52 greindust smitaðir í gær 52 greindust smitaðir af Covid-19 á Íslandi í gær. 36 þeirra voru í sóttkví og sextán voru utan sóttkvíar. Innlent 4. september 2021 10:55
Án matar frá ferðamönnum fara apar ránshendi um heimili Apar á Balí í Indónesíu herja nú á þorpsbúa og fara ránshendi um heimili í leit að mat. Faraldur Nýju kórónuveirunnar hefur valdið því að engir ferðamenn er á svæðinu sem gefa öpum reglulega mat eins og banana og hnetur og því hafa aparnir þurft að leita á önnur mið. Erlent 4. september 2021 08:23
Rifist um argentínsku landsliðsmennina | Gætu misst af tveimur leikjum í deildinni Tottenham Hotspur og Aston Villa eiga í deilum við argentínska knattspyrnusambandið vegna leikmanna liðanna sem eru í landsliðshópi Argentínu. Leikmennirnir eiga á hættu að missa af næstu tveimur deildarleikjum með liðum sínum. Enski boltinn 3. september 2021 22:02
Dómsmálaráðherra vill ráðast í tilslakanir á samkomutakmörkunum Áslaug Arna Sigurbjörnsdóttir, dómsmálaráðherra, vill ráðast í tilslakanir á samkomutakmörkunum í næstu viku. Hún vill koma lífinu í eðlilegt horf til lengri tíma. Innlent 3. september 2021 21:26
Á erfitt með að hafa samúð með þreyttum læknum Landspítala Kári Stefánsson, forstjóri Íslenskrar erfðagreiningar, segir að eitt stærsta vandamál Landspítalans sé hve illa gangi að halda þar uppi góðri stemmningu. Vandamál spítalans séu mörg þannig vaxin að ekki sé hægt að laga þau með auknu fjármagni einu saman. Innlent 3. september 2021 16:43
Landspítalinn hættir að nota hraðpróf Farsóttanefnd Landspítalans hefur ákveðið að hætta að nota hraðgreiningarpróf til að prófa starfsmenn sína, sem eru með væg einkenni, fyrir Covid-19 og taka PCR-próf alfarið í notkun í staðinn. Í tilkynningu nefndarinnar segir að hraðprófin séu verri kostur en PCR-próf. Innlent 3. september 2021 15:46
Loftgæði bötnuðu tímabundið í kórónuveirufaraldrinum Svifryksmengun minnkaði umtalsvert, sérstaklega í borgum, þegar kórónuveiruheimsfaraldurinn hægði á hagkerf heimsins. Þrátt fyrir samdráttinn var loftmengun víða enn yfir heilsuverndarmörkum. Erlent 3. september 2021 13:26
43 greindust með kórónuveiruna í gær 43 greindust með kórónuveiruna innanlands í gær. 27 þeirra sem greindust innanlands í gær voru í sóttkví við greiningu, eða 63 prósent nýgreindra. Sextán voru utan sóttkvíar, eða um 37 prósent. Innlent 3. september 2021 10:52
Telja ekki brýna þörf á að heilbrigðir fái örvunarskammt Sóttvarnastofnun Evrópu, ECDC, og Lyfjastofnun Evrópu, EMA, telja að í flestum tilvikum sé ekki talin brýn þörf á á örvunarskammti hjá fullbólusettu fólki. Erlent 3. september 2021 08:41
Leiðir til að lokka starfsfólk aftur á vinnustaðinn Sitt sýnist hverjum um ágæti fjarvinnu. Sumir hreinlega elska þessa nýju veröld á meðan aðrir óska þess heitast að allt verði eins og það var fyrir Covid. Þá sérstaklega eru vinnuveitendur margir sagðir uggandi yfir því hversu áhugalaust fólk er um að mæta aftur til vinnu á vinnustaðinn sjálfan! Atvinnulíf 3. september 2021 07:01
Xhaka með veiruna Granit Xhaka, miðvallar leikmaður Arsenal og svissneska landsliðsins, greindist með Covid-19 í gær, miðvikudag. Fótbolti 2. september 2021 16:30
Halda sig við 200 manna hólf þó 500 megi koma saman KSÍ mun halda sig við ellefu 200 manna hólf á komandi landsleikjum gegn Norður-Makedóníu og Þýskalandi þó reglugerð sem heimili að 500 manns komi saman á viðburðum taki gildi á morgun. Innlent 2. september 2021 16:18
„Ekki vírusinn sem er vandamálið heldur stefnuleysi yfirvalda“ Tónlistarhátíðinni Iceland Airwaves hefur verið frestað til ársins 2022 vegna áframhaldandi samkomutakmarkana í ljósi kórónuveirufaraldursins. Framkvæmdastjóri hátíðarinnar segir það mikil vonbrigði fyrir íslenska tónlistariðnaðinn að samkomutakmarkanir séu enn svo strangar. Innlent 2. september 2021 11:23
Innflutningur á ivermectin tífaldast í Ástralíu og fleiri neita að svara um notkun þess Sífellt fleiri viðskiptavinir neita að upplýsa lyfjafræðinga um það við hverju þeir fengu ávísað lyfjum sem innihalda ivermectin. Þetta segja samtök ástralskra lyfjafræðinga, sem hafa ráðlagt félögum sínum að fylgjast grannt með sölu ivermectin. Erlent 2. september 2021 11:04
54 greindust smitaðir í gær 54 greindust smitaðir af kórónuveirunni innanlands á síðasta sólarhring. Af þeim voru 29 í sóttkví þegar þeir greindust smitaðir en 25 voru utan sóttkvíar. Innlent 2. september 2021 10:56
Iceland Airwaves frestað til ársins 2022 Tónlistarhátíðinni Iceland Airwaves hefur verið frestað til ársins 2022 vegna áframhaldandi samkomutakmarkana í ljósi kórónuveirufaraldursins. Hátíðin mun því fara fram dagana 2. til 5. nóvember 2022. Innlent 2. september 2021 10:00
Langvarandi Covid helmingi fátíðara hjá fullbólusettum Rannsakendur við King's College London hafa komist að þeirri niðurstöðu að bólusetningar gegn Covid-19 dragi ekki bara úr líkunum á því að smitast og veikjast alvarlega, heldur séu fullbólusettir síður líklegir til að þjást af langvarandi einkennum. Erlent 2. september 2021 07:44
Efasemdarmönnum gengur hægt að safna undirskriftum Meiri gangur er í atkvæðagreiðslu utan kjörfundar í aðdraganda þingkosninga en á sama tíma við síðustu kosningar. Nýju stjórnmálahreyfingunni Ábyrgri framtíð gengur hægt að safna undirskriftum, en á meðal stefnumála hennar er að nota óhefðbundin lyf við Covid-19. Innlent 1. september 2021 19:41
Norður-Kórea afþakkar kínverskt bóluefni Norður-Kórea hefur afþakkað þrjár milljónir bóluefnaskammta gegn Covid-19 frá kínverska lyfjarisanum Sinovac. Norðurkóresk stjórnvöld segja að frekar eigi að senda bóluefnaskammtanna til landa þar sem staðan vegna veirunnar er alvarleg.N Erlent 1. september 2021 15:45
Enginn á gjörgæslu vegna Covid-19 Af þeim tíu sjúklingum sem nú liggja inni á Landspítalanum vegna Covid-19 er enginn á gjörgæslu. Innlent 1. september 2021 14:58
Fangavörður á Litla-Hrauni greindist smitaður Fangavörður á Litla-Hrauni greindist smitaður af kórónuveirunni í fyrrakvöld. Hann er nú í einangrun og hafa tveir fangaverðir til viðbótar verið sendir í sóttkví. Innlent 1. september 2021 13:10
Tóku þátt í herferð um framlínufólk í heimsfaraldri en enduðu í sóttkví Allir sem tóku þátt í myndatöku fyrir nýja herferð Bandalags háskólamanna, Læknafélags Íslands og Félags íslenskra hjúkrunarfræðinga enduðu í sóttkví eftir að einn þátttakenda greindist smitaður af kórónuveirunni. Herferðinn fjallar um mikilvægi háskólamenntaðra í heimsfaraldri, fólks sem staðið hefur framlínuvakt á tímum Covid. Innlent 1. september 2021 11:33
Grímuskyldan afnumin í Bónus Frá og með deginum í dag verður ekki grímuskylda í verslunum Bónus. Framkvæmdastjóri Bónus segist finna fyrir mikilli grímuþreytu meðal almennings. Viðskipti innlent 1. september 2021 11:28
67 greindust smitaðir í gær Síðasta sólarhringinn greindust 67 smitaðir af kórónuveirunni innanlands. Af þeim voru 38 í sóttkví þegar þeir greindust smitaðir en 29 var utan sóttkvíar. Innlent 1. september 2021 10:57
Börn sem ættu að sleppa við sóttkví þurfa samt í sóttkví vegna undirbúningsleysis Foreldrar eru margir í óvissu vegna nýrra leiðbeininga um sóttkví barna. Þar er gert ráð fyrir að börn sem ekki eiga í nánum samskiptum við hinn smitaða geti farið tvisvar í hraðpróf og sloppið við sóttkví. Ekkert hraðpróf hefur hins vegar enn verið tekið í þessu skyni. Innlent 31. ágúst 2021 21:25
Hraðprófin millileikur í átt að eðlilegra samfélagi Nýjar reglur um 500 manna viðburði gegn hraðprófum taka gildi á föstudag en yfirvöld hafa ekki enn klárað útfærslu á þeim. Stefnt er að því að framkvæmd þeirra verði komin á fullan skrið um miðjan september mánuð. Innlent 31. ágúst 2021 20:00
Krónan afnemur grímuskyldu Krónan mun afnema grímuskyldu í verslunum sínum á morgun, 1. september. Telja forsvarsmenn keðjunnar að viðskiptavinum og starfsfólki sé nú treystandi til að meta sjálft hvort þörf sé á grímu. Viðskipti innlent 31. ágúst 2021 19:49
Flugfélögin ekki skyldug til að synja íslenskum ríkisborgurum um heimför skorti þá gögn Íslendingar geta frá og með morgundeginum ferðast til útlanda án þess að eiga hættu á að festast þar skorti þá vottorð við heimför til Íslands. Nýjar leiðbeiningar Samgöngustofu skylda ekki flugfélög til að synja Íslendingum um heimför séu þeir ekki með öll gögn. Innlent 31. ágúst 2021 18:38
Skipar nefnd sem tekur út viðbrögð stjórnvalda við faraldrinum Þriggja manna nefnd hefur verið skipuð af forsætisráðherra sem vinna mun úttekt á viðbrögðum stjórnvalda við Covid-19. Meginverkefni nefndarinnar verður að greina áfallastjórnun vegna faraldursins. Innlent 31. ágúst 2021 14:08
Heill bekkur í læknadeild kominn í sóttkví Heill bekkur í læknadeild við Háskóla Íslands er kominn í sóttkví og losnar ekki fyrr en næstkomandi mánudag. Þar til mun allt nám fara fram í fjarnámi. Innlent 31. ágúst 2021 13:12