Varðist árás hákarls Brimbrettamanni í Ástralíu tókst í dag að verjast árás tveggja metra hákarls með réðst á hann undan Bronte-strönd í Sydney. Maðurinn mun hafa stokkið af brimbrettinu sínu þegar hákarlinn réðst á hann og tókst að halda sig frá honum með brettinu, en hákarlinn beit tvisvar í brettið áður en hann hvarf á braut. Erlent 16. apríl 2005 00:01