Yana mótmælir ein í rigningunni innrás Rússa í heimalandið Á sama tíma og nokkrir þingmenn koma í veg fyrir áframhaldandi undanþágur á tollum á innfluttum kjúklingi frá Úkraínu, stendur Yana Hryshko frá Kyiv héraði alein í rigningunni og mótmælir fyrir utan ræðisskrifstofu Rússlands við Túngötu. Hún óskar þess heitast að stríðinu ljúki og hún komist aftur heim. Innlent 8. júní 2023 20:31
Lítill minnihluti á Alþingi stöðvar stuðning við tollfrelsi Úkraínu Alþingi er á lokametrunum fyrir sumarleyfi þingmanna og voru fjölmörg frumvörp ýmist afgreidd sem lög eða til lokaumræðu á þinginu í dag. Nokkur tími fór hins vegar einnig í umræður um að Alþingi mun ekki framlengja undanþágu á tollum á innfluttum landbúnaðarafurðum frá Úkraínu á þessu þingi vegna andstöðu nokkurra þingmanna. Innlent 8. júní 2023 19:31
Fönguðu eyðilegginguna í Kherson úr lofti Drónamyndir frá Kherson-héraði í Úkraínu, bæði vestan og austan megin við Dnipróá, sýna gífurlega eyðileggingu vegna flóða. Vatn hefur streymt yfir fjölmargar byggðir og valdið gífurlegri eyðileggingu. Erlent 8. júní 2023 14:45
Utanríkisráðherra segir lítinn sóma af niðurstöðu Alþingis Utanríkisráðherra segir ekki mikinn sóma af því að Alþingi hafi ekki framlengt niðurfellingu tolla á innflutningi landbúnaðarvöru frá Úkraínu. Þetta hafi verið mikilvægur stuðningur við Úkraínu sem reki efnahagskerfi sitt núna á þrjátíu prósenta afköstum. Innlent 8. júní 2023 12:18
Hlébarðarnir sjást í fyrsta sinn á víglínunum Úkraínumenn eru sagðir hafa gert umfangsmiklar árásir gegn Rússum í Sapórisjía-héraði en þýskir skriðdrekar af gerðinni Leopard hafa sést á víglínunum í fyrsta sinn. Erlent 8. júní 2023 10:43
600 ferkílómetrar undir vatni og jarðsprengjur á víð og dreif Um 600 ferkílómetrar lands eru nú undir vatni eftir að Kakhova-stíflan í Dnipro-ánni í Úkraínu brast í fyrradag. Þetta segir héraðsstjórinn í Kherson en 68 prósent tjónsins er þó á austurbakkanum, landi sem Rússar hafa stjórn á. Erlent 8. júní 2023 07:17
Djokovic nálgast titlametið í París Opna franska meistaramótið í tennis stendur nú yfir á Roland-Garros leikvanginum í París. Í dag ræðst hvaða leikmenn tryggja sér sæti í undanúrslitum mótsins en úrslitin fara fram um helgina. Vinni Djokovic hinn unga Alcaraz kemst hann skrefi nær titlametinu. Sport 7. júní 2023 18:20
„Ég neita að trúa að Alþingi Íslendinga ætli að vera svona smátt“ Harðar umræður urðu á Alþingi í dag vegna erindis er varðar undanþágu vegna tollfrjáls innflutnings frá Úkraínu. Þingmenn Viðreisnar flykktust í pontu til að gagnrýna máttleysi ríkisstjórnarinnar gagnvart hagsmunaöflum íslensks landbúnaðar. Innlent 7. júní 2023 14:03
Ólafur segir vinnubrögð íslenskra stjórnvalda til háborinnar skammar Svo virðist sem skyndileg þinglok hafi komið fjölmörgum í opna skjöldu. Fjöldi mála er óafgreiddur, eitt þeirra er tollfrelsi fyrir úkraínskar vörur sem virðist ætla að brenna inni vegna hastarlegra þinglokanna. Innlent 7. júní 2023 11:42
Stór sprenging inni í stíflunni líklegasta orsökin Líklegasta ástæða þess að Kakhovka-stíflan í Kherson-héraði í Úkraínu brast, er að miklu magni sprengiefna hafi verið komið fyrir inni í stíflunni og hún sprengd. Aðrar ástæður eins og eldflaugaárás og mikið álag eru mögulegar en mun ólíklegri. Erlent 7. júní 2023 11:30
Eyðilegging stíflunnar hefur alvarleg áhrif á líf fjölda fólks til framtíðar Alls hafa um fjörutíu þúsund manns þurft að yfirgefa heimili sín eftir að Kakhovka stíflan í Úkraínu brast í fyrrinótt. Erlent 7. júní 2023 07:48
Árás á stífluna „umhverfislegt gjöreyðingarvopn“ Úkraínuforseti hefur sakað Rússa um að hafa sprengt stíflu í Kherson-héraði af ásettu ráði og segir þá hafa beitt „umhverfislegu gjöreyðingarvopni“ og framið stríðsglæp. Erlent 6. júní 2023 23:05
Vissu af áætlun Úkraínumanna um árás á Nord Stream Yfirvöld í Bandaríkjunum fengu í júní í fyrra upplýsingar frá evrópskri leyniþjónustu um að Úkraínumenn hefðu skipulagt árás á Nord Stream gasleiðslurnar. Þremur mánuðum síðar, eða þann 22. september, sprungu sprengjur við Nord Stream 1 og 2 en skemmdarverkinu hefur verið lýst sem bíræfni árás á orkuinnviði Evrópu. Erlent 6. júní 2023 16:48
Erum við svona smá? Úkraínska þjóðin berst fyrir lífi sínu og tilverurétti. Daglega berast fréttir af hörðum bardögum og mannfalli í stríðinu við Rússland, árásum Rússa á íbúðahverfi í borgum landsins og nú síðast af því að þúsundir manna hafi þurft að flýja heimili sín eftir að Rússar sprengdu stíflu í austurhluta landsins. Skoðun 6. júní 2023 15:00
Hryllilegt að sjá afleiðingarnar sem birtast strax Íbúasvæði í Kherson í Úkraínu eru á floti eftir að stór stífla brast og þúsundir þurfa að flýja heimili sín. Utanríkisráðherra segir hryllilegar afleiðingar þegar komnar í ljós og ljóst að Rússland Pútíns muni ekki stoppa fyrr en það verður stöðvað. Innlent 6. júní 2023 12:16
Yfirborð uppistöðulónsins var í methæðum Raforkuverið við Nova Kakhovka-stíflunnar í Kherson er ónýtt eins og stíflan og er útlit fyrir að sprenging hafi valdið skemmdunum. Íbúar segjast hafa heyrt sprengingar en enn hefur ekki verið staðfest hvað olli því að stíflan brast. Yfirborð uppistöðulónsins hafði hækkað mjög að undanförnu og stóð í methæðum. Erlent 6. júní 2023 10:46
Unnið að rýmingu og Selenskí boðar til neyðarfundar Vólódímír Selenskí Úkraínuforseti hefur boðað til neyðarfundar vegna eyðileggingar Nova Kakhovka-stíflunnar í Kherson. Unnið er að rýmingu vegna flóðahættu. Úkraínuher segir Rússa hafa sprengt stífluna en leppstjórn þeirra á svæðinu segir um hryðjuverk að ræða. Erlent 6. júní 2023 06:19
Er gagnsókn Úkraínumanna hafin? Úkraínumenn eru byrjaðir að gera árásir í suðausturhluta Úkraínu. Fregnir hafa borist af tiltölulega smáum árásum í Dónetsk- og Sapórisjía-héruðum og eru Úkraínumenn sagðir hafa náð einhverjum árangri. Erfitt er þó að sannreyna fregnirnar að svo stöddu. Erlent 5. júní 2023 14:54
Málaliðar Wagner handsömuðu og börðu rússneskan ofursta Málaliðar Wagner Group lentu á dögunum í skotbardaga við rússneska hermenn nærri Bakhmut. Bardaginn endaði með því að málaliðarnir handsömuðu rússneskan undirofursta, börðu hann og þvinguðu hann til að játa að hafa skipað mönnum sínum að skjóta á málaliðana. Erlent 5. júní 2023 12:45
Rússar segjast hafa fellt 250 úkraínska hermenn Rússar segjast hafa hrundið stórri gagnárás úkraínska hersins í Donetsk í nótt og fullyrða að 250 úkraínskir hermenn liggi í valnum og að fjölmörg brynvarin tæki hafi verið eyðilögð. Erlent 5. júní 2023 07:37
Úkraínumenn þjarma að Wagner-lausum Rússum í Bakhmut Úkraínski herinn þjarmar að Rússum við og í kringum borgina Bakhmut. Rússar lýstu sig sigurvegara í baráttunni um Bakhmut í síðasta mánuði eftir ein blóðugust átökin frá upphafi innrásarinnar. Þrýstingur Úkraínumanna er hluti af gagnsókn sem er að taka á sig mynd. Erlent 4. júní 2023 08:09
Úkraínumenn tilbúnir til að hefja gagnsóknina Vólódímír Selenskí, forseti Úkraínu, segir Úkraínumenn tilbúna til gagnsóknar gegn Rússum. Hann segir að sóknin verði erfið og kostnaðarsöm en hann hafi trú á því að hún muni heppnast, þó hún gæti tekið langan tíma. Erlent 3. júní 2023 09:22
Hulunni svipt af Rússlandi Undanfarið hálft annað ár hefur umræðuhefðin um Rússland tekið nokkrum breytingum. Í rúma þrjá áratugi hafði lítið borið á gagnrýni vestrænna stjórnmálamanna á Rússland. Sömuleiðis hafði dregið úr viðleitni fræðimanna til að fjalla um Sovétríkin og Rússland á gagnrýninn hátt. Skoðun 2. júní 2023 11:00
Umfangsmikil eldflaugaárás á Kænugarð í morgun Íbúar um gervalla Úkraínu vöknuðu upp við loftvarnaflautur snemma í morgun vegna umfangsmikillar árásar Rússa og fólki sagt að leita skjóls. Erlent 2. júní 2023 06:35
Úkraínuforseti segir stund ákvarðana runna upp Forseti Úkraínu segir Evrópuríki sem eiga landamæri að Rússlandi einungis hafa um tvennt að velja; opið stríð og hægfara hernám Rússa eða aðild að NATO og Evrópusambandinu. Nú væri stund ákvarðana varðandi aðild landsins að þessum samtökum runnin upp. Forsætisráðherra segir mikinn vilja meðal NATO ríkja að leiðtogafundur þess marki tímamót varðandi Úkraínu. Erlent 1. júní 2023 19:20
Ætla að takmarka aðgang Rússa að færeyskum höfnum Færeyska heimastjórnin ætlar að takmarka aðgang rússneskra skipa að höfnum á eyjunum og banna viðgerðir á þeim nema í neyðartilfellum. Þá ætlar hún að ákveða það fyrir haustið hvort að umdeildur fiskveiðisamningur við Rússa verði framlengdur. Erlent 1. júní 2023 14:04
Táknrænt stefnumót Evrópuleiðtoga á stríðstímum Forseti Úkraínu sagði við komuna á fund Evrópuleiðtoga í Moldóvu í dag að mikilvægt væri að Úkraína fengi aðild bæði að Evrópusambandinu og Atlantshafsbandalaginu. Katrín Jakobsdóttir forsætisráðherra segir fundinn mikilvægan vettvang á átakatímum. Innlent 1. júní 2023 12:11
Ellefu ára stúlka í hópi látinna í eldflaugaárás á Kænugarð Ellefu ára stúlka, 34 ára móðir hennar og önnur 33 ára kona létust í eldflaugaárásum Rússa í Kænugarð snemma í morgun. Auk þess særðust tólf manns í árásunum. Erlent 1. júní 2023 07:37
Skipa Rússum að loka fjórum af fimm ræðismannsskrifstofum Yfirvöld í Þýskalandi hafa gert Rússum að loka fjórum af fimm ræðismannsskrifstofum þeirra þar í landi. Það er í kjölfar þess að ráðamenn í Rússlandi settu takmark á fjölda starfsmanna sendiráðs og ræðismannsskrifstofa Þjóðverja í Rússlandi. Erlent 31. maí 2023 20:27
Segir árásina á Moskvu vera hryðjuverk Vladimír Pútín, forseti Rússlands, segir að drónaárás á Mosvku í morgun sé hryðjuverk. Árásinni hafi verið ætlað að hræða Rússa og ögra Rússum til að bregðast við með sambærilegum hætti. Erlent 30. maí 2023 18:51