„Óumflýjanlegt“ að sjúkdómar blossi aftur upp vegna aðgerða Bandaríkjanna Kjartan Kjartansson skrifar 14. ágúst 2026 14:11 Robert F. Kennedy yngri, heilbrigðisráðherra Bandaríkjanna, með Donald Trump forseta þegar þeir tilkynntu að skipta ætti MMR-bólusetningu í þrennt. Sú ákvörðun byggir á ósannindum Kennedy og fleiri um að MMR-bóluefnið sé hættulegt börnum. Vísir/EPA Heilbrigðisvísindamenn segja það „óumflýjanlegt“ að sjúkdómar sem hægt er að koma í veg fyrir með bólusetningum blossi aftur upp vegna stefnu Bandaríkjastjórnar. Hún hefur umturnað bólusetningardagskrá og ráðgjöf heilbrigðisyfirvalda að undanförnu.
Donald Trump Bandaríkjaforseti skrifaði undir tilskipun um að bóluefni gegn mislingum, hettusótt og rauðum hundum verði nú að gefa í nokkrum skömmtum í stað eins áður. Sérfræðingar í lýðheilsu og faraldsfræði benda á að tilskipunin byggi ekki neinum vísindalegum rökum. Hún muni jafnframt grafa undan trausti á bóluefnum og rugla almenning. Í grein sem þeir Tiago Correira og Martin McKee, prófessorar í lýðheilsu, og Gregg Gonsalves, prófessor í faraldfræði, skrifa í vísindairitið BMJ benda þeir á að mislingafaraldur geisi nú þegar í Bandaríkjunum, aldarfjórðungi eftir að þeim hafði verið útrýmt í landinu. Faraldurinn hófst í fyrra en staðfest tilfelli eru þegar orðin fleiri nú en allt síðasta ár. Fræðimennirnir benda jafnframt á að hlutfall barna sem eru bólusett með MMR-bóluefninu fari fallandi um allt landið. „Lærdómurinn af uppgangi mislinga í Bandaríkjunum er að það er ekki hægt að endurvekja traust eftir að smituðum tekur að fjölga og sjúkdómar sem hægt er að koma í veg fyrir láta aftur á sér kræla,“ skrifa þremenningarnir. Robert F. Kennedy yngri, heilbrigðisráðherra Bandaríkjanna, hefur um árabil verið einn háværasti andstæðingur bólusetninga í heiminum. Hann hefur dreift upplýsingafalsi um öryggi þeirra og virkni sem ekki er á rökum reist. Hann hefur í embætistíð sinni meðal annars látið rannsaka meint tengsl einhverfu og MMR-bóluefnisins sem voru hrakin fyrir margt löngu. Kennedy var á meðal þeirra sem dreiftu þeim samsæriskenningum fyrst án þess að fyrir því væri nokkur fótur.
Bandaríkin Donald Trump Bólusetningar Vísindi Heilbrigðismál Mest lesið Ákærðir fyrir að frelsissvipta mann og nauðga með röri Innlent Freyr látinn fara frá Eflingu Innlent María Sigurðardóttir er látin Innlent Fulltrúi Íslands yfirgaf ekki salinn með hinum Innlent Segir Ingu hafa vitnað í trúnaðarsamtal Innlent Meira um krabbamein hjá yngra fólki sem eigi að borða rautt kjöt mest einu sinni í viku Innlent Segir Ingu hafa eytt sér á Facebook Innlent Sárnar að vera bendlaður við líkamsárás Innlent Holmes flutt á áfangaheimili Erlent Veita ekki viðtöl eftir ríkisstjórnarfund Innlent Fleiri fréttir Sýnir Xi lýðræðisdjásn Bandaríkjanna Reyna að banna arabíska stjórnmálaflokka Þriggja turna þras í furstadæmunum Holmes flutt á áfangaheimili Banna búrkur og níkab Bygging nýs og stærra glæsihýsis Pútíns langt á veg komin Æðstu herforingjar halda skyndifund um árásir Húta Frægt fólk meðal handtekinna í New York „Höfum aldrei átt betra samband“ Tugir fulltrúa gengu út þegar Netanjahú tók til máls Aftur stríð í Eþíópíu Danir vara við aukinni ógn frá Rússum Skortir fólk til að ná tökum á stjórnlausri ebólu Telur kosningasvik ekki hafa áhrif á stjórnarmyndun Høiby skiptir um verjendur Veturinn verði Rússum erfiður Bannaði Trump að banna fjölmiðla Gervigreind hakkaði sig inn á vef stjórnvalda Hélt á myndum af skólabörnum og sakaði Bandaríkin um hryðjuverk Dreifðu óvart piparúða um þinghúsið fyrir leikmun í innflytjendaumræðu Íslensk lögregla hjálpaði við rannsókn á smygli á fólki til Bretlands Polo einn kröftugasti fellibylur sögunnar Segja aðgengi að heimili forsetans forréttindi en ekki rétt Fögnuður varð að fjöldamorði Taívan og mannréttindi rauðar línur fyrir Kínverja Bað Trump um „vetrarpakka“ Segir stóra ákvörðun framundan Xi vill að Trump sleppi takinu á Taívan Þetta er í samkomulaginu um Grænland Halda andstæðingum fjarri Grænlandi með samkomulagi Sjá meira