„Með BMW áhuga eiginlega síðan ég kom úr legi móður minnar“ Máni Snær Þorláksson skrifar 4. apríl 2023 07:00 James Einar er mikill BMW aðdáandi. Vísir/James Bílaþættirnir Tork gaur halda áfram á Vísi í dag. Í fjórða þætti annarrar þáttaraðar er BMW i4 eDrive 40 tekinn fyrir. Um er að ræða afturhjóladrifinn BMW bíl sem er einungis knúinn af rafmagni.
James Einar Becker er stjórnandi þáttanna, Tork gaurinn sjálfur. Hann er mikill BMW aðdáandi, raunar svo mikill að hann segir áhugann hafa kviknað um leið og hann fæddist. „Ég hef verið brennimerktur með BMW áhuga eiginlega síðan ég kom úr legi móður minnar,“ segir hann. „Viðskiptavinir og aðdáendur BMW er mjög dyggur hópur. Þess vegna getur verið vandasamt fyrir bílaframleiðendur eins og BMW að framleiða rafmagnsbíla sem kitla sömu taugar og bensínbílarnir hafa gert fyrir þennan aðdáendahóp.“ James Einar segir að þessi bíll þurfi því að sanna sig fyrir umræddum aðdáendahóp. Hægt er að sjá þáttinn í heild sinni í spilaranum hér fyrir neðan. Klippa: Tork gaur - BMW i4 eDrive 40 Á meðal þess sem James Einar talar um í þættinum er grillið á bílnum en það svipar til þeirra sem hafa verið á BMW-bílum síðustu ára. Hann segist fíla grillið og biðlar til fólks að hætta að væla að það sé „ekki eins og í gamla daga.“ „Nenniði svo að gera mér greiða og hætta að nöldra yfir grillinu á þessum nýju BMW-um,“ segir James Einar. „Get over it. Hlutirnir, þeir þróast. Hlutirnir verða oft betri. Vissulega tekur það stundum tíma að venjast því en fyrir mitt leyti þá er þetta grill búið að venjast virkilega vel. Mér finnst það nett.“
Tork gaur Mest lesið Kosningaspá Vísis: Líkur Alberts aukast en Bjarnveigar dvína Innlent Ítreka yfirráð yfir Falklandseyjum eftir hótun Bandaríkjamanna Erlent Handtekinn eftir að hafa valdið umferðarslysi Innlent Inni og úti: „Kannanir eru nú bara kannanir“ Innlent Fjölgar í hópi sakborninga og ráðist í húsleit Innlent Netanjahú greindist með krabbamein Erlent Gerðu árás á mörgum stöðum á sama tíma Erlent Slíkur fjöldi ekki sést síðustu fimmtíu ár Innlent Hlýtt í dag en kuldi í kortunum Veður Gasabúar kjósa í fyrsta sinn í tuttugu ár Erlent