Tveir látnir eftir skotárás í miðbæ Oslóar Tveir eru látnir og að minnsta kosti 19 særðir eftir skotárás á skemmtistaðnum London Pub í miðbæ Oslóar. Lögreglan hefur handtekið einn mann vegna árásarinnar og talið er að hann sé einn að verki. London Pub er vinsæll hinsegin-bar en á laugardaginn verður gleðiganga Oslo Pride gengin. Erlent 25. júní 2022 03:28
Fjöldamorðinginn í Kongsberg dæmdur til vistunar á geðdeild Dómstóll í Noregi sakfelldi 38 ára gamlan danskan karlmann fyrir morð og tilraun til manndráps í bænum Kongsberg í fyrra. Maðurinn, sem myrti fimm og særði fjóra, var dæmdur til vistunar á geðdeild. Erlent 24. júní 2022 13:42
Mesta vaxtahækkun í Noregi í tuttugu ár Norski seðlabankinn hækkaði í morgun stýrivexti um hálft prósentustig, úr 0,75 í 1,25 prósent. Norskir fjölmiðlar segja að þetta sé mesta hækkun stýrivaxta í landinu í heil tuttugu ár. Viðskipti erlent 23. júní 2022 12:56
Óttast um ferðamenn eftir kraftmikla aurskriðu úr mikilli hæð Lögreglan í Loen í Noregi reynir nú að komast að því hvort að ferðamenn hafi lent í mikilli aurskirði sem féll úr töluverði hæð í Kjenndalen í gær og tók með sér þónokkurn jarðveg. Erlent 11. júní 2022 11:38
„Hættulegasti maður Noregs“ tekinn höndum Norska lögreglan hafði hendur í hári Stigs Millehaugen sem hafði verið á flótta í viku. Millehaugen afplánaði fangelsisdóm fyrir tvö morð og honum er lýst sem „hættulegasta manni Noregs“. Erlent 8. júní 2022 11:02
Marta Lovísa prinsessa og Durek Verrett trúlofuð Norska prinsessan Marta Lovísa og bandaríski seiðmaðurinn Durek Verrett eru trúlofuð. Lífið 7. júní 2022 09:10
Nadal vann opna franska í fjórtánda sinn Spænska tennisgoðsögnin Rafael Nadal vann öruggan sigur á Norðmanninum Casper Ruud á opna franska meistarmótinu og skráði sig enn einu sinni á spjöld sögunnar. Sport 5. júní 2022 17:01
Norska lögreglan lýsir eftir fanga sem er dæmdur fyrir tvö morð Norska lögreglan hefur lýst eftir fanga, sem var dæmdur fyrir tvo morð, eftir að hann skilaði sér ekki í fangelsið í Þrándheimi eftir dagsleyfi. Lýst hefur verið eftir fanganum alþjóðlega. Lögregla segir grun um að hann hafi farið til Ósló. Erlent 1. júní 2022 23:12
Apabóla greinist í Noregi Norskur ríkisborgari greindist í dag með apabólu eftir ferðalag í Evrópu. Um er að ræða fyrsta smitið sem greinist í Noregi. Erlent 31. maí 2022 17:34
Orð Jens Garðars sjókvíaeldismanns eldast illa ISA veiran sem veldur hinum banvæna sjúkdómi blóðþorra í laxi hefur nú verið greind í sjókvíum Fiskeldis Austfjarða í Berufirði. Innlent 27. maí 2022 15:18
Rostungsbein sem enduðu í Kænugarði fyrir þúsund árum fóru líklega um Ísland Ný rannsókn sýnir að rostungstennur, sem fundust í Kænugarði fyrir fimmtán árum, eru komnar úr norrænu byggðinni á Grænlandi og eru frá tímum víkinga. Fornleifafræðingur telur mjög líklegt að Íslendingar hafi komið að verslun með grænlensk rostungabein. Innlent 24. maí 2022 22:40
Að minnsta kosti þrír særðir eftir stunguárás vestur af Osló Að minnsta kosti þrír eru særðir, þar af einn alvarlega eftir stunguárás í Numedal, um áttatíu kílómetra vestur af norsku höfuðborginni Osló, í morgun. Erlent 20. maí 2022 08:02
Játaði að hafa stungið fimm til bana og reynt að myrða aðra með boga og örvum Andersen Bråthen, játaði í morgun að hafa myrt fimm manns í Noregi í fyrra. Í dómsal í dag gekkst hann við öllum ákærum gegn sér en auk morðanna fimm er hann sakaður um ellefu morðtilraunir og ýmis önnur brot. Erlent 18. maí 2022 10:48
Norskir úlfar borða ítalskar ömmur Meðlimir Subwoolfer eru komnir áfram í aðalkeppni Eurovision sem fer fram annað kvöld í Tórínó og virðast þeir vera að safna orku fyrir stóra daginn með því að gæða sér á ítölskum ömmum og kúra. Lífið 13. maí 2022 22:00
„Einhvern veginn tókst mér ekki að sjá þetta“ „Ég er í góðum málum, en það þarf að vinna að því. Það var alls ekki þannig fyrst,“ segir Gunnar Valdimarsson um lífið í Osló eftir skilnaðinn við barnsmóður sína. Lífið 27. apríl 2022 13:31
Segir af sér eftir að upp komst um samband við mun yngri konu Varnarmálaráðherra Noregs, Odd Roger Enoksen, hefur sagt af sér ráðherraembætti eftir að í ljós kom að hann átti í sambandi við sér mun yngri konu frá árinu 2005. Enoksen var þá fimmtugur en konan aðeins átján ára. Erlent 9. apríl 2022 15:41
Þrír látnir eftir snjóflóð í Noregi Þrír eru látnir eftir að snjóflóð féll í firðinum Lyngen í Troms í Noregi í dag. Erlent 7. apríl 2022 15:23
Íslendingur slasaðist í snjóflóði í Noregi Íslenskur ríkisborgari var í hópi þeirra sem slösuðust í snjóflóði í Lyngen í Troms í Noregi í gær. Einn maður fórst og fjórir slösuðust í snjóflóðinu. Erlent 31. mars 2022 10:53
Einn fórst og nokkrir slösuðust í snjóflóðum í Noregi Einn fórst og þrír slösuðust í snjóflóði sem féll í firðinum Lyngen í Troms í Noregi um kvöldmatarleytið í gærkvöldi. Um var að ræða hóp erlendra ferðamanna en einn til viðbótar komst úr flóðinu án meiðsla. Erlent 31. mars 2022 08:56
Aftur skekur fjárdráttur Íslensku kirkjuna í Noregi Gjaldkeri Íslensku kirkjunnar í Noregi hefur látið af störfum og honum vikið úr stjórn safnaðarins vegna mögulegs fjárdráttar. Kirkjan segir rökstuddan grun fyrir fjárdrættinum og gjaldkerinn hefur verið kærður til lögreglu. Innlent 30. mars 2022 19:31
Foreldrarnir hafa tekist á fyrir dómstólum í Noregi og á Íslandi Íslensk kona, sem nam þrjá syni sína á brott af heimili þeirra í Noregi á mánudag, var árið 2020 dæmd af norskum dómstólum í sex mánaða fangelsi fyrir að hafa meinað föðurnum að hitta börnin. Innlent 30. mars 2022 14:57
Lögreglan í Noregi rannsakar brottnám íslenskra bræðra Lögreglan í Noregi hefur til rannsóknar brottnám þriggja íslenskra drengja á grunnskólaaldri frá Noregi í gær. Móðir drengjanna flutti drengina þrjá frá Noregi til Íslands í gær í óþökk föðurins. Innlent 29. mars 2022 17:44
Stoltenberg mun ekki taka við sem seðlabankastjóri Noregs Jens Stoltenberg, framkvæmdastjóri NATO og fyrrverandi forsætisráðherra Noregs, mun ekki taka við stöðu seðlabankastjóra Noregs í október líkt og til stóð. Erlent 24. mars 2022 13:35
Segja Stoltenberg verða ár lengur í embætti Jens Stoltenberg mun framlengja tíð sína sem framkvæmdastjóri NATO um eitt ár en til stóð að hann myndi láta af embætti næsta haust. Ástæðan er ástandið vegna innrásar Rússa í Úkraínu sem hófst fyrir sléttum mánuði. Erlent 24. mars 2022 10:47
Fjórir látnir eftir að herþyrla hrapaði í NATO-æfingu Fjórir bandarískir hermenn létust þegar bandarísk herþyrla sem tók þátt í NATO-æfingunni Cold Response hrapaði í Norðurlandi í Noregi í gær. Erlent 19. mars 2022 08:58
„Ég held að ég hafi drukkið hálft Atlantshafið“ Ragnar Axelsson myndaði eitt sinn lífið í Lofoten í Noregi þar sem fólk stundar sjósund og brimbrettaiðkun af kappi. Lífið 11. mars 2022 09:30
RAX Augnablik: „Ég var mjög ánægður að ná þessu“ Ragnari Axelssyni var eitt sinn boðið til Lofoten í Noregi til þess að kafa með og mynda háhyrninga. Menning 6. mars 2022 07:01
Gulldrottning Vetrarólympíuleikanna í Peking er hætt Norska skíðagöngudrottningin Therese Johaug hefur ákveðið að setja keppnisskíðin sín upp á hillu. Hún keppir í síðasta skiptið á ferlinum á morgun. Sport 4. mars 2022 16:01
Norski olíusjóðurinn með meira en 30 milljarða undir á Íslandi Olíusjóður Noregs, stærsti fjárfestingasjóður í ríkiseigu í heiminum, jók talsvert við verðbréfaeign sína á Íslandi á síðasta ári. Eignir sjóðsins, sem eru einkum skuldabréf á ríkissjóð og íslensk félög, námu samtals 246 milljónum Bandaríkjadala í árslok 2021, jafnvirði um 32 milljarða króna, og hefur verðbréfaeign olíusjóðsins ekki verið meiri hér á landi í liðlega fimmtán ár. Innherji 3. mars 2022 10:30
Rússar áhyggjufullir um samskipti Norðmanna og Dana vegna breytinga á götuheiti Rússneska sendiráðið í Danmörku hefur lýst yfir áhyggjum af samskiptum Norðmanna og Dana vegna umræðna um að breyta heiti götunnar Kristianiagade í Ukrainegade. Rússneska sendiráðið stendur við fyrrnefnda götu og einn borgarstjóra Kaupmannahafnar hefur lýst yfir vilja til að skoða það að breyta götuheitinu í Ukrainegade. Erlent 1. mars 2022 12:30