Heimatilbúinn vandi Reykjavíkurborgar Reykjavík er að mörgu leyti draumahöfuðborg. Þessi smávaxna stórborg hefur flest það sem stærri systurborgir hafa upp á bjóða í menningu og afþreyingu – leikhús, tónlist, myndlist og urmul af frábærum veitingastöðum og öðrum menningartengdum stórborgargæðum. Vissulega er þetta smærra í sniðum en í alvöru stórborgum, ef svo má segja, en Reykjavíkurborg vegur það frábærlega upp með stuttum vegalengdum og góðu aðgengi, svo að fátt eitt sé nefnt af kostum smáborga. Skoðun 12. mars 2022 16:30
Sakar Loga um ódýra hræðslupólitík Þingmaður Sjálfstæðisflokksins og formaður íslandsdeildar NATO-þingsins sakar formann Samfylkingarinnar um ódýra hræðslupólitík, en hann sagði í dag að tilefni væri til að setja umsókn um aðild að Evrópusambandinu aftur á dagskrá. Innlent 12. mars 2022 15:56
Hjálmar Bogi leiðir lista Framsóknar og félagshyggju í Norðurþingi Tillaga uppstillingarnefndar um framboðslista Framsóknar & félagshyggju í Norðurþingi fyrir komandi sveitarstjórnarkosningar var samþykktur samhljóða á fjölmennum félagsfundi hjá Framsóknarfélagi Þingeyinga í dag. Hjálmar Bogi Hafliðason er þar efstur á blaði. Innlent 12. mars 2022 14:49
Ekki nóg að vera í NATO og tímabært að huga að aðild að ESB Formaður Samfylkingarinnar segir kominn tíma á að setja aðildarumsókn að Evrópusambandi aftur rækilega á dagskrá. Innlent 12. mars 2022 13:35
Barnaleg trú á samstarfsvilja VG hafi orðið Samfylkingunni að falli Formaður Samkfylkingarinnar segir flokkinnn ekki hafa náð markmiði sínu fyrir síðustu alþingiskosningar, að leiða saman ríkisstjórn frá miðju til vinstri. Barnaleg tiltrú flokksmanna á að Vinstri græn hefðu raunverulegan áhuga á ríkisstjórnarsamstarfi til vinstri hafi verið þeirra stærstu mistök. Innlent 12. mars 2022 13:14
Prófkjörsslagur Innherja: Ásdís og Karen keppa um oddvitasætið í Kópavogi Tvær takast á um oddvitasæti Sjálfstæðisflokksins í Kópavogi fyrir komandi borgarstjórnarkosningar. Innherji 12. mars 2022 12:52
Forsætisráðherra óttast að stríðið dragist á langinn Forsætisráðherra segir að að þjóðin eigi að halda áfram að fylgjast með fréttum af stríðinu í Úkraínu, þó það reyni mikið á og geti verið erfitt, ekki síst fyrir börn og ungmenni. Hún óttast að stríðið eigi eftir að dragast á langinn. Innlent 12. mars 2022 12:01
Líst vel á að Kjalnesingar fái að kjósa um sjálfstæði Innviðaráðherra líst vel á að Kjalnesingar fái að kjósa um það hvort þeir slíti sig frá Reykjavíkurborg samhliða sveitarstjórnarkosningum í vor. Það myndi þó hugnast honum best að hverfið yrði áfram hluti af Reykjavík en íbúar ættu að hafa sitt að segja um það. Innlent 12. mars 2022 11:38
Engar lóðir í Hafnarfirði? Ágúst Bjarni Garðarsson, bæjarfulltrúi Framsóknarflokksins í Hafnarfirði og alþingismaður, fullyrti í umræðum á Alþingi, að engar nýjar byggingalóðir væru til í Hafnarfirði. Þetta er uppskera Framsóknarflokksins í samstarfi við Sjálfstæðisflokkinn við stjórn bæjarins í lok kjörtímabils. Hafnarfjörður hefur engar nýjar byggingalóðir að bjóða. Þetta er þó í algjörri andstöðu við málflutning meirihlutans síðustu misseri, að bjart sé framundan í Hafnarfirði í uppbyggingu íbúðarhúsnæðis, nóg af lóðum. Nú kveður skyndilega við allt annan tón. Útlitið hjá meirihlutanum er hætt að vera bjart. Það er orðið kolsvart. Engar nýjar lóðir til í Hafnarfirði samkvæmt yfirlýsingu bæjarfulltrúa Framsóknarflokksins. Skoðun 12. mars 2022 10:31
Ferskir vindar í Garðabæ Á yfirstandandi kjörtímabili hefur stóra verkefnið í Garðabæ verið að standa aðhaldsvaktina. Aðhaldsvakt gagnvart valdhöfum sem hafa setið við völd, ein með sjálfum sér, í 45 ár. Skoðun 12. mars 2022 08:30
Opnum stríðshrjáðu flóttafólki hlýjan faðm Nú þegar hafa á annað hundrað flóttamenn frá Úkraínu óskað eftir hæli hérlendis frá því að innrásin hófst og þeim fjölgar enn dag frá degi. Þess er vænst að tekið verði á móti allt að 2.000 manns frá Úkraínu á næstu vikum. Sumir dveljast hér tímabundið en aðrir setjast að lengur og snúa jafnvel aldrei aftur heim. Miklu skiptir að þetta fólk mæti hér hlýju, skilningi og fjölþættri aðstoð. Skoðun 11. mars 2022 19:31
Skóli fyrir alla? Nú þegar íslenskt samfélag tekur á móti fjōlda barna á flótta þurfum við að huga betur að menntun og aðlōgun þessara barna inn í grunnskóla landsins. Skoðun 11. mars 2022 19:00
Segir lýðheilsumál að banna ávaxtabagg en netverjar eru æfir Heilbrigðisráðherra segir lýðheilsumál að banna nikótínpúða með nammi- og ávaxtabragði. „Við erum að hugsa um börn og unglinga,“ segir hann. Innlent 11. mars 2022 18:18
Dúi verður upplýsingafulltrúi í ráðuneyti Svandísar Dúi J. Landmark hefur verið ráðinn nýr upplýsingafulltrúi matvælaráðuneytisins. Hann hefur störf í næstu viku. Þetta kemur fram í tilkynningu frá stjórnarráðinu. Innlent 11. mars 2022 16:46
Tímabundinn kúfur sem þarf að komast í gegnum Willum Þór Þórsson heilbrigðisráðherra segir erfiða stöðu á Landspítalanum og öðrum heilbrigðisstofnunum vegna fjölgunar sjúklinga með Covid-19 vera kúf sem komast þurfi í gegnum. Sem hingað til þurfi að treysta á „þolgæði okkar takmarkaða mannauðs í heilbrigðiskerfinu“. Innlent 11. mars 2022 14:50
Ingibjörg Gréta sækist eftir 5. sæti Ingibjörg Gréta Gísladóttir, nýsköpunarfræðingur og leikkona, hefur ákveðið að gefa kost á sér í 5. sæti í prófkjöri Sjálfstæðisflokksins í Reykjavík sem fram fer 18. og 19. mars næstkomandi. Innlent 11. mars 2022 13:48
Þau sækjast eftir embætti forstjóra Tryggingastofnunar Alls sækja níu manns um embætti forstjóra Tryggingastofnunar ríkisins sem auglýst var laust til umsóknar í síðasta mánuði. Innlent 11. mars 2022 13:07
Sendiráð Rússneska sambandsríkisins, Úkraínugötu 33 Víða um Evrópu eru götur, þar sem sendiráð Rússlands standa, nú endurnefndar til heiðurs frelsisbaráttu Úkraínu. Skoðun 11. mars 2022 13:00
Rigningin skolar snjónum í burtu en vandinn við stjórn borgarinnar er viðvarandi Það hefur verið snjóþungt í Reykjavík undanfarnar vikur, ekki síst í efri byggðum. Fátt á að koma óvart í þeim efnum enda Reykjavík nyrsta höfuðborg fullvalda ríkis í heimi. Allir vegfarendur hafa upplifað erfiðleika við að koma sér á milli staða, ökumenn, hjólreiðafólk og gangfarendur. Skoðun 11. mars 2022 12:31
Guðmundur Árni leiðir lista Samfylkingarinnar í Hafnarfirði Guðmundur Árni Stefánsson, sendiherra, fyrrverandi bæjarstjóri í Hafnarfirði og ráðherra fyrir Alþýðuflokkinn, kemur til með að leiða lista Samfylkingarinnar í Hafnarfirði fyrir komandi sveitastjórnarkosningar en listinn var samþykktur á fundi flokksins þann 7. mars. Innlent 11. mars 2022 12:15
Ómar Már vill leiða lista Miðflokksins í Reykjavík Ómar Már Jónsson, fyrrverandi sveitarstjóri í Súðavíkurhreppi, hefur ákveðið að bjóða sig fram í fyrsta sæti á lista Miðflokksins í Reykjavík fyrir komandi borgarstjórnarkosningar. Innlent 11. mars 2022 12:10
Tökum til borginni Breyttir tímar eru framundan og skýrt ákall er um raunverulegar aðgerðir eftir kyrrstöðu undanfarinna ára. Það tímabil hefur sýnt okkur hvaða verkefni borgaryfirvalda skipta mestu máli – grunnþjónusta við borgarbúa. Skoðun 11. mars 2022 11:00
Andri Steinn sækist eftir 2.-3. sæti hjá Sjálfstæðismönnum í Kópavogi Andri Steinn Hilmarsson, varabæjarfulltrúi og starfsmaður þingflokks Sjálfstæðisflokksins, sækist eftir 2.-3. sæti í prófkjöri Sjálfstæðisflokksins. Innlent 11. mars 2022 10:55
Útilokar ekki að slitið verði á tengslin við vinaborgina Moskvu Dagur B. Eggertsson, borgarstjóri Reykjavíkur, segir ekkert útilokað í þeim efnum hvort slitið verði á tengsl Reykjavíkurborgar og vinaborgarinnar Moskvu. Í Danmörku bárust fréttir af því í gær að bæði Árósir og Álaborg hafi slitið á tengslin við rússneskar vinaborgir sínar vegna innrásar Rússa í Úkraínu. Innlent 11. mars 2022 10:44
Ragnar leiðir lista Sjálfstæðismanna í Fjarðabyggð Ragnar Sigurðsson, lögfræðingur á Reyðarfirði, mun leiða lista Sjálfstæðismanna í Fjarðabyggð fyrir komandi sveitarstjórnarkosningar sem fram fara 14. maí. Framboðslistinn var samþykktur á almennum félagsfundi flokksins á Eskifirði í gærkvöldi. Innlent 11. mars 2022 08:13
Karen í Kópavogi kærð til Persónuverndar Karen Elísabet Halldórsdóttir, sem sækist eftir því að leiða Sjálfstæðisflokkinn í Kópavogi, hefur verið kærð af trúnaðarmanni innan flokksins til Persónuverndar vegna dreifingar á gögnum um nefndan trúnaðarmann. Innlent 11. mars 2022 08:00
Hvaða laun hafa hækkað? Það hefur stundum verið sagt að það sé ekki hægt að bæði borða kökuna og eiga hana. Samtök atvinnurekenda bregðast gjarnan harkalega við þegar kemur að kjaraviðræðum og samtök launþega leggja fram sínar kröfur. Sérstaklega þegar kemur að lægstu launum og óskað er eftir leiðréttingu á þeim. Skoðun 11. mars 2022 08:00
Falsspámenn frelsisins Sumir þingmenn eru stórorðir um aukið frelsi. Frelsi til athafna og verslunar, líka með áfengi og lausasölulyf, frelsi til að velja sér nafn án afskipta ríkisins, frelsi til að keppa í hættulegum íþróttum. Frelsi einstaklingsins til að athafna sig svo lengi sem hann skaðar ekki aðra. Skoðun 11. mars 2022 07:30
Níutíu prósent Íslendinga hlynnt móttöku flóttafólks frá Úkraínu Rúm níutíu prósent landsmanna eru hlynnt því að Ísland taki á móti flóttafólki frá Úkraínu. Innlent 11. mars 2022 07:18
Halldóra Fríða oddviti Framsóknar í Reykjanesbæ Halldóra Fríða Þorvaldsdóttir varabæjarfulltrúi og varaþingmaður mun leiða lista Framsóknarflokksins í Reykjanesbæ fyrir komandi sveitarstjórnarkosningar. Framboðslistinn var samþykktur samhljóða á almennum félagsfundi í dag. Innlent 10. mars 2022 22:30