Detroit tórir enn Leikmenn Detroit Pistons hafa ekki sagt sitt síðasta í einvígi sínu við Miami Heat en í nótt vann liðið 91-78 heimasigur í fimmtu viðureign liðanna í úrslitum Austurdeildarinnar og forðaði sér þar með frá því að fara snemma í sumarfrí. Sport 1. júní 2006 05:04
Sendir Miami Detroit í sumarfrí? Fimmti leikur Miami Heat og Detroit Pistons í úrslitaeinvígi Austurdeildarinnar fer fram á miðnætti í kvöld og verður leikurinn sýndur beint á Sýn. Miami hefur yfir 3-1 í einvíginu og getur því tryggt sér sæti í úrslitum NBA í fyrsta sinn í 18 ára sögu félagsins með sigri í kvöld. Sport 31. maí 2006 18:00
Phoenix jafnaði Phoenix Suns hefur ekki sagt sitt síðasta orð í úrslitaeinvíginu í Vesturdeildinni og í nótt burstaði liðið Dallas Mavericks 106-86 á heimavelli sínum og jafnaði metin í 2-2 í seríunni. Raja Bell var óvænt í byrjunarliði Phoenix í nótt, en hann er meiddur á fæti. Sport 31. maí 2006 12:51
Miami hársbreidd frá úrslitunum Miami Heat tók í nótt stórt skref í áttina að sjálfum NBA úrslitunum með nokkuð öruggum 89-78 sigri á Detroit Pistons í fjórða leik liðanna í úrslitum Austurdeildarinnar. Miami er því komið í 3-1 í einvíginu og getur klárað dæmið í Detroit á miðvikudagskvöldið, en sá leikur verður sýndur beint á Sýn. Sport 30. maí 2006 03:53
Vann San Antonio fjórða leikinn? Aganefnd NBA deildarinnar ákvað í dag að draga til baka tæknivillu sem Michael Finley leikmaður San Antonio Spurs fékk í fjórða leiknum gegn Dallas Mavericks í undanúrslitum Vesturdeildarinnar á dögunum, en úrslit leiksins réðust í framlengingu. Sport 29. maí 2006 23:00
Bell á ekki von á að spila fjórða leikinn Bakvörðurinn Raja Bell hjá Phoenix Suns á ekki von á því að verða orðinn klár í slaginn í leik fjögur hjá Phoenix og Dallas í úrslitum Vesturdeildarinnar í NBA annað kvöld. Bell er meiddur á kálfa og segist setja stefnuna á leik fimm á fimmtudagskvöldið, en sá leikur verður einmitt sýndur beint á Sýn. Fjórði leikur Miami og Detroit er í beinni á Sýn í kvöld klukkan 0:30. Sport 29. maí 2006 22:30
Detroit með bakið upp að vegg Fjórði leikur Miami Heat og Detroit Pistons í úrslitaeinvígi Austurdeildarinnar fer fram í Miami í kvöld og verður sýndur beint á Sýn klukkan hálf eitt. Lið Detroit hefur verið skugginn af sjálfu sér í síðustu leikjum og ljóst er að liðið þarf virkilega að taka sig saman í andlitinu í kvöld ef ekki á illa að fara. Sport 29. maí 2006 18:55
Miami - Detroit í beinni í kvöld Fjórði leikur Miami Heat og Detroit Pistons verður sýndur í beinni útsendingu á Sýn klukkan 0:30 í nótt, en þetta er algjör lykilleikur í einvíginu þar sem Miami leiðir 2-1. Fimmti leikurinn í þessu einvígi verður svo einnig sýndur beint á miðvikudagskvöldið en hann fer fram í Detroit. Þá verður fimmti leikur Dallas og Phoenix í beinni á fimmtudagskvöldið. Sport 29. maí 2006 15:15
Dallas komið yfir Dallas Mavericks vann aftur heimavallarréttinn í úrslitaeinvígi Vesturdeildarinnar í NBA í nótt þegar liðið lagði Phoenix Suns á útivelli 95-88. Frábær varnarleikur skóp sigur Dallas í nótt í leik sem sýndur var beint á Sýn, en það er sannarlega ekki á hverjum degi sem liði Phoenix er haldið undir 90 stigum á heimavelli sínum. Sport 29. maí 2006 05:48
Phoenix - Dallas í beinni á Sýn Sjónvarpsstöðin Sýn hefur beinar útsendingar frá úrslitakeppni NBA á ný klukkan 0:30 í nótt þegar þriðji leikur Phoenix Suns og Dallas Mavericks verður á dagskrá í úrslitum Vesturdeildarinnar. Liðin skiptu með sér leikjunum tveimur í Dallas, en heimamenn verða án Raja Bell í kvöld. Sport 28. maí 2006 20:35
Detroit réði ekkert við Shaq og Wade Shaquille O´Neal og Dwayne Wade fóru illa með varnarmenn Detroit Pistons í nótt þegar Miami náði 2-1 forskoti í einvígi liðanna í úrslitum Austurdeildarinnar í NBA. Shaq og Wade hittu úr 75% skota sinna og tryggðu Miami öruggan 98-83 sigur á heimavelli. Næsti leikur liðanna fer fram á mánudagskvöld og verður í beinni á Sýn. Sport 28. maí 2006 05:36
Drykkfeldar mæður stjörnuleikmanna til vandræða Mæður stjörnuleikmannanna LeBron James hjá Cleveland og Amare Stoudemire hjá Phoenix eru sonum sínum ekki góðar fyrirmyndir, en þær hlutu báðar dóma fyrir óspektir og ölvunarakstur fyrir helgina. Móðir James slapp með sekt og félagsþjónustu, en móðir Stoudemire þarf að dúsa í fangelsi í þrjú ár eftir ítrekaðan ölvunarakstur. Sport 27. maí 2006 17:50
Dallas jafnaði gegn Phoenix Dallas Mavericks náði að rétta sinn hlut í öðrum leik úrslitaeinvígis Vesturdeildarinnar í nótt þegar liðið lagði Phoenix Suns 105-98 á heimavelli sínum og hafa liðin því unnið sitt hvorn leikinn í einvíginu. Dirk Nowitzki fór fyrir sínum mönnum á lokasprettinum í nótt, en það var umfram allt bættur varnarleikur heimamanna sem tryggði þeim sigurinn. Sport 27. maí 2006 03:53
Stoudemire fetar í fótspor Bryant Framherjinn öflugi Amare Stoudemire hjá Phoenix Suns þarf að sætta sig við að sitja á bekknum spariklæddur þegar félagar hans spila í úrslitum Vesturdeildarinnar þessa dagana, en þessi efnilegi leikmaður hefur verið meiddur á hné í allan vetur. Sport 26. maí 2006 21:30
Detroit jafnaði gegn Miami Detroit Pistons jafnaði metin í úrslitaeinvígi Austurdeildarinnar í nótt með 92-88 sigri á Miami Heat á heimavelli sínum í Auburn Hills. Staðan í einvíginu er því orðin 1-1 og fara næstu tveir leikir fram í Miami. Heimamenn mættu mun grimmari til leiks í öðrum leiknum og var sigur liðsins öruggari en lokatölurnar gefa til kynna. Sport 26. maí 2006 04:30
Samningur Brown framlengdur hjá Cleveland Forráðamenn Cleveland Cavaliers hafa ákveðið að Mike Brown verði áfram aðalþjálfari liðsins eftir að hann leiddi það til 50 sigra í deildarkeppninni og alla leið í oddaleik gegn Detroit Pistons í undanúrslitum Austurdeildarinnar á dögunum. Sport 25. maí 2006 23:00
Bell missir af næsta leik með Phoenix Skotbakvörðurinn Raja Bell hjá Phoenix Suns verður ekki með liðinu í öðrum leik úrslitaeinvígisins við Dallas Mavericks eftir að hafa tognað illa í leik liðanna í nótt. Josh Howard hjá Dallas sneri sig á ökkla í byrjun leiksins og kom ekki meira við sögu eftir það, en um helmingslíkur eru taldar á að hann verði með í næsta leik. Sport 25. maí 2006 19:04
Diaw tryggði Phoenix sigurinn í Dallas Franski framherjinn Boris Diaw átti sinn besta ferlinum í nótt þegar Phoenix Suns gerði sér lítið fyrir og lagði Dallas Mavericks 121-118 á útivelli í fyrsta leik liðanna í úrslitaeinvígi Vesturdeildarinnar. Diaw skoraði 34 stig fyrir Phoenix og þar á meðal sigurkörfuna í blálokin. Sport 25. maí 2006 06:16
Skýr skilaboð hjá eiganda Cleveland Dan Gilbert, eigandi NBA-liðs Cleveland Cavaliers, hefur sent stuðningsmönnum liðsins skýr skilaboð fyrir framtíðina. Í gær keypti hann auglýsingar fyrir um 25.000 dollara í stærstu blöðunum í Ohio-fylki, þar sem hann þakkaði stuðningsmönnum liðsins fyrir árið og lét í það skína að nýr samningur við ofurstjörnuna LeBron James væri efst á forgangslista félagsins. Sport 24. maí 2006 22:30
Toronto datt í lukkupottinn Kanadaliðið Toronto Raptors í NBA deildinni datt heldur betur í lukkupottinn í gær þegar það hreppti fyrsta valréttinn í hinu árlega nýliðavali sem fram fer eftir um það bil mánuð. Dregið er úr lukkupotti um það hvaða lið hreppir hnossið hverju sinni, rétt eins og þegar dregið er í Lottóinu hérlendis og fá liðin úthlutað kúlum í pottinum eftir árangri í deildarkeppninni síðasta vetur. Sport 24. maí 2006 07:00
Miami vann í Detroit Miami gerði sér lítið fyrir og lagði Detroit á útivelli í fyrsta leik liðanna í úrslitum Austurdeildarinnar í nótt 91-86. Miami hafði ekki spilað í viku fyrir leik gærkvöldsins, en það var lið Detroit sem var ryðgað í gær og hitti skelfilega. Heimamenn náðu ekki að nýta sér villuvandræði þeirra Shaquille O´Neal og Dwayne Wade og eru greinilega enn í bullandi vandræðum á báðum endum vallarins. Sport 24. maí 2006 05:45
Phoenix í úrslit Vesturdeildar Leikmenn Phoenix Suns virðast hafa haft gott af hvíldinni sem þeir fengu fyrir oddaleikinn gegn LA Clippers í nótt, því heimamenn náðu forystunni eftir rúma hálfa mínútu í leiknum og létu hana aldrei af hendi í auðveldum 127-107 sigri. Sport 23. maí 2006 06:23
Sögulegur sigur hjá Dallas Dallas Mavericks vann líklega stærsta sigur í sögu félagsins í nótt þegar liðið lagði meistara San Antonio 118-111 á útivelli í frábærum oddaleik sem fór alla leið í framlengingu. Sport 23. maí 2006 05:58
Stórleikir í beinni á Sýn og NBA TV Tveir leikir fara fram í úrslitakeppni NBA í kvöld og gefst íslenskum körfuboltaáhugamönnum tækifæri til að sjá þá báða í beinni útsendingu. Sjötti leikur Detroit og Cleveland verður í beinni á NBATV um miðnættið og sjötti leikur San Antonio og Dallas á Sýn klukkan 1:30. Sport 19. maí 2006 15:57
Oddaleikur hjá Phoenx og LA Clippers Los Angeles Clippers knúði í nótt fram oddaleik í undanúrslitaeinvígi liðanna í Vesturdeildinni með 118-106 sigri á heimavelli sínum í sjötta leiknum í nótt. Bæði lið hafa því unnið þrjá leiki í einvíginu og hreinn úrslitaleikur verður í Phoenix á mánudagskvöldið. Sport 19. maí 2006 05:45
Jason Terry í eins leiks bann Leikstjórnandinn Jason Terry hjá Dallas Mavericks missir af sjötta leik liðsins í einvíginu við meistara San Antonio á föstudagskvöld, eftir að hann var dæmdur í eins leiks bann fyrir að kýla fyrrum félaga sinn Michael Finley hjá San Antonio undir lok fimmta leiksins í fyrrinótt. Sport 19. maí 2006 01:24
Meistararnir gefast ekki upp Meistarar San Antonio neituðu að láta slá sig út úr úrslitakeppninni á heimavelli sínum í gær þegar liðið minnkaði muninn í 3-2 í einvígi sínu við Dallas í undanúrslitum Vesturdeildarinnar með 98-97 sigri. Sigurinn var þó alls ekki auðveldur gegn frábæru liði Dallas og úrslitin réðust í rafmagnaðri spennu á lokasekúndunum líkt og í síðustu leikjum. Sport 18. maí 2006 08:45
Cleveland að takast hið ómögulega? Cleveland Cavaliers sendi körfuboltasérfræðingum um allan heim langt nef í gær þegar liðið lagði Detroit Pistons 86-84 á útivelli og vann þar með sinn þriðja leik í röð í einvíginu. Cleveland getur nú klárað dæmið á heimavelli í næsta leik, en úrslit gærkvöldsins eru líklega einhver þau óvæntustu í áraraðir. Sport 18. maí 2006 08:00
James fékk flest atkvæði í lið ársins Undrabarnið LeBron James hjá Cleveland Cavaliers fékk flest atkvæði allra í valinu á úrvalsliði ársins í deildarkeppni NBA í vetur, en niðurstöðurnar voru birtar nú í kvöld. Kobe Bryant hjá LA Lakers fékk næst flest atkvæði og þriðji kom svo verðmætasti leikmaður ársins, Steve Nash hjá Phoenix. Sport 17. maí 2006 22:30
Syngur Hasselhoff í sturtu Þjóðverjinn Dirk Nowitzki hefur vakið mikla athygli fyrir að sýna stáltaugar á vítalínunni undir lok síðustu leikja Dallas gegn San Antonio í úrslitakeppninni. Hann segir að leyndarmálið sé að ná að slaka vel á og það segist hann gera með því að syngja gamla slagara með strandverðinum David Hasselhoff í sturtunni. Sport 17. maí 2006 15:33