Viðskipti innlent

Efla ráð­gjöf við nem­endur HR um kjara­mál

Lovísa Arnardóttir skrifar
Rúnar Gauti Gunnarsson, forseti SFHR (t.h. á mynd) og Gauti Skúlason, verkefnastjóri samskipta- og markaðsmála hjá Visku (t.v. á mynd), undirrituðu samninginn í Sólinni í HR á dögunum.
Rúnar Gauti Gunnarsson, forseti SFHR (t.h. á mynd) og Gauti Skúlason, verkefnastjóri samskipta- og markaðsmála hjá Visku (t.v. á mynd), undirrituðu samninginn í Sólinni í HR á dögunum. Aðsend

Ný staða kjara- og atvinnulífsfulltrúa háskólanema verður sett á laggirnar sem hluti af samstarfssamningi sem Stúdentafélag Háskólans í Reykjavík (SFHR) og Viska hafa gert með sér. Slík þjónusta hefur ekki áður verið í boði í HR fyrir nemendur. 

Í sameiginlegri tilkynningu kemur fram að fulltrúinn mun veita þjónustu og ráðgjöf auk þess að vinna að því að efla vitund háskólanema um réttindi sín á vinnumarkaði.

„Við hjá SFHR erum ótrúlega stolt af því að geta nú boðið nemendum í HR upp á þjónustu sem tengist kjörum og réttindum á vinnumarkaði. Það hefur löngum verið talað um HR sem skóla atvinnulífsins og þess vegna teljum við stöðuna löngu tímabæra. Þetta hefur aldrei verið gert áður hér í HR og því er þetta sögulegur áfangi í þjónustu við nemendur. Við hjá SFHR erum ánægð með samstarfið við Visku og hlökkum til að þróa þetta í góðu samstarfi við Visku,“ segir Rúnar Gauti í tilkynningu.

„Staða kjara- og atvinnulífsfulltrúa háskólanema er að norrænni fyrirmynd þar sem hún hefur sannað mikilvægi sitt. Í samtölum okkar við háskólanema höfum við fundið fyrir því að eftirspurn eftir fræðslu um kjara- og réttindamál hjá ungu fólki er mikil og við viljum svara því kalli. Með því að koma stöðunni á laggirnar viljum við leggja ríka áherslu á að styðja við ungt fólk sem er að afla sér þekkingar og háskólamenntunar, enda gríðarlega mikilvægur hópur fyrir framtíðina. Þannig sýnum við í verki að háskólanemar skipta máli,” segir Gauti í tilkynningu.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×