Bandaríkin

Bandaríkin

Höfuðborg: Washington DC. Mannfjöldi: 347,2 milljónir (2025). Flatarmál: 9.833.517 ferkílómetrar.


Fréttamynd

Full­trúar Trump á fund Pútíns og svo Selenskís

Steve Witkoff, sérstakur erindreki Hvíta hússins, og Jared Kushner, sérstakur sendifulltrúi og tengdasonur Bandaríkjaforseta, munu heimsækja Rússland og Úkraínu um helgina. Bandaríkjaforseti segir þá koma með tillögu sem á að binda enda á stríðið.

Erlent

Fréttir í tímaröð

Fréttamynd

Réttar­höldunum yfir Clancy lauk án niður­stöðu

Dómari hefur ómerkt réttarhöldin yfir Lindsay Clancy eftir að kviðdómi tókst ekki að komast að sameiginlegri niðurstöðu eftir ítrekaðar tilraunir. Hún er sökuð um að myrða þrjú ung börn sín. Ógilding málsins tafðist í dag eftir að dómari heimilaði verjanda Clancy að áfrýja niðurstöðunni.

Erlent
Fréttamynd

Opnar sig um bótoxnotkunina

Leikkonan Jennifer Lawrence gengst við notkun fegrunarlyfsins bótox eftir miklar vangaveltur fólks undanfarin ár um að hún hafi lagst undir skurðhnífinn. Hún hafi líka viljað láta fjarlægja fitu úr kinnum sínum en gæti það ekki því umbreytingin yrði of augljós.

Lífið
Fréttamynd

Carla Jeffery látin 33 ára að aldri

Leikkona Carla Jeffery er látin, 33 ára að aldri. Jeffery byrjaði tólf ára gömul að leika í kvikmyndum og sjónvarpi og var þekktust fyrir leik sinn í þáttunum Curb Your Enthusiasm, Disney-myndinni Zombies og framhaldsmyndum hennar. 

Bíó og sjónvarp
Fréttamynd

Gloria Steinem er látin

Gloria Steinem, blaðamaður, rithöfundur og baráttukona sem ruddi brautina í annarri bylgju femínismans, er látin 92 ára að aldri. Steinem stofnaði femíniska tímaritið Ms. Magazine árið 1971 og varð eitt helsta andlit femínisma í Bandaríkjunum á áttunda, níunda og tíunda áratug síðustu aldar.

Lífið
Fréttamynd

Kvið­dóm­endur fá síðasta séns

Kviðdómendur í málinu gegn Lindsay Clancy hafa reynt að komast að sameiginlegri niðurstöðu í máli hennar í fimm daga. Það hefur ekki borið árangur en búist er við því að í dag fái þeir sinn síðasta séns til að komast að niðurstöðu. Annars verður málinu gegn konunni sem kyrkti þrjú ung börn sín vísað frá dómi.

Erlent
Fréttamynd

Trump má enn ekki meina börnum um ríkis­borgara­rétt

Alríkisdómari felldi í gær úr gildi forsetatilskipun Donalds Trump sem ætlað var að binda enda á það að langflest börn sem fæðast í Bandaríkjunum verða sjálfkrafa bandarískir ríkisborgarar. Skipunin var önnur tilraun forsetans til að breyta lögunum sem sett voru árið 1868 með viðbótarákvæði við stjórnarskrá Bandaríkjanna.

Erlent
Fréttamynd

Spyr hvort breyta ætti heitinu í Trumpsund

Donald Trump Bandaríkjaforseti spyr í færslu á samfélagsmiðlum hvort hann ætti að breyta heiti Hormússunds í Trumpsund. Nokkrir dagar eru síðan hann tilkynnti um breytingu á Ontaríó-vatni.

Erlent
Fréttamynd

Flúði hótel­her­bergið vegna brunans og gleymdi tönnunum

Bruce Allen Ednie frá Connecticut í Bandaríkunum var gestur á hótel Skjaldbreið í nótt þegar eldur kom upp. Alls voru um 60 gestir á hótelinu þegar kviknaði í um klukkan hálf eitt í nótt. Tveir gestir voru fluttir á slysadeild. Einn var handtekinn stuttu eftir að aðgerðir hófust. Slökkvistarfi lauk um klukkan fjögur í nótt.

Innlent
Fréttamynd

Myrt í tilefnislausri stunguárás á Times Square

Aðstoðarforstjóri bandaríska bankans Bank of America var myrt í stunguárás á Times Square torgi í New York borg í Bandaríkjunum í gær. Árásin átti sér stað um miðjan dag og virðist tilefnislaus að sögn lögregluyfirvalda.

Erlent
Fréttamynd

Neitar að hafa myrt Charlie Kirk

Tyler Robinson, 23 ára karlmaður frá Utah, neitar sök í ákæru á morðinu á hægrisinnaða áhrifavaldinum Charlie Kirk. Dómari hefur úrskurðað að saksóknarar megi krefjast dauðarefsingar í réttarhöldunum.

Erlent
Fréttamynd

Á­tökin við Persa­flóa stig­magnast á ný

Íranir skutu í nótt flugskeytum og drónum að bandarískum herstöðvum í Jórdaníu, Kúveit, Íraq og Barein. Voru árásirnar gerðar í kjölfar þess að Bandaríkjamenn hófu árásir á Írani að nýju í gær.

Erlent
Fréttamynd

Banda­ríkja­her hefur á­rásir á Íran á ný

Bandaríkjaher hóf árásir á skotmörk íranska byltingarvarðarins í Íran í dag. Árásirnar eru svar Bandaríkjahers við tilraunum byltingarvarðarins til árása á kaupskip á Hormússundi að sögn hersins. 

Erlent
Fréttamynd

Ná ekki saman um sak­hæfi Clancy

Kviðdómendur í máli Lindsay Clancy sögðu dómara í dag að þeir gætu ekki komist að einróma niðurstöðu um það hvort hún sé sakhæf eða ekki fyrir að myrða þrjú ung börn sín. Dómarinn bað kviðdómendur um að reyna aftur en þeir hafa reynt að komast að niðurstöðu í fjóra daga.

Erlent
Fréttamynd

Apple fær nýjan for­stjóra

John Ternus er nýr forstjóri bandaríska tæknirisans Apple. Hann tók við starfinu af Tim Cook sem leiddi gegndarlausan vöxt fyrirtækisins í krafti vinsælda snjallsíma þess.

Viðskipti erlent
Fréttamynd

Miley losar sig við eftir­nafnið

Poppstjarnan Miley Cyrus stendur á tímamótum fyrir útgáfu tíundu plötu sinnar. Hún virðist hafa ákveðið að losa sig við eftirnafn sitt og ætlar greinilega einungis að nota listamannsnafnið Miley héðan af. 

Tónlist
Fréttamynd

Glæpa­foringi dæmdur fyrir morðið á Tu­pac

Fyrrum glæpaforinginn Duane „Keffe D“ Davis var í nótt fundinn sekur um að hafa skipulagt morðið á rapparanum Tupac Shakur sem var myrtur árið 1996. Málið hefur verið eitt mest umtalaðasta morðmál Bandaríkjanna síðustu þrjátíu árin.

Erlent
Fréttamynd

Segir af sér eftir á­rekstra við Hegseth

Daniel P. Driscoll, hermálaráðherra Bandaríkjanna, hefur sagt af sér í kjölfar árekstra við Pete Hegseth varnarmálaráðherra sem hefur látið reka þaulreynda leiðtoga úr Bandaríkjaher síðustu mánuði.

Erlent