Innlent

Hver mun leiða ASÍ?

Tómas Arnar Þorláksson og Bjarki Sigurðsson skrifa
Atkvæðagreiðsla fór fram upp úr tíu og er nú verið að telja atkvæðin.
Atkvæðagreiðsla fór fram upp úr tíu og er nú verið að telja atkvæðin. vísir/anton brink

Fulltrúar á 47. þingi Alþýðusambands Íslands greiða nú atkvæði um hver mun leiða sambandið næstu tvö árin sem forseti ASÍ. Niðurstöður munu liggja fyrir von bráðar.

Bjarki Sigurðsson, fréttamaður okkar, er á Hilton Reykjavík þar sem þingið fer fram og mun freista þess að ná viðtali við nýjan forseta þegar niðurstaða liggur fyrir. Fylgist með í beinni í spilaranum hér að neðan:

Í framboði til forseta eru þeir Arnaldur Grétarsson, mannfræðingur og samfélagsmiðlafræðingur sem hefur starfað á skrifstofu ASÍ, og Georg Páll Skúlason, formaður Grafíu. 




Fleiri fréttir

Sjá meira


×