Fótbolti

Arnar um aga­brot lands­liðs­manna: „Mikil von­brigði fyrir mig per­sónu­lega“

Aron Guðmundsson skrifar
Arnar Gunnlaugsson, landsliðsþjálfari Íslands, tjáir sig í fyrsta skipti um agabrot landsliðsmanna í viðtali við Vísi sem verður birt í heild sinni í fyrrmálið.
Arnar Gunnlaugsson, landsliðsþjálfari Íslands, tjáir sig í fyrsta skipti um agabrot landsliðsmanna í viðtali við Vísi sem verður birt í heild sinni í fyrrmálið. Vísir/Getty

Arnar Gunnlaugsson, landsliðsþjálfari Íslands, lýsir yfir miklum vonbrigðum með agabrot nokkurra íslenskra landsliðsmanna í síðasta landsliðsglugga. Þeir hafi með sínu athæfi brugðist fólki og sett skugga á annars góðan glugga.

Eftir nýafstaðið landsliðsverkefni bárust fregnir af því að nokkrir leikmenn íslenska karlalandsliðsins í fótbolta hefðu gerst sekir um agabrot eftir sigur liðsins gegn Búlgaríu hér heima þegar enn var einn leikur eftir af verkefninu. Útileikur gegn Eistlandi.

Arnar Gunnlaugsson landsliðsþjálfari hefur ekkert tjáð sig um málið þar til núna. Hann settist niður í viðtali við Vísi og fór yfir málið.

„Þetta eru mikil vonbrigði fyrir mig persónulega,“ segir Arnar um agabrot landsliðsmanna í viðtali við Vísi sem verður birt í heild sinni á morgun en sjá má brot úr því í spilaranum hér fyrir neðan.

Klippa: Arnar um agabrot landsliðsmanna

„Mikil vonbrigði að þetta skuli hafa gerst á þessum tíma. Glugginn hafði gengið vel. Við vorum að fara í lokaleikinn á móti Eistum. Mikil vonbrigði fyrir viðkomandi leikmenn að hafa ekki bara brugðist sjálfum sér, heldur líka brugðist mér, brugðist liðsfélögunum og þjóðinni líka.“

Arnar segir að um slæmt mál sé að ræða og að vel hafi verið tekið á því, bæði innan landsliðshópsins, af stjórn KSÍ og honum sjálfum.

„Fyrir mér er þetta mál að baki núna en setti óneitanlega skugga á annars góðan glugga.“

Um nokkra leikmenn íslenska landsliðsins er að ræða sem Arnar vill ekki nafngreina en agabrotin áttu sér stað eftir leik Íslands við Búlgaríu hér heima á laugardegi. Degi síðar hélt liðið til Eistlands í lokaleikinn í glugganum.

„Reglur og ekki reglur. Þetta er bara heilbrigð skynsemi. Leikmenn haga sér bara almennilega á milli leikja. Haga sér eins og atvinnumenn. Þetta eru fullorðnir menn sem þekkja og vita að þessar reglur gilda í íþróttum og lífinu. Þetta er eitthvað sem er óásættanlegt. Það sem gerðist eftir leikinn á móti Búlgaríu hér heima á laugardegi. Við erum að ferðast til Eistlands á sunnudeginum. Þetta kemur upp á sunnudagskvöldi og það er tekið á því. Þetta er langur og strangur gluggi. Á dauða mínum átti ég fyrr von á heldur en að eitthvað svona myndi gerast. Sérstaklega þegar svona langt var liðið á gluggann.“

Orkuleysi einkenndi leik íslenska landsliðsins gegn Eistum. Markalaust jafntefli.

„Undirbúningurinn fór til fjandans. Að sama skapi voru ákveðnir þættir í leikskipulagi sem þurfti að breyta og laga til. Vonbrigði eru stærsta og mikilvægasta orðið í þessu.“

Ítarlegt viðtal við Arnar Gunnlaugsson, landsliðsþjálfara Íslands, birtist hér á Vísi sem og í hlaðvarpsþættinum Besta sætið í heild sinni í fyrramálið.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×