Fögnuðu gamlárskvöldi með Sinéad O'Connor og John Grant Ellen Kristjánsdóttir tónlistarkona var viðmælandi í Bakaríinu á Bylgjunni í dag, aðfangadag. Þar sagði hún frá sínum jólahefðum, áhugaverðri áramótahefð og frá eftirminnilegum áramótum þegar hún og bróðir hennar, KK, eyddu gamlárskvöldi með Sinéad O'Connor. Lífið 24. desember 2023 12:56
Sjá til þess að allir fái jólamat Hátt í þrjú hundruð manns munu borða hátíðarhádegismat á Kaffistofu Samhjálpar í dag. Forstöðumaður segir þá sem mæta vera afar þakklátir en þeim fer fjölgandi sem þurfa á aðstoðinni að halda. Innlent 24. desember 2023 10:56
Aðfangadagur: Hvar er opið og hve lengi? Aðfangadagur jóla er runninn upp. Nú fer hver að verða síðastur að kaupa síðustu hráefnin í sósuna og síðustu jólagjöfina. Þá er gott að vita hvar er opið og hversu lengi. Innlent 24. desember 2023 08:25
Kertasníkir kom til byggða í nótt Kertasníkir er þrettándi jólasveinninn sem kemur til byggða. Honum þótti góð tólgarkerti og átti í miklu sálarstríði af því hann gat ekki bæði horft á fallegan logann af þeim og borðað þau. Jól 24. desember 2023 06:00
Skatan vinsæl hjá flestum, nema Finnum og tólf ára Fullt var út úr dyrum í Múlakaffi í dag, þar sem á annað þúsund manns gæddu sér á skötu í tilefni Þorláksmessu. Eigandinn segir skötuna verða vinsælli með hverju árinu. Lífið 23. desember 2023 21:01
Jólahús á Selfossi myndað í gríð og erg Eitt glæsilegasta jólaskreyttahús landsins er við þjóðveg númer eitt, eða við Austurveg á Selfossi þar sem ekið er í gegnum bæjarfélagið. Eigandi hússins kippir sér ekki upp við það þó að húsið sé myndað í gríð og erg og segir í sama orðinu að hún vilji gera Selfoss að jólabæ Íslands. Jól 23. desember 2023 20:30
Erfitt að eyða jólunum fjarri fjölskyldunni en ekkert annað í boði Háseti og kafari á varðskipinu Freyju segir stemninguna meðal átján áhafnarmeðlima mjög góða, þrátt fyrir að nú sé ljóst að þeir muni eyða jólunum um borð í skipinu við Ísafjarðarhöfn. Gefin hefur verið út appelsínugul viðvörun fyrir morgundaginn auk þess sem miklar líkur eru taldar á snjóflóðum á svæðinu. Innlent 23. desember 2023 13:43
Á skötuvaktinni í þrjátíu ár: „Maður þekkir bara nánast alla sem koma“ Ilmandi skata er ómissandi þáttur í jólahefð fjölmargra landsmanna á Þorláksmessu. Dagurinn er einn sá stærsti á veitingahúsinu Múlakaffi, en eigandi segir vinsældir skötunnar aukast með ári hverju. Sjálfur var hann mættur á vaktina klukkan þrjú í nótt til að undirbúa daginn og á von á fjölmörgum gestum á öllum aldri. Innlent 23. desember 2023 11:05
Gular viðvaranir á öllu vestanverðu landinu á aðfangadag Gul viðvörun tekur gildi klukkan níu á Suðurlandi. Snjókoma og hugsanlegur skafrenningur geta leitt til erfiðra aksturskilyrða, sér í lagi undir Eyjafjöllum og á veginum við Reynisfjall. Á morgun, aðfangadag verða gular viðvaranir í gildi á öllu vestanverðu landinu. Innlent 23. desember 2023 09:02
Friðsæl jól Við höfum farið enn einn hring í kringum sólina og jólin á næsta leiti. Hátíð samveru, ljóss og friðar sem við sjáum á heimsfréttunum að er því miður ekki sjálfgefinn. Við höfum flest margt að þakka fyrir og þegar mesta jólastressið er liðið hjá áttum við okkur á að mikilvægast er að eiga friðsælar stundir með okkar nánustu og slaka á heima. Þá er gott að hafa í huga nokkur mikilvæg forvarnaatriði svo friðurinn haldist. Skoðun 23. desember 2023 07:00
Ketkrókur kom til byggða í nótt Ketkrókur er tólfti jólasveinninn sem kemur til byggða. Hann stakk löngum stjaka með króki á niður um strompana til að krækja í kjötlærin sem héngu í eldhúsloftinu. Jól 23. desember 2023 06:01
Jól í Grindavík eftir allt saman Frá og með Þorláksmessu mega Grindvíkingar fara inn í bæinn allan sólarhringinn og jafnvel sofa þar. Því verða jól í Grindavík eftir allt saman, allavega hjá þeim Grindvíkingum sem það vilja. Innlent 22. desember 2023 16:12
Jólatré að seljast upp: „Engin lifandi jólatré á áramótabrennum í ár“ Lifandi jólatré eru við það að seljast upp í verslunum landsins. Forstjóri Húsasmiðjunnar segist merkja breytingar í kauphegðun landans þegar kemur að trjánum, bæði sé fólk tímanlega í því en eins eru mun fleiri að færa sig yfir í gervitré. Innlent 22. desember 2023 14:55
Töfrablær yfir jólahúsi ársins í Kópavogi Daltún 1 er jólahús Kópavogs í ár. Í umsögn dómnefndar segir að einföld litasamsetningin sveipi ákveðnum töfrablæ yfir húsið, allt um kring. Að þessu sinni voru einnig valdar Jólagata og Fjölbýlishús ársins. Lífið 22. desember 2023 13:37
Margar hættur fyrir dýrin um jólin Jólahátíðin og áramótin geta reynst ferfætlingum og öðrum gæludýrum erfitt. Hefðbundin rútína hverfur um tíma, mikið er um heimsóknir og mataræði breytist mjög. Matvælastofnun segir mikilvægt að tryggja gæludýrum áfram hefðbundna hreyfingu og nauðsynlega hvíld til að tryggja að þeim líði vel. Jól 22. desember 2023 13:32
Legó á spottprís gleður flesta Fyrr í desember var opnaður nýr markaður sem selur lagervörur frá hinum ýmsu birgjum og verslunum. Markaðurinn er í gamla vöruhúsi Heimkaupa á Smáratorgi. Þar má finna allt frá Lego vörum á 200 krónum til snjallryksuga og sjónvarpa á sannkölluðu lagerverði. Lífið samstarf 22. desember 2023 11:14
Daginn tekur að lengja á ný Vetrarsólstöður voru á fjórða tímanum í nótt. Frá og með deginum í dag tekur sól að hækka á lofti og hver dagur verður örlítið lengri en dagurinn á undan, mörgum eflaust til mikillar ánægju. Innlent 22. desember 2023 08:41
Jólatöfrar Hátíð ljóss og friðar er handan við hornið. Í aðdraganda hátíðarinnar finna mörg fyrir miklu álagi og streitu sem fylgir hátíðarhöldunum. Það getur jafnvel ýtt undir vanlíðan eins og kvíða og depurð. Skoðun 22. desember 2023 07:01
Gáttaþefur kom í nótt Gáttaþefur er ellefti jólasveinninn sem kemur til byggða. Með sitt heljarstóra nef gat hann fundið lykt af nýsteiktu brauði langar leiðir og runnið þannig á sinn uppáhaldsmat, laufabrauð. Jól 22. desember 2023 06:00
Ein vinsælasta ungmennabók landsins Skandar og draugaknapinn í þýðingu Ingunnar Snædal er ein vinsælasta ungmennabók landsins um þessar mundir. Lífið samstarf 21. desember 2023 16:18
Ver jólunum í faðmi kærastans Páll Óskar Hjálmtýsson, einn ástsælasti söngvari þjóðarinnar, ætlar að halda jólin með kærastanum sínum. Það er í fyrsta skiptið í langan tíma sem hann er ekki með systkinum sínum og þeirra fjölskyldum. Lífið 21. desember 2023 14:28
Slakaðu á um hátíðirnar og njóttu dýrindis jólamatar frá Sælkerabúðinni Jólahátíðin er annasamur og skemmtilegur tími fyrir flesta landsmenn, ekki síst síðasta vikan fyrir jólin. Þá er tilvalið að láta matreiðslumeistara Sælkerabúðarinnar sjá um jólamatinn, á meðan þú slakar á og nýtur samveru og dýrindis jólamatar með fjölskyldunni og vinum. Lífið samstarf 21. desember 2023 13:33
Húmor í jólaskreytingum Brynju Myndlistarkonan Brynja Harðardóttir Tveiten er með mjög sérstakar jólaskreytingar heima hjá sér þar sem hún notar mikið gamla kassa og gamla hluti á einstaklega skemmtilegan hátt. Lífið 21. desember 2023 12:31
Ásdís Rán og Þórður halda jólin í Búlgaríu Fyrirsætan og ísdrottningin Ásdís Rán Gunnarsdóttir og kærastinn hennar Þórður Daníel Þórðarson ætla að halda jólin saman í Búlgaríu en vonast til að komast til Íslands á milli jóla og nýárs til að fagna áramótunum hér á landi. Lífið 21. desember 2023 10:52
Gluggagægir kom til byggða í nótt Gluggagægir er sjötti jólasveinninn sem kemur til byggða. Hann gægðist inn um hvern glugga til að reyna að koma auga á eitthvað sem hann gæti hnuplað. Jól 21. desember 2023 06:00
Ljósið í myrkrinu Desembermánuður er annasamur hjá mörgum og auðvelt er að hlaða á sig alls kyns verkefnum. Skoðun 20. desember 2023 20:01
Sá besti á árinu bjó til jólalag með Ladda Sundmaðurinn fjölhæfi Már Gunnarsson var í gær útnefndur íþróttamaður ársins hjá Íþróttasambandi fatlaðra. Hann sinnir jafnframt tónlistinni og gaf nýverið út jólalag sem þeir Laddi syngja saman. Sport 20. desember 2023 14:01
Töfrandi hátíðarborð um jólin Hátíðlega skreytt veisluborðið er stór hluti af jólahaldinu hjá mörgum. Þegar lagt er á borð er um að gera að prófa sig áfram og notast við skreytingar af ólíku tagi. Með því að raða ólíkum efnivið úr náttúrunni, kertum og jólaskrauti smekklega saman verður útkoman hin glæsilegasta. Jól 20. desember 2023 11:57
Hver er vinsælasta jólagjöfin? Samverustund hefur verið valin jólagjöf ársins samkvæmt könnun Rannsóknarseturs verslunarinnar. Valið snýst því ekki lengur um mjúka eða harða pakka, heldur er það samvera með fólkinu okkar sem hefur vinningin. Lífið samstarf 20. desember 2023 11:48
Ballarbrotum fjölgar um jólin Ballarbrotum fjölgar yfir jólahátíðina, ef marka má niðurstöður vísindamanna í Þýskalandi sem hafa rannsakað tíðni meiðslanna eftir árstímum. Erlent 20. desember 2023 11:01