Gordon Murray kynnir T.33 léttan ofurbíl til hversdagsnota T.33 er nýjasti ofurbíllinn úr smiðju hins goðsagnakennda Gordon Murray. Hann er knúinn áfram með 607 hestafla V12 sem snýst upp í 11.100 snúninga. Verðmiðinn er um 244 milljónir króna. Bílar 28. janúar 2022 07:01
Stóra bílasalan braut lög Fullyrðingar Stóru bílasölunnar ehf. um að boðið væri upp á allt að 100% lán fyrir kaupum á smájeppa voru villandi, að mati Neytendastofu og hið sama á við óskýran verðsamanburð við bíla hjá samkeppnisaðilum. Viðskipti innlent 26. janúar 2022 09:06
Eintak af Tesla Cybertruck hefur verið smíðað Tesla hefur smíðað Cybertruck og allar efasemdaraddir þurfa því að draga í land um það að Cybertruck yrði aldrei smíðaður. Myndband af bílnum var birt á Youtube-rás Cybertruck eigendaklúbbsins. Bílar 26. janúar 2022 07:01
MG þrefaldaði söluna í Evrópu Mikill vöxtur var í starfsemi sölu- og markaðsmála bílaframleiðandans MG í Evrópu á síðasta ári, þar sem þreföldun varð í bíla miðað við 2020 og 67% fjölgun á sölu- og þjónustuumboðum. Sambærilegur vöxtur var í sölu MG hér á landi, þar sem 200 bílar voru nýskráðir samanborið við 62 árið 2020. Bílar 24. janúar 2022 07:00
Sjóvá riftir samningi við FÍB Samkvæmt frétt á heimasíðu Félags íslenskra bifreiðaeigenda (FÍB) frá því á föstudag hefur tryggingafélagið Sjóvá rift samningi sínum við FÍB. Í fréttinni er talað um að riftunin komi einungis „nokkrum vikum eftir að FÍB gagnrýndi tryggingafélagið fyrir milljarða króna greiðslur til hluthafa.“ Bílar 23. janúar 2022 07:00
Hafði aftur betur gegn Bílabúð Benna vegna illa lyktandi Porsche Landsréttur hefur staðfest niðurstöðu Héraðsdóms Reykjavíkur þess efnis að Bílabúð Benna þurfi að greiða Ólöfu Finnsdóttur, fyrrverandi framkvæmdastjóra Dómstólasýslunnar, fjórtán milljónir vegna gallaðs Porsche-jeppa. Neytendur 22. janúar 2022 08:28
Vinsældir Kia aukast enn í Evrópu Kia náði hæstu markaðshlutdeild sinni í Evrópu á síðasta ári eða 4,3%. Kia bætti þar með enn árangur sinn á evrópskum mörkuðum frá árinu áður en bílaframleiðandinn var með 3,5% markaðshlutdeild í Evrópu árið 2020. Kia seldi alls 502.677 nýja bíla í Evrópu á síðasta ári sem er aukning um 20,6% frá árinu áður. Bílar 21. janúar 2022 07:00
BMW hættir að framleiða V12 vélar Síðasta V12 vélin verður sett í M760i sem eingöngu verður fáanlegur í Bandaríkjunum. Framleiðslu bílsins verður hætt seinna á árinu. Þar með lýkur sögu nýrra 12 sílendra BMW véla. Bílar 19. janúar 2022 07:01
Valentino Rossi ætlar að keppa á fjórum hjólum MotoGP goðsögnin Valentino Rossi hætti keppni í mótorhjólakappakstri í lok síðasta árs. Á glæstum mótorhjólaferli varð Rossi sjöfaldur heimsmeistari, vann 89 keppnir og var 199 sinnum á verðlaunapalli. Hann hefur nú skráð sig í sportbílakappakstursmótaröð með WRT liðinu á þessu ári í GT3 flokki. Bílar 17. janúar 2022 07:01
Volkswagen íhugar skráningu rafhlöðueiningar á markað Volkswagen ætlar að koma allri rafhlöðuframleiðslu sinni í eitt evrópskt rafhlöðufyrirtæki. Því verður ætlað að framleiða rafhlöður í sex verksmiðjum fyrir lok 2030. Þar sem útkoman eru um 240GWh á ári. Stjórnarmaður félagsins hefur þegar sagt að hugsanlega verði utanaðkomandi gert kleift að fjárfesta í félaginu. Bílar 16. janúar 2022 07:01
BMW segir of snemmt að veðja á innanhúss rafhlöðuframleiðslu BMW hefur hingað til ekki viljað fjárfesta í eigin rafhlöðuframleiðslu. Fyrirtækið hefur sagt að það sé of snemmt að stækka innanhúss rafhlöðuframleiðslu sína þar til tæknin er orðin þróaðri. Bílar 14. janúar 2022 07:01
Rafbíllinn Renault Megane E-Tech með allt að 470 km drægni Ný kynslóð af Renault Megane er væntanleg til BL í júní og eru forpantanir þegar hafnar. Ekki aðeins hefur Megane verið endurhannaður frá grunni að utan sem innan heldur kemur Megane í fyrsta sinn í alrafmagnaðri útfærslu sem ber heitið Megane E-Tech. Bíllinn hefur þegar verið kynntur á sýningum víða á meginlandinu og sló strax í gegn hjá til að mynda Top Gear í Bretlandi sem útnefndi hann fjölskyldubíl ársins 2022. Bílar 12. janúar 2022 07:00
Myndband: Volvo ætlar að hefja sölu sjálfkeyrslukerfis á árinu Volvo hefur tilkynnt að fyrirtækið hyggist í samstarfi við Luminar Technologies hefja sölu sjálfkeyrslukerfis í bílum sínum á árinu. Viðskiptavinir í Kaliforníu munu vera þeir fyrstu til að fá að prófa kerfið, sem heitir Ride Pilot. Notkun kerfisins verður háð áskrift af því. Bílar 10. janúar 2022 07:00
MG Marvel R - MG færir sig inn á lúxusmarkað MG Marvel R er nýlegur fimm manna rafjepplingur frá MG sem hefur útlitið með sér. MG hefur undanfarið komið af krafti inn í rafbílasenuna með MG ZS sem hefur verið einn hagkvæmasti kosturinn fyrir þau sem vilja hreinan rafjeppling. Bílar 9. janúar 2022 07:00
Toyota kynnir GR86 með FasterClass herferðinni Toyota hefur kynnt alheims auglýsingaherferð fyrir GR86 sport bílinn. Toyota vill með herferðinni halda áfram metsölu sinni. Toyota varð í fyrra fyrsti framleiðandinn til að selja meira en General Motors í Bandaríkjunum í næstum heila öld. Markmiðið er að halda gjöfinni í gólfinu og setja af stað FasterClass herferðina sem hófst á þriðjudag. Bílar 7. janúar 2022 07:00
Hugmyndabíllinn Mercedes-Benz EQXX kynntur til leiks Bíllinn á að verða einn sá skilvirkasti og spilar þar stærstan þátt loftflæðishönnun bílsins. Hann státar af rétt tæplega 1000 km drægni. Bílar 5. janúar 2022 07:01
Rikka er alsæl sem bifreiðasmiður og bílamálari Það færist sífellt í vöxt að ungar konur læri að verða bílamálarar eða bílasmiðir. Gott dæmi um það er Rikka Sigríksdóttir, 21 árs, sem var að útskrifast með hæstu einkunn, sem bifreiðasmiður. Áður hafði hún lært bílamálun þar sem hún fékk líka hæstu einkunn. Innlent 4. janúar 2022 21:46
Sprenging í bílaþvotti eftir flugelda Íslendingar flykkjast þessa dagana í þúsundatali með bíla sína á bílaþvottastöðvar til að losna við drulluna af bílum sínum. Hún hefur verið sérstaklega mikil vegna veðurskilyrða eftir flugeldasprengingarnar um áramótin. Innlent 4. janúar 2022 21:01
Toyota fallið úr toppsætinu og rafbílar sækja á 1.826 Kia fólksbílar voru nýskráðir hérlendis á seinasta ári og var merkið það söluhæsta í fyrsta skipti með 14,3% hlutdeild af sölu nýrra fólksbíla. Næst á eftir kom Toyota með 1.790 nýskráða bíla og 14% hlutdeild en japanski framleiðandinn hefur setið efst á lista yfir vinsælustu fólksbíla Íslendinga samfleytt í um þrjá áratugi. Viðskipti innlent 4. janúar 2022 10:11
Toyota seldi flest ökutæki en Kia seldi flesta fólksbíla í fyrra Flest nýskráð ökutæki á síðasta ári voru af Toyota gerð, eða 2145. Kia var í öðru sæti með 1983 nýskráð ökutæki ig Hyundai í þriðja sæti með 1603 ökutæki nýskráð á árinu, samkvæmt tölum á vef Samgöngustofu. Toyota hefur verið á toppnum í 32 ár samkvæmt tilkynningu frá Toyota umboðinu. Kia seldi hins vegar flest ökutæki í flokki fólksbíla eða 1980 á meðan Toyota er í örðu sæti í flokki fólksbíla með 1890 selda á árinu. Bílar 3. janúar 2022 07:01
Fólk eigi ekki að leggja á gangstéttum þótt bíllinn passi ekki í innkeyrsluna Breiðhyltingurinn Dagur Bollason segir það óþarflega algengt að ökumenn í hverfinu leggi uppi á gangstéttum, þá sérstaklega þannig að bílar standi hálfir út úr innkeyrslum og séu þannig fyrir vegfarendum. Innlent 2. janúar 2022 18:24
Lögreglan í New York fær heimild til að panta Mustang-Mach-E og Tesla Model 3 New York borg hefur ráðist í metnaðarfulla aðgerð sem snýst um að rafvæða lögreglubílaflota borgarinnar. Borgarstjórn New York borgar hefur nú veitt heimild fyrir kaupum á 184 Ford Mustang Mach-E rafbílum. Bílar 31. desember 2021 07:02
Tesla innkallar hálfa milljón bíla í Bandaríkjunum Bílaframleiðandinn Tesla hefur innkallað um 475 þúsund bíla í Bandaríkjunum vegna galla á afturmyndavél og farangursgeymslu sem gæti leitt til slysa. Um er að ræða allt að 356.309 bíla af gerðinni Model 3 sem seldir voru í Bandaríkjunum milli 2017 og 2020 og allt að 119.009 Model S bíla sem seldir voru eftir 2014. Bílar 30. desember 2021 14:00
Myndband: Amazon Rivian bílar farnir að sjást á götum úti Amazon pantaði 100.000 sendibíla frá Rivian sem nú eru farnir að koma á göturnar. Markmiðið er að rafvæða sendibílaflotaflota Amazon og að fyrirtækið verði kolefnishlutlaut fyrir árið 2040. Bílar 29. desember 2021 07:01
Ráðherra skoði hvort framlengja eigi ívilnanir vegna tengiltvinnbíla Meirihluti efnahags- og viðskiptanefndar Alþingis beinir því til fjármála- og efnahagsráðherra að taka til skoðunar hvort tilefni sé til að framlengja ívilnanir vegna innflutnings tengitvinnbifreiða. Viðskipti innlent 28. desember 2021 15:56
Leggja til að Allir vinna verði framlengt að hluta til Meirihluta efnahags- og viðskiptanefndar Alþingis hefur lagt til að Allir vinna átakið verði framlengt út ágústmánuð næsta árs, með ákveðnum breytingum þó. Innlent 27. desember 2021 15:50
13 nýjar rafhlöðuverksmiðjur í Bandaríkjunum árin fyrir lok árs 2025 Ætla má að þriðji áratugur 20. aldar muni einkennast af rafhlöðuæði. Til stendur að reisa 13 nýjar rafhlöðuverksmiðjur í Bandaríkjunum fyrir árslok 2025. Hingað til er Gígaverksmiðja Tesla í Nevada sú stærsta. Mikil eftirspurn er eftir rafhlöðum í rafbíla. Áætlað er að framleiðslan muni tífaldast á næstu fimm árum. Bílar 27. desember 2021 07:00
Afnám ívilnuna tengiltvinnbíla er skref afturábak og slæm áhrif til framtíðar. Í ítarlegum svörum fjármála – og efnahagsráðuneytisins við umsögnum um virðisaukaskatt er settar fram röksemdafærslur sem Bílgreinasambandið gerir athugasemdir við og er margan hátt mikil einföldun og áhrif afnáms ívilnana á þessum tímapunkti er verulega vanmetnar af stjórnvöldum. Skoðun 26. desember 2021 16:30
Engar frekari ívilnanir fyrir tengiltvinnbíla Samkvæmt minnisblaði frá Fjármála- og efnahagsráðuneytinu munu ívilnanir fyrir tengiltvinnbíla senn renna sitt skeið. Skattaívilnanir vegna vistvænna bíla hafa verið í gildi síðan 2011. Bílar 24. desember 2021 07:00
Bíllinn líka í jólabaðið: „Þetta er alltaf svona fyrir jólin“ Langar biðraðir hafa verið í bílaþvottastöðvar Löðurs síðustu daga en fyrirtækið rekur alls fimmtán bílaþvottastöðvar hér á landi. Framkvæmdastjóri fyrirtækisins segir síðustu daga fyrir jól vera allra stærstu daga ársins í bílaþvotti, að frátöldum nýársdag. Viðskipti innlent 23. desember 2021 19:31