Innlent

„Við erum ekkert að biðja um ein­hverja sér­með­ferð“

Áróra L Davíðsdóttir skrifar
Unnur Brá Konráðsdóttir, sveitarstjóri Borgarbyggðar og Skorradalshrepps og fyrrverandi forseti Alþingis, hér ásamt málverki af sjálfri sér á Alþingi. Myndin er úr safni.
Unnur Brá Konráðsdóttir, sveitarstjóri Borgarbyggðar og Skorradalshrepps og fyrrverandi forseti Alþingis, hér ásamt málverki af sjálfri sér á Alþingi. Myndin er úr safni. vísir/sigurjón

Unnur Brá Konráðsdóttir, sveitarstjóri í Borgarbyggð, hefur kært menntamálaráðuneytið og Miðstöð menntunar og skólaþjónustu fyrir að neita að afhenda sveitarfélaginu niðurstöður úr PISA-könnunum. Hún segir það skjóta skökku við að ráðuneytið afhendi stærstu sveitarfélögunum slíkar upplýsingar en ekki minni sveitarfélögum á landsbyggðinni.

Unnur segist taka því hlutverki mjög alvarlega að sveitarfélögin í landinu beri ábyrgð á menntun grunnskólabarna.

„En til þess að geta lagað það sem stendur ekki nógu vel er auðvitað nauðsynlegt að hafa aðgang að upplýsingum svo maður geti mælt sjálfan sig og sinn árangur til framtíðar og notað þær sem viðmið um það hvort að þær aðgerðir sem maður grípur til skili árangri eða ekki,“ segir Unnur Brá en hún var til viðtals á Sprengisandi á Bylgjunni í morgun.

Hún hafi óskað eftir niðurstöðum PISA-kannana fyrir báða grunnskólana í Borgarbyggð, Grunnskóla Borgarfjarðar og Grunnskólann í Borgarnesi. Því hafi hins vegar verið hafnað á grundvelli smæðar sveitarfélagsins og að niðurstöðurnar gætu reynst persónugreinanlegar upplýsingar. Í kjölfarið hafi hún vísað málinu til kærunefndar um upplýsingamál. 

Sveitarfélagið beri ábyrgð 

Sveitarfélagið sé ekki að óska eftir persónugreinanlegum upplýsingum um nemendur heldur séu niðurstöðurnar um færni nemenda lykillinn að árangri.

„Við erum einfaldlega að biðja um þær upplýsingar sem geta hjálpað okkur að sjá hvar við stöndum. Við ætlum ekki að nota þetta til að skamma einhvern eða bera okkur saman við aðra skóla heldur einfaldlega líta í eigin barm. Við berum ábyrgð á okkar börnum,“ segir Unnur. 

Ráðuneytið hafi hins vegar birt niðurstöður sjö stærstu sveitarfélaganna á landinu. Það eru Reykjavík, Kópavogur, Hafnarfjörður, Garðabær, Mosfellsbær, Reykjanesbær og Akureyri. 

Í svarinu sé vísað til þess að gögnin séu aðgengileg á vef OECD. Unnur segir slíkt verkefni kosta fjármuni og að hún vilji verja fjármunum til menntamála í annað en þessa vinnu.

„Ég geti farið að sækja þau þar, það er að segja þá fyrir stærra svæði og farið í einhverja gagnavinnslu með einhverjum leyfum sem þarf til þess. Það kostar auðvitað fjármuni sem sveitarfélagið hefur kannski ekki á lausu,“ segir Unnur. 

Segir málið alvarlegt

Það skjóti skökku við að menntamálaráðuneytið geti útvegað sjö stærstu sveitarfélögunum slíkar upplýsingar en ekki landsbyggðinni.

„Það er alvarlegt og þess vegna vísaði ég málinu til kærunefndar um upplýsingamál.“

Hvorki verið að óska eftir sérmeðferð né forréttindum

Sveitarfélögin eigi erindi í umræðuna um menntamál og niðurstöður PISA-kannana. Rætt sé við kennara og ríkisstjórnarmeðlimi en ekki sveitarfélögin.

„Það eru auðvitað sveitarfélögin sem annast framkvæmdina. Við í rauninni berum ábyrgðina gagnvart fólkinu og við eigum auðvitað að fá tæki og tól frá stjórnvöldum til þess að bregðast við og gera betur.“

Hún vonast eftir skjótri úrlausn málsins og segir Borgarbyggð ekki vera að óska eftir sérmeðferð.

„Við erum ekkert að biðja um nein forréttindi, við erum ekkert að biðja um einhverja sérmeðferð. Við erum einfaldlega bara að biðja um að fá gögn þannig að við getum staðið jafnfætis þessum sjö stærstu sveitarfélögum á Íslandi og fá tækin og tólin til þess að gera betur.“


Tengdar fréttir

PISA: „Þetta er ákveðinn sorgardagur“

Jón Pétur Zimsen þingmaður Sjálfstæðisflokksins segir PISA-niðurstöðurnar ekki koma sér neitt á óvart. Hann hafi verið búinn að spá fyrir um hrap í mælingum. Hann segir þörf á samfélagsátaki til að bregðast við. Ráðherra boðaði fjölda aðgerða í kynningu sinni fyrr í dag. 

Aðeins um 28 prósent innflytjenda með grunnfærni í lesskilningi

Niðurstöður PISA-könnunarinnar sýna að einungis 28 prósent nemenda af erlendum uppruna búa yfir grunnhæfni í lesskilningi. Munurinn minnkar þegar tekið er tillit til félags- og efnahagslegrar stöðu en hverfur ekki. Niðurstöður sýna að algengt sé að nemendur úr hópi innflytjenda standi verr að vígi en aðrir nemendur með engan erlendan bakgrunn, sama hvort litið er til læsis, vísinda eða stærðfræði.

Spreyttu þig á PISA-spurningunum

Íslenskum nemendum gengur sífellt verr samkvæmt niðurstöðum nýju PISA-könnunarinnar. Hér getur þú spreytt þig á spurningum síðustu ára.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×