallað á að Norður-Atlantshafssvæði félagsins verði skipt í tvennt. Viðskipti innlent 7.9.2007 09:46
Óskar eftir fund í utanríkismálanefnd Fulltrúi Framsóknarmanna hefur óskað eftir fundi í utanríkismálanefnd Alþingis vegna heimkvaðningar íslensks upplýsingafulltrúa í Írak. Ákvörðun utanríkisráðherra skjóti skökku við í ljósi framboðs Íslands til öryggisráðs Sameinuðu þjóðanna. Innlent 6.9.2007 18:20
Sprenghlægilegir spekingar Davíð Oddsson seðlabankastjóri gefur lítið fyrir ummæli sérfræðinga um að kasta þurfi krónunni og taka upp evru. Hann segir orð slíkra spekinga sprenghlægileg. Innlent 6.9.2007 18:06
Kallað hermenn heim en ekki gæsluliða Nærri tuttugu þjóðir hafa kallað herlið sitt heim frá Írak frá innrásinni 2003. Fulltrúar sumra ríkjanna starfa þó enn þar á vegum Sameinuðu þjóðanna eða Atlantshafsbandalagsins þrátt fyrir heimkvaðningu hermanna. Erlent 6.9.2007 18:25